Ég slapp nokkurn veginn við táraflóð og viðkvæmni þegar nýja árið gekk í garð. Ég var svo upptekin við að finna sjálfa mig á skjánum þegar Nú árið er liðið var flutt. Ég sást nokkur augnablik. Ég fékk sms frá gömlum kærum vini sem býr í Noregi þar sem hann segist hafa séð mig í tölvunni sinni. En hún dótla mín gleymdi þessari útsendingu. Hún hlýtur bara að vera orðinn svona mikill Breti í sér. Hún sem hefur langoftast staðið við hlið mér þegar Nú árið er leikið í sjónvarpinu og við grátið saman. En svona er nú þetta, lífið breytist.
Gamlársdagur var frábær. Sigga og Siggi buðu okkur í mat í hádeginu ásamt nokkrum góðum vinum og kunningjum. Þau gerðu þetta líka í fyrra og nú er spurning hvort þetta sé orðin hefð.
Hulda Gunn bauð svo allri stórfjölskyldunni heim til sín um kvöldið. Þetta var siður í mörg ár að við systurnar skiptumst á að vera heima hjá hver annarri á þessu kvöldi og Hulda vildi endurvekja það. Flest allir afkomendur mömmu og pabba komu og skemmtu sér saman við borðhald, söng, flugeldaskot og sjónvarpsgláp. Við fengum tvöfaldan skammt af áramótaskaupi. Þessu venjulega og því sem Magnþóra og Kolbrún höfðu sett saman um árið 2005 hjá fjölskyldunni. Þær höfðu tekið viðtöl við suma og settu það ásmt ljósmyndum saman í annál. Skemmtilegt hjá stelpunum. Strákarnir Rúnar og Kalli spiluðu á gítara og stjórnuðu fjöldasöng.
Skemmtilegur dagur.
Skemmtilegt kvöld.
Skemmtileg áramót.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli