Koss
Ég man eftir því, í gamla daga, þegar ég var í foreldraviðtali í skólanum sem móðir að ég fékk kökk í hálsinn af tilfinningasemi ef börnunum mínum var hrósað. Ég held ég hafi oftast getað kyngt kekkinum áður en slys hlaust af. Ég vildi fyrir alla muni ekki láta það opinberast að ég væri eitthvað að væla.
Ég var hinum megin við borðið í dag, eins og svo oft áður, móðir í viðtali hjá mér. Hún fékk ekki aðeins kökk í hálsinn, heldur táraðist hún af tilfinningasemi þegar ég hrósaði barninu hennar og ekki nóg með það heldur kyssti hún mig að loknu viðtali. Það hefur ekki gerst áður að foreldri hefur kysst mig. Ég hef móttekið þakklæti en aldrei fengið koss áður.
Ég er stolt af þessum kossi.
Ég fékk hrós.
Hrós sem kennari.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli