Ég var dálítið smeyk um að þyngjast í Spánarferðinni og þar með fitna. Það er ekki hægt annað en að breyta um mataræði þegar dvalið er í öðru landi um hríð. Ég ætlaði að elda mér hafragraut, eins og ég geri á hverjum morgni hér heima en það varð bara einu sinni. Í staðinn gúffaði ég í mig jógúrt, örugglega stútfullri af sykri, og hrærði haframjölinu út í. Í hádeginu fékk ég mér oftast einhvers konar salat, eins og heima en á kvöldin var alltaf veisla með rauðvíni og alles. Það sem var aðallega öðruvísi en heima var hvítvínið í hádeginu og oftar yfir daginn.
Það leit út eins og ég hefði bætt einhverju á mig þegar ég kom heim en af því ég tek bara mark á föstudagsvigtinni þá beið ég spennt þar til í morgun.
Vigtin sýndi 69,9 kg, aðeins 200 gr meira en föstudaginn áður en ég fór í ferðina.
Það sem ég er ánægð með þetta.
Ég er búin að losa mig við 6,5 kg síðan í apríl sem þýðir að 300 gr hafa farið á viku. Ef ég held svona áfram, að missa 300 gr á viku, verða 3,9 kg til viðbótar farin á Þorláksmessu. 69,9 mínus 3,9 er jafnt og 66.
Nýtt markmið er komið í hús. 66 kg um jólin.