Síður

mánudagur, 10. júlí 2006


Sumarið þýtur hjá, samt er það ekki almennilega komið. Góðu áformin mín um mikla aukna hreyfingu í sumar hafa einhvern veginn ekki orðið að neinu. Ég er mjög dugleg við að finna afsökun fyrir því að fara ekki út að ganga eins og ég hafði planað að gera á hverjum einasta degi þegar sumarið kæmi. Ég fer náttúrlega ekki út í rigningu, þannig að þar get ég mínusað ansi marga daga. Svo fer ég ekki þegar Nanna litla ömmustelpa er hjá mér, því ekki skil ég barnið eftir eitt heima. Og svo einkennilegt sem það nú er þá gleymi ég stundum að fara út. Eins og mér finnst samt gott að skondra 30 mínútna hringinn minn.
Ég fór í kvöld með Ferðamálafélagi Ölfuss í göngu á Hellisheiði þar sem gömul vörðuð þjóðleið var gengin. Gangan tók 2 klukkutíma með korters pásu. Erla og Tóti voru fararstjórar. Tóti er orðinn þrælkunnugur þarna uppi á fjöllum og kann skil á örnefnum og sögunni. Hann benti okkur á Orrustuhól þar sem Ölfusingar og Mosfellingar börðust árið 1162. Spurning um hvað þeir börðust.
Staldrað var stutta stund við Hellukofann sem var hlaðinn árið 1833.
Góð ferð í góðu veðri.

Engin ummæli: