Síður

föstudagur, 11. desember 2009


Jólafílingur
Ég fékk nett nostalgíukast í dag þegar ég setti á fóninn disk sem ég fékk sendan frá dótlu minni í gær. Ég fæ pakka upp á hvern dag nú orðið. Ég veit ekki hvernig þetta endar.
Sum sé, í gær dró ég upp úr sendingu, frá Wales, pakka sem á stóð að við Simmi minn ættum að opna hann strax, já, núna.
Við þorðum ekki annað en að hlýða þessari skipun. Úr pakkanum kom diskur sem við könnuðumst við frá fornri tíð.
Willie Nelson-PRETTY PAPER.
Jóladiskur jóladiskanna.
Þessi diskur....nei þessi plata var sett á fóninn þann 1. des. ár hvert, í mörg ár, á mínu heimili. Það var frí í skólanum og ég notaði tækifærið og bakaði smákökur til jólanna, það var kveikt á jóladagatalakertinu og hnetukerlingarnar voru hengdar upp og Willie settur á fóninn. Ilmur bakstursins fyllti húsið um leið og rödd Willie Nelsons hljómaði.
Jólin voru greinilega á næsta leiti.
Þetta er siður sem gleymist ekki en hefur breyst í tímans rás eins og allt annað.
Annað væri óeðlilegt.
Ég fékk Willie aftur núna og rifjaði upp gamla tíð.
Ég hef ekki spilað hann í mörg ár af því fónninn er ekki lengur til á heimilinu.
Willie er komin í hús og það er gott mál.

5 ummæli:

Hulda sagði...

Já gott er að halda í hefðirnar :-)

Guðrún sagði...

Þó að maður vilji breyta til þá getur maður það eiginlega ekki.

Nafnlaus sagði...

Villie er sá besti

Nafnlaus sagði...

Willie er sá besti
Bardur

murta sagði...

Ég man núna hvað ég ætlaði að segja í dag, boxhanskarnir komu í dag og eru æðislegir. Skínandi bláir.Ég pakka þeim fallega inn. Hann er líka enn að æfa sig þannig að hann verður þvílíkt kátur með þá.