Af óþarfa kökuáti.
Ég hef þessa fínu afsökun að baka fyrir jólin. Mamma er hætt að baka en þarf samt að eiga kökur. Ég gef henni svo bara pínulítið en held hinu eftir í stömpum og boxum en þykist ekki þurfa neitt á þessu að halda. Einhverra hluta vegna lækkar í stömpunum. Ég er mest megnis ein heima þannig að það hlýtur að vera minn magi sem góssið hverfur í. Sem betur fer tók Simmi minn aðeins í brúnu lagtertuna þegar hann kom heim í jólafrí og gaf pabba sínum smávegis.
Ég er ansi drjúg við að stinga upp í mig einni og einni smáköku, jafnvel tveimur eða þremur, frá því ég baka og fram að jólum. Á jólunum ét ég yfir mig dag eftir dag en sleppi kökunum. Þegar jólahátíðin er að mestu liðin byrja ég aftur að kíkja í stampana. Og áður en ég veit af hefur ein og ein, jafnvel tvær eða þrjár smákökur endað uppi í munni og runnið ofan í maga.
Nú er svo komið að ég rétt get rennt upp gallabuxunum mínum og vigtin sýnir rúm tvö kíló í plús.
Held ég fari með stampana í vinnuna á morgun í þeirri von að kökurnar endi í einhvers öðrum búki en mínum.
Get ekki hugsað mér að henda þeim. Verkefnið var of stórt til þess.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli