Síður

miðvikudagur, 9. febrúar 2011

 
Brunnin grjón en vellukkaður kjúlli
Hann, Simmi minn, segir alltaf að til að elda góðan mat þurfi að gefa af sér ást og umhyggju. Annars verði eldamennskan og þar af leiðandi maturinn ekkert spes. Honum finnst til dæmis alveg útilokað að kíkja á tölvupóstinn í miðjum eldunarklíðum eða taka aðeins í prjónana eða lesa einn kafla í bókinni sem maður er að lesa. Mér finnst samt kjörið að nýta tímann í eitthvert uppbygggilegt á meðan suðan kemur upp eða ofninn hitnar almennilega.
"Það verður að vera með hugann við það sem maður er að gera segir hann alltaf."
Ókei, ég veit allt um þetta sem kennari til næstum því hálfrar aldar. En skrambinn hafi hafi það að ég nenni að hanga yfir sjóðandi pottum.
Hefði samt betur haft þetta til umhugsunar í kvöld. Það munaði minnstu að ég kveikti í kofanum með hugsunurleysi.
Setti grjón og vatn í pott og ætlaði aða hafa þau með grænpestóavagesírópskjúklingaleggjunum mínum.
Ég þurfti bara að kíkja í tölvuna á meðan suðan kom upp. Og viti menn, ég varð að nota gúgúltransleit smáveigis. Aðeins að treysta kunnáttuna í spænsku.
Á meðan brunnu grjónin á hellunni.
Ég rankaði við mér þegar brunalykt sló fyrir vitum mér.
Henti pottinum út í snjóinn og borðaði kjúllaleggina án grjóna í brunalyktarmenguðu húsi.

2 ummæli:

murta sagði...

Tvennt;
Uppskrift að grænpestóagavekjúkling
og
hvað varstu að lesa á spænsku?

Guðrún sagði...

OMG... ég að gefa uppskrift!! Ég hræri saman grænt pestó og agavesýróp og velti leggjunum upp úr þessu og baka í eldföstu móti inni í ofni. Allt með tilfinningu, kann engin hlutföll eða skynja tíma. Grjón með, sem veltast upp úr jukkinu sem verður til í fatinu. Í kvöld hafði ég engin grjón vegna kæruleysis og eða elliglapa. Ég átti spínat sem ég graðkaði í mig í stað grjóna og sjálfsagt hollara.
Spænskan....höfum sem fæst orö um það. Vino blanco a la casa. Una vaso vino tinto. Mín kunnátta nær ekki öllu lengra .... í bili.