Síður

föstudagur, 3. október 2003

Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ sagði um daginn að það tæki 21 dag að breyta um lífsstíl. Það er dagur 10 hjá mér í dag......og gengur vel.

fimmtudagur, 2. október 2003

Mér finnst geggjað að fara í sund klukkan sjö að morgni. Nú er ég búin að fara í viku og það er alltaf jafn frábært. Vona að það verði bara þannig. Allavega: er á meðan er. Ég er nefnilega svo skratti löt við að fara út seinni partinn eða á kvöldin. Það á vel við mig að geta lokið líkamsræktinni fyrir vinnu. Ég botna bara ekkert í því að hafa ekki uppgötvað þetta fyrir löngu.

miðvikudagur, 1. október 2003

Var að enda við að þrífa sameignina. Ryksugaði teppið og geymsluganginn. Hef einstöku sinnum sleppt því án samviskubits því það hafa liðið margar vikur án þess að ég komi á þann gang. En síðan ég eignaðist þurrkarann gegnir öðru máli, ég á oft leið um þennan gang og hlýt þess vegna að eiga hlutdeild í skítnum þar. Búið og gert. Nú talar maður ekki lengur um hreingerningarlykt, sem var ekkert annað en Ajaxlykt því auðvitað eru allir löngu hættir að menga með hreingerningarefnum. Nú er það bara vatnið og réttir klútar.

mánudagur, 29. september 2003

Þvottavélin mín étur sokka. Það er eina skýringin á öllu sokkahvarfinu á heimilinu. Það hrannast upp stakir sokkar sem við getum ekki notað. Það tæki kannski enginn eftir því þó maður mætti í vinnuna í ósamstæðum sokkum en það er bara óþægilegt að vera í mismunandi gerð. Ég veit ekki annað en að ég láti alltaf inn í vélina tvo samstæða sokka þ.e. par en ótrúlega oft kemur annar sokkurinn út og hinn finnst hvergi. Ég hef það fyrir vana minn að geyma sokkinn í þeirri von að sá týndi komi í leitirnar en það er sama þó ég geymi sokka árum saman ég sit alltaf uppi með einhverja einmana sokka eins og ég kalla þá.

sunnudagur, 28. september 2003

Þegar Simmi hafði tekið við forsetatitlinum var ég krýnd kórónu. Það er skemmtileg tilbreyting að bera kórónu þó ekki sé nema stutta stund. Ég bæri hana alla daga ef hún væri ekki þung og óþægileg. Ég er nefnilega forsetafrú, eins og Dorit.
Það var Krónika í gær og skítsæmilegt að gera.
Í dag vorum við viðstödd skírn litlu dóttur Erlu og Steina. Hún fékk tvö falleg nöfn. Birgitta Ósk heitir daman. Steini hélt á henni undir skírn, svona líka pabbalegur. Á eftir athöfninni var veisla í Kíwanishúsinu. Kaffihlaðborð af flottustu gerð. Enda ekki von á öðru þegar Rut systir mín slettir í form. Strúna sá um brauðréttina. Það er ekki gert ráð fyrir að þeir sem ætli að borða sig grannan borði kökur svo ég fékk mér bara kaffi og var skíthrædd um að vera dónaleg að þiggja ekki veitingarnar. Vona bara að sem fæstir hafi tekið eftir því.

föstudagur, 26. september 2003

Áður en ég komst út úr húsi í morgun þurfti ég að vera búin að skipuleggja það vel áður. Ég varð að vera þannig klædd að ég gæti bæði kennt um morgunin og sungið við jarðarför eftir hádegi. Ég komst nefnilega ekki heim í hádeginu til þess að skipta um föt því þá var upphitun fyrir sönginn. Ég hafði einnig sundfötin meðferðis, snyrtidót, sjampó og hárblásara að ógleymdu tvöfldu nesti, morgunmat og hádegismat. Ég veit núna hvaðan hún dótla mín hefur skipulagsáráttuna. Ég var að drepast úr stressi í gærkvöldi yfir þessu öllu saman sem reyndist auðvitað ekkert vandamál þegar á reyndi. Aumingja Simmi minn tók lætin í mér inn á sig og vildi labba í Mósó í morgun svo ég hefði bílinn en mér fannst nú betra að hann hefði bílinn því e-n veginn þarf hann að komast heim fyrir kvöldið með veislumat í farteskinu handa 50 manns. Það er stjórnarskiptafundur hjá Kiwanis og hann á að taka við forsetaembættinu og ætlar líka að sjá um matinn. Ef e-r ætti að vera stressaður hefur hann leyfi til þess. Við ætlum nú samt að yfirgefa það samkvæmi eins fljótt og hægt er án þess að vera mjög dónaleg því hún Eyglo Granz, vinkona mín, ætlar að halda upp á 50 ára afmælið sitt í kvöld og því sleppi ég ekki. Hún og allt hennar lið er svo frábærlega skemmtilegt fólk að það er ekki hægt að missa af fjörinu sem ég veit að verður í Tryggvaskála á Selfossi í kvöld. Ég hefði heldur viljað vera hjá henni í kvöld heldur en með Kiwanis en hvað gerir maður ekki fyrir karlinn sinn?

fimmtudagur, 25. september 2003

Nú hef ég tvo morgna í röð farið í sund klukkan sjö, sko klukkan sjö um morgun. Ég syndi 500 metra og fer svo beint í skólann. Svona líka þrælhress en finnst ömurlegt að vera með blautt hárið. Nú er bara að velja á milli hressleika og blauts hárs. Sundhettan gerir reyndar smágagn.
Ég sleppi að strunsa kílómetrana mína í staðinn því ég er svo hrædd um að fá líkamsræktarlotugræðgi. Eins og það sé nú hætta á því. Annars veðrið svo frábært núna að ég held ég bara skelli mér í göngu.

þriðjudagur, 23. september 2003

Þegar maður hefur lesið eins frábæra grein og er í Mogganum í dag, og ber heitið Markaðssetning útlitsóánægjunnar, þá ákveður maður að nú sé komið nóg, hér eftir sættir maður sig við sjálfan sig eins og maður er. Fer svo í búð og ætlar að kaupa sér kjól fyrir næsta ball og kemst að því að í búðinni eru ekki seldir nógu stórir kjólar. Hvað er manni sagt með því annað en að maður sé of......of....... of........ eitthvað?
Maður er í hringiðu markaðssetningar útlitsóánægjunnar. Ég, og mínar líkar, er hinn dæmigerði markhópur fyrir útlitsóánægju.

mánudagur, 22. september 2003

Höfðinginn, Kolbeinn, hringdi um miðnætti á íslenskum til að tilkynna um úrslitinn í fótboltaleiknum. Hans lið vann 3-1. Hann hefði kannski ekki hringt ef öðruvísi hefði farið. En líklega eru grænu sokkarnir lukkusokkar. Það þýðir ekkert að vera í brúnum sokkum þegar flottara er að vera í grænum. Amma skilur það.
Þó að ég sé ekkert sérstaklega góð í útlensku get ég samt lesið þennan texta sem hún dótla mín sendi mér. Er mannshugurinn ekki frábær?

Aoccdrnig to a rscheearch at an Elingsh uinervtisy,
it deosn't mttaer in waht oredr the ltteers in a
wrod are, the olny iprmoetnt tihng is taht frist
and lsat ltteer is at the rghit pclae. The rset can
be a toatl mses and you can sitll raed it wouthit
porbelm. Tihs is bcuseae we do not raed ervey
lteter by it slef but the wrod as a wlohe.

sunnudagur, 21. september 2003

Kolbeinn er byrjaður að æfa fótbolta í Ameríku. Evrópskan fótbolta. Það er Spánverji sem þjálfar, hvorki meira né minna en frá Real Madrid. Hann er keyrður þrisvar í viku á æfingar og er á þessari stundu að keppa sinn annan leik. Um síðustu helgi tapaði liðið hans 4-2 en nú bíða amman og afinn á Fróni spennt eftir að frétta hvernig þessi leikur fer. Við þekkjum keppnisskapið í pilti og vitum hvað hann er tapsár. Við stöndum í huganum á hliðarlínunni og hrópum.

laugardagur, 20. september 2003

Það er greinilegt að börnin mín vita hvað kætir mig. Bæði eru þau búin að senda mér þennan texta sem þýtur á netinu eins og eldibrandur. Enda finnst mér þetta ákaflega merkilegt verandi búin að kenna krökkum í nokkra áratugi að lesa eftir hljóðaaðferðinni. Það væri gaman að athuga hvar í lestrarferlinu þessum áfanga er náð að geta lesið brengluð orð vandkvæðalaust. Ef þetta er í alvörunni frá Cambridge þá hljóta þeir að vita allt um það. Öldruð móðir mín og bleslindi maðurinn minn lásu textann miskviðalaust.

Svmkmaæt rnsanókn við Cmabrigde hkóásla þá

stkpiir ekki mlái í hðvaa röð stfiar í oðri eru, það

enia sem stikipr mlái er að frtsyi og stíasði

stinaurfn séu á rtéutm satð. Aillr hniir sfitarnir

gtea vireð í aöljrgu rlgui en þú gtuer smat lseið

það aðvuledlgea. Áæðsatn fiyrr þsesu er að

mnnashgrniuun les ekki hevrn satf friyr sig hleudr oirðð sem hiled.

Ja, hérna hér, segi ég nú bara.
Ég er alveg gáttuð.
Það fór eins og ég ætlaðist til, ég var ekkert sjóveik. Það örlaði á fiðringi í maganum síðasta hálftímann á heimleiðinni, en slapp. Vestamannaeyjar tóku vel á móti okkur. Veðrið frábært og eyjarnar alltaf jafn fallegar. Heimaklettur er upplýstur á kvöldin og var það stórfenglegt. Haustþingið var fínt. Ég lét einhver skipulagsatriði fara í fínu pirrurnar en það rist ekki mjög djúpt. Maturinn var frábær, bæði á þinginu og árshátiðinni. Hörkufjör á ballinu. Ég var búin að tryggja mér dansfélaga áður en það byrjaði. Ég veit hvernig samsetning kynjanna er í þessarri stétt og þar sem ég er ekki þeim hæfileikum búin að bjóða upp, þó svo ég sæi karlmann á lausu, þá er betra fyrir mig að hafa vaðið fyrir neðan mig ef ég á ekki að drepast úr leiðindum á svona samkundu. Mig vantar nefnilega líka hæfileikann til þess að ganga á milli og kjafta við fólk. Spjallhæfileikann kallar dótla mín það. Fyrirlestrarnir sem ég sótti voru fínir, þrátt fyrir tæknilegar truflanir, alla vega vöknuðu nokkrar spurningar sem ég ætla að leita svara við. Er þá ekki tilganginum náð?

fimmtudagur, 18. september 2003

Það hefur ekki verið talað um annað en sjóveikispillur og kojur og kvíða fyrir sjóferðinni að undanförnu. Mér dettur ekki í hug að ég verði sjóveik. Ég var fyrir nokkrum árum heila viku til sjós á Jóni á Hofi og var ekkert sjóveik. Ég fór meira að segja á dekk og gerði að kola með strákunum. Ég hef reyndar einu sinni farið með Herjólfi til Eyja og þá var ég rosalega sjóveik en það var allt annar Herjólfur enda var þá arið 1969.

miðvikudagur, 17. september 2003

Ég hringdi í Simma minn í hádeginu og bað hann að kaupa fyrir mig nærföt. Þetta fannst honum skemmtilegt verkefni og leysti það mjög vel af hendi þrátt fyrir að það hefur aldrei verið eins mikið að gera hjá honum á Króniku, síðan hann tók við, eins og í dag. Þegar hann var á leiðinni heim, með nærfötin, hringdi Alda Björg og bauð mér á nærfatakynningu, á stundinni. Þá var ég nýkomin úr baði, slugsandi um á sloppnum, og nennti alls ekki að klæða mig upp til þess að fara út. Enda var ég að pakka og gera mig klára fyrir Vestmannaeyjar.

þriðjudagur, 16. september 2003

Fyrsta kóræfing vetrarins er í kvöld. Ég ætla að mæta og prófa sjálfa mig. Ég gat varla sungið með í fyrra þó svo ég væri að reyna það. Það er eitthvað að hálsinum. Ég ræð ekki nógu vel við röddina. Ég er búin að vera hjá Einari Thoroddsen, í sprautum og innöndun stera, en ég er samt ekki ánægð með mig. Ef illa gengur í kvöld hætti ég að reyna að syngja. Hætti í kórnum. Það verður reyndar mjög erfitt. Kórinn er fastur punktur í tilverunni og búinn að vera það í mörg ár. En ég vil gera gagn en ekki ógagn.

mánudagur, 15. september 2003

Eiríkur Jónsson talar, í bakþönkum Fréttablaðsins, um skyrtertu sem hann fékk á ferð sinni á Reyðarfirði.
"Hann hlýtur að vera að tala um skyrtertuna okkar á Tærgesen," sagði ég við Simma. "Það var hvergi skyrterta í boði þar nema hjá okkur."
Við munum bara alls ekki eftir að Eiríkur hafi komið á Tærgesen svo þetta hlýtur að vera einhver önnur skyrterta.
Ég strunsaði kílómetrana mína í dag í sumarblíðu. Ég er búin að mæla þá. Þeir eru bara þrír. Ég er bara hress mað það. Þrír km á dag er betra en ekki neitt. Ég finn alveg að spikið er byrjað að bráðna. Sko ég finn það innan í mér, ekki að utan. Fötin mín eru jafn þröng ennþá. En bráðum byrjar "utanáfitan" líka að renna. Ég trúi því. Ég er bjartsýn í dag.

sunnudagur, 14. september 2003

Pizzan var svona ljómandi góð hjá mér. Prontóið hefði mátt vera betra. Langbesta prontóið er það sem Jonni Tynes kenndi mér að búa till í gamla daga. Þá mýkir maður lauk og hvítlauk í olíu, lætur niðursoðna tómata út í pottinn, smá sykur, basilíkum og tómatpúré. Þetta lætur maður malla í dágóðan tíma eða þar til þetta er orðið að fínu mauki. Í dag myndi ég líklega bæta út í þetta chilipipar og parmesanosti.
Þegar ég var að útbúa pizzuna í gær fékk ég smá vott af fortíðarþrá. Tvö tímabil í ævi minni dúkkuðu upp í hugann. Ég er í Básahrauni 11 að búa til pizzu. Börnin mín eru unglingar og kötturinn Katrín mikla réð miklu á heimilinu. Ég er búin að breiða pizzuna út og er að raða álegginu á þá kemur Kata inn um eldhúsgluggann og ég á fullt í fangi með að forða því að hún skilji ekki eftir moldug loppuför eða kattarhár á pizzunni. Blessuð sé minning Kötu. Við áttum hana í 9 ár og við Svava Rán og Simmi getum enn eytt löngum tíma í að tala um hana og rifja upp hvað hún var frábær köttur. Kalli var ekki eins hrifinn af henni enda með ofnæmi fyrir hinu og þessu.
Síðan er ég stödd á Básahrauni 9, Kolbeinn 3 ára. Ég er að útbúa pizzu og Kolbeinn er uppi á stól hinu meginn við skenkinn og hjálpar mér að koma álegginu á. Hann vildi skinku og ananas á bitann sinn. Gott ef ekki sveppi líka. Nú fékk ég enga hjálp með pizzuna en Simmi minn lagði á borð og tók upp rauðvínið sem smakkaðist frábærlega. Ég held samt alltaf mest upp á spænsku Rioja vínin.

laugardagur, 13. september 2003

Ég fór með Simma mínum í Króniku. Okkur grunaði að það yrði ekki mikið að gera, sem kom á daginn. Það komu tveir menn í mat og ein stúlka í samloku og franskar. Það er samt búið að vera fínt að gera núna í þrjár vikur. Það var hægt að borga marga reikninga í vikunni. Simmi bakaði gulrótarköku á meðan ég smurði smörrebröd svona til að æfa mig og svo bakaði ég fyrir hann tvær eplakökur. Hann er þá vel birgur fyrir næstu viku.
Ég borðaði engan hádegismat en fór heim með smörrebröd. Borðaði það í kaffitímanum. Ég sat og starði á það og hugsaði með mér að það væri kannski til eitthvað hitaeiningaminna. En þar sem ég fékk ekkert í hádeginu setti ég gúmmúlaðið ofan í mig. Ég verð líka að vita hvernig það smakkast sem ég bý til. Auðvitað var þetta mjög gott hjá mér. Mér varð á að tala upphátt um vangaveltur mínar um hitaeiningafjölda og slíkt í brauðinu og Simmi minn sagði að ef ég hefði áhyggjur yrði ég bara að gera eitthvað í málinu. Ég æsti mig og lýsti því fyrir honum hvað ég gerði mikið í málinu á hverjum einasta degi. T.d. í morgun langaði mig í kleinuna í krukkunni á borðinu hjá honum, litlu vatnsdeigsbollurnar með vanillukreminu í kæliskápnum hans, sneið af súkkulaðikökunni, stroganoffið með kartöflumúsinni, ísinn og ég tal nú ekki um afgangsfrönskurnar (hann tók of stóran skammt). Ég lét þetta allt á móti mér. Ég berst stöðugt við löngun í eitthvað. Fyrir utan þetta er ég búin að vera duglega að labba í vikunni. Tek hálftíma í að labba eins hratt og ég get. Ég á eftir að mæla hvað þetta er löng leið, giska á 4 km.
Ég elda eiginlega aldrei. Mér er færður kvöldmatur og borða skyr og ávöxt í hádeginu eða eitthvað létt. Við pöntum oft pizzu um helgar, til þess að hafa afsökun fyrir rauðvíninu. Nú er ég hins vegar að búa til pizzuna sjálf. Deigið er að hefast þó nokkrir tímar séu í matinn. Það verður betra þannig. Við erum hryllilegar pizzaætur. Þegar við vorum sjálf með pizzur á veitingastaðnum okkar á Reyðarfirði borðuðum við pizzur næstum því á hverjum degi. Þó að það væri alltaf eitthvað annað eldað líka langaði okkur mest í pizzu enda voru þær rosalega góðar hjá okkur. Ég er ekki montin manneskja. Þær voru bara góðar. Við fengum líka svo góðan kennara sem fylgdi pizzaofninum heila helgi. En svona heimapizza, sem ég er að gera núna, er öðruvísi, önnur hlutföll í deginu og deigið látið hefast strax en ekki geymt í kulda og látið kaldhefast, prontóið allt önnur tegund og ofninn nær ekki 300 gráðu hita eins og ekta pizzaofn. Ég hlakka samt til að borða heimapizzuna mína. Ekki er verra að ég mun fá með henni franskt bordeaux rauðvín, Chateau de Seguin frá árinu 2001, nr. 108816. Flaskan kostaði einar 1740 krónur í ríkinu í Smáralind.

föstudagur, 12. september 2003

Þau læðast að manni, sjúga sig föst og límast við mann svo hægt og rólega að það er ekki á nokkurn hátt hægt að verjast þeim. Ég hef verið meðvituð, í allnokkurn tíma, um að þeta gæti gerst en þrátt fyrir það eru þau komin. Ég hef reynt að sporna við þaim með því að stunda leikfimi, skokk, eróbikk, sund og göngur, ég hef reynt að losna við þau úr matnum mínum og pælt í því hvað fer ofan í mig allar götur frá því 1967. Ég hlussast samt með þau, aukakílóin, utan á mér. Þau hafa læðst að mér ein 12-14 og halda að þau eigi að vera þar. Hillary Clinton sagði frá því í spjallþætti hjá Jay Leno um daginn að það væri æ erfiðara fyrir konur, eftir því sem þær eltust, að losna við aukakílóin. Ég átti svo sem að vita það líka en var ekki búin að setja mig í hóp þeirra miðaldra. Ég verð víst að fara að drífa í því. En við aukakílóin verð ég aldrei sátt.

miðvikudagur, 10. september 2003

Ég fékk sendar myndir í pósti í dag frá Svövu Rán þar sem hún sýnir mér húsið sem hún býr í, bæði að utan og innan. Hún var búin að lýsa öllu svo vel fyrir mér að ég varð ekkert hissa þegar ég sá myndirnar nema ég hélt að raðhúsið hennar, sem er endahús, væri á hinum endanum. Þannig að nú verð ég að hugsa mér götuna hennar og húsið í öfuga átt. Það er svo sætt og fínt inni hjá henni en skrítið að sjá dótið hennar í ókunnugu húsi í Wales. Svona er lífið. Ég kíki á þetta með berum augum eftir nokkrar vikur. Búin að fá frí í vinnunni.
Hún dótla mín fékk skyndilega löngun til að lesa Bæjarlíf, sem sagt eitthvað frá heimahögunum. Það skil ég mætavel. Þegar ég flutti austur (Haddi Ásgeirs sagði nú austur fyrir hníf og gaffal) þá gerðist ég áskrifandi að Sunnlenska og fékk Hafnarfréttir, þáverandi fréttablað úr Höfninni, líka sent og var bara þokkalega dugleg að hringja á Suðurlandið til að fá fréttir. Ég varð að fá að fylgjast með, söknuðurinn var svo milkill. Mér virðist nú sem dótla sé ekki endilega að deyja úr heimþrá en vill greinilega fylgjast með því sem efst er á döfinni. Það eru þessar fínu myndir frá Hafnardögum í nýjasta Bæjarlífi. Ég skil bara ekkert í ljósmyndaranum að hafa ekki smellt einni af okkur Simma mínum við að selja kjúkling og franskar. Hann hlýtur að gera það næst.

sunnudagur, 7. september 2003

Einhvern tímann verður allt fyrst. Við, gamla settið, fórum í golf í dag. 9 holur, takk. Við höfum aldrei gert þetta áður, en langað að prófa. Við fengum einu sinni kennslu í því á Spáni að halda á kylfunni og svo átti maður að hitta kúluna en það var mjög erfitt. Simmi plataðði mig núna út á völl með því að Kiwanisklúbburinn væri með svona smá golfskemmtun. Ég vildi standa mig sem verðandi forsetsfrú og dreif mig með honum. Þá kemur í ljós að það er ekkert sem heitir smá golfskemmtun, menn spila af alvöru. Simmi brunaði til Siggu og Jóa og fékk lánaðar kylfur og dót svo við gætum verið með. Það var spilaður leikur sem heitir Betri boltinn. Ég var sett í lið með Magnúsi Jóakim. Mér fannst rosalega gaman þó ég lenti í neðsta sæti, enda ekki við öðru að búast þó að Magnús væri góður. Simmi kom heim með bikar, lenti í þriðja sæti en hann spilaði með Svani (syni Sigrúnar hans Óla bróður). Núna er hér á heimilinu, bikar fyrir golf. Ótrúlegt. Svo er spurninginn hvort við höldum áfram. Ég held að ég vildi þá byrja á því að fara til kennara og fá tilsögn.
Við, Simmi minn, fórum í gær í Kringluna eftir að hafa hangið í Króniku allan morgunin. Við seldum einn kaffibolla. Í Kringlunni dró ég hann inn í NEXT og þar keypti ég litla bleiku kápu á Erlu og Steinadóttur sem við Gréta ætlum að færa henni. Við ákváðum að ömmusystur mættu alveg kaupa eitthvað sem væri ekki endilega hagkvæmt. Kápan er á 3-6 mánaða. Við keyptum líka gallabuxur og skyrtu á 3-6 mánaða og heimsóttum Auðunn og Heiðu Sól þegar við komum heim og gáfum þeim fötin. Litli prinsinn þeirra er voða fínn strákur, hann opnaði aðeins augun til að heilsa okkur en var að fara með mömmu sinni og pabba á Ljósar nætur í Keflavík.
Þó að ég fjasi stundum út í fótboltaglápið hér á mínum bæ þá er ég nú ekki alveg frábitin íþróttinni. Ég horfði á landsleikinn, Ísland-Þýskaland, í gær og var mjög spennt. Þeir stóðu sig vel strákarnir okkar. Áttu góð færi sem bara því miður nýttust ekki til sigurs en 0-0 er ekki svo slæmt. Ég hélt að hann Simmi minn færi á límingunum rétt fyrir leikinn því sjónvarpið datt út hjá okkur. Hann rauk um alla blokk til að finna meinsemdina en fann ekki neitt að en samt er eitthvað að. Hann var svo heppinn að það eru tvær tengidósir fyrir sjónvarp í stofunni og hann varð að færa snúrurnar á milli veggja. Það var heljar tilstand og mikil læti á meðan á þessu stóð. Ég hef bara aldrei séð minn mann í þessum ham áður. Ég sat og prjónaði í rólegheitum á meðan ,alveg rasandi, á að upplifa skapofsa sem ég hafði ekki hugmynd að væri til. Það mætti halda að ég væri nýbúinn að kynnast manninum.

föstudagur, 5. september 2003

Druslaðist í skólann í morgun, lét sem ég væri búin að ná heilsu. Var samt með smá hausverk enn og slöpp. Beit bara á jaxlinn. Vann svo með Rebekku eftir kennslu, eitt af þessum verkum sem tekur ótrúlegan tíma að gera en sýnist ekki vera neitt neitt að verki loknu.
Ég læt sem ég hafi gleymt því núna að það hafi verið vigtunardagur í dag. Ég veit meira en ég vil láta opinskátt.

fimmtudagur, 4. september 2003

Þrátt fyrir sólhatt með C vítamíni og hóstamixtúru er ég með hita, beinverki og hausverk og held mig við bælið. Tölvan er ekki góður staður núna.

miðvikudagur, 3. september 2003

Sólhattur með C vítamíni og kvefmixtúra gerir gagn. Hver hefði trúað því?
Hann er þrítugur í dag, hann Dave Jones, my future son in law. Hann heldur enga veislu, ætlaði bara með Dabbiló út að borða að mér skilst. Það er nú upp og ofan hvort fólk heldur upp á þrítugs afmælið sitt. Simmi hélt upp á sitt en ég ekki upp á mitt af því Simmi var veikur. Hugsa með sér......... en síðan eru liðin mörg ár.
Ég hringdi til Wales, ætlaði að spjalla við tengdasoninn af tilefninu en það var símsvari sem svaraði. Eins og mér finnst einstaklega gaman að spjalla við svoleiðis tæki. Ég stundi nú upp einhverri afmæliskveðju en fannst eftirá að ég hefði ekki verið mjög upplífgandi í rómnum. Símsvarinn gerir mann að annarri manneskju einhvern veginn. Tilgerðarlega, uppskrúfaða og leiðinlega. Það er ekki gaman að þessu.

þriðjudagur, 2. september 2003

Ég hélt nú bara að ég hefði það ekki af í kennslunni í dag sökum kvefs. Ég vildi geta skrúfað hausinn af mér og geymt hann annarsstaðar á meðan á þessu stendur. Það tefur mann og truflar að þurfa að vera að snýta sér og vesenast í þessum fjanda. Kiddi Friðgeirs gaf mér einu sinni rosalega gott ráð við kvefi. Ég mátti velja um tvennt. Annað var að dúða mig vel, loka mig inni og vera helst í rúminu í sjö daga. Hinn valkosturinn var að láta sem ekkert væri í viku. Ætli sá síðari verði ekki fyrir valinu. En ég verð samt að fá að snýta mér og stynja smá.

sunnudagur, 31. ágúst 2003

Það er aldeilis búið að taka á skemmtanalífinu um helgina. Frábært kennarapartý á föstudagskvöld hjá Halldóri og Ester og hátíðardansleikur vegna umdæmisþings Kiwanis í Reykjavík á laugardagskvöld. Við höfðum það huggulegt á hóteli. Á meðan karlarnir voru að klára þingið notuðum við Ólína aðstöðuna sem boðið er upp á, með því að borga dálítið aukreitis, fórum í heitu pottana, fengum axlanudd og sátum smá stund í gufubaði. Slökun og næs. Eftir ræðuhöld og skemmtiatriði spilaði hljómsveitin Upplyfting og við dönsuðum eins og vitleysingar en ekki eins og virðulegt eldra Kiwanisfólk. Það sem mér fannst best var að Steini, í Dumbó og Steina, var veislustjóri og hann tók lagið með hljómsveitinni. Hann söng Angelíu. Lagið okkar Simma. Fyrsta lagið sem við dönsuðum vangadans við. Það var fyrir margt löngu og ekki óraði mig fyrir því að eiga eftir að dansa aftur eftir þessu lagi hvað þá að Steini sjálfur syngi það "live" fyrir okkur. Þetta er dálítið hallærislegt lag og texti sem "lagið okkar" en er engu að síður samt lagið okkar. Ég var nýbúin að minna Simma minn á að muna eftir því í jarðarförinni minni ásamt nokkrum öðrum lögum.

föstudagur, 29. ágúst 2003

Höfuðdagurinn í dag. Uppáhaldsdagur hjá mér. Við Simmi minn erum af hinni svokölluðu hippakynslóð en tókum ekki þannig beint þátt í gjörðum þeirra og hugmyndum á meðan á ævintýrinu stóð. Auðvitað höfðu hipparnir áhrif á heimsmenninguna en þetta frjálslyndi í ástarmálum var e-ð sem við létum fram hjá okkur fara og vorum svakalega lummó og settum upp trúlofunarhringa á þessum degi fyrir einum 33 árum. Fórum með rútu í bæinn,til þess að kaupa hringina, hálfum mánuði áður eða þegar hann átti helgarfrí á sjónum. Geymdum þá í skrifborðsskúffunni hans og settum þá upp í næsta helgafríi. Keyptir hjá Jazorski, breiðir með mynstri. Laugardagur. Hann fór á fótboltaleik í Hveragerði með strákunum og ég beið heima titrandi af spenningi. Hann kom með rósavönd seinnipartinn og við laumuðumst inn í herbergið mitt og settum á okkur handjárnin. Ég orðinn tvítug, hann ekki alveg orðinn nítján. Mömmu hafði grunað e-ð, því hún dró fram kampavínsflösku þegar við komum fram. Um kvöldið var svo farið á sveitaball með vinunum. Þorlákshöfn var eins og nafli alheimsins á þessum tíma. Ótrúlega mörg sambönd urðu til innan þorpsins og þau lifa, held ég öll enn þann dag í dag, góðu lífi.
Vigtunardagur í dag. Argggg... og garg. Þyngdist um 700 grömm. Ég veit ekki hvar þetta endar. Ég á í mjög djúpum samræðum við sjálfa mig núna. En Simmi minn var að stinga upp á pizzu og rauðvíni í kvöldmat.............

fimmtudagur, 28. ágúst 2003

Þá er búið að kenna samkvæmt stundaskrá í eina viku og ekki seinna vænna en að brjóta upp hefðbundna töflu. Á morgun verður haustgleði hjá okkur. Ester, Jóhanna og ég vorum allan seinni partinn að undirbúa útivist á morgun. Vonandi verður veðrið gott. Ég gleymdi þessum degi þegar ég gerði kennsluáætlun til 19. sept. svo e-ð á eftir að riðlast hjá manni. Æ, það verður að bíta í það súra enni eins og e-r sagði........
Erla og Steini eignuðust dóttur um hálf tólf í morgun. Ég veit ekki enn hversu þung og stór sú nýfædda er. Þar með er Rut systir orðin amma og Jón Davíð orðinn afi og ég orðin ömmusystir fjögurra barna. Ömmusystir gerir mann eldri en amma en það er nú allt í lagi. Ég vissi strax að ég ætti auðvelt með að muna afmælisdag barnsins, tuttugu og átta núll átta. Ég man Kolbrúnar dag og ár svona, tuttugu og níu núll níu átta níu.

miðvikudagur, 27. ágúst 2003

Mér finnst æðisgengið að geta farið í vinnuna mína berfætt í bandaskóm og jakkalaus. Ég hefði sjálfsagt líka getað haft stráhatt á höfðinu án þess að hann fyki út í buskann. Gamall draumur er líklega bara að rætast en hann snerist um það að eiga heima þar sem hægt væri að ganga úti með stráhatt án þess að binda hann undir kverk. Þá var ég auðvitað að tala um útlönd. Hver hefði trúað því að draumurinn rættist í Þorlákshöfn?

þriðjudagur, 26. ágúst 2003

Við, gamla dressið, skruppum inn á afrétt þeirra Gnúpverja eftir vinnu í dag. Áttum nokkuð undarlegt erindi. Jæja, undarlegt og ekki undarlegt. Honum Simma mínum dettur svo margt í hug. Héldum að þar yrði næðingur og að hausthrollur færi um okkur. Það var nú öðru nær. 22 stiga hiti um kvöldmatarleytið. Næðingurinn var haustylur og birtan var haustbleik, lyktin var haustilmur og gróðurinn var haustgrænn. Þokkalegur staður að dvelja á.......

mánudagur, 25. ágúst 2003

Ég heyri alveg ótrúlega oft fótboltalýsingar. Maðurinn, sem ég skúra hjá og sef reyndar líka, lætur engan leik í sjónvarpinu fram hjá sér fara. Og hann kaupir SÝN líka. Ég er með langan þolinmæðisstuðul, sem betur fer fyrir hann. En það er eitt sem fer í mínar fínustu taugar sem tengist reyndar ekki manninum mínum heldur öðrum mönnum. Þeir virðast halda það margir, íþróttafréttamenn og þeir sem lýsa leikjum, að orðatiltækið ...að vera á skotskónum ... sé til. Ég held að e-r hafi sagt þetta fyrir löngu í gríni en er orðið, fyrir misskilning, fast í málkennd sumra. Greyin sem vita ekki betur.
Ég var orðin skíthrædd um það að málefnið, "samráð olíufélaganna" færi í glatkistuna og þetta yrði þagað í hel. En, viti menn, það var talað um þetta í sjónvarpsfréttum í kvöld og Þráinn Bertelsson minnist á þetta í Bakþönkum Fréttablaðsins. Ég ætla bara rétt að vona að þeir fái makleg málagjöld sem hafa rænt okkur stórum fjárfúlgum með röngu bensínverði.

sunnudagur, 24. ágúst 2003

Grenjumúsin ég, grenjaði í gærkvöldi þegar hann Simmi minn setti lag á fóninn og sagist ætla að syngja þetta fyrir mig í sextugsafmælinu mínu. Hann hefur 7 ár til þess að æfa sig. En lagið syngur auðvitað Friðjón, á Austfirskum staksteinum II. Lagið er mjög fallegt og fjallar textinn um hjón sem byrjuðu ung að vera saman og ætla að halda því áfram. Við kúrðum saman í nýja sófanum okkar og ég datt svona líka ofan í djúpt tilfinningaástand.
Í dag hefur dagurinn farið í að þrífa sameignina. Þar höfum við fundið verkaskiptingu eins og á svo mörgum öðrum hlutum. Ég ryksuga stigaganginn og þríf geymsluganginn og þvottahúsið en hann sér alfarið um ruslakompuna. Ég er mjög sátt við þessa tilhögun.
Ég dúllaði svo við að pakka inn afmælisgjöfinni handa Dave tilvonandi tengdasyni. Hann verður þrítugur 3. september og ég þarf að koma pakkanum í póst á morgun svo hann fái hann fyrir afmælisdaginn. Í pakkanum eru líka buxur sem ég saumaði á Döbbu Jones. Ég hef ekki saumað buxur í 4 eða 5 ár en nú gerði ég það þó að eigandinn sé viðs fjarri. Það sem maður lætur hafa sig út í er með ólíkindum. Ég ætla rétt að vona að þær passi. Þetta eru náttúrlega óléttubuxur með teygjuefni yfir bumbuna svo þess vegna eru meiri líkur á að þær passi. Babbie Jones mun vonandi hafa það gott fyrir innan teygjuefnið.

laugardagur, 23. ágúst 2003

Hún Elsa, tengdadóttir mín, varð 31 árs 21 ágúst. Það er svo dýrt að senda pakka til Ameríku þannig að ég setti bara smáaur inn á debbarann og hringdi í hana og sagði henni að hún yrði að eyða aurunum í sjálfa sig. Hún ákvað strax að fá sér nudd. Ég vona að hún standi við það og njóti þess.

föstudagur, 22. ágúst 2003

Dásamleg þessi föstudagskvöld. þá borðum við pizzu, drekkum rauðvín og hlustum á Friðjón. Hvað er betra?
Föstudagur er vigtunardagur. Nú höfðu 300 grömm farið. Það hefði nú mátt vera meira en samt, betra en ekkert. Ég borða helmingi minna en mig langar til, þannig að þetta er þrælerfitt. Ég ætla að hafa næstu viku svipaða í matarræði og ef það fara bara 300 grömm eða minna af þá verð ég að gera e-ð róttækt. Pæla kannski í pizzunni og rauðvíninu.......

miðvikudagur, 20. ágúst 2003

Það var ósköp ljúft að fá börn inn í skólann í dag. Ég segi nú stundum í gríni að það skemmtilegasta við skólastarfið sé undirbúningurinn. En það er nú ekki rétt. Mér fannst voða gaman að hitta bekkinn minn, 9.b, í morgun. Börnin hafa svo sannnarlega breyst í unglinga, alla vega stelpurnar. Þær voru svo fínar og sætar, málaðar og uppdressaðar. Strákarnir eru óðum að breytast í töffara. Mér finnst svo stutt síðan ég fékk umsjón í bekknum en þá voru þau í 6. bekk, lítil og sæt og dauðhrædd við að fá nýjan kennara sem þau þekktu ekki neitt. Ég held að þau hafi nú tekið mig í sátt en ég finn svo sannarlega fyrir muninum á því að kenna unglingum 53 ára eða 32 ára. Mér finnst ég ekki ná eins til þeirra og áður. Ég verð að beita ömmusjarmanum í stað þess að vera vinkona. Ég kenndi mörgum foreldrum nemenda minna að lesa og skrifa á sínum tíma. Enda er ég farin að telja niður, bara 7 ár eftir í kennslu. Hugsa með sér (eins og dótla mín segir).

mánudagur, 18. ágúst 2003

Vilborg Dagbjartsdóttir sagði einu sinni í ljóði að lítil börn með skólatöskur kæmu með haustið. Mér datt þetta ljóð í hug þegar ég labbaði í morgun í skólann, ég fann allt í einu fyrir haustinu þó svo að ég sæi hvergi lítil börn á ferli með skólatöskur. Haustið hefur líklega bara verið innan í mér af því ég var að fara að byrja að vinna í skólanum. Það rigndi hressilega á mig í morgun, þegar ég fór heim í hádeginu og líka þegar ég fór heim upp úr fimm. Og það rignir enn og komið kvöld. Dagurinn var góður. Maður reynir að gera alla hluti í einu og verður pínu ruglaður en þegar upp er staðið hefur margt gerst. Innkaupalisti fyrir umsjónarbekkinn tilbúinn, stofan að verða klár, drög að stundatöflu nýbúa komin, kennsluáætlun fyrir 9. og 10. bekk fyrstu vikurnar komin í hausinn á mér svo e-ð sé nefnt. Það var gott að hitta samstarfsfólkið aftur. Lífið fer að komast í eðlilegt horf eftir sældarlíf sumarsins.

sunnudagur, 17. ágúst 2003

Við létum Menningarnótt ekki alveg fara fram hjá okkur. Við fórum í bæinn gagngert til þess að hlusta á Spaðana. Þeir voru með tónleika í Norræna húsinu kl. 16. Það tók tíma sinn að komast eftir Miklubrautinni þangað vegna gífurlegrar umferðar. Það hafðist þó á endanum og sjáum við ekki eftir því að hafa lagt þetta á okkur því Spaðarnir eru óforbetranlegir. Við skemmtum okkur konunglega ásamt fjölda annarra sem sátu eða stóðu þröngt í litlum sal í Norræna húsinu. Við rákumst á grein í blaðinu daginn áður þar sem e-r var að tala um það hve sorglegt væri að horfa upp á Norræna húsið hverfa þarna í Vatnsmýrinni innan um stóru húsin sem væri búið að byggja þarna. En Norræna húsið er eina húsið í Reykjavík teiknað af heimsfrægum arkitekt. Alvar Aldo ef ég man rétt, hinum finnska. Greinarhöfundi fannst húsinu og arkitektinum lítil virðing sýnd. Þarna sátum við svo á kaffistofunni, fyrir tónleikana, Simmi í fyrsta skipti en ég í annað. Meira um tónleikana. Þegar þeir fóru að spila lagið um hana Ásu sneri ég mér forviða að Simma og spurði hann hvernig stæði á því að Spaðarnir væru að spila lag og syngja texta frá Jóni Haralds. Simmi hélt nú frekar að Jón hefði tekið lagið upp eftir Spöðunum. Ég sem hélt alltaf að Jón ætti það. Hann spilaði það síðast fyrir mig á Hafnardögunum. Það er sama hvernig í þessu liggur, Spaðarnir eru góðir, Jón er góður og lagið er gott.

fimmtudagur, 14. ágúst 2003

Ég labbaði 4 km í gær og fyrradag einnig en lét nægja í dag að færa til húsgögn. Ég er búin að lofa sjálfri mér því að á hverjum degi, hér eftir, skuli eiga sér stað einhvers konar líkamsrækt sem komi allaveaga á móti um það bil einni vel smurðri brauðsneið. Það er 4-5 km ganga á móti 100-150 hitaeiningum. Sjúkk......
Enn erum við Simmi minn að færa til húsgögn og koma öllu í samt lag eftir að höfðinginn, Karl Kolbeinn, og uppáhaldsdóttirin, Svava Rán, yfirgáfu skerið. Það er nú líka vegna þess að við keyptum þennan líka flotta sófa og þegar hann kom í dag urðum við að máta og máta og það sem við hugsuðum í upphafi gekk ekki heldur er uppröðun húsgagna næstum eins og fyrir innlit- útlit. Nei, ég segi nú bara svona. Ég gæti farið að halda saumaklúbb skammlaust.

þriðjudagur, 12. ágúst 2003

Ég vildi að ég væri eins góður sölumaður og maðurinn í sófabúðinni. Þegar ég hringdi í dag og afpantaði sófasettið sem ég lét taka frá í gær, þakkaði hann mér rosalega vel fyrir að ég skyldi hringja og láta sig vita að ég tæki það ekki. Hálf tíma síðar hringdi hann til baka og sagði mér að hann ætti stakan sófa handa mér og ég fengi hann á mjög góðu verði. Ég féll á bragðinu, brunaði í búðina og festi mér gripinn. Það besta er nú samt að sá sófi er alveg eins og draumasófinn minn. Ég get alls ekki auglýst það sem við Simmi minn höfum á boðstólum af því ég held alltaf að það sé ekki nógu gott. Hvað þá hringt eftir kúnnum. Ég væri kannski orðin moldrík ef ég kynni þessa kúnst.

mánudagur, 11. ágúst 2003

Þá er Dabba Djóns flogin heim til sín og við gamla settið endanlega orðin ein í hosiló. Dabba er svo hamingujsöm með lífið og tilveruna að við höfum engan rétt til þess að grenja yfir því hvað hún býr langt í burtu. Hún á sitt líf og við verðum að halda áfram með okkar. Við tókum til í hosiló, þegar hún var farin og við gátum skilað dýnunni sem hún svaf á, og færðum til húsgögn til þess að sjá út hvernig við gætum nú gert sem huggulegast hjá okkur. Mér líður nefnilega svo hræðilega illa þegar einhver kemur í heimsíkn og það er ekkert nema leisíboj í stofunni. Það virkar frekar fráhrindandi á gesti. "Nei, ég sest bara hérna," segir fólk og tyllir sér á vondan borðstofustól, þegar ég býð sæti í leisíboj. Þannig að til stendur að kaupa sófa. Hvað á ég þá að gera við leisíboj?

fimmtudagur, 7. ágúst 2003

Við fengum konu frá Pilpseyjum til að kenna okkur að elda filipseyskan mat. Hún kom í morgun og eldaði einn rétt fyrir okkur og kenndi okkur um leið. Það var frábært að fylgjast með henni. Ég hafði áður reynt að gera e-ð svipað og hún var að gera, nema handbrögðin voru gjörólík. Hvernig hún skar allt grænmetið niður í strimla var unun á að horfa. Ég er vön að gera þetta allt öðruvísi. Hér eftir verður boðið upp á filipseyska núðlurétti í Café Króniku.
Það er einmanalegt í hosiló núna. Svava Rán er í Reykjavík að rækta vinskap og höfðinginn er floginn heim til sín yfir Atlandshafið. Það varð uppi fótur og fit á Leifsstöð í gær þegar við mættum þar til að tékka hann inn ásamt ferðafélaga hans, henni Irish Caldvell. Þó að miðarnir þeirra hafi verið keyptir sama dag kom í ljós að Kolbeinn var skráður heim þann áttunda í stað sjötta. Og ekki nóg með það heldur var vélin til Minneappolis yfirbókuð um þrjá. Við strunsuðum yfir í söluskrifstofu Flugleiða og sögðum farir okkar ekki sléttar. Eftir útskýringar, málavafstur og grátur höfðingjans var hann settur um borð. Núllaður um borð er málsniðið sem flugfólkið notaði. Þarna skapaðist stress í nokkrar mínútur því höfðinginn hélt að hann yrði að ferðast einn frá Keflavík til Minneappolis og þaðan til Chicago. Það hefðum við náttúrlega aldrei látið gerast. En Flugleiðafólkið reyndi eins og það gat að láta okkur breyta hans miða. Við höfðum fylgd fyrir hann í þetta flug en ekkert annað og hann átti áframhaldandi miða til Chicago í tengslum við þetta flug en ekki eitthvert annað, fyrir utan það að enginn gat hafa gert þessi mistök, að skrifa vitlausa dagsetningu á miðann hans, nema starfsfólk Flugleiða. En þetta bjargaðist og hann er kominn í fang foreldra sinna. Við, gamla settið, horfum þögul á sjónvarpið og hugsum hvort í sínum þanka að það væri nú gaman að hafa áhyggjur af því hvar höfðinginn væri núna. Annars höfum við nú alltaf getað haft ofan af fyrir hvort öðru. Eins og hann Simmi minn sagði upp úr eins manns hljóði í Þrengslunum í dag: "Hér sitjum við, hlið við hlið, keyrandi heim til Þorlákshafnar eins og undanfarin þrjátíu og e-ð ár. "

mánudagur, 4. ágúst 2003

Nanna litla hringdi í mig í gær eftir að hún hafði spurt pabba sinn hvort Kolbeinn kæmi með tösku frá Íslandi. Hún er klár sá stutta. Hún sá það út að í töskunna mætti setja hitt og þetta. Hún sagði: "Amma, geturðu sent mér baby born stoff?" Ég gaf henni baby born dúkku í jólagjöf og nú verð ég að standa mig í því að halda dúkkunni gangandi með öllu því sem hægt er að kaupa handa henni.
Frábær verslunarmannahelgi. Veðrið eins og best verður á kosið og við ekki í útilegu. Heimsóttum Erlu og Tóta þar sem þau voru í sumarbústað og grilluðum með þeim og gistum eina nótt. Þar var partur af stórfjölskyldunni saman komin, einir fjórir ættliðir, þar sem öllum kemur vel saman og allir leggjast á eitt að hafa það gaman. Hina daga, þessar helgar, skelltum við okkur í sund og slökuðum á og gerðum þess á milli helst ekki neitt. Við Simmi minn erum farin að kvíða því að Kolbeinn fer en það eru bara tvær nætur þangað til hann fer heim til sín. Við höfum Svövu Rán í viku enn. Eftir það verður gamla settið að hafa ofan af fyrir sér sjálft.

mánudagur, 28. júlí 2003

Ég hitti eina manneskju í morgun sem er meiri tilfinningagrenjuskjóða en ég. Ég grenja þegar eitthvað hjartnæmt gerist eins og þegar nemendur mínir brillera á sviði eða þegar ég er viðstödd brúðkaup. Ég grenja ekki í jarðarförum. Ég er bara svona. Í morgun kom aðeins við hjá mér gamall samstarfsmaður frá Reyðarfirði. Hún Marleen frá Belgíu. Hún grét og grét bara yfir því að hitta mig. Það var eiginlega frábær tilfinning. Við vorum ágætis trúnaðarvinkinur þegar ég bjó þar fyrir austan en við höfum ekkert hittst síðan. Nú verður bragarbót á, því hún verður aftur á ferðinni og lofaði að koma við. Ég hlakka til að hitta hana aftur.

föstudagur, 25. júlí 2003

Kolbeinn veit allt um strið sem hafa verið háð í heiminum. Hann er 10 ára og veit ótrúlegustu hluti. Ég var að hugsa það áðan, eftir langan fyrirlestur hjá honum um vopn og flugvélar, að það væri nú bara gaman að fá hann sem gestakennara í vetur. Hann segist hafa lesið um þetta allt í bókum. Hann er búinn að hafa áhuga á heimstyrjöldinni síðari síðan hann fór að tala, ég veit allt um það og þá aðallega Hitler og hans gjörðum, en ég hélt að þetta væri bar bóla sem springi en það er nú ekki aldeilis. Hann er bara í því að afla sér meiri og meiri upplýsingar um það stríð og reyndar allan stríðsrekstur í heiminum. Hann stefnir á það að verða sagnfræðingur, segir hann, þó hann hafi líka áhuga á sálfræði eins og pabbi.

miðvikudagur, 23. júlí 2003

Ég ætla rétt að vona það að Styrkur bjóði upp á megrunarlausnir í haust fyrir fólk eins og mig. Ég ræð bara ekkert orðið við þetta, fitna og fitna og þyngist og þyngist. Nýja,fína vigtin mín gerir ekkert gagn, sýnir alltaf aðra tölu en ég vil sjá. Ég er tilbúin til að leggja á mig kvöl og pínu til að léttast og grennast ef einhver vill hjálpa mér. Ég get þetta ekki ein. Játa mig sigraða.

þriðjudagur, 22. júlí 2003

Ég hef voðalega gaman að hverskonar tilviljunum. T.d. þegar Íslendingur rekst á annan Íslending af tilviljun í útlöndum. Ég hef gaman af svoleiðis sögum. Mér finnst líka skemmtileg sagan af Mors Dag plöttunum mínum. Ég keypti mér, á sínum tima, Mors Dag platta frá Bing og Gröndal, með fæðingarárum barnanna minna. Mors Dag 1971, á honum er læða með kettlinga og 1974 en á honum er ísbjörn með húna. Þeir kostaðu heil ósköp ef ég man rétt. Feðgarnir, Karl Sigmar og Karl Ægir, fóru eitt sinn í fótbolta í stofunni heima í Básahrauni og brutu 1971 plattann. Ég varð sár og fór í Rammagerðina í næstu bæjarferð til að kaupa nýjan. Þar var mér tjáð að hann fengist ekki lengur, ég yrði bara að banka upp á hjá Bing og Gröndal í Kaupmannahöfn. Nokkru síðar var ég reyndar á ferð um Norðurlönd og áður en ég komst til Köben ranglaði ég inn í antikbúð í Gautaborg og þar, innan um heilan helling af alls konar plöttum, var Mors Dag 1971. Plattinn var keyptur og prýddi veggi hjá mér í nokkur ár. Á Reyðarfirði rakst einhver (ég man ekki hver) utan í plattann og hann datt í gólfið og brotnaði. Það sama ár fékk ég 1971 plattann í jólagjöf frá Svövu Rán, hún hafði rekist á hann fyrir algjöra tilviljun í Kolaportinu. Ég tók gleði mína á ný en sú var skammvinn því Simmi rakst utan í plattann í litlu hosiló þar sem við búum núna og sami plattinn, eina ferðina enn, brotnaði. Ég límdi hann saman og hugsaði með mér að ég yrði að sætta mig við plattann svona því ég hlyti að vera búin að fá alla umfram platta sem Bing framleiddi fyrir árið 1971. Í Kaupmannahöfn um daginn var ég alls ekki að hugsa um plattann þegar við, fyrir algjöra tilviljun, rönglum inn í litla, ljóta búð á Istegade (hvað vorum við að gera þar?) og meðan Alda keypti uppáhalds líkjörinn sinn skoðaði ég draslið í búðinni. Það var frekar fátt til sölu. Nokkrir minjagripir, nokkrar vínflöskur og nokkrir jólaplattar. En viti menn, þar var einn Mors Dag platti og hann var frá árinu 1971. Ég hef núna, hangandi upp á vegg, fjórða plattann frá 1971.

mánudagur, 21. júlí 2003

Kolbeinn er alsæll með lífið. Honum var haldin heljarafmælisveisla í dag. "Öllum" var boðið í kvöldmat í Króniku. Fólk var búið að gleyma þessu með kyrkislönguna þannig að hann fékk óskir sínar uppfylltar með pening í afmælisgjöf. Hann er forríkur þessa stundina og ætlar að kaupa dollara fyrir upphæðina á morgun. Telur það vænlegan kost svo hann eyði ekki öllu í vitleysu. Mamma hans og pabbi verða svo að "díla" við hann um kyrkislönguna. Siggi langafi taldi að hann væri kominn með pening fyrir 10 metra slöngu. En ömmusystur hans krefjast þess að fá peninginn, sem þær gáfu honum, til baka ef hann kaupir slöngu þvi þær ætla þá að kaupa nærbuxur og sokka í staðinn.
Afmælisgestirnir voru frá Íslandi, Ameríku og Ítalíu, á öllum aldri. Ég gat ekki setið á mér og hagaði mér eins og kennari smástund og lét börnin fara í gamaldags leiki. Þeir slógu í gegn og ég hefði bara átt að vera búin að undirbúa fleiri.

laugardagur, 19. júlí 2003

Höfðinginn, sonarsonur minn og frumburður pabba síns á afmæli í dag. Hann hefur fyllt einn tug núna, er orðinn 10 ára gamall. Karl Kolbeinn Karlsson. Karl fjórði. Hann var ekki hrifinn af því að halda ekki veislu í dag en við komum því ekki við og ætlum að hafa veislu á mánudag í Café Króniku og bjóða "öllum". Hann hefur þau boð látið út ganga að hann vilji helst peninga í afmælisgjöf af því að hann er að safna fyrir kyrkislöngu. Þegar það fréttist hryllti mannskapurinn sig og taldi betra að gefa honum föt en það er eitthvað sem 10 ára gæi vill ekki sjá í afmælispakka. Hann hefði átt að þegja um kyrkislönguna. Þetta er í fjórða sinn sem hann á afmæli hjá okkur án mömmu og pabba. Þegar hann varð 5 ára var hann hjá okkur á Tærgesen á Reyðarfirði og mamma og pabbi í Reykjavík og svo 8, 9 og 10 ára á Íslandi hjá okkur en mamma og pabbi í Ameríku. Veislan hans verður frá klukkan 5 á mánudag. Það verður boðið upp á kjúklinga, hamborgara og stroganoff og einhver eftirréttur verður líka. Hann er búinn að banna að afmælissöngurinn verði sunginn. Við sjáum nú til með það.
Veðrið er ótrúlegt. Við situm enn úti á svölum, mjög illa klædd, og sleikjum sólina og klukkan er níu um kvöld. Lofthitinn er með allt öðrum blæ en við eigum að venjast.

föstudagur, 18. júlí 2003

Þvílík veðurblíða. Ég fékk líka að vera heima í dag. Druslaðist við að ryksuga áður en ég lagðist út úti í sundlaug. Kom svo við á pallinum hjá mömmu og þar fór hitinn upp í 50 stig. Dásamlegt, svona vil ég hafa þetta.
Simmi er búinn að elda humarsúpu fyrir Kiwaniskallana og við verðum að fara með hana í Álfaskeið til þeirra en við ætlum ekki að gista, eigum ekki lengur útilegugræjur enda langt komin með þann kvótann, tókum hann út fyrir margt löngu.
Vona að veðrið verði svona.

fimmtudagur, 17. júlí 2003

Við Kolbeinn fengum að vera heima í dag. Ég vissi að það var ekki vanþörf á að þrífa lítið eitt í hosiló en ég er því marki brennd að geta ekki byrjað að þrífa ef ég á eitthvað óstraujað. Það þýddi því ekkert annað en að ráðast á bunkann. Hann var myndarlegur en samt öðruvísi en venjulega, stærri og leiðinlegri en hann hefur verið um langt skeið. Þegar ég komst niður úr honum kveikti ég á perunni. Það voru komnar skyrtur í bunkann en þær hef ég ekki séð í óstraujaða bunkanum í nokkur ár nema endrum og sinnum. Þá rifjaðist upp fyrir mér að ég heyrði hann Simma minn tauta í gærkvöldi:"Ég held ég sé að verða skyrtukall aftur." Ég veit að börnin hans verða glöð með þetta afturhvarf til fortíðar því hann hefur gengið í bjór- og brennivínsbolum síðan hann var vert á Reyðarfirði, þeim til mikilla leiðinda. Það fór lítið fyrir þrifum eftir að hafa straujað vegna veðurs. Við fórum í sund og sólbað og létum sem við vissum ekki af drullu, skít og ryki.

miðvikudagur, 16. júlí 2003

Veðurfræðingur nokkur sagði í gær að dagurinn í dag yrði að öllum líkindum besti dagur sumarsins. Og ég inni að sullast í mat og uppvaski og reyna að vera kurteis við fólk. Ég vildi nú heldur vera úti í sólinni.

þriðjudagur, 15. júlí 2003

Þegar sumarið brestur á verð ég ákaflega sjálfhverf. Heimurinn er ég og fólkið mitt og það sem ég er að gera. Allt annað verður að bíða. Eina sem ég hugsa um núna er ég og hann Simmi minn, Kolbeinn elsta barnabarnið mitt, sem er svo æðislegur að vilja vera hjá okkur gamla dressinu á sumrin og hvað ég sakna Nönnu litlu álfaprinsessu í Iowa. Hún er ekki enn orðin það gömul að vita hvað það er gott að vera hjá ömmu Gunnu og afa Simma. Svo hugsa ég líka um Kalla minn sem situr með sveittan skallann að skrifa doktorsritgerð og um Elsu mína sem situr við tölvuna að teikna og teikna svo familían fái nú eitthvað að borða. Svo er það dótla, sem er mitt á milli Fróns og Westursins, að bíða eftir prinsinum af Wales. Hún fann reyndar prins og á von á öðrum, geri aðrir betur.
Þegar maður er komin heim frá því að vera í fríi er maður fljótur að fara inn í hina daglegu venjulegu rútínu og maður trúir því varla að hafa skroppið frá. Tíminn er svo fljótur að líða að dagurinn í gær gæti rétt eins hafa verið í fyrradag eða daginn þar á undann eða kannski jafnvel dagurinn á morgun. Til þess að rugla tilveruna aðeins meira höfðum við opið í Króniku um helgina, reyndar að ósk nokkurra kúnna. Simmi sá einn um laugardaginn því ég varð að fylgja fótboltakappanum á fótboltamót. Sem betur fer var það haldið í Þorlákshöfn. Þetta var 6. flokkur að spila í Pollamóti KSÍ og þarna voru 4 lið að keppa hvert við annað. Liðið mitt vann tvo leiki af þremur. Strákurinn minn átti eitt gullfallegt mark. Í síðasta leiknum var hann í marki og varði vítaspyrnu og er enn að tala um hvað hann var góður. Hann hefur erft sjálfsánægjuna sem finnst í sumum ættmennum hans innan ákveðins ættboga. Ég var heppinn að pabbi hefur gaman að fótbolta því hann bjargaði mér alveg þarna úti á velli. Ég var náttúrlega bíllaus og það rigndi öðru hverju eins og helt væri úr fötu og þá var gott að geta sest inn í bíl. En Kolbeinn krafðist þess að við stæðum á hliðarlínunni þegar hann væri að spila. Honum fannst líka betra að ég æpti svolítið. Það mátti samt ekki vera þannig að það væri "embarreassing" fyrir hann. Það er vandfundinn þessi meðalvegur. Ég fór með Simma í Króniku í gær og Kolbeinn var hjá ömmu Möggu á meðan. Við fórum í bíó og sáum englana hans Charlies. Ég vil nú heldur hafa spennuna tengda taugum heldur en hraða og hávaða. En Kolbeinn og gamli skemmtu sér vel. Það hafði eitthvað með flotta kroppa að gera sögðu þeir. Í dag kom hann líka með okkur ssuður og var hjá Kormáki vini sínum. Hann ætlar til hans aftur á morgun og gista hjá honum.

fimmtudagur, 10. júlí 2003

Og þá tekur yndislegur hversdagleikinn við. Hugurinn er samt enn úti í Koben. Hann verður bara að vera það þangað til næst.

miðvikudagur, 9. júlí 2003

Ég veit ekki hvad vid erum ekki búin ad skoda hér í Køben. Næsta mál er ad pakka draslinu ofan í tøsku og fara ad hugsa um heimstímid. Ég veit ad Kolbeinn saknar okkar, hann sagdi mér thad í dag thegar ég hringdi í hann, í óspurdum fréttum. Thad er notalegt ad vita ad einhver tekur á móti manni thegar madur kemur heim. En vikan hér í kóngsins Kaupmannahøfn er búin ad vera alveg meirisháttar, eins og kerlingin sagdi.

þriðjudagur, 8. júlí 2003

Tívolíid var tekid med trompi í gærkvøldi. Í dag vorum vid ad spóka á Amager og røltum sídan um Cristianiu. Thad var skemmtileg upplifun. Tharna voru hassmolar og køgglar seldir í sølutjøldum, rétt eins og pylsurnar eru seldar úr á 17. júní heima. Og pípur og áhøld til notkunar í massavís. Allir voru ligeglad og ekki nokkur sála sýndi einkenni stress. En vid erum gengin upp ad øxlum.

mánudagur, 7. júlí 2003

Vedurfrædingarnir klikka hér eins og heima. Thad var búid ad spá sól og blídu i gær svo rádgerdum ferd a strøndina en sólin lét ekki sjá sig svo fórum i gøngutur med Gudlaugi Arasyni rithøfundi um Íslendingaslódir. Vid Simmi fórum í svoleidis túr fyrir 5 árum en thad var alveg thess virdi ad fara aftur. Nú glósadi ég il litla kompu thad helsta sem Gudlaugur sagdi thví minnid er ordid svona og svona. Hann fór adeins ødruvísi túr en vid fórum ádur svo nú erum vid alls fródari um Køben. Vid gengum okkur upp ad øxlum í gær thví vid héldum áfram eftir ad Gudlaugur kvaddi okkur. Vid bættum Rosenborgarhøllinni vid og Rosenborgargardinum og vid Alda skelltum okkur upp i Rundetårn. Thadan sáum vid yfir alla borgina og jafnvel Stórabeltisbrúna. Vid tókum svo strætó út á Amager til Eiríks og Gudfinnu og litlu Sigrídar Telmu í matarbod.
Vid høfdum afmælisveisluna hennar Øldu á laugardagskvøldid á fínum veitingastad og kráarrølti nidur Strikid og nidur á Nýhøfn. Í dag, á sjálfan afmælisdaginn, ætlum vd ad slaka á núna fyrripartinn (thad er svo huggulegt hverfid okkar og vid erum búin ad finna hverfiskrána))og fara svo í Tívolí í kvøld.
Sólin er nú eitthvad ad glenna ødruhverju.

laugardagur, 5. júlí 2003

Og enn rignir. Alda, Valdi og Simmi bordudu morgunmat uti i solskini (eg missti af thvi, la bara i bælinu) en thad for skyndilega ad rigna og rignir enn. Thad verdur bara ad hafa thad.

föstudagur, 4. júlí 2003

Vøknudum i morgun vid fuglasøng og ljufa rigningu. Heilsdudum upp a Lailu og hun visadi okkur a S-toget sem vid tokum nidur i bæ. Dulludum okkur i allan dag i bænum, bordudum brunch a veitingasdtad vid hlidina a Tivoli (vid Simmi høfum komid thar adur, med kennaralidinu heima). Gudfinna kom og hitti okkur thar. Ofarlega a Strikinu fekk Simmi minn kaupadellu og keypti a sig ledurjakka. Meira sem eg er anægd med kallinn, hann vill nefnilega helst aldrei kaupa neitt a sig. Valdi keypti rosaflottan gellu ledurjakka a Øldu. Svo fekk eg lika thessa finu sko a Kolbein, hann a ekki ad geta slitid theim a manudi eins og øllum ødrum skom.Thad komu svkalegar rigningardembur ødru hverju svo vid neyddumnst til ad fara inn a bari og kaupa okkur bjor. Audvitad settumst vid inn Hvids vinstue og fengum okkur thar godan drykk. Islendingar eru her um allt, vid verdum ad passa okkur ad vera dønnud i ordbragdi thvi madur veit aldrei nema madurinn vid hlidina se samlandi. Vid erum buin ad heyra i og sja svona 30 mørlanda. Vid fengum okkur kvøldskattinn a sætum stad vid Nyhøfnina. Thad er jazz festival i borginni, sem byrjadi i dag og mun standa til 13. juli. Vid lentum a tonleikum i rigningu vid Nyhøfnina, thar sem nokkrir grahærdir sætir kallar voru ad jazza. Geggjud stemmning. Hun er buin ad koma ser vel regnhlifin sem eg keypti i Edinborg um daginn. Her er folk berfætt i bandaskom med regnhlif.

fimmtudagur, 3. júlí 2003

Vid heimsottum Eirik og Gudfinnu og fundum filinguna ad vera i Køben. Wonderful Copenhagen.
Klukkan er half thrju upp a dønsku og vid erum mætt hja Lailu a Fossgardsvej 11. Okkur list rosalega vel a okkur. Vedrid er himneskt og Danmark er dejlig. Gudfinna tok a moti okkur a flugvellinum. Eirikur var ad hringja. Hann er buinn i vinnunni i dag og vid ætlum ad byrja a thvi ad heimsækja thau a Amager.
Það dugar ekkert minna en vika til að halda upp á 200 ára afmæli. Það finnst okkur fjórmenningunum, mér, Simma, Öldu og Valda alla vega. Alda verður síðust af okkur að verða fimmtug og í tilefni þess förum við til Köben í fyrramálið að halda upp á afmælið hennar, 7. júlí, og okkar hinna pínulítið líka. Allt er klárt. Tengdamamma og Erla mágkona sjá um Króniku og Svava mágkona sér um Kolbein. Hann var alsæll að fá að vera hjá henni í viku. Þar er fullt hús af strákum og tölva og sjónvarp með DVD spilara og allir á kafi í fótbolta. Já,vel á minnst, Kolbeins lið fékk bikara fyrir þriðja sæti á Borgarnesmótinu.
Við ætlum að vera í heimagistingu hjá henni Lailu Petersen á Fossgardsvej 11. Það verður örugglega gaman að búa í íbúðahverfi og taka strætó niður í bæ í stað þess að verma rúmin á hóteli eins og maður hefur gert hingað til. Hjá Lailu eru tvö herbergi í útleigu svo við höfum neðri hæðina fyrir okkur, tvö herbergi, bað og eldhús. Og við getum fengið morgunmatinn úti í garði. Það er svolítið sem mér finnst æðislegt. Já, kóngsins Kaupmannahöfn bíður.

þriðjudagur, 1. júlí 2003

Kolbeinn kom með okkur í bæinn í morgun og við skutluðum honum til Erlings Aspelund. Hann ætlar að vera hjá honum í dag. Þeir voru mestu mátar á meðan Erling bjó í Ameríku og nú er verið að endurnýja vinskapinn.
Ég fór í göngu í gærkvöldi með Ferðafélagi Ölfuss. Gengið var á Hengilssvæðinu, kringum Hróðmundartind, í Tindgili meðal annars, áð í Seltungum og Þverárdalur genginn til baka. Veðrið var yndislegt og útsýnið stórkostlegt, alveg yfir að Þingvallavatni. Mér finnst landið mitt skreppa saman og verða minna og minna eftir því sem ég kynnist því meira. Þetta var þriggja tíma ganga í kvöldhúminu. Nú bíð ég bara spennt eftir næstu göngu.

mánudagur, 30. júní 2003

Við, gamla settið, urðum að gegna hlutverki foreldra um helgina og fara með Karl Kolbein á fótboltamót í Borgarnesi. Það var ægilega gaman en við vorum í tjaldvagni og ég held að við séum búin með þann kvótann. Það væri kannski í lagi ef það rigndi aldrei og ekkert blotnaði en því var ekki að heilsa. Það varð allt svo rennandi blautt og ógeðslegt að við nenntum ekki að bíða eftir verðlaunaafhendingu. Við hefðum þurft að sitja í blautum vagninum í 3 klukkutíma. Svo eru svona gamlir skrokkar ekki gerðir fyrir þunnar svampdýnur. Það var ansi erfitt að skríða á fætur þessa tvo morgna. En það var gaman að fylgjast með boltanum, sérstaklega hjá yngstu flokkunum. Okkar manni finnst frekar fúlt að tapa, hann á eftir að læra það aðeins betur, en hans lið vann þrjá leiki, gerði eitt jafntefli og tapaði tveimur (ef ég man þetta rétt). Hann átti góða spretti og skoraði flott mörk. Svo var honum kippt inn sem markverði í annað lið og það fannst honum upphefð. Ef hann ætlar að koma aftur næsta sumar og æfa fótbolta verðum við á hótelinu, það ræðir ekkert um annað en mér skilst að þá sé eins gott fyrir mig að fara að panta.
Það er merkilegt þetta með hana dóttur mína. Þegar hún var lítil kölluðum við hana stundum Dúllu Jones. Núna býr hún með Dave Jones og það stendur til að hún beri það nafn í framtíðinni. Ég kallaði hana líka stundum Dabbiló. Hún kallar kærastan svona upp á íslensku Dabba. Þegar ég var 17 ára fór ég til spákonu sem þar á meðal gaf mér upp öll þau lönd í heiminum sem ættu vel við mig. Það voru svona 6-7 lönd og þar á meðal Wales sem ég hef aldrei komið til en á örugglega eftir að vera þar með annan fótinn að heimsækja Dúllu og Dabba Jones og aðalhöfðingjann, litla prinsinn af Wales.
Það er allt annað umhverfi í blogger í tölvunni heima en í Króniku. Hvernig í ósköpunum stendur á því ? Arg og garg..... Mér líkar betur við það í Króniku.
Ég er að klikkast á þessu...... Dabbiló þyrfti að vera heima núna.
Nú er ég að vona að íslensku stafirnir séu komnir inn. Ég skil ekki vandræðin sem ég er búin að vera í. Það er eins og tölvan mín heima sé eitthvað að stríða mér en sú gamla í Króniku hagar sér betur við mig. En ég sé að ég á góða vini sem sjá um mig. Það er góð tilfinning.

sunnudagur, 29. júní 2003

Ég er að pæla í hvað ég á að gera til að ná öllum ?????? í burtu.

miðvikudagur, 25. júní 2003

Hvar eru þessir feitu Bretar sem Fréttablaðið segir frá í dag? Ég sé Breta fyrir mér lágvaxinn, fíngerðan og grannan en ekki feitastan allra Evrópubúa. Spánverjar lifa lengst Evrópubúa þrátt fyrir að reykja mest, segja þeir. Ja, hérna hér. En það besta er að fáir Frakkar deyja úr hjartasjúkdómum og skýringin er ást þeirra á rauðvínum. Ég hef örugglega verið Frakki í fyrra lífi því ekki á íslensk kerling, fædd um miðja síðustu öld, að elska rauðvín jafnmikið og Frakki. Ég vona bara að rauðvínið geri mér jafn gott og Fransmönnum. Það slæma í fréttinni er að ungverska gúllasið hefur vond áhrif; Ungverjar eru skammlífastir allra Evrópubúa og gúllasinu kennt um. Eins og það er nú gott á vetrarkvöldi, með ungverska rauðvíninu Egri Bikavér (ég held að það þýði nautablóð) og tónlist sem skapar vampírustemmingu.
Og svo er það spurning hvort á að skrifa stemming eða stemning? Ég bara spyr eins og fávís kona.
Ætli sumarið sé liðið og komið haust?
Var í Króniku í gær og var í Króniku í dag. Í gær var Kolbeinn einn heima en með langömmu og langafa í bakhöndinni (þetta er örugglega ekki góð íslenska). Hann snæddi hádegisverðinn hjá þeim og fór svo seinnipartinn í sund með langafa. Hann er ótrúlega duglegur að sjá um sig sjálfur nema ég sé búin að gleyma því hvenær börn eru sjálfbjarga með ýmsa hluti. Já, þegar ég hugsa til baka minnir mig að börnin mín hafi þurft að gera ýmsa hluti sjálf um 10 ára aldurinn. En Kolbeinn er nú samt ´spes´, sama hvað hver segir. Hann kom með okkur í dag og fékk ýmis verkefni eins og að sjá um vatnskönnurnar og koma þeim á borðin og vaska upp (með aðstoð). Hann ætlaði að hitta Kormák, gamlan vin, en hann var í sumarbúðum.

mánudagur, 23. júní 2003

Var í Króniku í dag. Tókum höfðingjann litla með okkur í bæinn því hann var boðinn í 11 ára afmæli vinar síns Sigurjóns. Sigurjón og Kolbeinn hafa verið vinir frá því þeir kynntust í Sælukoti eins eða tveggja ára gamlir. Ég er ekki sniðin fyrir svona vinnu eins og hún gerist í Króniku eða á öðrum veitingastöðum sem hann Simmi minn hefur látið mig vinna á. Ég verð svo þreytt í fótunum að ég stend varla undir sjálfri mér. Svo er svo heitt þarna og ég svaf nánast ekkert í nótt og svo.......æ ég veit það ekki, ég var bara svakalega þreytt. Var ákveðin í að fara snemma í bólið en þá slapp höfðinginn út (ætlaði á rampinn ) og nú erum við gamla settið að pæla í því að fara og gá að honum. Við eyddum lunganu úr kvöldinu í að gera klárt fyrir Borgarnesmótið. Gera tjaldvagninn klárann og finna þetta og græja hitt. Við erum nú reyndar alveg komin úr útilegu "fílingunni". Fórum aldrei í útilegu í fyrra en hvað gerir maður ekki fyrir höfðingja?

sunnudagur, 22. júní 2003

Laugardagurinn 21. júní var útskriftardagur dóttur minnar Svövu Ránar. Hún var að útskrifast úr enskuskori heimspekideildar Háskóla Íslands. Við, foreldrar hennar, erum ákaflega stolt af henni. Hún dró það við sig að skrifa lokaritgerðina og það var farið að íþyngja henni dálítið. Við vorum mest hrædd um að þessi ritgerð liti ekki dagsins ljós. En stelpan okkar dreif sig á Hornafjörð síðastliðið haust, gerðist þar framhaldsskólakennari og dútlaði við ritgerðina í frístundum í rólegheitunum fyrir austan. Hún skrifaði 10 eininga ritgerð sem heitir THE SEXUAL VAMPIRE: Marginalisation in the Vampire Genre or the Blurring of Gender. Hún fékk 8.0 fyrir ritgerðina. Ekkert útskriftarpartý var haldið. Hún var ekki einu sinni viðstödd útskriftina enda byrjuð búskap á erlendri grundu.
Að ganga um fjallendi Íslands, að kvöldi til og fram á nótt þegar lengstur er sólargangur, er ólýsanlegt. Leiðsögumaðurinn, Björn Pálsson, þekkir hverja þúfu á hvern blett með nafni og ekki var leiðinlegt að fá smá jarðfræðilýsingar um leið og örnefnin voru nefnd. Þó svo að nöfnin festist ekki öll í kollinum á manni verður göngutúrinn samt miklu meira lifandi við að heyra nöfnin. Við vorum um 20 manns úr Höfninni sem gengum þarna saman. Byrjuðum við Hveradali og gengum fyrst í vestur (í áttina að Þrengslavegi) og sveigðum svo í suður og enduðum við Hjalla í Ölfusi. Skálafell var á vinstri hönd lengst af og Meitlarnir á hægri. Við vorum fjórar klukkustundir og tuttugu mínútur á leiðinni. Ég hefði ekki viljað missa af þessari upplifum þrátt fyrir mikla strengi daginn eftir. Ég ætla að sleppa allri notkun lýsingarorða, það yrði væmin upptalning hjá mér.

föstudagur, 20. júní 2003

Nú er maður sko komin í göngugírinn. Til stendur að ganga í kvöld gönguleið 8 FFÖ sem er Skálafell og Vatnabrekkur að Kerlingabergi Ferðamálafélag Ölfus skipuleggur ferðina.Eins og segir í lýsingu ferðarinnar verður komið heim í húmi nætur. Lengstur sólargangur er um þessar mundir og veðurspáin er góð. Ég á líka von á að þarna verði hópur af frábæru fólki og fróður farrarstjóri.
Kolbeinn er hjá Sigurjóni vini sínum en Sigurjón verður hjá okkur þar næstu nótt í staðinn.

fimmtudagur, 19. júní 2003

Ég ætla að taka þátt í kvennahlaupinu í kvöld. Ég heyrði í Íslandi í bítið í morgun að það er í tísku að nota göngustafi. Mikið er ég fegin, ég hefði aldrei þorað að fara með stafina mína í 'venjulega' göngu nema að vita að það sé í tísku. Svona er nú sjálfstæðið mikið. En málið er að mér finnst miklu betra að nota stafi. Ég ætla að taka stafina með í kvöld og stika 5 km.
Þá daga sem Kolbeinn fer á fótboltaæfingu erum við heima en tengdó fer í Króniku með Simma. Við Kolbeinn kunnum að hafa það náðugt. Við förum seint á fætur og striplumst þá gjarnan fáklædd og gerum helst ekki neitt. Þegar líður á daginn fer svo allt á "fúllsving". Frændur Kolbeins, unglingarnir Geir og Ási, eru duglegir að taka hann með í sund og bara eitthvað að hanga eins og unglingar gera. Kolbeinn er afskaplega ánægður með þetta því hann er að eigin mati meira svona eins og unglingur heldur en krakki. Hann hlustar á unglingatónlist og hugsar eins og þeir, segir hann. Hann er samt mjög ánægður í fótboltanum og hlakkar til að fara á Borgarnesmótið.

mánudagur, 16. júní 2003

Það spáir rigningu á morgun, 17. júní. Mágur minn, Gunnar Daníel, segir að sé ekkert skrítið, rigningin hafi verið lögtekin á Þingvöllum 1944 um leið og lýðveldishátíðin var haldin. Í minningu minni finnst mér samt að það hafi alltaf verið sól á 17. júní þegar ég var lítil stelpa heima á Selfoss. Við, systurnar, fengum að fara í jólakjólana, frá síðustu jólum, og stutta hvíta sokka og spariskóna, sem líka voru hvítir. Það var farið í skrúðgöngu og tekið þátt í hátíðarhöldum í Tryggvagarði. Seinna varð ég skáti og þá marseraði maður í svörtum skátakjól í skrúðgöngunni, mjög stolt og allir í takt. Það var alltaf æfing í taktgangi kvöldið áður. 1968 var ég fjallkona í Þorlákshöfn og svo aftur nokkrum árum síðar. Er maður bara ekki alltaf fjallkona? Það held ég.

sunnudagur, 15. júní 2003

'Lazy sunday' indælt líf. Ein bíómynd í rúminu fyrir hádegi, söng við fermingarmessu eftir hádegi. Einn nemandi minn, hún Dídí var að fermast. Þær voru glæsilegar mæðgurnar, Ingibjörg í íslenskum búning og Dídí í færeyskum búning. Hátíðleg og skemmtileg stund. Við, gamla settið, fórum í sund með sonarsoninn, gullpunginn, og lágum þar í leti í eina klukkustund eða svo. Það fór sem sagt lítið fyrir sundi en sólskinið sleikt þess meira. Kolbeinn sér í rómantískum hillingum sunnudagakaffi hjá ömmu svo við kíktum þar við en það mæta alltaf færri þegar sumarið brestur á. Við mættum í dag og liðið hans Bjössa. Amma Hulda slapp því alveg við lognmollu. Enda er það eitthvað sem hún þolir ekki. Við, Simmi minn, eyddum síðan nokkrum mínútum saman í eldhúsinu og elduðum þennan líka fína ítalska rétt. Mættum svo klukkan átta í höfuðstöðvar Ægis og greiddum mótgjaldið fyrir júníorinn á Borgarnesmótið. Við verðum að gjöra svo vel og haga okkur eins og við værum tuttugu árum yngri. Það er bara svo einfalt. En djö..... höfum við gaman að því.

laugardagur, 14. júní 2003

Fengum okkur lítinn, sætan göngutúr í dag og lentum í bakgarðinum hjá Grétu og Gunnari í þvílíkri sól og blíðu. Gengum síðan lengra og, viti menn áður, en við vissum af vorum við stödd í Skálanum að Lotta og þar voru á sama tíma gamlir æskuvinir, þau Valdi Svavars og Dóra. Þau voru að koma af golfvellinum. Þangað förum við reyndar aldrei. Alltaf gaman að hitta Valda og Dóru, þau koma með ferska vinda og nýjan blæ, þessar elskur. Þarf að fara að rifja upp allar sögurnar sem eru til um Valda síðan hann vann í Boða hjá pabba mínum. Legg hausinn í bleyti og spyr mér minnugra fólk.
Það er útilokað að fara til Skotlands án þess að fá fræðslu um 'whiskyið' þeirra. Áður en við, kennaraliðið, fórum áð skoða skólakerfið þeirra Skota, fengum við fræðslu um 'whisky'. Við fórum á safn sem heitir The Scotch Whisky Heritage Centre Limited. Þar fórum við í gegnum sögu 'whisky' og fengum kennslu í að þekkja það. Nú er spurningin hvort maður er lowland, highland, speyside eða island manneskja.
Kvöld eitt, í Edinborg, fórum við sex stelpur út að borða. Fórum á kínverskan stað og fengum frábæran mat og þjónustu. Við ákváðum að taka leigubíl heim á hótel eftir matinn í stað þess að ganga. Það voru pantaðir tveir bílar því þeir taka einungis fimm farþega. Annar bíllinn kom á undan hinum og fannst mér alveg fráleitt í augnibliki skemmtilegheitanna að sundra hópnum svo ég snara mér að leigubílstjóranum (þeir hafa rúðurnar alltaf niðurskrúfaðar) og spurði á minni frábæru ensku:"Is it impossible to have sex in here?" Ekki veit ég hvað leigubílstjórinn hélt í alvöru en hann svaraði að bragði: "It is o.k by me but not with the taxi."
Edinborg er frábær borg að heimsækja. Hún er falleg og skemmtileg. Ég var líka með fallegu og skemmtilegu fólki þar í nokkra daga um daginn, kennaraliði Grunnskólans í Þorlákshöfn. Við heimsóttum tvo skóla, "primary school" fyrir 5-12 ára og "secondary school" fyrir 13-18 ára. Við fengum einnig fyrirlestur hjá Bob Young um skoska skólakerfið og ytra og innra mat skóla. Þetta var allt mjög áhugavert og fróðlegt að sjá og heyra. Af mörgu er að taka til að segja frá en mér detta fyrst í hug skólabúningarnir. Í yngri barna skólanum voru flest allir krakkarnir í búningum en þó ekki blazer jökkum með bindi eins og maður sér í bíó heldur þægilegum fötum af ýmsum toga en liturinn var grænn. Það var ekki skylda að nota búninginn en mælst til þess. Í eldri barna skólanum var ekkii búningur heldur mælst til þess að fötin væru í svörtu og hvítu en það var ekki virt af öllum. Umbunakerfið sem notað var í skólanum vakti til umhugsunar ekki hvað síst vegna þess að það var gegnum gangandi notað í öllum bekkjum í öllum skólanum (liður í stefnu skólans) en ekki eitt hjá einum kennara og annað hjá þeim næsta. Mér leið líka eins og frekri heimturófu þegar ég bar vinnuaðstöðu kennarana saman við okkar, húsnæðið almennt og fjölda nemenda í bekk.
Áður en Kolbeinn flutti til Iowa var uppáhaldsveitingastaðurinn hans McDonalds en besti staður afa hefur verið til margra ára Ítalía. Það þurfti oft hér áður að fara samningaleiðina þegar til stóð að fara út að borða. Pilturinn kvartaði yfir því í fyrrakvöld að við hefðum aldrei boðið honum út að borða þegar hann var hjá okkur í fyrra. Ég minnti hann á að við hefðum farið á Pizza Hut á afmælinu hans og boðið mörgum strákum. "Það telst ekki með, ég meina svona ÚÚÚT að borða", sagði hann. Hann var spurður hvert hann vildi þá fara ´'úúút' að borða. "Auðvitað á Ítalíu", svaraði hann um hæl. Þetta fannst afa bera vott um mikið þroskamerki hjá sonarsyninum.

fimmtudagur, 12. júní 2003

Ég fékk sms áðan frá 'mæfjútjúrsoninlov'. Hann var að gefa mér upp póstnúmerið hjá þeim skötuhjúum svo nú get ég sent pakka eða eitthvað skemmtilegt.
Hann hefur áður sent mér kveðju þessi elska, það var á afmælinu mínu og til að gefa mér upp nýja símanúmerið þeirra.
Svo fer maður kannski að heyra meira frá Svövu Rán.