Enn einu sinni hefur hið daglega líf mitt tekið breytingum. Ég hef ekki undan núna að reynast venjast nýjum vinnum hjá honum Simma mínum. Það mætti halda að hann væri enn að reyna að finna út úr því hvað hann ætlar að verða þegar hann er orðinn stór. Ég var rétt að komast inn í rútínu með honum sem sundlaugarvörður þegar hann fór að smíða hjá Ella. Hann er sem sagt smiður núna, eða þannig. Það er svo sem gott og blessað en málið er að hann kemur ekki heim á kvöldin fyrr en klukkan sjö sem þýðir að ÉG verð að sjá um kvöldmatinn alein. Hann sem var alveg búinn að taka að sér eldhúsið og við bæði mjög lukkuleg með það. En sem betur fer planar hann kvöldmatinn í hádeginu og sér um að taka úr frysti ef þess þarf. Og hann bendir mér á hvað þarf að kaupa inn ef það er matarkyns.
Ég verð að reyna að vanda mig því eins og Óli Guðbjarts sagði mér fyrir tæpum 40 árum þá er leiðin að hjarta mannsins í gegnum magann. Og hann tók meira að segja fram: "...og mundu það nú Gunna mín."
En þá áttu konur líka að sjá alfarið um matarstússið.
Nú er öldin önnur.
Sem betur fer.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli