 |
| Gerum rosalega góðar pizzur |
Hef talað um það í nokkur ár að draumstarfið mitt væri að vinna á kassa í Bónus eða annarri álíka verslun. Hugmyndin á bak við þetta er að kennarastarfið er oft svo erfitt og krefjandi (en um leið gefandi og skemmtilegt en það er allt önnur ella) að það kemur upp í hugann hvað það væri þægilegt að þurfa ekki að bera ábyrgð á uppeldi barna, þurfa ekki að tala af viti, skynsemi og gáfum við forelrdra um námsárangur barna þeirra, þurfa ekki að bera ábyrgð á framvindu náms margra einstaklinga og hafa áhyggjur af hverjum og einum nemenda. Nóta bene, ég hef notið kennarastarfsins næstum því hverrar mínútu þessi fjörutíu og eitthvað ár sem ég hef verið að sinna því starfi en samt koma svona hugmyndir upp í kollinn, hvað það væri dásamlegt að þurfa ekki að spjalla við neinn um alvarleg málefni heldur bara brosa, bjóða góðan daginn og bjóða fólki poka og afrit. Draumur í dós. Fara svo bara heim og láta sjónvarpið sjúga úr manni sálina.
Aldrei veit maður ekki neitt. Er maður ekki bara komin í svona djobb, allt í einu og óforvarandis. Við, Simmi minn, hugsuðum reyndar um þetta í nokkurn tíma og slóum úr og í með það að fara að reka veitingahús enn og aftur. Aðra stundina vorum við ákveðin í því að við værum búin með þennan pakka. Við gætum ekki á gamals aldri verið í vinnunni eftir kvöldmat en viti menn við gátum líka fundið milljón ljósa punkta við að fara að reka veitingastað og hér erum við. Að baka pizzur, steikja hammara og ýmsa aðra góða rétti,brosandi og bjóðandi góðan dag, bjóða fólk velkomið og þjóna á alla lund. Já, aldrei skyldi maður segja aldrei.
1 ummæli:
Frábær Pizzan sem ég fekk hjá ykkur í gær, þetta getur ekki klikkað með svona vöru
Skrifa ummæli