Þó að ég ætti aðeins hálftíma í mat í dag fór ég samt heim að borða af því það er svo gaman að koma heim núna. Allt að verða svo fínt hjá mér. Enda er ég ekki nema 3-4 mínútur að labba í vinnuna. Ég labba reyndar hratt en það er sama það eru forréttindi að hafa það svona gott. Kassarnir sem á eftir að taka upp úr eru inni í litla herbergi og ég tek bara einn og einn svona þegar ég nenni. Mér finnst svo gaman að vera búin að endurheimta húsmóðurtitilinn að ég sletti í form, eins og Sissa kallar það, þegar ég kom heim úr vinnunni í dag. Bara til að prófa ofninn. Virkar flott. Eldaði skötuselsrétt í kvöldmat, upp úr mér, en lukkaðist mjög vel. Rúnar minn Gunnarsson færði mér skötuselinn sem innflutningsgjöf. Sætur í sér þessi elska.
mánudagur, 30. ágúst 2004
sunnudagur, 29. ágúst 2004
Ég er búin að selja hosiló og kaupa mér höll.
Nú er ég drottning í hárri höll.
Mér líður eins og drottningu.
Eða eins og mér finnst að drottningu ætti að líða.
Frábært hús sem ég á.
Frábært umhverfi sem ég er í.
Frábær garður við höllina mína.
Mér llíður vel.
Betur en í langan tíma.
Mig hefur vantað eitthvað í átta ár.
Ég er búin að finna það.
Held ég.
Vona ég.
Nú er ég drottning í hárri höll.
Mér líður eins og drottningu.
Eða eins og mér finnst að drottningu ætti að líða.
Frábært hús sem ég á.
Frábært umhverfi sem ég er í.
Frábær garður við höllina mína.
Mér llíður vel.
Betur en í langan tíma.
Mig hefur vantað eitthvað í átta ár.
Ég er búin að finna það.
Held ég.
Vona ég.
Höfuðdagurinn er í dag.
Ég fékk tvo blómavendi í tilefni dagsins.
Simmi minn gaf mér rauðar rósir.
Mamma kom með rosa fallegan vönd.
Tilefnið er að við Simmi minn erum búin að vera heitbundin í 34 ár.
Við verðum örugglega stoppuð upp eins og hefði átt að gera við síðasta geirfuglinn.
Ég fékk tvo blómavendi í tilefni dagsins.
Simmi minn gaf mér rauðar rósir.
Mamma kom með rosa fallegan vönd.
Tilefnið er að við Simmi minn erum búin að vera heitbundin í 34 ár.
Við verðum örugglega stoppuð upp eins og hefði átt að gera við síðasta geirfuglinn.
laugardagur, 21. ágúst 2004
Hún Elsa mín á afmæli í dag. 32 ára stelpan. Hún ætlar að verja kvöldinu með fjölskyldunni uppi í sveit, hjá vinkonu sinni Simone, sem eldar fyrir hana afmælismatinn og dekrar við hana. Á myndinni eru þær mæðgur heima hjá hinni frönsku Simone, sem Nanna kallar ömmu. Simone ræktar allt sitt grænmeti sjálf og bakar brauð sem hún selur á bændamarkaði. Elsa hjálpar henni stundum. Enda á það við hana Elsu mína að vasast í matartilbúningi.
"Lukkan hefur alltaf verið með okkur," sagði hann Simmi minn í dag þar sem við sátum í sólstólum í frábærum garði og slökuðum á. Ég gat ekki annað en verið sammála honum.
mánudagur, 16. ágúst 2004

Það er ekki leiðinlegt að hafa svona útsýni út um gluggann hjá sér á 18 hæð, svona einn sólarhring. Borg vindanna, Chicago, tók vel á móti okkur. Við sáum ekki nema lítið brotabrot af henni en það sem við sáum var stórkostlegt. Borgin stendur við Lake Michigan sem útaf fyrir sig er ógleymankegt að sjá. Stöðuvatn, þar sem ekki sést á bakkann hinu meginn. Við brugðum okkur á ströndina, fyrir börnin, og þau busluðu í vatninu. Fallegur garður er við vatnið sem peningamennirnir sjá ofsjónum yfir, þeir sjá bara byggingarland og vilja kaupa landið en það er í einkaeign og þeir fá ekkert að gert.
Mér finnst ég lifa í köflum eins og í skáldsögu. Í morgun byrjaði að segja frá þegar ég vinn í skólanum. Nýlokið er kaflanum þegar ég var í Ameríku og þar á undan var það kaflinn þegar ég annaðist barnabörnin mín í sex vikur. Allir þessir kaflar eru mjög ólíkir. En eins og í góðri skáldsögu tengist efnið þó það virðist ólíkt í fyrstu.
sunnudagur, 15. ágúst 2004
Tengdapabbi vakti okkur um hádegisbil með símhringingu. Við erum greinilega þjökuð af flugþreytu, því ég man ekki eftir því að hafa sofið til hádegis síðan ég var unglingur. Erindi Kalla Karls var að minna okkur á 85 ára afmæli Laufeyjar systur hans. Við höfðum ekkert heyrt minnst á það en áttum auðvitað að vera með á nótunum þar sem hún, blessunin, hélt upp á 80 ára afmælið sitt hjá okkur á Tærgesen, Reyðarfirði. Við hentumst á fætur og brunuðum á Hafið Bláa þar sem við hittum þennan unga öldung. Það er óþarfi að kvíða framtíðinni ef maður verður jafn sætur og hress og Laufey Karlsdóttir er á afmælisdaginn sinn 85 ára.
Við erum búin að skila barnabörnunum af okkur. Flugum til Minneappolis. Kalli og Elsa voru bæði þar til að taka á móti. Frá Minneappolis er um fimm klukkustunda akstur suður sléttuna miklu til Iowa. Útsýnið er alltaf það sama, enginn tilbreyting. Bóndabæir og maísakrar, svo langt sem augað eygir. Við dvöldum að 1130 East Washington street í Iowa City, í 11 daga, fyrir utan sólarhringinn sem við vorum í Chicago, nutum þess að láta sólina baka okkur og hafa fjölskylduna, sem við hittum svo sjaldan, svona nærri. Við vorum alveg klár á því að vera örugg með gott veður, þannig hefur það verið í Iowa í ágúst síðan mælingar hófust. Auðvitað var slegið kuldamet rétt á meðan við dvöldum þarna og hitamet á meðan á Íslandi! Kuldinn var nú samt sem áður ekki meiri en það að mér þótti vissara að hafa peysu með þegar ég labbaði niður í bæ.
þriðjudagur, 27. júlí 2004
Sem betur fer á ég netmyndavél, þannig að ég get talað við hinn tölvuvædda dótturson minn sem býr í Wales. Hann er bara 8 og hálfs mánaða gamall en við vorum í sambandi alveg í 30 mínútur í dag. Hann situr eins og kóngur í hástólnum sínum spjallar út í loftið og við mig, örugglega, og er rosalega sætur og myndarlegur. Ég vona að þetta samband okkar hjálpi upp á íslenskunámið hans. Það eru nú samt ekki mjög uppbyggilegar samræður sem við eigum enn. "Æ, hvað þú ert sætur kallinn minn, litla ömmuljósið mitt." Æ, hvað ömmu langar að taka þig í fangið og knúsa þig." Hann horfir út í loftið og veit ekki alveg hvaðan á honum stendur veðrið. En ég stend í þeirri trú að þetta sé upphaf á góðu ömmu/dóttursonarsambandi. Vil trúa því. Trúi því.
sunnudagur, 25. júlí 2004

Kolbeinn er búinn að tala um Gullfoss og Geysi síðan hann kom. Þetta eru staðir sem örugglega væri vert að skoða. Ég var ekki alveg með á nótunum í fyrstu en svo rifjaðist upp fyrir mér hvað mamma hans var að tala um þegar hún kom í vetur. Hún vildi helst fara í minjagripabúðir og kaupa hraunaða öskubakka, uppstoppaða Lunda og staup merkt Brennivín. Já, Íslendingar búandi á erlendrei grundu, sjá Ísland í rómantísku ljósi og þess vegna brunuðum við í dag með "Ameríkanana" okkar að skoða Gullfoss og Geysi. Þetta var hin besta ferð, veðrið indælt og allir í dúndrandi ferðamannastuði.

Nönnu fannst berin jafnvel merkilegri en jökullónið sem þarf að fara yfir til þess að berja dýrðina í Þórsmörk augum. En sú stutta vílaði ekki fyrir sér að ganga inn alla Stakkholtsgjá, alveg inn í botn og heimtaði að fara upp á hæsta steininn þar inni til þess að sjá hinn tilkomumikla foss sem þar fellur fram af brún í gegnum gat. Hún var yngsti göngumaðurinn í hópnum. Kolbeinn fór langt á undan okkur með nokkrum aukakrókum samt upp á hina og þessa bakka og hjalla, ekki ósvipað manni nokkrum, allskyldum honum, um tuttugu árum áður.

Helgina 16.-18. júlí var legið í tjaldi við Hamragarða. Kiwanisútilega. Hér slakar Kolbeinn á í útilegusófa með íslenskt malt. Hann fór nokkrar ferðir upp á fjallið fyrir ofan, bak við Seljalandsfoss og fór í náttúrlegt sturtubað í oðrum aðeins minni fossi.
Systkinin, Kolbeinn og Nanna, héldu veislu fyrir ættingja og vini mánudaginn 19. júlí. Tilefnið var 11 ára afmæli Kolbeins en Nanna mátti eiga afmæli líka. Henni fannst það nú einkennilegt því það væri ekki 25. maí. En hún fékk afmælispakka líka. Það var boðið til kvöldverðar í Café Króniku og mætti skyldfólk þeirra frá mörgum ættbogum og mörgum kynslóðum.
Ef ég kemst að í tölvunni fyrir unglingnum á heimilinu skríður litli álfurinn upp í fangið á mér og heimtar Barbí eða vill skoða myndirnar mínar. Það skýrir fálæti mitt að undanförnu hér á þessum vettvangi. Unglingurinn notar tölvuna til leikja og að skoða Warhammersíður. Ég hélt að ég væri voða sniðug þegar ég sýndi álfinum Barbie.com. Það þýddi það auðvitað að hún vill skoða Barbí aftur og aftur. Þegar ég var búin að fá mig fullsadda, kenndi ég henni á músina. Það var eins og það væri meðfætt að stýra músinni. Nú finn ég síðuna fyrir hana og hún leikur sér að klæða Barbí og vinkonur og greiðir þeim og snyrtir. Hún hafði greinilega tekið eftir hvar ég klikkaði á síðuna til að gera hitt og þetta og svo skilur hún auðvitað hið talaða mál á Barbie.com.
fimmtudagur, 15. júlí 2004
Við fórum á fótboltaleik í dag á Seltjarnarnesi. 5. flokkur var að keppa. Ægir og Grótta. Við fórum með sigur af hólmi, 6-5. Hér er höfðinginn, Karl Kolbeinn, að koma sér á réttan stað á vellinum. Völlurinn er á Valhúsahæð og útsýnið frábært.
þriðjudagur, 13. júlí 2004
Ég hef ekki fengið hana sonardóttur mína til þess að taka upp siði íslenskra barna þ.e. að fara að sofa á skikkanlegum tíma. Hún kom auðvitað með 6 klukkutíma rugling í sér og allmikið af þeim ruglingi hrjáir hana enn. Það er sem sagt ekki farið í bólið hér fyrr en undir miðnætti dag hvern. Við kúrum aftur á móti lengi fram eftir á morgnana. Ég veit að foreldrar hennar verða ánægðir með þetta þegar við skilum barninu af okkur en þá hlýtur hún að fara snemma í bólið upp á amerísku.
laugardagur, 10. júlí 2004

Húsdýragarðurinn var heimsóttur í gær. Hér er verið að fylgjast með þegar selum er gefið að borða. Veðrið gat ekki verið betra, sól og blíða.
föstudagur, 9. júlí 2004
Merkur málfræðingur sagði eitt sinn að börn væru bestu málfræðingarnir. Ég er alveg sammála þessari fullyrðingu. Þau eru meira að segja best í hljóðkerfisfræði einnig.
Við, Nanna, vorum að telja upp alla í fjölskyldunni og þegar kom að Dave sagði hún: "Það er ekki íslenskt nafn." Hún gerir greinarmun á hljóðkerfi íslensku og ensku. Það er líka gaman að heyra þegar hana vantar íslenskt orð en kann það á enskunni, þá skellir hún íslenskri endingu á orðið. Í gær spurði hún hvort maðurinn mætti "parka" bílnum þarna. Bíllinn var utan vegar.
Í einstaka tilfellum þýðir Kolbeinn beint yfir af enskunni á slæma íslensku. Í morgun gekk hann frá morgunmatnum og lét ostinn og fleira á sinn stað. Þá var hann "að láta allt til baka." Þegar ég benti honum á þetta vissi hann að það ætti að segja "ganga frá matnum" en fannst þetta léttara sagði hann.
Við, Nanna, vorum að telja upp alla í fjölskyldunni og þegar kom að Dave sagði hún: "Það er ekki íslenskt nafn." Hún gerir greinarmun á hljóðkerfi íslensku og ensku. Það er líka gaman að heyra þegar hana vantar íslenskt orð en kann það á enskunni, þá skellir hún íslenskri endingu á orðið. Í gær spurði hún hvort maðurinn mætti "parka" bílnum þarna. Bíllinn var utan vegar.
Í einstaka tilfellum þýðir Kolbeinn beint yfir af enskunni á slæma íslensku. Í morgun gekk hann frá morgunmatnum og lét ostinn og fleira á sinn stað. Þá var hann "að láta allt til baka." Þegar ég benti honum á þetta vissi hann að það ætti að segja "ganga frá matnum" en fannst þetta léttara sagði hann.
mánudagur, 5. júlí 2004
Ég hef alltaf vitað það að forsetinn hefur synjunarvald. Af hverju þykjast sumir ekki vita það? Auðvitað mátti Óli neita að skrifa undir lög um fjölmiðla. Það stendur í landslögum. Auðvitað fer þá fram þjóðaratkvæðagreiðsla. Það stendur mjög skýrt í 26. grein laganna. Svo koma Davíð og hans kumpánar fram í fjölmiðlum og bulla og þeir halda að við trúum þeim. Nei, við erum ekki svo heimsk. Þvílíkur sandkassaleikur. Þeir þora einfaldlega ekki að láta þjóðina kjósa. Þeir þora ekki að takast á við útkomuna. Af því segja þeir: "Allt í plati, rassagati", og draga fjölmiðlafrumvarpið til baka.