ÁramótÞað var ekkert öðruvísi núna frekar en endranær. Ég verð alltaf meir þegar ég horfi á ártalið hverfa á sjónvarpsskjánum og nýtt koma til baka. Eitthvað sem maður þekkir hverfur í tímans rás og kemur aldrei aftur og óráðinn tími bíður. Ný verkefni til að leysa, ný ævintýri til að lenda í.
En ég byrja árið með smá kjökri, það bara tilheyrir. Þannig hefur það allaf verið.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli