Vetrarstarf Söngfélagsins fór af stað með miklum krafti og skemmtilegheitum. Við byrjuðum á því að æfa tvö lög sem verða flutt á gamlárskvöld í þættinum Kveðja frá útvarpsstjóra. Það er búið að taka upp sönginn. Það var gert í Hveragerðiskirkju á sunnudaginn var. Þar sameinuðust nokkrir kórar af Suðurlandi og Lúðrasveit Þorlákshafanr og tekin voru upp lögin Úr útsæ rísa Íslands fjöll og Nú árið er liðið. Það var rosalega gaman að syngja í svona stórum kór og ekki skemmdi fyrir að hafa elskuna hann Hilmar Örn sem stjórnanda. Það stóð til að myndataka færi fram næsta laugardag en því hefur verið frestað vegna slæmrar veðurspár. Það eru ströng fyrirmæli um klæðnað í myndatökunni og voru áhyggjurnar alveg að fara með mig út af því. Í öðru laginu á að vera í dökkum, fínum útifötum, svörtu eða gráu. Sparikápan mín er brún og löngu farin úr tísku enda verður hún 10 ára um jól. Ég fæ viku í viðbót til að redda þessu. Í hinu laginu á að vera í íslenskum búningi. Það reyndist léttara verk að bjarga þeim málum. Ég var komin með tvö búninga heim. Annar var reyndar aðeins of lítill á mig en hinn er eins og sniðinn á mig en eigandinn er ein af mörgum föðursystrum mínum. Ég hlakka til að skrýðast búningnum. Hann er svo flottur.
En það verður skrýtið á gamlárskvöld, þegar ég fer að klökkna yfir áramótunum og gráta á hápunktinum klukkan tólf þegar Nú árið er liðið er sungið, þá verð ég sjálf á skjánum. Ef hún dótla mín verður ekki hjá mér til að gráta með mér, eins og við erum vanar, þá getur hún séð þetta í tölvunni sinni í beinni.
Það er svolítið gaman að því.
Gaman og tengir okkur.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli