Síður

miðvikudagur, 31. maí 2006


Það beið handan við hornið
vorið
fór í pásu
smástund
kom aftur
sem betur fer
nú er allt aftur
eins og það á að vera
hlýtt
rigning
og vorið aftur
farið á stjá.

þriðjudagur, 30. maí 2006

Ég fékk skemmtilegt bréf í dag. Það minnir aðeins á hversu tíminn hefur flogið en það verður bara að bíta í það súra enni ....eins og maðurinn sagði. Bréfið var frá sjálfskipaðri nefn "krakka" sem voru með mér í bekk í Kennó. Það stendur til að halda upp á að 35 ár eru liðin síðan við útskrifuðumst. Nefndin er geinilega að hugsa...ekki er ráð nema í tíma sé tekið... því partýið verður ekki fyrr en í haust. Við útskrifuðumst 16. júní 1971 ef ég man rétt. Ég gengin þrjá mánuði með Kalla þannig að prófatíminn varð mér erfiður. Ég ælandi og spúandi einmitt á þeim tíma og komst ekki í sálfræðiprófið vegna þessa. Varð að taka sjúkrapróf síðar. Ég segi oft í gamni að þetta hafi orðið til þess að Kalli lagði leið sína í sálarfræði seinna meir. En það er nú önnur saga. Ég er búin að taka 23. september frá. Ég ætla ekki að missa af því að hitta alla gömlu skólafélagana.

mánudagur, 29. maí 2006


Ég skellti mér í höfuðborgina í dag eftir vinnu því ég átti pantaðan tíma í klippingu hjá henni Röggu í Monroe. Núna vildi hún hafa þetta almennilega sumarklippingu. Ég held ég hafi síðast verið svona klippt þegar ég var 15 ára.
Allt gengur í hringi.

sunnudagur, 28. maí 2006


Vaknaði í morgun með vonbrigðaköggul í maganum. En það þýðir ekkert annað en að standa keikur þó allt hafi ekki farið eins og vonir stóðu til. Maður er nú þroskaðri en það að láta smá mótvind hafa stór áhrif á sig. Við fengum þó allavega fleiri atkvæði en síðast og það munaði ekki miklu að við kæmum öðrum manni að. Ég held við megum bara vel við una þegar upp er staðið.
Ég óska nýjum meirihluta hér í bæ velfarnaðar á næsta kjörtímabili.
Það verður gaman að fylgjast með bæjarpólítíkinni.
Næsta kjörtímabil.
Bara gaman.

laugardagur, 27. maí 2006


Þá er upprunninn kosningadagur, bjartur og fagur. Siggi stormur var með skemmtilegt innslag í gær á Stöð 2 um fylgi flokka eftir veðri gegnum tíðina. Hann minntist ekkert á Samfylkinguna enda nýlegt afl á sviði stjórnmála. Ég ætla bara rétt að vona að sól og blíða veiti Samfylkingunni gott kjörgengi.

föstudagur, 26. maí 2006


Mér gengur þokkalega að sauma 19.aldar búninginn minn. Ég verð eins og júfferta í honum en það verður bara að hafa það, ég er júfferta. Ég er að leggja lokhönd á pilsið, á aðeins eftir að leggja strenginn niður við í höndum. Meira mál var að suma upphlutinn sjálfan. Þar eru handtökin óteljandi. Ég á eftir að sauma svuntuna og skyrtuna en það er minna mál, að ég tel Ég er búin að búa til skúfinn en á éftir að prjóna húfuna. Ég gæti líka keypt hana, mér finnst það vera smá svindl en hver veit nema ég svindli, ég sé til. Þá er komið að millunum og skúfhólknum. Það kostar nokkra tugi þúsunda að kaupa það og það á ég eftir að gera. Það er svona seinni tíma mál. En ég er mjög hreykin af sjálfri mér fyrir að hafa lagt út í saumaskapinn.

fimmtudagur, 25. maí 2006


Nanna litla ömmustelpa á afmæli í dag. Hún er orðin 6 ára. Þetta er í fyrsta sinn sem hún heldur upp á afmælið sitt á Íslandi. Á 5 ára afmælinu bjó hún í Los Angeles og eyddi deginum á ströndinni. Á 4 ára afmælinu (og eins, tveggja og þriggja) bjó var hún í Iowa og var með álfaprinsessuþema. Núna ætlar hún að hafa nornaþema og er búin að bjóða mörgum vinum til veislu í Nornabúðinni þar sem alvörunornir eru. Hún er stundum kölluð Nanna norn svona eins og bókin heitir og það gerði hún núna á boðskortinu. Ömmu finnst hún ekki vera norn, bara sæt, lítil, klár stelpa. Henni finnst mjög gaman að teikna og föndra og er eldklár í öllu svoleiðis. Hún byrjaði í Ísakskóla eftir áramótin og finnst það frábær skóli. Hún er búin að læra að lesa og læra einhver reiðarinnar býsn af ljóðum og kvæðum sem hún syngur af hjartans list.

miðvikudagur, 24. maí 2006

Nú nálgast óvissan óðum. Klukkan 15:15 verður lagt af stað frá skólanum. Það eina sem við vitum er að við eigum að vera í útifötum, með meðalfínföt með okkur, sundföt, vaðstígvél og 2000 kall + drykkjarpeninga. Þetta reynist mér alltaf mikið vandamál. Ég ætla ekki að brenna mig á því sama og í fyrra að þurfa að borða fínan kvölverð og drekka rauðvín í sömu skónum og ég fór í á hestbak. Skórnir voru drulluskítugir því hesturinn asnaðist út í poll og sletti mig alla út. Ég er nú meiri skvísa í mér en ég þoli svona nokkuð. Enda er ég búin að pakka í tvær töskur núna.
Ég fékk ótrulegt komplíment í gærkvöldi. Ég fór á skemmtikvöldið hjá Samfylkingunni, sem var skemmtilegt, en þar vatt sér að mér kona sem kynnti sig og spurði mig hvort ég kannaðist ekki við foreldra hennar. Ég kveikti strax á perunni hver hún var þegar hún nefndi mömmu sína og fósturpabba. Við sáumst síðast þegar hún var 9 ára og ég 17 ára. Þegar ég var í fyrsta bekk í Kennó borðaði ég kvöldmat heima hjá henni. Fósturpabbi hennar er frændi minn. Hún þekkti mig aftur og sagði að ég hefði EKKERT breyst. Ég væri bara alveg eins. Sama hárgreiðslan meira að segja. Hún man sérstaklega eftir mynd sem mamma hennar tók af mér. Þar er ég eins og prinsessa, segir hún, í bleikum síðum kjól að fara á ball. Þetta stemmir allt. Sigga Magga, vinkona, var búin að vera skiptinemi í Ameríku og lánaði mér "pram" kjólinn sinn á árshátíðina í Kennó. Hann var síður og bleikur og ég man alveg hvað ég var fín í honum.

þriðjudagur, 23. maí 2006


Ég var í nokkra klukkutíma um daginn að semja eitt lítið íslenskupróf fyrir nemendur með íslensku sem annað mál en það varð til þess að ég var miklu fljótari að semja hin fjögur prófin fyrir erlendu börnin mín. Sem betur fer. Ég var komin í æfingu. Mér fannst tíma mínum illa varið, þannig lagað, því aðeins þrír nemendur þreyttu fyrsta prófið mitt. Þá datt mér það snjallræði í hug að senda kennslufulltrúa nýbúafræðslu prófið því hún dreifir öllu sem hún fær til allra nýbúakennara sem hún hefur á sínum póstlista. Ég var samt með smá titring innan í mér út af þessari hvatvísi minni, því kannski var prófið illa samið og allir myndu hlæja að mér. Alls konar svona hugsanir flugu gegnum heilabúið. Sjálfstraustið var ekki alveg í lagi. Kennslufulltrúin ímeilaði mér að ég væri frábær. Þá var þeim degi bjargað. Í dag hringdi í mig kennari í Bolungarvík til þess að þakka mér persónulega fyrir prófið en hún gat notað það óbreytt enda hafði hún kennt sama námsefni og ég. En það besta af öllu var að þessi kennari er bekkjarsystir mín úr Kennó og "bestasta" vinkona sem ég hef eignast en af því ég er svo mikill símadraugur þá höfum við allt of sjaldan samband. Nú mun ég a.m.k. hafa tölvusamband við hana og við ætlum að fara saman á námskeið í ágúst.

mánudagur, 22. maí 2006


Mamma mín varð 77 ára í gær og bauð til kaffisamsætis. Ég gaf henni frosin fisk í afmækisgjöf. Hún sýndi engin merki um vandlætingu á vali gjafarinnar enda þroskuð kona og á fullt hús af glerhundum eins og hún kallar stytturnar sínar og skrautmunina. Ég átti að vera á fjölskylduhátíð Samfylkingarinnar hér í bæ en þar sem Simmi minn,sem er eina manneskjan fyrir utan mig á heimilinu, hefur ekkert gaman að blöðrum, grilluðum pylsum eða hestamennsku þá rak ég bara smá stund inn nefið, til að friða samviskuna, og heiðraði svo mömmu með nærveru minni. Á morgun lendi ég í sviðuðum aðstæðum en Gréta systir býður til afmælisveislu (afmælið hennar er samt í dag) á sama tíma og Ingibjörg Sólrún vill hitta frambjóðendur Samfylkingarinnar. Ég er hugsa um að snúa þessu við og reka nefið inn till Grétu í smá stund og hitta svo Ingibjörgu Sólrúnu áður en skemmtikvöldið brestur á í Ráðhúsinu.

laugardagur, 20. maí 2006

Og í Lesbók Morgunblaðsins í dag er grein eftir Doktorinn.

föstudagur, 19. maí 2006

Ég fékk að skjótast heim úr skólanum í morgun til þess að horfa á sjónvarpið. Ég er sjónvarpssjúklingur, ég veit það, en ég hef nú ekki venjulega fengið að fara heim úr vinnunni til þess að glápa á imbann en nú var tilefni. Doktorinn var í viðtali á NFS hjá Hallgrími og Lóu. Mamma og pabbi komu í heimsókn og saman sátum við og hlustuðum og horfðum á afkvæmið segja frá svefnrannsóknum sínum og annarra. Hann hafði sagt mér flest af þessu áður en mér finnst alltaf jafn gaman að hlusta á hann segja frá rannsóknunum sínum. Það var líka gaman að því hvað þáttastjórnendur voru áhugasamir um þetta. Kalli segir mér að það sé sama hvar hann tali um þessi mál það hafa allir áhuga á þessu enda er svefn sameiginlega reynsla allra. Það er hægt að finna viðtalið á vefTV vísis undir fréttavaktin fyrir hádegi 19. maí

fimmtudagur, 18. maí 2006

Ekki tókst það í þetta sinnið með evróvisíon enda engin furða, þetta var alveg hörmung hjá okkur.

miðvikudagur, 17. maí 2006

Ég er búin að vera í afneitun. Algjörri afneitun. Ég vissi það alveg að þegar gigtarlæknirinn greindi mig með vefjagigt að hún væri komin til að vera. Ég yrði að takast á við hana og læra að lifa með henni. Samt hugsaði ég: "Já, þetta verður þá allt gott," þegar læknirinn sagði:"Nú er kominn tími til að þú farir að sofa á nóttinni, Guðrún" um leið og hann skrifaði upp á þunglyndislyfið Amilin handa mér. Það virkar á djúpsvefninn en honum næ ég allt of sjaldan. Ég ætlaði að hafa þetta þannig að þegar ég færi loksins að sofa, eftir 30 ára svefnleysi, þá yrði ég flott og fín eftir að Amilinið færi að virka.
Kunningjakona mín lánaði mér nokkra bæklinga um daginn sem allir fjalla um vefjagigt. Ég las þá mörgum sinnum og það var þá sem ég gerði mér grein fyrir afneituninni. Það var heldur ekki einleikið hvernig ég var orðin. Komst varla á lappir á morgnana fyrir verkjum og stirðleika. Það er stundum eins og það sé þungt farg ofan á mér. Það er sem sagt ekki nóg að bryðja Amilin og halda þar með að vefjagigtin haldi sér á mottunni. Nei, ekki aldeilis. Það þarf að vinna í henni alla daga til að halda henni frá. Aðalmálið er að hreyfa sig. Og ég er byrjuð. Hjóla, ganga, syndi, teygi og toga. Fer í heita pottinn og nuddtækið nýja í lauginni. Þvílíkur munur á skrokknum. Nú veit ég betur. En skrambans Amilinið hefur þessar hrikalegu aukaverkanir að ég fitna og fitna....

miðvikudagur, 10. maí 2006

Það er leynivinavika í skólanum þessa vikuna. Ekki hjá nemendum heldur hjá starfsfólkinu. Á föstudaginn lét Halldór okkur draga úr hatti (eða umslagi) nafn einhvers stafsmanns og þar með eignaðist maður leynivini þannig að ég reyni að gleða minn vin eins og ég get og einhver annar reynir að gleðja mig eins og hann getur. Sniðugt keerfi. Allir eru sérstaklega næs þessa dagana. Allir að hrósa öllum fyrir útlitið eða fataval dagsins eða bara eitthvað. Svo eru litlir pakkar og gjafir út um allt eða falleg bréf eða orðsendingar. Allir eru að reyna finna út hver sinn vinur er en því verður haldið leyndu þangað til á föstdag. Þetta reynir svolítið á mann. Það þarf að vera hugmyndaríkur þannig að heilassellurnar (þessar fáu sem eru eftir) starfa óvenjumikið núna. Þetta bættist við krossgátuna, sudokurnar og kúluleikinn.

þriðjudagur, 9. maí 2006

Þvílík bleður víða....sagði ég einu sinni óvart, það var meira að segja löngu áður en við í saumó fórum að tala snúísku, en þessi setning á svo sannarlega vel við í dag. Það verður allt svo miklu skemmmtilegra í svona góðu veðri, allir í sólskinsskapi, léttir í sál og sinni og léttir í lund.
Sól, sól, skín á mig.........

mánudagur, 8. maí 2006

Ég hef orðið mér úti um litla dagbók sem ég skil ekki við mig núna. Ástæðan er að ég er orðin svo gleymin að ég man ekki neitt stundinni lengur. Ég missti af konukvöldinu hjá Kiwanis af því ég mundi ekki að það átti að vera 5. maí og hafði sagt Ástu mágkonu að ég væri laus þetta kvöld. En þetta umrædda kvöld bauð hún systrum sínum og mágkonum í teiti, sem var auðvitað alveg frábært, en ég hefði getað náð tveimur partíum ef ég hefði ekki klikkað á tímasetningu.
Litla dagbókin mín mun bjarga mér hér eftir.

sunnudagur, 7. maí 2006

Ég er að verða brjáluð á einhverjum asnalegum kúlutölvuleik sem ég asnaðist að fikta við um daginn og núna get ég ekki hætt að spila hann. Ég þarf að komast í meðferð, ég veit bara ekki hvert. Sumir segja: "Slökktu bara á tölvunni", en það er ekki nóg, það er enginn vandi að kvekja á henni aftur. Þetta er örugglega skylt áfengisfíkn og matarfíkn. Ég segi alltaf við sjálfa mig að ég ætli bara að leika einn leik enn alveg eins og er með hina fíklana. Ég veit bara ekki hvar þetta endar!!

miðvikudagur, 26. apríl 2006

Þeir stóðu sig svo sannarlega vel krakkarnir í 10. bekk á uppfærslu sinni á Grease. Í bekknum er hljómsveit, hver stórsöngvarinn á fætur öðrum og frábærir leikarar.
Ég skemmti mér konunglega.