Ekta enska"Hvernig er það, ástin mín, ertu ekki farin að pæla í að baka ekta ensku jólakökuna," spurði Simmi minn starandi á flöskur í koníaksrekkanum í Ríkinu.
"Jú, ég er búin að taka þá ákvörðun að baka hana ekki í ár."
"Nú, af hverju?" spurði Simmi minn, enn að virða fyrir tegundir koníaks.
"Ég tók þá ákvörðun um daginn, að með því að sleppa því að baka ekta ensku í ár, sparaði ég fullt af af peningum. Þetta er sem sagt liður í sparnaði heimilishaldsins."
"Nú, er það," sagðí,Simmi minn, með vonbrigðasvip á andlitinu um leið og hann sneri sér frá koníaksrekkanum.
Ég ákvað að vorkenna honum ekki neitt. Hann hefur aldrei borðað eina sneið af ekta ensku. Ég borða af henni eins og ég get og svo skemmist afgangurinn. En hann, Simmi minn, hefur séð um að vökva kökuna, eins og nauðsynlegt er, einu sinni í viku a.m.k. með koníaki en ég hef alltaf verið svo hissa á því hvað flaskan tæmist á skömmum tíma á miðað við það, að það á bara að dreypa nokkrum dropum yfir kökuna í hvert eitt sinn.
En þarna er kannski komin skýring á því af hverju þessi sorgar-og vonbrigðasvipur var á Simma mínum þegar ég sagði honum að kaka yrði ekki bökuð í ár.