Síður

sunnudagur, 14. ágúst 2011

Hlauptu, kona hlauptu


5 kílómetrar að baki


Ég er enn í sæluskýi eftir 5 kílómetra hlaupið í gær og um leið ákaflega stolt af henni dóttur minni. Það er allt henni að þakka að ég dreif mig í að prófa hvort ég gæti hlaupið svona langa vegalengd. Hún bauð fésbókarvinum að hlaupa með sér í lokatakmarkinu á hlaupaprógrammi sem hún hefur verið í undanfarnar vikur. Ég hafði sem sagt örfáa daga til að þjálfa mig upp. Á fimmtudag fór ég 5 kílómetra innan þorps en hljóp og gekk til skiptis. Þannig að ég vissi ekki hvort ég gæti þetta.
Við fórum með Sólbrekku upp í Reykholt á föstdag og byrjuðum á því að mæla 2,5 kílómetra frá tjaldstæðinu og upp á veg í átt að Geysi. Þar settum við á okkur merki, aðeins lengra en afleggjarinn að bænum Felli. Ég var bæði kvíðin og rosa spennt fyrir þessu. Undirbjó mig vel með hvíld og hollum mat og sleppti auðvitað öllu rauðvínssulli. Fór ekki með vinunum á pöbbinn um kvöldið heldur skreið í rúmið með bók.
Vaknaði klukkan korter fyrir átta og smessaði á Svövu Rán að ég væri í startholunum og fór svo af stað. Simmi fór með mér en hætti fljótlega að skokka og gekk alla leiðina. Honum er illt í hnénu. Mér leið ótrúlega vel á leiðinni. Hugsaði aldrei um að hætta að skokka, ekki einu sinni þegar kom að brekku. Þegar ég fór niður brekku lengdi ég skrefin alveg ósjálfrátt.
Ég ætlaði varla að trúa mínum eigin augum þegar ég koma að skiltinu að Felli, sneri þar við og þá var ég laus við vindinn sem var á móti mér áður. Brekkan sem var létt áður var nú upp í móti og ansi erfið. Ég hægði á mér og tautaði í sífellu: Við getum þetta Svava Rán, við getum þetta.
Og við gátum þetta. Ég skokkaði alveg heim að dyrum á Sólbrekku, náði í myndavélina og gekk á móti Simma til að taka myndir af honum.
Ég er svo ánægð með árangurinn að ég ræð mér varla fyrir gleði.
Ekki skemmdi svo fyrir að loksins sá ég nýja tölu á vigtinni. Hinn langþráði draumur að fara niður fyrir 70 kíló rættist.

laugardagur, 13. ágúst 2011

Ég setti persónulegt met í dag og hljóp 5 kílómetra í einu.

fimmtudagur, 11. ágúst 2011


Hvíldardagur
Ég þorði ekki að skokka í dag. Ég fann að ég reyndi talsvert á mig í gær enda hef ég heyrt talað um að það eigi að hvíla öðru hverju. Ég tók bara stuttan hjólatúr með Simma mínum og Nönnu ömmustelpu.
Nanna er búin að vera hjá okkur síðan á mánudagsmorgun. Hún er á glerlistanámskeiði hjá Dagnýju í Hendur í Höfn. Hún tók líka eina viku í fyrra þannig að stelpan er komin í framhaldsnámskeið. Hún vill ekkert fara út á kvöldin þó það sé spurt eftir henni. Hún vill bara sitja hjá gamla settinu sínu spjalla, horfa á sjónvarpið og prjóna. Já, sú stutta fitjaði uppá peysu á mánudagskvöld og er langt komin með hana. Gróft garn en það er sama. Hún er ótrúlega iðin. Finnst reyndar ekki eins gaman að prjóna ermarnar og bolinn.
Hulda langamma er afar stolt af stelpunni. Hún er alveg bit á barnabörnin sín hvað þau eru löt við hannyrðir. Hún vill meina að ein kynslóð hafi dottið út.
Nanna bjargar sinni kynslóð.
Dugleg stelpa.

miðvikudagur, 10. ágúst 2011

Þjálfun í algleymingi
Hlaupaþjálfunin mín gengur bara ótrúlega vel. Í gær fór ég hringinn minn, ýmist gangandi eða skokkandi en í dag keyrðum við, Simmi minn, fimm kílómetra í átt að Selvoginum, sem sagt á hinum nýja Suðurstrandavegi. Þar fór ég út úr bílnum og byrjaði strax að skokka. Simmi keyrði á eftir mér og náði ég að skokka samfellt þrjá og hálfan kílómetra, ganga hálfan, skokka hálfan og ganga hálfan. Veðrið var alveg frábært og fjallahringurinn fagur á að líta. Ég sá, í upphafi hlaups, út á sjó þar sem Keflavíkin er. Það er svo skrítið að þó ég sé bara fimm kílómetra frá þorpinu sjást engin ummerki um það. Engin hús og engin mannvirki. Þorpið hverfur ofan í lægð. Fyrsta merki mannabygðar var Dólósinn sem er á miðri umferðareyjunni fyrir utan þorpið.
Ég er alsæl með sjálfa mig því ég hafði ekki hugmynd um að ég gæti þetta.
Hvað ég geri á morgun, kemur í ljós.

mánudagur, 8. ágúst 2011

Hlaupakelling
Ég hef ekki mikið leikið mér við íþróttagyðjuna í sumar. Ekki stundað neina hreyfingu reglulega. Hef samt gengið á tvö fjöll, Skálafellið og Miðfellið í Hrunamannahreppi. Það er reyndar lítið en við, félagarnir, gengum yfir það.Svo hef ég synt nokkrar ferðir í ýmsum sundlaugum, hist og her á landinu og rölt á barinn ef svoleiðis lagað er þar sem ég hef komið Sólbrekku fyrir.
Ég hélt ég væri búin að tapa niður öllu þoli og er þess vegna að springa úr monti því ég skellti mér út áðan og hljóp sama hringinn og ég hljóp fyrir mörgum mánuðum síðan. Hann er rúmlega þrír kílómetrar. Ég geng í fimm mínútur, hratt, og skokka svo í 20 mínútur.
Ég varð að fara út í dag og gá hvað ég gæti því ég ætla að taka þátt í hlaupinu hennar dótlu minnar á laugardagsmorgunin. Ég vildi nú helst hlaupa við hliðina á henni en það verður ekki að þessu sinni svo ég hleyp hérna í Þolló með henni í anda. Hún ætlar að hlaupa fimm kílómetra sem lokatakmark í hlaupaprógrammi sem hún hefur verið í en ég býst við að ég gangi og hlaupi til skiptis. Nema ég nái að þjálfa mig upp í fimm. Ég hef fjóra daga. En það er nú eins og að læra fyrir próf nóttina fyrir prófdag. Það hefði aldrei gengið hjá mér.
Djöfull, sem ég er nú samt ánægð með sjálfa mig.

þriðjudagur, 12. júlí 2011


Akureyri
Mér finnst ómögulegt annað en að koma til Akureyrar a.m.k. einu sinni á sumri. Ég er sem sagt á Akureyri núna. Komum hingað í gær, í bongó blíðu. með Sólbrekku í eftirdragi. Að vera á tjaldsvæðinu á Þórunnarstræti er toppurinn. Það er svo fallegt hérna og alltaf jafn gaman að labba niður í bæ og skoða mannlífið. Við fórum á Bautann í gærkvöld og fengum okkur pizzu, það tilheyrir líka. Röltum svo um og komum við á Götubarnum, samt bara mánudagur. En við erum í fríi. Það er ekki alveg eins mikil sól núna og í gær en það hlýtur að lagast.
Ég er alltaf í smá pílagrímaferð þegar ég kem á Akureyri. Það rifjast alltaf upp fyrir mér þegar ég missti fóstur hérna, einmitt á tjaldsvæðinu. 26. júlí 1973, komin þrjá mánuði á leið. Við vorum hér í litla bláa topptjaldinu okkar með Kalla eins og hálfs árs. Ég var lögð inn á sjúkrahúsið í útskröpun og þeir feðgar keyrðu tveir heim. Ég var inni í nokkra daga og flaug svo heim. Atburður sem ekki gleymist.
Ég hef sest inn í kirkjuna og beðið fyrir litla barninu mínu. Ég hef líka farið í messu í kapellu í kjallarunum. Éf ég kemst ekki inn í kirkjuna bið ég fyrir barninu á kirkjutröppunum.
Einhvern veginn tengist kirkjan litla barninu, sem mér finnst að hafi verið stelpa og ég á líka nafn handa henni.

fimmtudagur, 7. júlí 2011

Í útilegu
Eins og oft hefur komið fram þá líður okkur, Simma mínum, ótrúlega vel í Sólbrekku, alveg sama hvar við plöntum henni. Við náum einhvern veginn þægilegri slökun og finnst bara fínt að gera ekki neitt. Um hádegisbil í dag drógum við Sólbrekku upp að Flúðum, á Laufskálaflötina, sem við erum farin að kalla okkar, og settum okkur þar niður.
Ég ætlaði að liggja í sólbaði en einhver óboðinn vindur birtist óforvarandis svo sólbað var ekki lengur í boði. Ég hef samt haft nóg fyrir stafni, sem áhorfandi. Hér er verið að heyja og það er ögn öðruvísi en þegar ég var í sveit fyrir hálfri öld. Nú eru notaðar stórtækar vinnuvélar en það er svo gaman að horfa á vélarnar vinna. Þær raka saman heyið og taka það svo upp í rúlluvél og sem síðan er bundið inn í plast. Ótrúlegt. Nú þurfa bændur ekki lengur að eiga hlöður hvað þá súrheysturna.
Ég hef einnig fylgst með Simma mínum aðstoða Víkinginn við ýmsa hluti, eins og að flytja tré, sem var sjálfsáð, á betri stað, festa niður staur sem gegnir hlutverki spröngu, eins og í Eyjum, lagfæra þakið á andakofanum, sækja hellur sem lagðar voru kringum nýja flotta andapollinn og sitthvað fleira.
Já, það er nóg að gera í sveitinni.

föstudagur, 1. júlí 2011

Vigtunardagur.
Það er búið að taka mig fimm vikur að ná af mér tveimur kílóum. Mér finnst það bara fínt. Það er hrikalega spennandi að sjá vigtina síga þó það sé svona hægt og rólega vegna þess að það sem ég geri til að léttast er ekkert mál. Bara borða hollt og gott og sleppi að borða óhollt. Það er allt og sumt. Ekkert mál, bara hugsa áður en troðið er í gúllann.
Það er betra að vera 70,5 kg heldur en 76,5 kg.
Nú styttist í að ég sjái nýjan tug.
Vá, hvað ég hlakka til að verða 60 og eitthvað. Þó það sé 69 komma eitthvað.

fimmtudagur, 30. júní 2011


Matarstúss í útilegu
Hann, Simmi minn, ákvað að gefa sjálfum sér ristilspeglun í 60 ára afmælisgjöf. Flott hjá pilti, að mínu mati, þar sem 140 manns greinast árlega með krabbamein í ristli. Hann fór í þessa skoðun á þriðjudaginn var. Kom flott út þannig lagað. Það voru brenndir í burtu þrír litli separ sem hefðu mögulega getað orðið leiðindatól eftir fimmtan, tuttugu ár.
Læknaferðir þetta sumarið slíta í sundur fyrir okkur útilegur og ferðir með Sólbrekku. Ég átti tíma hjá hjartalækninum mínum í vikunni áður. Honum leist nú ekki betur á mig en það að ég ég á að koma í þrekpróf til hans 14. júlí. Þá er nú reyndar sumarfríið hans Simma míns á enda runnið.
Það sem ég ætlaði að sagt hafa var þetta með matinn og útilegur. Simmi minn, varð að vera á fljótandi fæði í tvo og hálfan sólarhring áður en speglunin var gerð. Við vorum sem sagt á Geysi í Haukadal í útlegu fyrsta daginn sem hann þurfti að vera á fljótandi fæði. Ég er svo meðvirk að ég ákvað að vera á fljótandi með honum þannig að það var enginn matur eldaður eða grillaður. Eina sem þurfti að gera var að hella einhvers konar safa í glas og drekka. Það var reyndar ótrúlega auðvelt að lifa þannig. Ég hefði ekki trúað því að óreyndu að það væri hægt að lifa, þó ekki væri nema hálfan dag, án þessa að BORÐA. Ég verð að skera matinn í sundur og bera hann að munninum með gaffli og tyggja hann. Það er það besta sem ég veit.
Þarna vorum við í útilegu og þurftum ekki að elda.
Þá fattaði ég hvað matargerð er stór og mikill þáttur í útilegunni.
Það er svo gaman að vesenast með matinn. Skera niður grænmeti og grilla það, krydda kjöt eða fisk og grilla og bara standa í matartilbúningi. Taka tappa úr góðri rauðvínsflösku og dreypa á með grillinu og ég tala ekki um að vaska upp á eftir og fá svo kaffi og grand.
Sumarið er tíminn.

mánudagur, 20. júní 2011


Flakk og útivera
Mikið sem okkur, Simma mínum, finnst gaman að búa í Sólbrekku. Við plöntuðum hjólhýsinu, Sólbrekku, á flötinni hjá Magga Gríms að Laufskálum við Flúði fyrir tíu dögum. Erum sem sagt búin að vera þar í tíu sólarhringa. Við urðum að fara heim í dag því ég þarf aðeins að spjalla við Helga lækni í fyrramálið og svo á ég tíma hjá hjartalækninum mínum á fimmtudaginn.
Það er alltaf gott að koma heim en ég hlakka samt til að fara af stað aftur. Til stendur að fara að Geysi um næstu helgi. Ég á von á að við förum stax á fimmtudagskvöld til að taka frá gott pláss fyrir ferðafélagana.

mánudagur, 13. júní 2011

Messa
Þegar ég byrjaði aftur að ferðast um landið, eftir ýmsar breytingar í mínu lífi, ákvað ég að ég skyldi á hverju sumri fara nýjar slóðir eða aka vegi sem ég hefði aldrei farið áður. Þetta hefur gengið eftir. Alltaf finnum við vegarspotta sem ég hef ekki farið áður eða minnist þess ekki. Ég fór, sem barn ýmsar leiðir með mömmu og pabba en þori ekki að ábyrgjast lengur hvort ég muni rétt eður ei.
Í dag keyrðum við vegarslóða sem ég man ekki eftir að hafa keyrt áður. Sem er í rauninni ótrúlegt því á þessum slóðum hef ég oft dvalið með mínu fólki. Ég er að tala um veginn að Hruna. Þar hef ég ekki komið áður en tók þátt í messu þar í dag. Hrunakirkja er lítil, falleg sveitakirkja byggð árið 1865 en sagan segir að Gissur Þorvaldsson hafi fæðst að Hruna þannig að hefð er fyrir kirkjusatað þarna frá elleftu öld.
Messan í dag var frábær. Allt öðruvísi. Tónlistin var í jassútsetningu Stefáns Þorleifssonar, Róberts Dan og söngkonunnar Guðlaugar Ólafsdóttur. Presturinn, séra Eiríkur var frekar óformlegur en samt náði hann að fanga kirkjugesti með fallegri predikun sem hann fór með blaðlaust.
Góð stund á fallegum sumardegi.
Góð stund í íslenskri sveit.
Íslenskur jass í sveitinni.

miðvikudagur, 8. júní 2011


Árin líða og líða
Það munu vera 40 ár síðan ég útskrifaðist sem kennari. 40 ár síðan ég byrjaði að kenna. 40 ár síðan hitt og þetta. Varð ólétt, byrjaði að byggja hús, byrjaði að búa. Við byrjuðum að búa í kennarabústaðnum, B-götu 7. Við bjuggum á efstu hæð, Jón og Ásta Júlía á miðhæðinni og Vernharður Linnet í kjallaranum. Jón byrjaði líka að kenna 1971. Við höfum verið lengst allra kennara starfandi við Grunnskólann í Þorlákshöfn. Hann hefur reyndar vinninginn yfir mig vegna þess að ég fór í burtu um tíma en kom aftur.
Í partýinu í gærkvöldi vildi skólastjórinn endilega minnast þessara tímamóta okkar Jóns og færði okkur smá gjöf.
Ég held upp á árin 40 með því að hefja töku lífeyris 1. ágúst og kenna bara nokkra tíma á viku.
Mér finnst það mjög spennandi.
Elska starfið mitt en er alveg tilbúin að minnka aðeins við mig.
Það er af sem áður var
Það er af sem áður var þegar við, Simmi minn, komum alltaf fyrst þegar boðið var til teitis og fórum iðulega síðust heim. Í gær var pallateiti hjá skólastjórahjónunum, eins og alltaf á síðasta vinnudegi skólaársins. Þau bjóða öllu starfsfólki skólans og mökum. Og auðvitað er alltaf jafn gaman.
Við skemmtum okkur konunglega í gærkvöldi eins og endra nær, fórum heim þegar þreytan gerði vart við sig, settumst í leisí fyrir framan sjónvarpið, steinsofnuðum bæði, vöknuðum og skriðum í bælið, kveiktum, einhverra hluta vegna, á útvarpinu og heyrðum sagt: Útvarp Reykjavík, klukkan er tólf á miðnætti.
Okkur fannst þetta frekar skondið.
En það var ósköp notalegt að vakan í morgun, hress og kát, orðin 61 árs.

mánudagur, 6. júní 2011


Fjallganga
Það er akkúrat ár núna síðan við Simmi minn vorum við Gardavatnið að ganga á fjöll. Þar fórum við í fjallgöngur á hverjum degi í eina viku. Það var ofboðslega gaman. Það er svo gott að ganga í hitanum og góða veðrinu. Við höfum ekki gengið á fjall síðan fyrir utan að skreppa á Miðfell við Flúði þar til í kvöld að við gengum á Skálafell með Ferðamálfélagi Ölfus. Við vorum 12 saman og keyrðum Hellisheiðarmegin inn á gamla veginn að Hverahlíðarvirkjun og lögðum þaðan af stað. Það tók okkur bara einn tíma og tíu mínútur að komast á toppinn. Það sem ég var hreykin af sjálfri mér. Útsýnið alveg dásamlegt en rokið þarna uppi og kuldinn gerði það að verkum að ekki var hægt að staldra lengi við. Af toppnum sjást öll þorpin eða bæirnir þ.e. Hveragerði, Selfoss, Stokkseyri, Eyrarbakki og Þorlákshöfn. Þaðan sjást fimm jöklar og líklega 14 kirkjur. Við fórum annars staðar niður og gekk ferðin ótrúlega vel, tók ekki nema tvo og hálfan tíma alls.
Það er frábært að komast á toppinn.

laugardagur, 4. júní 2011


Hafnardagar
Nú um helgina er hátíð í bæ. Bærinn minn er 60 ára gamall um þessar mundir og svo er auðvitað sjómannadagurinn á morgun. Þessu tvennu er slegið saman og mikið um að vera í bænum. Útvarp Hafnardagar hljómar frá morgni til kvölds sem skapar skemmtilega stemmingu. Þar hefur Simmi minn verið að segja sögur frá bernskuárunum. Hann verður líka 60 ára í ár. Jafngamall þorpinu. Bænum er skipt upp í hverfi sem fá hvern sinn lit. Við búum í bláa hverfinu og skrýddumst bláum fötum í gærkvöld þegar hverfahátíðin fór fram. Hverfin hafa grillveislu og hittast svo í skrúðgöngu sem er mjög skemmtilegt. Í gær var gengið niður á bryggju og þar fóru fram skemmtiatriði hverfanna. Þar voru bláir náttúrlega bestir. Við erum svo heppin að eldri borgarar búa flestir í bláa hverfinu og þeir eiga kór sem heitir Tónar og trix. Kórinn sté á svið og söng Gordjöss, lagið hans Palla, og gerðu það svona líka vel.
Við skemmtum okkur konunglega.
Enda blá.
Með blátt blóð í æðum.

föstudagur, 3. júní 2011

Grömm
Ég var bara nokkuð sátt við vigtina mína í morgun. 300 grömm sem hverfa eru betra en ekkert. Ég vigta og mæli allt sem ofan í mig fer, alla vega þegar mögulega er hægt. Ég varð bara að giska á karólínufjölda millibitans í gær því hann var snæddur á Íslenska barnum við Austurvöll í höfuðborginni.
Sátt við 300 g.
Ekkert erfitt.
Bara gaman.

fimmtudagur, 2. júní 2011



Herinn er skemmtilegur
Eftir heljarinnar hjólatúr í morgun skelltum við Simmi minn okkur í hðfuðhreppinn til þess að fylgjast með tískusýningu á vegum Hjálpræðishersins. Við erum nú ekkert sérlega tengd þeim gövga her nema hvað tengdadóttirin, forseti bæjarstjórnar og ömmustelpa voru á meðal þeirra sem sýndu föt. Þetta var hin ágætasta skemmtun, fötin flott og tískusýningarfólkið skemmtilegt. Mínar konur voru náttúrlega flottastar. Borgarstjóri toppaði samt sjálfan sig. Dóra Sif frænka var viss um að hann kæmi í dragi en viti menn hann sýndi skátabúning og var með íslenska fánann. Einhvern veginn bara fyndið.
Ég styrkti herinn með því að kaupa bláan stráhatt sem ég mun bera stolt á morgun fyrir bláa hverfið mitt.

föstudagur, 27. maí 2011

Vigtunardagur
Föstudagur hefur verið minn vigtunardagur í æði mörg ár. Þegar ég hef gert morgunverkin á mér, snara ég mér á vigtina, ákaflega klæðalítil ef ekki nakin og vigta mig. Ég held endilega að á þessum tíma sólarhringsins sé ég léttust. Þrátt fyrir þennan gjörning einu sinni í viku hef ég bætt á mig alls 15 kílóum á 30 árum. Samt hlýtur vigtunin að þjóna þeim tilgangi að passa upp á kílóin. Þau læðast að manni og smjúga inn og halda sér sem fastast. Ég hef spornað við fótum og rekið kvikindin á brott en oft beðið lægri hlut. Nú eru 10 of mörg utan á mér, innan í mér og allt um kring. Ég er að sporna við.
Vigtin sýndi í morgun 72,5 kg. 900 g farin frá því síðasta föstudag.
Skammtímamarkmiðið er að komast í 71 kg eða eins og ég var eftir sumarið 2009 en þá hrakti ég á brott sjö kíló og komst aftur í stærð 14.
Langtímamarkmiðið er fara niður fyrir 70 og sjá annan tug.
Allt í rólegheitum.
Telja kaloríur og vigta matinn.
Telja og mæla, vigta og pæla.
Allt skráð í dagbók.
Bara spennandi.

fimmtudagur, 26. maí 2011

Að verða gamall
Skruppum til Hveragerðis að heimsækja tengdapabba, sem býr á Ási. Honum líður bara vel þarna sýnist mér. Ég vona samt að ég þurfi aldrei að dveljast á svona stofnun. Ég verð svo sorgmædd þegar ég sit hjá tengdapabba og ég fæ stóran kökk í hálsinn þegar ég kveð hann. Ég sé einhverja sorg í augunum hans.
Honum líður vel en er samt með sorg í augunum.
Það er sorglegt.
Mjög sorglegt.

miðvikudagur, 25. maí 2011

Golf og aftur golf
Fór í kvennagolf í kvöld eftir kennslustund hjá golfkennara.
Hef í hyggju að fara aftur og aftur.
Bara gaman.