Síður

laugardagur, 29. janúar 2011


Þegar, við hjónakornin, komum til Tenerife þann 18.jan. s.l. var komið kvöld og búið að loka matsalnum á hótelinu. Við fengum samt nesti í poka, af því við vorum með hálft fæði. Okkur langaði ekki að fara upp á herbergi og borða samlokur svona fyrsta kvöldið svo við fórum út og fengum okkur pizzu og rauðvín. Dásamlegt alveg hreint. Heitt og ljúft. Þegar við komum heim á hótel var verið að dansa. Gömul og góð lög spiluð af hljómsveit sem heitir Oldies. Við skelltum okkur í dansinn og dönsuðum af okkur rassgatið, rétt eins og á íslensku þorrablóti. Við fengum athugasemdir frá ýmsum ókunnugum þarna um kvöldið og morguninn eftir líka. Við vorum voða ánægð með þetta, héldum að við hefðum slegið í gegn á dansgólfinu.
Seinna runnu á okkur tvær grímur. Það er dansað á hverju kvöldi og við fórum að taka eftir því að fólkið á dansgólfinu dansaði mjög fágað og flott og var augljóslega
búið að fara dansskóla. Dansaði eins og það væri forritað en ekki af hjartans gleði eins og við gerum.
Við höfum látið lítið fyrir okkur fara að undanförnu. Leyfum fýldum kellum og köllum bara eiga dansgólfið.
Við skemmtum okkur samt konunglega fyrsta kvöldið.

1 ummæli:

murta sagði...

Ég man að þið olluð okkur Kalla varanlegum sálarskaða með dansi á opinberum veitingastað á Lignano! How embarrassing! Þið bara gerið þetta hvert sem þið farið. What are you like??? ;)