Ég er búin að vera í afneitun. Algjörri afneitun. Ég vissi það alveg að þegar gigtarlæknirinn greindi mig með vefjagigt að hún væri komin til að vera. Ég yrði að takast á við hana og læra að lifa með henni. Samt hugsaði ég: "Já, þetta verður þá allt gott," þegar læknirinn sagði:"Nú er kominn tími til að þú farir að sofa á nóttinni, Guðrún" um leið og hann skrifaði upp á þunglyndislyfið Amilin handa mér. Það virkar á djúpsvefninn en honum næ ég allt of sjaldan. Ég ætlaði að hafa þetta þannig að þegar ég færi loksins að sofa, eftir 30 ára svefnleysi, þá yrði ég flott og fín eftir að Amilinið færi að virka.
Kunningjakona mín lánaði mér nokkra bæklinga um daginn sem allir fjalla um vefjagigt. Ég las þá mörgum sinnum og það var þá sem ég gerði mér grein fyrir afneituninni. Það var heldur ekki einleikið hvernig ég var orðin. Komst varla á lappir á morgnana fyrir verkjum og stirðleika. Það er stundum eins og það sé þungt farg ofan á mér. Það er sem sagt ekki nóg að bryðja Amilin og halda þar með að vefjagigtin haldi sér á mottunni. Nei, ekki aldeilis. Það þarf að vinna í henni alla daga til að halda henni frá. Aðalmálið er að hreyfa sig. Og ég er byrjuð. Hjóla, ganga, syndi, teygi og toga. Fer í heita pottinn og nuddtækið nýja í lauginni. Þvílíkur munur á skrokknum. Nú veit ég betur. En skrambans Amilinið hefur þessar hrikalegu aukaverkanir að ég fitna og fitna....
Engin ummæli:
Skrifa ummæli