| Keypti þá ekki en djöfull eru þeir flottir |
Í dag lágum við á ströndinni til að byrja með fórum svo heim í smá síesta og ætluðum að taka reiðhjól á leigu og hjóla með ströndinni. Þá var ekkert hjól inni og gaurinn vissi ekki hvenær væri hægt að leigja hjól af honum næst. Frekar áhugalítill ferðabísnissgæi. Þá tókum við smá sólbað í garðinum okkar og fórum svo bara í göngutúr með ströndinni fram.
Alltaf er eitthvað að sjá, eitthvað að pæla og eitthvað að spekulera í.
| Það verður eð eiga vatn í þessum hita |
1 ummæli:
Það er bara svo gott að borða. Sér í lagi mat frá öðrum. Og ég sé þú ert búin að fatta hvernig á að setja texta á myndir. Flott!
Skrifa ummæli