Ég hef stundum kvartað við hann Simma minn yfir því að það sé bara ekki hægt að rífast við hann eða fá hann til að ræða út um ýmis málefni sem mér finnst þurfa að útkljá. Þetta getur gert mér ansi gramt í geði. Hann hefur alltaf haldi því fram að það sé betra að þegja en að segja einhverja vitleysu. Hann hrósaði líka sigri þegar hann las málháttinn sem hann fékk í páskaegginu sem ég gaf honum og hann stalst til þess að borða á skírdagskvöld. Málhátturinn hljóðar svona:
Þögn er viskutákn en mælgi heimsku mark.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli