mánudagur, 30. júní 2003
Við, gamla settið, urðum að gegna hlutverki foreldra um helgina og fara með Karl Kolbein á fótboltamót í Borgarnesi. Það var ægilega gaman en við vorum í tjaldvagni og ég held að við séum búin með þann kvótann. Það væri kannski í lagi ef það rigndi aldrei og ekkert blotnaði en því var ekki að heilsa. Það varð allt svo rennandi blautt og ógeðslegt að við nenntum ekki að bíða eftir verðlaunaafhendingu. Við hefðum þurft að sitja í blautum vagninum í 3 klukkutíma. Svo eru svona gamlir skrokkar ekki gerðir fyrir þunnar svampdýnur. Það var ansi erfitt að skríða á fætur þessa tvo morgna. En það var gaman að fylgjast með boltanum, sérstaklega hjá yngstu flokkunum. Okkar manni finnst frekar fúlt að tapa, hann á eftir að læra það aðeins betur, en hans lið vann þrjá leiki, gerði eitt jafntefli og tapaði tveimur (ef ég man þetta rétt). Hann átti góða spretti og skoraði flott mörk. Svo var honum kippt inn sem markverði í annað lið og það fannst honum upphefð. Ef hann ætlar að koma aftur næsta sumar og æfa fótbolta verðum við á hótelinu, það ræðir ekkert um annað en mér skilst að þá sé eins gott fyrir mig að fara að panta.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli