Síður

mánudagur, 25. apríl 2011


Skírn í Hrepphólakirkju
Við vorum í dag við skírn í þessari litlu, fallegu sveitakirkju. Ingibjörg og Siggi báru til skírnar litla soninn þeirra, sem fékk nafnið Alexander Jón. Afi og amma Ingibjargar buðu upp á veislu að athöfn lokinni heima hjá þeim sem er býli á Hrepphólajörðinni. Afinn, Sigurður Jónsson, var himinlifandi yfir nafngiftinni, því bæði nöfnin eru úr ættum hans og konu hans.
Áttum við notalega stund í sælu sveitarinnar og nutum góðra veitinga.

laugardagur, 23. apríl 2011

Hundblaut
Eftir morgunverðinn og lestur dagblaða var ekki lengur hægt að humma fram af sér göngutúr. Enda skein sólin og togaði mann út. Simmi minn skellti sér með mér og var stímið tekið á litla hringinn sem tekur aðeins hálftíma að ganga. Við vorum rétt lögð af stað þegar við lentum í éljagangi sem breyttist svo í rigningu. Þrátt fyrir að við styttum göngutúrinn niður í korter komum við heim eins og hundar af sundi dregnir.
Við fengum þó smá aukasúrefni í lungun.
Og smá aukahreyfingu.
Alla vega meiri hreyfingu en ruggið í leisiboj gefur.

föstudagur, 22. apríl 2011


Föstudagurinn langi
Ég held ég hafi ekki gert neitt eins lítið í langan tíma og í dag.
Ég hef mest megnis setið í leisíboj og slakað á. Spjallað við hann, Simma minn og hlustað á útvarpið. Við ætluðum um miðjan dag að fara út að ganga en svo nenntum við því alls ekki.
Ég hengdi út á snúru nokkrar flíkur, þær fyrstu á þessu ári og fann þá að veðrið er miklu berta en ég hélt. Settist bara samt aftur í leisí.
Mér finnst þetta frábær dagur.
Langur og góður.
Fæ örugglega sérrí þegar sérrítíminn hefst.
Fæ mjög líklega fiskrétt að hætti Simma míns í kvöldmat.
Sit og hef það næs í leisíboj.

fimmtudagur, 21. apríl 2011

 
Páskar nálgast
Ég keypti bara tvö páskaegg fyrir þessa páska. Þau eru komin í hendur eigenda sinna. Annað var sent til Wales umlukið popkorni enda komst það heilt á leiðarenda. Hitt fékk ömmustelpan. Elsta barnabarnið borðar ekki páskaegg svo hann fékk bara andvirðið í beinhörðum. Hann var hæstánægður með það.
Posted by Picasa

miðvikudagur, 20. apríl 2011


Hamagangur á Hóli
Við, Simmi minn, erum búin að vera í húsinu sem við eigum núna, síðan haustið 2004. Fyrir framan húsið hafa verið tveir litlir grasblettir, sinn hvoru megin við stétt, umluktir kræklóttu íslensku birki. Það hefur ekki verið gaman að draga garðsláttuvélina þarna yfir til að slá. Enn leiðinlegra að raka þessa bletti og koma grasinu einhvers staðar fyrir. Maður lætur sig samt hafa þetta því meira verður að gera en bara það sem er skemmtilegt.
Í fyrrasumar keyptum við okkur hjólhýsi og þegar við vorum ekki að flakka vildum við hafa hýsið, sem auðvitað heitir Sólbrekka, í innkeyrslunni en ekki úti við aðalgötu eins og við gerðum við gömlu Brekku, þ.e. fellihýsið sem við áttum. Við vorum orðnir snillingar í að koma Sólbrekku fyrir í innkeyrslunni en þá vorum við í vandræðum með bílinn. Gátum jú sett hann við hliðina á Brekku en komumst varla út úr honum fyrir trjám.
Þá fékk ég hugmynd. Rífa bara upp trén, innkeyrslumeginn við húsið, kantinn og allt gras. Líka grasið hinu meginn við stéttina og setja möl í staðinn.
Þetta er búið og gert. Ekki aftur snúið. Núna þurfum við ekki að slá fyrir framan húsið. Núna komast, bæði Sólbrekka og bíllinn fyrir með góðu móti. Og það er nóg pláss fyrir gestabíla.
Mér finnst dálítið grátt að líta út um eldhúsgluggann en ég ætla að fá mér blómaker og dreifa þeim smekklega um hið grá svæði .

þriðjudagur, 19. apríl 2011


Lífrænn úrgangur
Ég hef lengi haft áhuga á hvers konar endurvinnslu úrgangs og gert mitt besta til að leggja eitthvað af mörkum til þeirra mála. Flokka allt rusl sem mögulegt er og reyni að vera enginn umhverfissóði. Það eru svona 15-20 ár síðan ég fór með allan lífrænan úrgang út garð og gróf hann þar þegar það var hægt þ.e. yfir sumartímann. Áhugi á safnkassa kviknaði þá. Um tíma bjó ég samt þannig að ég gat ekki haft safnkassa svo draumurinn um hann lá niðri.
Nú hef ég átt garð síðan 2004 og í fyrrasumar festum við, hjónakornin, okkur kaup á moltukassa. Mér fannst það allt í einu betri hugmynd en safnkassinn. Moltukassinn var smelltur saman og þoldi ekki veturrinn. Hann lá í frumeindum á lóðinni þegar snjóa leysti og haugurinn, sem ég hafði safnað í hann, lá við hliðina.
Um daginn skellti hann, Simmi minn, sér á nokkrar spýtur og smíðaði þennan líka fína þriggja hólfa safnkassa. Fyrsta hólfið er strax orðið fullt. Hann mokaði í það haugnum frá í fyrra og ég er byrjuð að henda í hólf tvö lífrænum úrgangi úr eldhúsinu.
Gamall draumur rættist.

föstudagur, 18. mars 2011


Allt er hey í harðindum.
Ég ákvað í dag að nota. í kvöldmatinn, einhverja af þeim frábæru uppskriftum sem dótla mín hefur sett út á heimasíðuna sína. Ég hef náttúrlega oft eldað eftir hennar uppskriftum og svo líka orðið þess aðnjótandi að borða það sem hún eldar. Og allt er gott. Hvort sem ég reyni að gera eins og hún eða borða það sm hún framfærir.
Ég ákvað, sem sagt,að hafa um helgina sítrónukjúllann hennar eitt kvöldið og kúrbítsbökuna eitthvert annað kvöldið.
Ég skeiðaði út í búð, full eftirvæntingar en varð fyrir vonbrigðum. Engar kjúklingabringur voru þar á boðstólum og enginn kúrbítur var sjáanlegur í grænmetisborðinu. Nú voru góð ráð dýr.
Ég ákvað samt að hafa kúrbítsbökuna, þrátt fyrir engan kúrbít. Ég notaði bara í staðinn gamla grænmetisblöndu úr poka sen var á síðasta snúningi.
Ekki nóg með það, heldur var kotasælan mín löngu gengin fram yfir dagsstimpil,þannig að í staðinn fyrir hana notaði ég gríska jógúrt.
Annað gerði ég eins og dótla mín leggur til og viti menn, þetta varð hin dýrðlegasta máltíð. Eina sem skyggði á var að ég sat ein að öllum matnum sem hefði dugað handa hálfri hersveit.
Eða heilli.
Ég á alla vega mikinn afgang þrátt fyrir að hafa kýlt vömbina all hressilega.

mánudagur, 28. febrúar 2011


Upplestur
Ég keypti mér, í dag, aðgang að vefsíðunni hlusta.is. Sat svo í dag og prjónaði og hlustaði á tvær sögur og eina smásögu. Fyrst hlustaði ég á söguna Ást og auður eftir Jóhann Gunnar Sigurðsson. Ég hef ekki lesið ástarsögu árum saman. En það var unun að hlusta á þessa sögu. Hún er svo fallega skrifuð að það er leitun að öðru eins. Ég dáist að orðgnótt gömlu skáldanna okkar. Íslenskan er svo falleg og djúp þannig að maður dettur inn í samtímann og öðlast líf með sögupersónunum. Þessi saga fær sorglegan endi en samt svo falleg.
Ég hlustaði einnig á söguna Vistaskipti eftir Einar Hjörleif Kvaran. Einnig ákaflega vel skrifuð saga og fróðleg að hlusta á. Nútímamaðurinn á erfitt með að gera sér í hugarlund hvernig kjör hreppsómaga voru á árum áður. Í þessari sögu kemst lesandi(hlustandi) aðeins inn í þann heim.
Síðan hlustaði ég á smásöguna Grímur kaupmaður deyr eftir Gest Pálsson. Ég kannaðist nú eitthvað við hana. Hef líklega lesið hana í skóla hér á árum áður. Hún er skrifuð undir áhrifum raunsæis eins og Gestur gerði gjarnan. En skemmtilegt að rifja þetta upp.
Ég á örugglega eftir að nýta mér þennan vef mikið.
Mér finnst skemmtilegra að hlusta á talað mál heldur en rokk eða popp.
Mér er skítsama þó einhver segi að hér sé um ellimörk að ræða.
Ég tek elliárunum með stolti.
Og hlusta á gömlu skáldin.
Og nýt þess.

laugardagur, 26. febrúar 2011


Lego
Þegar ég var lítil átti ég nokkra Legokubba. Ég man ekki hvernig ég eignaðist þá en það sem ég gat byggt úr þeim var eitt ákveðið hús. Ég átti hvíta kubba, rauða kubba og nokkra glugga og eina hurð. Ég var búin að byggja svo oft úr kubbunum mínum að ég vissi nákvæmlega hvernig hús ég gat byggt svo það yrði fullkomið. Hvítir veggir og rautt þak. Enginn kubbur í afgang, allt gekk upp. Ég átti mér samt þann draum að eignast nokkra kubba í viðbót svo ég gæti byggt öðruvísi hús. Ég man ekki eftir því að það væri hægt að kaupa nokkra kubba í lausu. Alla vega eignaðist ég ekki fleiri kubba þrátt fyri einhverja drauma þess efnis.
Einn góðan veðurdag var ég á gangi eftir Smáratúninu, líklega á leið til vinkonu á Engjaveginum, og finn eina Legohurð á götunni. Hvernig stóð á því að hún lá þarna á götunni var mér hulin ráðgáta en þvílíkur fundur. Ég sá fyrir mér að ég gæti breytt húsinu mínu heil ósköp ef ég bætti þessari hurð við safnið mitt. Hún myndi breyta öllu. Mér fannst ég ekki eiga þennan dýrgrip þó ég gripi hann upp af götunni.Það hafði bara einhver misst hann alveg óvart og hlyti að sakna hurðarinnar sárt.
Vá.. hvað mig langaði samt að eiga hurðina. Hvað átti ég að gera? Stinga henni í vasann og "stela" henni? Nei, það gat ég ekki. Hvað var þá til ráða? Jú, mér datt snjallræði í hug. Ég tók hurðina upp af götunni, þurrkaði hana með fingrunum og lagði hana upp á girðinuna sem hún lá við og hugsaði með mér að ef hún yrði enn uppi á girðingunni þegar ég kæmi til baka yrði hún mín eign.
Ég kom rosalega spennt til baka nokkru síðar. Og viti menn, hún lá enn á girðingunni. Hurðin. Legohurðin. Dýrgripurinn.
Ég tók hana, fór með hana heim og bætti henni við safnið mitt, Byggði nýtt og betra hús en það var eitthvað að. Þessi hurð var illa fengin, eiginlega stolin, svo hún féll eiginlega ekki að gömlu kubbunum. Hún var aðskotahlutur. Veitti enga ánægju.
Það er ekki hægt að gleðjast yfir illa fengnum hlutum.
Legokubbar hafa samt veitt mér ómælda ánægju á efri árum.
Ég hef byggt heilu ævintýrin með barnabörnunum. Þá helst strákunum mínum.
Legó.
Ótrúleg uppfinning.
Félag eldri borgara
Þegar ég kom heim úr Ítalíuferðinni í vor, orðin sextug, gekk ég í Félag eldri borgara í Ölfusi. Mér fannst ekki eftir neinu að bíða. Ég vissi það alveg að í þessu félagi ætti ég eftir að starfa og vildi bara hefja störf strax. Mér fannst líka dálítið skondið að fara í félag með mömmu og pabba og ekki verra að hann væri formaður.
Í dag var aðalfundur og dreif ég mig á hann til þess að kynnast starfsseminni. Þetta var ljómandi góður fundur og varð ég öllu fróðari um starfið. Ég var kosin í hlutverk. Er hér með skoðunarmaður reikninga.
Pabbi, sem hefur gegnt formennsku í mörg ár, gaf ekki kost á sér áfram en Anna Lú var kosin í hans stað.
Ég leit yfir salinn og sá að ég var yngst. Það er bara fínt að vera einhvers staðar yngstur.
Yngst í félagi eldri borgara.

föstudagur, 25. febrúar 2011


Vetrarfrí, spjall og uppskriftir
Er í vetrarfríi og finnst það ægilega næs. Mér finnst ótrúlega gott að vera heima og gera ekki neitt sérstakt, bara það sem mér dettur í hug þá stundina. Hefði samt viljað hafa hann, Simma minn, heima. Það hefði verið ögn skemmtilegra.
Eyddi löngum tíma í morgun á skæpinu og spjallaði við dótlu. Hún var líka í fríi. Eins og svo oft áður leiddi talið að mat og uppskriftum. Hún benti mér á síðu þar sem eru svo fallegar myndir af mat. Ég skrollaði niður síðuna og staldraði við mynd af sætum kartöflum og chilibaunum. Ekki af því að myndin var svo falleg heldur þetta með sætar kartðflur. Mér finnst þær svo hrikalega góðar.
Þar sem ég átti eiginlega allt í þennan rétt eldaði ég hann handa mér einni. Ég gæti alveg verið án kjöts í langan tíma. Ég var að fatta það að að síðan hann, Simmi minn, fór til Noregs í síðasta úthald, hef ég einu sinni eldað mér kjötrétt en það er að verða mánuður síðan.
Rétturinn í kvðld var alveg frábær nema hvað ég fann ekki nógu mikið bragð að sætu kartöflunum vegna þess hve sterkt krydd var notað.
Samt hrikalega góður.
Baunaréttur.

laugardagur, 12. febrúar 2011

 
Enn bara sextug
Var að hugsa um sextugsferðina mína til Ítalíu og rakst á þessa mynd þar sem við erum stödd á fjallinu Baldo, við Gardavatn, í 1760 m hæð. Fórum upp með kláf en gengum niður. Sú ganga tók allmarga klukkutíma og gekk mjög nærri vöðvum þeim sem halda manni í raun og veru uppistandandi. Vöðvarnir mínir kláruðust þarna en sem betur fer var ég með göngustafi með mér og komst síðustu metrana áfram á þeim eða göngustafirnir drógu mig áfram síðatsa spölinn.
Djöfull var ég þreytt.
Djöfull var gaman.
Nú er ég að vona að Simmi minn bjóði mér í álíka ævintýri þegar hann verður sextugur.
Hef reynt að fá út úr honum hvað hann langi til að gera en hann hefur ekki gefið neitt svar enn sem gagn er að.
Posted by Picasa

fimmtudagur, 10. febrúar 2011

Koss
Ég man eftir því, í gamla daga, þegar ég var í foreldraviðtali í skólanum sem móðir að ég fékk kökk í hálsinn af tilfinningasemi ef börnunum mínum var hrósað. Ég held ég hafi oftast getað kyngt kekkinum áður en slys hlaust af. Ég vildi fyrir alla muni ekki láta það opinberast að ég væri eitthvað að væla.
Ég var hinum megin við borðið í dag, eins og svo oft áður, móðir í viðtali hjá mér. Hún fékk ekki aðeins kökk í hálsinn, heldur táraðist hún af tilfinningasemi þegar ég hrósaði barninu hennar og ekki nóg með það heldur kyssti hún mig að loknu viðtali. Það hefur ekki gerst áður að foreldri hefur kysst mig. Ég hef móttekið þakklæti en aldrei fengið koss áður.
Ég er stolt af þessum kossi.
Ég fékk hrós.
Hrós sem kennari.

miðvikudagur, 9. febrúar 2011

 
Enn af þankagangi iðjuleysis
Það var endalaust gaman að stunda hið fagra iðjuleysi á Tenerife. Ég er enn með samviskubit yfir því að fara svona á miðju skólaári frá kennslu og stunda iðjuleysi í sól og hita, sleikjandi sólina og almennt ekki gera neitt uppbyggilegt nema hlaða gamla kropp og sálina af orku og krafti.Hef samt mlljón afsakanir fyrir hegðan minni en geymi þær fyrir mig eina.
Posted by Picasa
 
Brunnin grjón en vellukkaður kjúlli
Hann, Simmi minn, segir alltaf að til að elda góðan mat þurfi að gefa af sér ást og umhyggju. Annars verði eldamennskan og þar af leiðandi maturinn ekkert spes. Honum finnst til dæmis alveg útilokað að kíkja á tölvupóstinn í miðjum eldunarklíðum eða taka aðeins í prjónana eða lesa einn kafla í bókinni sem maður er að lesa. Mér finnst samt kjörið að nýta tímann í eitthvert uppbygggilegt á meðan suðan kemur upp eða ofninn hitnar almennilega.
"Það verður að vera með hugann við það sem maður er að gera segir hann alltaf."
Ókei, ég veit allt um þetta sem kennari til næstum því hálfrar aldar. En skrambinn hafi hafi það að ég nenni að hanga yfir sjóðandi pottum.
Hefði samt betur haft þetta til umhugsunar í kvöld. Það munaði minnstu að ég kveikti í kofanum með hugsunurleysi.
Setti grjón og vatn í pott og ætlaði aða hafa þau með grænpestóavagesírópskjúklingaleggjunum mínum.
Ég þurfti bara að kíkja í tölvuna á meðan suðan kom upp. Og viti menn, ég varð að nota gúgúltransleit smáveigis. Aðeins að treysta kunnáttuna í spænsku.
Á meðan brunnu grjónin á hellunni.
Ég rankaði við mér þegar brunalykt sló fyrir vitum mér.
Henti pottinum út í snjóinn og borðaði kjúllaleggina án grjóna í brunalyktarmenguðu húsi.

fimmtudagur, 3. febrúar 2011


Hið fagra iðjuleysi
Þegar við, Simmi minn, ákváðum að kaupa ferð til Tenerife keyptum við hjá Úrvali-Útsýn ferð sem hét jólapakki. Þar með staðfestum við flugferð en vissum ekki hvar við myndum dvelja. Ég held endilega að ég hafi pantað stúdíóíbúð á þriggja stjörnu hóteli en við lentum á fjögurra stjörnu hóteli með hálfu fæði.
Ég var ekkert að pæla í þessu þegar ég sá að meðfylgjandi var þessi matur. Mig hefur aldrei langað til að vera bundin á einum stað þegar að matmálstíma kemur. Ég nýt þess að punta mig og labba út og detta inn á einhvern veitingastað og borða bara eitthvað spennandi.
Það kom svo á daginn að þetta var alveg draumur í dós, að punta sig og labba bara niður í matsalinn og velja af frábæru hlaðborði ótrúlegar kræsingar. Eftir hálfan mánuð af slíkum munaði vorum við ekki orðin leið, hvorki á matnum né að vera þarna og gera ekki neitt.
Við, Simmi minn, kunnum alveg að stunda letilíf.
Hið fagra iðjuleysi á vel við okkur.

laugardagur, 29. janúar 2011


Þegar, við hjónakornin, komum til Tenerife þann 18.jan. s.l. var komið kvöld og búið að loka matsalnum á hótelinu. Við fengum samt nesti í poka, af því við vorum með hálft fæði. Okkur langaði ekki að fara upp á herbergi og borða samlokur svona fyrsta kvöldið svo við fórum út og fengum okkur pizzu og rauðvín. Dásamlegt alveg hreint. Heitt og ljúft. Þegar við komum heim á hótel var verið að dansa. Gömul og góð lög spiluð af hljómsveit sem heitir Oldies. Við skelltum okkur í dansinn og dönsuðum af okkur rassgatið, rétt eins og á íslensku þorrablóti. Við fengum athugasemdir frá ýmsum ókunnugum þarna um kvöldið og morguninn eftir líka. Við vorum voða ánægð með þetta, héldum að við hefðum slegið í gegn á dansgólfinu.
Seinna runnu á okkur tvær grímur. Það er dansað á hverju kvöldi og við fórum að taka eftir því að fólkið á dansgólfinu dansaði mjög fágað og flott og var augljóslega
búið að fara dansskóla. Dansaði eins og það væri forritað en ekki af hjartans gleði eins og við gerum.
Við höfum látið lítið fyrir okkur fara að undanförnu. Leyfum fýldum kellum og köllum bara eiga dansgólfið.
Við skemmtum okkur samt konunglega fyrsta kvöldið.

mánudagur, 10. janúar 2011

Neyðin kennir naktri konu að spinna.
Hann Simmi minn gat ekki hætt að tönglast á því um daginn, á skæpinu, hvað það væri gott að sofna við hrein rúmföt. Ég samsinnti því auðvitað en skildi ekkert í því af hverju hann hafði orð á þessu aftur og aftur. Að lokum spurði ég hann hvort hann hefði aldrei sofnað við hrein rúmföt áður.
"Jú, auðvitað. Ég hef bara aldrei áður tekið af rúminu, þvegið rúmfötin, þurrkað þau og sett þú utan á aftur. Ég var bara að vona að þú hrósaðir mér fyrir þetta."
Já, stundum verður maður kjaftstopp.
Ég man ekki eftir því að hann hafi hrósað mér fyrir þetta verk, sem ég hef unnið í hartnær 40 ár.
Nú veit ég að hann getur þetta.
Hann sleppur ekki oftar.

fimmtudagur, 6. janúar 2011


Flottur matur
Ég hef sjaldan borðað eins litríkan, hreinlegan og góðan mat. Ýsubitar frá Frostfiski (körfufiskur) snöggsoðnir í saltvatni, spínat úr Bónus, beint úr pokanum á diskinn og svo aðalgúmmulaðið. Sætrakartöfluhummusið hennar dótlu minnar. Vááá...hvað þetta var gott.
Er enn að borða yfir mig.
Jólakílóin sitja sem fastast.
 
Posted by Picasa

Þrettándi dagur jóla
Í dag er síðasti dagur jóla að þessu sinni. Ég er, langt í frá, orðin leið á jólaskrautinu. Ég gæti alveg hugsað mér að hafa það lengur. Ég beygi mig samt undir gamlar hefðir og mun taka skrautið niður á morgun. Ég læt samt jólahrðnglið frá Gogga Jensen hanga lengur. Svo þegar mér finnst of langt liðið frá jólum, dreg ég það á bak við gardínuna. Þar geymi ég það á milli jóla. Mér finnst ekki taka því að taka það niður.
Jólaljósin, sem breytast nú aftur í vetrarljós, fá að loga til 1. mars. Sama hvað aðrir segja. Ég er starx farin að kvíða morgundeginum, þegar ég labba í vinnuna í myrkri og fólk verður búið að slökkva. Ég vona að nokkrir hugsi eins og ég og leyfi nokkrum jólaljósum bara að loga á meðan svartasta skammdegið er.
Það er svo gott að sjá ljós í myrkrinu.