Síður

þriðjudagur, 24. nóvember 2009

Að lifa lífinu
Ég heyri stundum fólk, þá sérstaklega ungt fólk, tala um að það eigi sér ekkert líf og er þá yfirleitt að skírskota til þess að það vinni svo mikið eða að það fari svo mikill timi í skólalærdóm.
Mér finnst þetta eiginlega alveg hræðilegt. Hræðilegt að því leyti að fólk virðist ekki skilja að lífið er núna. Það kemur ekki eftir vinnu eða þegar búið er að læra.
Lífið er augnablikið sem maður lifir.
Það er ekki alveg nóg að skilja þetta, það þarf líka að læra að njóta hvers augnabliks í lífinu. Ekkert kemur til baka, stundin sem maður dregur andann er mikilvægust og framtíðin er óráðin.
Eða eins og Dónadúettinn syngur: Um leið og þú hugsar um núið er það búið.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Alla dessa dagar som kom och gick, inte visste jag at de var livet.
Sænskt
Kvedja fra Bardi gamla

Guðrún sagði...

Þetta er gott innlegg, Bárður minn. Gaman að heyra í þér!

Nafnlaus sagði...

Þetta er mikil speki hjá þér Gunna, og það er nú einu sinni þannig að það verður hver að liggja eins og hann hefur um sig búið.Lífið gengur sinn vana gang, og svo fer það eftir hverjum og einum hvað hann kallar líf.

Kveðja af Oddabrautinni

magtot sagði...

Þetta eru orð sem eiga erindi við alla. Amen.