Hvar eru þessir feitu Bretar sem Fréttablaðið segir frá í dag? Ég sé Breta fyrir mér lágvaxinn, fíngerðan og grannan en ekki feitastan allra Evrópubúa. Spánverjar lifa lengst Evrópubúa þrátt fyrir að reykja mest, segja þeir. Ja, hérna hér. En það besta er að fáir Frakkar deyja úr hjartasjúkdómum og skýringin er ást þeirra á rauðvínum. Ég hef örugglega verið Frakki í fyrra lífi því ekki á íslensk kerling, fædd um miðja síðustu öld, að elska rauðvín jafnmikið og Frakki. Ég vona bara að rauðvínið geri mér jafn gott og Fransmönnum. Það slæma í fréttinni er að ungverska gúllasið hefur vond áhrif; Ungverjar eru skammlífastir allra Evrópubúa og gúllasinu kennt um. Eins og það er nú gott á vetrarkvöldi, með ungverska rauðvíninu Egri Bikavér (ég held að það þýði nautablóð) og tónlist sem skapar vampírustemmingu.
Og svo er það spurning hvort á að skrifa stemming eða stemning? Ég bara spyr eins og fávís kona.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli