Síður

fimmtudagur, 30. september 2004

Ég er ekki eingöngu haldin símafælni heldur símsvarafælni einnig. Ég fer alltaf í flækju ef ég verð að tala inn á símsvara og haga mér alltaf eins og bjáni að mér sjálfri finnst svona eftir á. Ég tala einstöku sinnum inn á símsvarann á "labbinu" hans Kalla og þó að ég viti að hann einn skilur íslenskuna verð ég alltaf einhvern veginn önnur en ég er. Tala með breyttri röddu og get engan veginn verið eðlileg. Ekki nóg með það heldur verða skilaboðin eins og ég sé að lesa bréf. Í stað þess að byrja og segja "Hæ, Kallli, þetta er mamma... og koma svo með erindið, þá enda ég á því að segja ókei, bæ, bæ, mamma. Þetta er náttúrulega fyrir neðan allar hellur að vera komin á sextugs og vera enn hrædd við þessi tæki. Ég geri heilmikið í því að vinna bug á símafælninni og ég held að ég hafi lagast. Ég reyni núna að draga ekki að hringja það sem ég verð að hringja heldur dríf ég í að hringja og ... ég hef aldrei meitt mig. En hjartað slær hraðar og lófarnir svitna, sérstalkega ef ég þarf að hringj í opnbera stofnun.

laugardagur, 25. september 2004

Fyrrum nemandi minn og núverandi samstarfsmaður, Stebbi Þorleifs, bjargaði deginum með því að senda mér þessa grein Það er stundum þess virði að borga meira . Það eflir mann í baráttunni að vita af einhverjum þarna úti sem skilur starf grunnskólakennarans.

fimmtudagur, 23. september 2004

Mér fannst nú nóg um á mánudaginn, þegar slitnaði upp úr viðræðum launanefnda, að næsti fundur yrði ekki fyrr en á fimmtudag, þ.e. í dag. Nú voru þær fréttir að berast frá úrvarpinu að fundurinn sem hófst í morgun væri búinn og næsti fundur væri boðaður að viku liðinni.
EFTIR VIKU.
Mér finnst kröfurnar okkar réttmætar. Ég er búin að bíða í 30 ár eftir því að geta lifað af kennaralaununum. Ég vil ekki gera neitt annað en vera kennari en hef þurft að fórna heilmiklu til. Ég skil ekki sveitastjórnamenn að semja ekki við okkur. Það er kominn tími til.

mánudagur, 20. september 2004

Ég vaknaði eldsnemma í morgun til þess að hlusta á fréttir.
Fréttirnar sögðu mér að ég væri komin í verkfall.
Ég koðnaði niður og fann undarlega tilfinningu fara um mig.
Ég trúði því aldrei að það yrði verkfall.
Ég trúði því ekki heldur að Halldór Ásgríms yrði forsætisráðherra.
Hvort tveggja er orðið að veruleika.
Þannig að nú veit ég að allt getur gerst.
Ég ákvað að best væri að líta þannig á að ég hefði fengið óvæntan frídag.
Vil ekki verkfall.
Hvað geri ég í fríi?
Horfi á sjónvarpið,
vafra um húsið.
moppa,
horfi meira á sjónvarpið,
sting í vél,
hlusta á fréttir.
Nei, þetta var ekkert frí.
Ég slakaði ekkert á.
Ég var greinilega í verkfalli.
Ömurlegt.
Ég er í verkfalli.
Það virkar í dag eins og tímaskekkja.
Bara asnalegt.
Samt þarf ég hærra kaup.
Og kaup fyrir alla þá vinnu sem vinn.
Það er bara ekki þannig.
Meiri vinnu hefur verið laumað inn á kennrara án þess að þeir fái greitt fyrir hana.
Hvað getur maður kyngt lengi?
Ekki endalaust.
Nei.


sunnudagur, 19. september 2004


Hann Simmi minn á afmæli í dag. 53 ára. Einu sinni var hann herðabreiður og miðmjór með kolsvart hár og mjög skemmtilegur.. Nú er hann... einhvern veginn öðruvísi en enn skemmtilegur.  Posted by Hello

fimmtudagur, 16. september 2004

Fór í fyrsta sinn í gærmorgun án Simma míns í morgunsundið. Komin af stað í líkamsræktina aftur.... að ég hélt. Vonda veðrið í morgun var notað sem afsökun fyrir því að fara ekki í sund. Ætli ég sé þá ekki komin í gírinn? Það kemur í ljós í fyrramálið.

þriðjudagur, 14. september 2004


Mig langaði svo að prjóna eitthvað sætt handa sjáflri mér og prjónaði þetta sem virkaði eigin-lega ekki neitt neitt, en svo skellti ég þessu í þvottavél og útkoman varð... Posted by Hello

...þessi líka hinn ágætasti hattur. Posted by Hello

mánudagur, 13. september 2004

Hann Simmi minn fór í Króniku í morgun. Ekki til þess að elda heldur til þess að taka draslið saman. Það er sem sagt til sölu allt sem til þarf til þess að reka veitingahús. Ég vildi óska að einhver komi og kaupi eitthvað af þessu því mig langar ekkert að fylla nýja fína bílskúrinn minn af Krónikudóti. Ég er buin að vera að mála skúrinn og gera hann fínan að innan og langar bara að hafa hann þannig. Ef allt dótið kemur austur (austur?) þá fyllist skúrinn algjörlega. Æi! Svo væri nú ekki verra að fá smá aur fyrir þetta. Við borguðum fyrir þetta allt fyrir rúmum tveimur árum.

föstudagur, 10. september 2004

Föstudagur.
Voru þeir ekki til þess að þrífa?
Mig minnir það úr fyrra lífi.
Ég þreif.
Þurrkaði af.
Ekkert ryk.
Pússaði spegla og gler.
Ekkert kám.
Þurrkaði úr gluggakistum.
Hvað?
Það er enginn sandur lengur.
Ryksugaði
eitthvað,
ég veit ekki hvað.
Ég skemmti mér konunglega.
Setti plötu á fóninn.
Eða disk eða hvað það nú heitir.
Skellti í pizzu,
keypti hvítar rósir,
kveikti á 21 kerti
(ég átti ekki fleiri kertastjaka)
beið eftir að maðurinn, sem ég sef, hjá kæmi úr vinnunni.
"Rosalega er sætt, hjá þér elskan:"
Stemmingunni náð.
Föstudagur.

miðvikudagur, 8. september 2004

Ég bara trúi því ekki að þeir ætli að senda okkur í verkfall. Verkfall á ekki við á tuttugustu og fyrstu öldinni. Það er niðurlægjandi að fara í verkfall. Verkfallsvopnið er vopn liðins tíma. Ég vildi að ég hefði lesið grein sem birtist í Mogganum fyrir nokkru síðan sem Kalli sagði mér frá. Greinin fjallar um arðsemi náms. Arðsemi fyrir einstaklinginn og arðsemi fyrir ríkið. Háskólanemar gerðu þessa rannsókn en Kalli vissi ekki hvernig formúlu þeir notuðu. En samkvæmt niðurstöðum þessarar rannsóknar er arðsemi af námi mismikið eftir hvaða nám það er. Ein stétt skar sig þó úr því hún sýndi mínus arðsemi en það voru kennarar. Ég skil ekki af hverju þessu hefur ekki verið hampað og notað í kjarabaráttunni.

þriðjudagur, 7. september 2004

Ég var alveg ákveðin í því í vor að fara í allar þær göngur sem Ferðamálafélag Ölfuss bauð upp á í sumar. Ég hafði alltaf einhverja afsökun að fara ekki þegar til kom. Ég varð að fara í partý til skólastjórans í eitt skiptið, barnabörnin voru hjá mér í annað skipti og svo gleymdi ég mér nokkrum sinnum. Í gær hringdi Jóna Stína og minnti mig á Meitlagönguna klukkan 6. Ég ætlaði að fara að bera við leti en ég sá að að það borgaði sig ekki að láta leti og ómennsku spyrjast um sig þannig að ég dreif mig með. Og það er eins og alltaf í svona fjallgöngu, alveg rosalega gaman. Við vorum 21 í hópnum. Flestir fóru upp á stóra Meitil. Ég lét nægja, ásmt nokkrum öðrum að ganga utan í honum. En það skall á þoka og rigning þannig að Litli Meitill verður að bíða betri tíma. Gangan tók þrjá tíma og komið myrkur þegar við komum aftur í bílana.

sunnudagur, 5. september 2004

Það er gaman að vera heima.
Ég slettti í form,
ryksuga,
elda,
strauja,
þurrka af,
tek til í geymslunni,
mála bílskurinn,
geng frá þvotti,
sting diskum í nýju vélina,
horfi á laufin falla af trjánum,
ber á nátturuflísarnar,
borða morgunmatinn sitjandi við borð,
sópa innkeyrsluna,
labba í búðina þegar vantar eitthvað,
les bækur og blöð í lazy boy,
sit í sófanum í stofunni og hlusta á tónlist,
bý um rúmið mitt,
prjóna lopatöskur.
Er heima.
Heima er best.



Dóra Sif bauð í dinner í gærkvöldi. Okkur Simma, mömmu sinni, Kalla afa og Nonna. Hún á svo æðislega sæta og fína íbúð sem hún er nýflutt í. Og það er eins og að afkomendur Siggu ömmu geti ekki gert að því að elda góðan mat. Hún hefur erft þann þáttinn eins og margir aðrir í fjölskyldunni. Góður matur, smekklega fram borinn og skemmtilegt kvöld. Posted by Hello

föstudagur, 3. september 2004


Dave, tilvonandi tengdasonur minn, á afmæli í dag. 31árs strákurinn. Góður strákur. Traustur og góður. Hann er mjög stoltur af Lúkasi og mikill pabbi.  Posted by Hello

fimmtudagur, 2. september 2004

Ég gæti seint haldið því fram að líf mitt hafi verið í föstum skorðum undanfarin ár. Það eiga sér sinkt og heilagt einhverjar breytingar stað. Ég er enn í sæluvímu yfir nýju húsi og alls ekki búin að venjast því, þegar hann Simmi minn byrjaði að vinna hjá öðrum en sjálfum sér. Hann byrjaði í gær að vinna í flugeldhúsinu á Vellinum. Hann vinnur þar á vöktum en það hefur hann ekki gert áður en þá telst sjómennskan ekki með. Þessi vinna kemur til af því að hann er að missa húsnæðið sem Krónika hefur verið í. Það á færa bókasafnið í Mosó á hæðina sem Krónika er og hann verður að gjöra svo vel og fara með allt sitt hafurtask út fyrir næstu mánaðamót. María ætlar að elda á meðan eitthvað er til í frystikistunni og hann þegar hann er ekki í nýju vinnunni. Það er ýmsu að venjast þessa dagana. Það er eins gott að maður er ekki orðin eins gamall og hundurinn sem ekki var hægt að kenna að sitja.

mánudagur, 30. ágúst 2004

Þó að ég ætti aðeins hálftíma í mat í dag fór ég samt heim að borða af því það er svo gaman að koma heim núna. Allt að verða svo fínt hjá mér. Enda er ég ekki nema 3-4 mínútur að labba í vinnuna. Ég labba reyndar hratt en það er sama það eru forréttindi að hafa það svona gott. Kassarnir sem á eftir að taka upp úr eru inni í litla herbergi og ég tek bara einn og einn svona þegar ég nenni. Mér finnst svo gaman að vera búin að endurheimta húsmóðurtitilinn að ég sletti í form, eins og Sissa kallar það, þegar ég kom heim úr vinnunni í dag. Bara til að prófa ofninn. Virkar flott. Eldaði skötuselsrétt í kvöldmat, upp úr mér, en lukkaðist mjög vel. Rúnar minn Gunnarsson færði mér skötuselinn sem innflutningsgjöf. Sætur í sér þessi elska.

sunnudagur, 29. ágúst 2004

Ég er búin að selja hosiló og kaupa mér höll.
Nú er ég drottning í hárri höll.
Mér líður eins og drottningu.
Eða eins og mér finnst að drottningu ætti að líða.
Frábært hús sem ég á.
Frábært umhverfi sem ég er í.
Frábær garður við höllina mína.
Mér llíður vel.
Betur en í langan tíma.
Mig hefur vantað eitthvað í átta ár.
Ég er búin að finna það.
Held ég.
Vona ég.


Höfuðdagurinn er í dag.
Ég fékk tvo blómavendi í tilefni dagsins.
Simmi minn gaf mér rauðar rósir.
Mamma kom með rosa fallegan vönd.
Tilefnið er að við Simmi minn erum búin að vera heitbundin í 34 ár.
Við verðum örugglega stoppuð upp eins og hefði átt að gera við síðasta geirfuglinn.




laugardagur, 21. ágúst 2004


Hún Elsa mín á afmæli í dag. 32 ára stelpan. Hún ætlar að verja kvöldinu með fjölskyldunni uppi í sveit, hjá vinkonu sinni Simone, sem eldar fyrir hana afmælismatinn og dekrar við hana. Á myndinni eru þær mæðgur heima hjá hinni frönsku Simone, sem Nanna kallar ömmu. Simone ræktar allt sitt grænmeti sjálf og bakar brauð sem hún selur á bændamarkaði. Elsa hjálpar henni stundum. Enda á það við hana Elsu mína að vasast í matartilbúningi. Posted by Hello