Það var rosalega gaman að leika við Lúkas Þorlák í heila viku. Við höfum alltof sjaldan getað leikið við hann. Afi hefur hitt hann fjórum sinnum en amma fimm sinnum síðan hann fæddist fyrir rúmum tveimur og hálfu ári síðan. Hann þekkir okkur sem ömmu og afa eða kallar okkur það að minnsta kosti en hitt settið hans, sem býr í Wales eins og hann, kallar hann "næn og tædí" sem eru welsku nöfnin yfir ömmu og afa.
Lúkas er lítill snillingur. Hann talar ensku en skilur íslensku alveg. Mamma hans gefur ekkert eftir með það, hún talar alltaf við hann á íslensku því hún vill að hann læri hana. Hann tekur eitt og eitt íslenskt orð fram yfir þau ensku eins og ís, tölva og róló. Hann kallar mömmu sína mammí en pabba sinn pabba. Það var skondið þegar afi var að leyfa honum að ganga uppi á girðingu en leiddi hann auðvitað þegar piltur sagði: "Afi, be careful." Eða þegar mamma hans sullaði niður kaffinu sínu og Lúkas sagði "What a mess!"
Lúkas Þorlákur hefur umhverfisgreindina í fínu lagi. Hann ratar alveg út á róló þó það sé nokkur spotti að fara. Hann snarsnéri sér í kerrunni og sagði snöfurmannlega: "Amma, the clock", þegar ég ætlaði að gleyma að beygja hjá klukkuturninum á leið okkar á róló. Hann veit líka hvar strætó stoppar og veit í hvaða búðum niðri í bæ dótið fæst.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli