Síður

þriðjudagur, 22. nóvember 2005

Morgunsundið gerir gæfumuninn. Nú er ég komin í 700 metrana. Ég syndi í lágmark 25 mínútur eftir að Einar Guðmunds sagði mér að fyrstu 20 mínúturnar færu í að brenna kolvetnum og eftir það kæmist maður í fitubrennslu. Ég brenni sem sagt fitu í fimm mínútur. Það er líklega ekki nóg því ég er endalaust að stækka á vitlausa kanta.
Sundið er samt gott.
Rosalega gott.

þriðjudagur, 15. nóvember 2005




Ég er alltaf að bíða eftir því að hún dótla mín sendi mér mynd af Lúkasi, svona í tilefni þess að hann varð tveggja ára þann sjötta þessa mánaðar, en það bólar ekki á neinni mynd. Ég skoða aftur og aftur myndirnar sem ég tók af honum í sumar og verð svo að ímynda mér hvernig hann hefur breyst. Ég veit að hann er orðin 93 cm á hæð. Hann er aðeins stærri en kúrfan segir en þyngdin rétt, svo hann er langur og grannur pilturinn. Við spjöllum líka stundum í símann en hann er betri í ensku en íslensku og amma þrjóskast við að tala bara íslensku svo greyið litla á í erfiðleikum með að skilja gömluna sína. Mér finnst svo gaman að myndunum sem ég tók í sumar af honum og Birgittu Ósk. Hann var greinilega mjög hrifinn af henni. Hún er bara tveimur og hálfum mánuði eldri.

mánudagur, 14. nóvember 2005

Enn einu sinni hefur hið daglega líf mitt tekið breytingum. Ég hef ekki undan núna að reynast venjast nýjum vinnum hjá honum Simma mínum. Það mætti halda að hann væri enn að reyna að finna út úr því hvað hann ætlar að verða þegar hann er orðinn stór. Ég var rétt að komast inn í rútínu með honum sem sundlaugarvörður þegar hann fór að smíða hjá Ella. Hann er sem sagt smiður núna, eða þannig. Það er svo sem gott og blessað en málið er að hann kemur ekki heim á kvöldin fyrr en klukkan sjö sem þýðir að ÉG verð að sjá um kvöldmatinn alein. Hann sem var alveg búinn að taka að sér eldhúsið og við bæði mjög lukkuleg með það. En sem betur fer planar hann kvöldmatinn í hádeginu og sér um að taka úr frysti ef þess þarf. Og hann bendir mér á hvað þarf að kaupa inn ef það er matarkyns.
Ég verð að reyna að vanda mig því eins og Óli Guðbjarts sagði mér fyrir tæpum 40 árum þá er leiðin að hjarta mannsins í gegnum magann. Og hann tók meira að segja fram: "...og mundu það nú Gunna mín."
En þá áttu konur líka að sjá alfarið um matarstússið.
Nú er öldin önnur.
Sem betur fer.

sunnudagur, 13. nóvember 2005

Við erum orðin svo ráðsett, við Simmi minn, að við dönsuðum bara tvo dansa á árshátið Ölfus í gærkvöldi og fórum svo heim. Ég verð nú að játa að ég hef smá áhyggjur af þessu en var óskaplega ánægð í morgun þegar ég vaknaði. Maturinn var frábær hjá Bjössa í Básnum og stelpurnar á leikskólanum klikkiuðu ekki með skemmtiatriðin. Þetta var hið ánægjulegasta kvöld sem byrjaði heima hjá skólastjórahjónum í skemmtilesu spjalli.

fimmtudagur, 27. október 2005

Það var mjög þægilegt að geta snúið sér á hina í morgun og blundað aftur. Vetrarfrí er skemmtileg tilbreyting. Ég ákvað að gera ekkert nema slaka á í dag en skella mér svo á fund á Selfoss. Samráðsfund kennara sem kenna íslensku sem annað mál. Svolítið spælandi að hafa svona fund í vetrarfríi en hvað með það, samviskan og hugsjónin er alltaf ofar öllu hjá manni. En ég fór nú samt ekki betur að ráði mínu en það að lesa tímasetningu fundarins e-ð vitlaust og missti þar af leiðandi af honum og finnst núna að ég hafi sóað einum vetrarfrísdegi í algjöra vitleysu. Það sem ég hef afrekað í dag er að ráða nokkrar sudokur skellt í þvottavél, brotð saman handklæði, klárað húfu á Lúkas og svo þetta venjulega að búa um rúmið, setja í uppþvottavélina, sópa gólf og sinna nopkkrum "húsmóðurstörfum" sem maður tekur varla eftir. Simmi sá um hádegismatinn og er búinn að taka út fisk í kvöldmat sem hann ætlar að steikja að ósk unglingsins Kolbeins.
Fyrst ég missti af fundinum ætla ég að kíkja á eina sudoku enn.........Er forfallin!

þriðjudagur, 11. október 2005


Það var ótrúlega gaman að standa í Stokkseyrarfjöru í rúman einn og hálfan tíma í sömu sporum á laugardaginn. Tilefnið var að nú fór fram seinni upptakan fyrir sjónvarpsþáttinn Kveðja frá Ríkisútvarpinu sem sendur verður út á gamlárskvöld.
Við, nokkrir sönghópar frá Suðurlandi, sungum þarna hástöfum, lílega átta sinnum, Úr útsæ rísa Íslands fjöll og upptökumenn frá sjónvarpinu tóku það upp, þ.e. aðeins myndina en sönginn var búið að taka upp áður. Þegar þetta var búið var hópnum stefnt í Húsið á Eyrarbakka. Þar fengum við aðstöðu til þess að skipta um föt og klæðast eins og við værum að koma í kaupstaðinn fyrir 100 árum. Stemningin sem skapaðist þarna í Húsinu var mjög skemmtileg og sérstök. Þar fyrir utan sungum við Nú árið er liðið.
Skemmtilegheit dagsins voru ekki liðin þegar þessu lauk því söngfélagar Söngfélagsins fengu sér súpu og brauð og bjór í Rauða húsinu á eftir og það var auðvitað svaka næs. Þegar heim var komið voru allir komnir í flott söngstuð svo það var haldið áfram heima hjá söngstjóranum. Frábært kvöld. Frábær dagur.

mánudagur, 3. október 2005


Þjóðahátíðin
sem haldin var hér á laugardaginn var mjög vel heppnuð og skemmtileg í alla staði. Átta af sextán þjóðlöndum, sem búa hér í Höfninni, voru með sýningarbása þar sem fólk sýndi myndir, kort, fatnað, þjóðbúninga, ýmsa gripi og ótal margt fleira að ógleymdum matnum sem vakti mikla lukku meðal innfæddra. Atriðin á sviðinu komu skemmtilega á óvart og sá ég marga nemendur mína í nýju ljósi þarna og sá hæfileika sem ég vissi ekki að þær hefðu. Gaman það því.
Það er ekkert rætt um skógareldana í LA í fjölmiðlum þrátt fyrir að 28 þúsund hektarar af skógi séu brunnir og Kalli og kó varð að yfirgefa heimilið um tíma og búa svo við rafmagnssleysi eftir að hann komst heim. Ég væri örugglega ekki heldur að hugsa um þetta nema af því afkomendur mínir eru þarna. Eldarnir kviknuðu u.þ.b. 10 metrum frá heimili Kalla og kó. Leiksvæðið þeirra er farið. Trén brunnin. Ég á mynd af Nönnu og Kolbeini standandi við stór tré og Kolbeinn segir mér að þessi tré séu ekki til núna. Náttúruhamfarir og hryðjuverk eru ekki lengur langt úti i heimi. Heimurinn hefur skroppið svo mikið saman að maður þekkir oftast einhvern rétt hjá þar sem atburðir gerast.
Það munaði bara 10 mínútum í sumar að Garreth, svaramaður Daves, lenti í sprengjunni á Liverpoollestarstöðinni í London. Þegar hann kom að stöðinni, til þess að taka lest út á Standstedflugvöll, hafði sprengjan sprungið. Hann hljóp heim til sín, náði í bílinn og brunaði út á völl, því eina sem hann hugsaði var að komast í brúðkaup á Íslandi. Það var ekki fyrr en hann var kominn til okkar að hann fór að hugsa hvað hefði getrað orðið.

fimmtudagur, 29. september 2005

Við sitjum hérna inni í hlýjunni og heyrum vindinn gnauða og rigninguna lemja á gluggana á meðan Kalli, Elsa og Nanna litla eru flóttamenn undan skógareldi. Það geisar skógareldur rétt hjá heimili þeirra í Los Angeles og þau komast ekki heim til sín. Lögreglan er búin að loka leiðinni heim til þeirra enda logar allt fyrir ofan húsið. Þau gistu í nótt heima hjá samstarfsmanni Kalla og sitja núna á veitingahúsi að snæða morgunmat og eru pæla í hvað þau eigi að gera.
Þetta er skrýtin tilfining.
Við getum ekkert gert.
Bara beðið og vonað að allt verði í lagi með þau.
Undarlegt að komast ekki heim til sín.
Það var örstutt frétt í sjónvarpinu áðan. Mér fannst myndirnar svakalegar en hefði örugglega ekki mikið pælt í þeim ef ég ætti ekki fólkið mitt þarna.
Vetrarstarf Söngfélagsins fór af stað með miklum krafti og skemmtilegheitum. Við byrjuðum á því að æfa tvö lög sem verða flutt á gamlárskvöld í þættinum Kveðja frá útvarpsstjóra. Það er búið að taka upp sönginn. Það var gert í Hveragerðiskirkju á sunnudaginn var. Þar sameinuðust nokkrir kórar af Suðurlandi og Lúðrasveit Þorlákshafanr og tekin voru upp lögin Úr útsæ rísa Íslands fjöll og Nú árið er liðið. Það var rosalega gaman að syngja í svona stórum kór og ekki skemmdi fyrir að hafa elskuna hann Hilmar Örn sem stjórnanda. Það stóð til að myndataka færi fram næsta laugardag en því hefur verið frestað vegna slæmrar veðurspár. Það eru ströng fyrirmæli um klæðnað í myndatökunni og voru áhyggjurnar alveg að fara með mig út af því. Í öðru laginu á að vera í dökkum, fínum útifötum, svörtu eða gráu. Sparikápan mín er brún og löngu farin úr tísku enda verður hún 10 ára um jól. Ég fæ viku í viðbót til að redda þessu. Í hinu laginu á að vera í íslenskum búningi. Það reyndist léttara verk að bjarga þeim málum. Ég var komin með tvö búninga heim. Annar var reyndar aðeins of lítill á mig en hinn er eins og sniðinn á mig en eigandinn er ein af mörgum föðursystrum mínum. Ég hlakka til að skrýðast búningnum. Hann er svo flottur.
En það verður skrýtið á gamlárskvöld, þegar ég fer að klökkna yfir áramótunum og gráta á hápunktinum klukkan tólf þegar Nú árið er liðið er sungið, þá verð ég sjálf á skjánum. Ef hún dótla mín verður ekki hjá mér til að gráta með mér, eins og við erum vanar, þá getur hún séð þetta í tölvunni sinni í beinni.
Það er svolítið gaman að því.
Gaman og tengir okkur.

miðvikudagur, 21. september 2005

Ég er búin að fatta þetta með klukkið. Það er sem sagt búið að klukka mig, ég held meira að segja tvisvar. Þegar maður er klukkaður verður maður að skrifa fimm staðreyndir um sjálfan sig. Það er auðvitað margt hægt að segja um sjálfan og mörg leyndarmál eru til en þetta læt ég flakka núna:
1.Ég gleymi alltaf að taka matinn tímanlega úr frysti.
2.Ég nenni ekki að þrífa í hverri viku.
3.Ég er fædd á fyrri hluta síðustu aldar.
4.Ég er með óstjórnlega símafælni.
5.Ég get ekki átt súkkulaði heima, ég háma það í mig.
Ég bíð spennt eftir sunnudagsmogganum á hverjum laugardegi. Ekki af því ég svelgi fréttir Moggans í mig heldur vegna krossgátunnar í tímaritinu sem fylgir sunnudagsblaðinu. Ég hef ekki enn getað leyst gátuna eins míns liðs en fer batnandi. Ég stefni á að verða eins góð og Ingibjörg og Freyja, samstarfskonur mínar en þær hjálpa mér venjulega að klára gátuna. Ég er skráð á póstvef hjá gátunni og tók þátt í leik e-n tíma í sumar og þetta kom í pósti í dag:

Vísbendingaleikurinn
Góðar undirtektir voru við vísbendingaleiknum og það var erfitt að velja
bestu vísbendinguna. Ekki reyndist unnt að gera upp á milli tveggja
vísbendinga og birtast þær því hér báðar.
Kría:
Að fá fugl með eftirgangsmunum. Guðrún S.Sigurðardóttir
Fá fugl með erfiðismunum. Veigar Freyr Jökulsson


Ég er ógeðslega montin af sjálfri. Leikurinn fólst sem sagt í því að nú fékk ég lausnina sem var kría og átti að búa til vísbendinguna eins og hún gæti litið út í krossgátunni.
Og ég bara eiginlega vann leikinn!

föstudagur, 16. september 2005

Æ, hvað manni líður nú vel þegar maður hefur druslastr til þess að gera almennilega helgarhreingerningu svona eins og maður gerði hér í den fyrir hverja helgi. Það er nú af sem áður var. Jæja, húsið mitt ilmar af e-m hreingerningarefnum og hvergi er ryk að sjá eða þannig. Ég sem sagt svindlaði og notaði ekki ENJO í þetta skiptið heldur gerði allt eins og í gamla daga.
Líkar það vel.
Líður vel.
Gott mál.

miðvikudagur, 7. september 2005

Auðvitað vitum við öll að þeir eru búnir að plotta þetta, Halldór og Davíð. Þeir koma í fjölmiðla alveg blákaldir og ljúga að okkur. Leikaraskapur og aftur leikaraskapur.
Er það ekki asnalega undarlegt að Birgir Ísleifur skuli einmitt hætta núna?
Æ,æ, greyin.

sunnudagur, 4. september 2005



Ég fór með Sólbrekku í geymslu í dag. Ég hefði alveg verið til í að fara heldur í útilegu, veðrið var svo gott þegar ég var að undirbúa Sólbrekku fyrir veturinn. Ég var búin að safna þvílíku drasli í öll hólf og skápa að það tók mig dágóðan tíma að bera allt dótaríð inn aftur. Ég var sem sagt ein að brasa við þetta en Simmi fékk að skjótast heim úr vinnunni til að tengja fyrir mig. Verð að játa mig sigraða ?ar. Ég elti Grétu og Gunnar að Holti og þar stungum við vögnunum inn í skemmu til vetrargeymslu. Það eru ekki nema 10 mánuðir þangað til farið verður í útilegustemmingu aftur.

miðvikudagur, 31. ágúst 2005

Ég er búin að ákveða vetrarsportið. Ég þurfti ekki að fara nema einu sinni í sund fyrir vinnu til þess að rifja upp hvað það er æðislega gott. Ég hætti því í fyrra vetur þegar Kolbeinn flutti til okkar. Mér fannst ég verða að sinna barninu á morgnana. Þegar hann sagði um daginn að hann væri e-n veginn orðinn ósjálfstæðari en hann var í Ameríku þá sá ég að ég gæti alveg látið hann um að koma sér í skólann. Enda er afi stundum heima á morgnana og búið að útbúa nestið fyrir hann og leggja á borð morgunverðinn.
Sundið er allra meina bót.
Það hressir og kætir.
Mýkir stífa vöðva.
Liðkar liðamót.
Og einhverju brennir maður af hitaaeiningum.
Ég syndi orðið 600 metra á hverjum morgni fyrir vinnu.

sunnudagur, 28. ágúst 2005

Við eyddum laugardeginum í yndælisveðri í Hveragerði. Ekki af því að Hvergerðingar voru með sína blómstrandi daga, heldur vegna þess að Kolbeinn var að keppa í fótbolta á HSK mótinu. Við sátum sem sagt í ferðasófanum okkar í fimm klukkutíma við Grýluvöll fyrir ofan Hveragerði. Kolbeinslið spilaði fjóra leiki. Hann vill ekkert mikið tala um gengi liðsins. En eins og fótboltamömmurnar og pabbarnir segja: Kemur! Gengur betur næst!
Sunnudagurinn hefur liðið í friði og ró. Ég las, prjónaði, reyndi við hina ofurskemmtilegu krossgátu í Tímariti sunnudagsmoggans, fór hjólandi í kaffi til mömmu, borðaði hrygg, sem hann Simmi minn eldaði, rak Kolbein áfram með heimanámið, rifjaði upp nokkra kafla í Hrafnkelssögu Freysgoða og er að pæala í að eyða e-m hluta kvöldsins fyrir framan imbann ef ég finn e-ð til að horfa á.
Já, eða slaka bara á og geri ekki neitt.

miðvikudagur, 24. ágúst 2005

Það var kennt samkvæmt stundatöflu í dag. Ég gat samt ekki farið á "fúllsving" með börnin mín af erlendu bergi brotnu þar sem er ekki ljóst enn hvað ég fæ marga tíma til að kenna þeim eða réttara sagt tímarnir sem búið er að úthluta duga engan veginn. Börnin eru 36 að tölu. 28 nýbúar og 8 tvítyngdir. 14,4% barna við skólann. En ég trúi því að ég fái fullan skilning yfirvalda á þessu.
Dagurinn var skemmtilegur. Ég kenni líka íslensku í 9. og 10. bekk og kenndi báðum bekkjum í dag. Frábærir krakkar þar á ferð. Ég er umsjónarkennari 9. bekkjar og sé að ég tek við góðu búi frá fyrrum umsjónarkennara.

þriðjudagur, 23. ágúst 2005

Hugur minn í dag er hjá vini mínum Bjarna Áskels og sonum hans. Guð veiti þeim styrk í sorginni.

mánudagur, 22. ágúst 2005

Alltaf er eitthvað nýtt að gerst í þessu lífi. Nú var hann Simmi minn að byrja í nýrri vinnu í morgun. Búinn að elda ofan í flugfarþega Icelandair í eitt ár en er hættur því. Forsendur fyrir því að keyra 200 km til og frá vinnu brustu þegar þeir hækkuðu olíuna 1. júlí s.l. Þegar mánaðareikningurinn fyrir olíuna á bifreiðina hækkaði frá 14 þúsundum í 37 þúsund, þrátt fyrir nokkra sumarleyfisdaga, sáum við að þetta mátti ekki búa við öllu lengur. Hann var svo heppinn að auglýst var laust starf við Íþróttamiðstöðina sem hann fékk. Gárungarnir, vinir hans, halda að hann verði alltaf að skipta um sápuhylki í kvennaklefanum. Öðrum finnst fyndið að hugsa til þess að hann verði að afgreiða sundskýlur og selja Svala. Hvað um það, honum lýst vel á þetta eftir fyrsta daginn.
Ég skellti mér í morgunsund klukkan 7 og er að vona að Kolbeinn sé svo sjálfbjarga að ég geti gert þetta í vetur. Hann verður þá að borða morgunmatinn, sem ég verð að sjálfsögðu búin að finna til handa honum, aleinn. Hann heldur því fram að hann hafi séð um sig sjálfur í IOWA. Hann sé bara að verða ósjálfbjarga aftur eftir að hann flutti til okkar. Það er víst eins gott að snúa dæminu aftur við.