Síður

miðvikudagur, 27. júní 2012

Hlaupaföt

Ég gekk litla hringinn minn, rösklega, í gær en skokkaði hann í dag. Allan. Þrjá og hálfan kílómetra. Það kom enginn bakverkur en ég fann fyrir slöppum vöðvum í fótleggjum og svo varð ég svo móð. En gafst ekki upp.
 Ég fór að velta fyrir mér  hlaupabúningnum mínum. Það er víst eins gott að ég er bara að hlaupa í einrúmi en ekki í hóp því ég myndi setja ljótan blett á fatastílinn.
Þetta er flíspeysa, keypt 2001 í Ameríku á "outlett" hjá Gap.Þannig að hún hefur verið í tísku fyrir rúmlega einum tug.Mér finnst hún góð vegna vasanna á henni en þar hef ég húslykla og síma á hlaupunum.
Fjallabuxurnar mínar keypti ég í sportbúð á Egilsstöðum áður er ég gekk yfir Fimmvörðuháls 1997. Ég get ekki ímyndað mér að það hafi verið framleiddar betri buxur. Þessar hleypa svita í gegnum sig og eru mjög hlýjar.

Þetta er nýjasta fatið. Íþróttabrjóstahaldari sem ég varð að kaupa fyrir brjóstaminnkun. Keypti náttúrlega allt of lítinn til þess að hafa gott aðhald eftir aðgerð. Litlu dúllurnar mínar hreyfast ekkert í þessum.
Næst nýjasta hlaupadótið. Geggjaðir sokkar sem ég keypti í Nikebúð í bítlaborginni Liverpol í vor." Dry-fit" og merktir með L og R svo maður fari örugglega rétt í þá.  
Þarna sést í naríurnar mínar. Gasalega góðar úr Merinóull, keyptar í Álafossbúðinni. Gallinn er bara sá að þær detta út í götum. Sem er ekki smart en ég nota þær samt.
Ekki er hægt að hlaupa nema eiga góða skó. Ég er svo heppin að dótla mín sér um þann þáttinn og hefur tvisvar sent mér skó frá Bretlandi. Það munar svo milu á verði. Þessa fékk ég í jólagjöf.
Ég nota hina og þessa boli undir flíspeysuna. Þessi á að vera "dry-fit" en er það alls ekki. Ég svitnaði alveg svakalega og fann dropana renna niður eftir bakinu og handleggjunum á mér. Það er frekar óþægilegt. Ég ætla ekki að nota hann oftar.

mánudagur, 25. júní 2012

Aftur að skokka

Kannski er ekkert skrýtið þó ég hafi fengið
 bakverki við að skokka með öll þessi
ósköp framan á mér.
Í dag eru fimm vikur síðan brjóstaaðgerðin var framkvæmd. Ég hélt upp á daginn með því að fara út og skokka. Ég gekk fyrst 500 metra og tók svo á rás og ég gat þetta. Kláraði litla hringinn minn sem er rúmlega 3 km. Ég var pínu stressuð út af brjóstunum og hef líklega verið dálítið stíf í öxlunum en þetta gekk. Ég var í nýja fína íþróttahaldaranum og hann gerði sitt gagn. Brjóstin eru aðeins bólgin ennþá og fann ég fyrir þeim en haldarinn er góður.
Besta var að ég fékk engan bakverk eins og svo oft þegar ég skokka. Kannski hafa gömlu stóru brjóstin verið orsakavaldur að bakverkjum. Ég setti það aldrei í samhengi. En ég hef ekki fundið fyrir neinum bakverkjum eftir aðgerð. Ég fékk alltaf verk, hægra megin í bakið aðeins fyrir ofan mitti, þegar ég ryksugaði, það sáran að ég varð oft á tíðum að taka pásu. Ég fann ekki fyrir neinu þegar ég ryksugaði fyrir helgi.
Nú er spurning með vöðvabólguna. Fer hún sjálfkrafa eða verð ég að fara í nudd?
Ég ætla að bíða og sjá til.

fimmtudagur, 21. júní 2012

Brjóstaskora

Ég fór í göngutúr dagsins fyrir hádegi. Bara svona af því ég vakanaði snemma og var tilbúin. Gat gengið allrösklega og sveiflaði handleggjunum í gríð og erg. Mig langaði svo mikið að prófa að skokka en þorði það ekki. Er pínu hrædd um að skemma eitthvað, ég veit einu sinni ekki hvað. Jú, að saumar opnist og aðgerðin sé fyrir bí og brjóstin á mér verði hryllingur.
Minni brjóstaskora. Engin millibrjóstafýla.
I hádeginu, áður en ég fór í sturtu eftir göngutúrinn, heimtaði Simmi minn að fá að skoða saumana nákvæmlega af því ég er alltaf að kvarta yfir einhverju sem ég veit varla sjálf hvað er. Eitthvað sem tekur í og eitthvað sem gæti gefið sig og allt skemmst. Bara svona stress í gangi.
Simmi minn, tók í burtu síðasta hrúðrið með saum, sem var við samskeytin, austur/vestur og norður. Mér létti. Nú tekur minna í. Það lítið að ég þorði að leggjast á magann í sólbaði í dag. Þó ég hafi ekki alveg lagst á brjóstin var geðveikt gott að leggjast á magann og lesa bók í sólbaði.
Er greinilega öll að koma til.
Líklega á ég aldrei oftar eftir að finna millibrjóstafýlu.
Góð tilhugsun.

þriðjudagur, 19. júní 2012

Stirðleiki

Svona var brjóstaskoran (jan 2011)
Í gær voru fjórar vikur síðan ég fór í brjóstaminnkunina. Það þýðir að sá tími, sem mér var bannað að vinna heimilsstörf, er liðinn. Ég hélt upp á daginn með því að ryksuga enda hefur hann Simmi minn ekkert of oft tekið í ryksuguna þessar fjórar vikur. Ég hef stolist í að gera ýmislegt hérna heima eins og að moppa gólfin, í rólegheitum, sjá um þvottinn og elda stundum matinn.
Ég sat í vörubílnum hjá Simma mínum í morgun til að veita honum félagsskap. Ferðin tók um einn og hálfan tíma. Ég fann, þegar ég kom heim og brölti niður úr bílnum, að ég er farin að stirðna í líkamanum vegna hreyfingarskorts. Ég hef áður verið næstum því komin í kör af hreyfingarleysi. Það var fyrir nokkrum árum. Þá hélt ég að ég væri "búin að vera í skrokknum." Til að gera eitthvað í mínum málum þá fór ég að synda á hverjum degi og síðan að ganga og skokka og bætti svo hjólinu við. Það var akkúrat ekkert að skrokknum nema hreyfingarleysi.
Til þess að bæta úr stirðleikanum, sem ég fann í morgun, dreif ég mg út áðan og gekk rösklega litla hringinn minn þrátt fyrir að líkamsrækt sé bönnuð í 6-8 vikur eftir brjóstaminnkun. Ganga er jú líkamsrækt en ég réð fullkomlega við þetta og líður miklu betur. Nú stendur til að gera þetta á hverjum degi þangað til ég þori að prófa að skokka.  Kannski eftir viku.
En sund og heita potta má ég fara í um leið og öll hrúður eru farin af saumunum. Það eru nokkur smá hrúður eftir.

miðvikudagur, 13. júní 2012

Á fjórðu viku

Þórdís lýtalæknir.
Átti tíma í dag hjá Þórdísi lýtalækni. Hún skoðaði brjóstin á mér í bak og fyrir og tók myndir og sagði að allt liti vel út. Ég hef verið dálítið stressuð undanfarna daga af því ég finn svo mikið fyrir brjóstunum, ég finn fyrir sviða og  eins og rafstraumur fari öðru hverju um þau og eitthvað tekur í og svoleiðis.
Þórdís tók alla plástrana af og sagði mér að fara í "léttari" brjóstahaldara, bera E-vítamín olíu á saumana og AD-smyrsl á hrúðrin. Þetta allt saman gerði það að verkum að mér líður miklu betur, bæði á sál og líkama. Líklega hafa plástrarnir verið að toga eitthvað í og ég haldið að það væri að skemma eitthvað.
Ég hef mest megnis haldið mér ens og prinsessu, helst ekki gert neitt og kemst upp með það, nema smáverk sem ég stelst í. Simmi minn, snýst í kringum mig og bannar mér að gera nokkurn skapaðan hlut. Ég hef tekið mjög  alvarlega það sem ég las í bæklingnum um brjótaminnkun og það sem mér hefur verið sagt, þannig að ég varð bæði glöð og hissa þegar Þórdís sagði mér í dag að eftir viku til tíu daga mætti ég fara í sund og heitan pott.
Vá, hvað ég hlakka til að fara að hreyfa mig almennilega.

fimmtudagur, 31. maí 2012

Langar neglur

Lengstu neglur sem ég hef haft
Halldór skólastjóri spurði mig í gær, þegar ég skrapp upp ískóla, hvort ég væri ekki leið á að hanga svona heima. Ég þurfti að fara í örskots naflaskoðun til að svara spurningunni og það var enginn vandi. Mér finnst einfaldlega ofboðslega gott að hanga heima. Mér finnst reyndar ekki hægt að kalla það að hanga heldur finnst mér gott að vera heima. Ég hef alltaf nóg fyrir stafni. Þó ég sé að jafna mig eftir brjóstaminnkun og má alls ekki gera allt sem mig langar til þá hef ég samt nóg að gera við tímann. Ég er ekki alltaf að gera eitthvað gáfulegt eða nytsamlegt ég er bara hér, við lestur, prjón eða hekl, útvarpshlustun, netflakk og ýmislegt fleira.
Ég er t.d. núna í óða önn að safna nöglum. Það hef ég aldrei getað en núna eru neglurnar bara fínar og ótrúlega langar á minn mælikvarða. Annaðhvort er ástæðan sú að ég geri heimilsverkin ekki þessa dagana eða sú að ég hef tekið inn tvær matskeiðar af lýsi í stað einnar nú í skamman tíma.

miðvikudagur, 30. maí 2012

Bað

Mikið var það dásamlegt að fara í heilsturtu í morgun. Ég þvoði hárið sjálf og blés það líka. Ég á að hllusta á líkamann, hvað hann getur, og það var alveg hægt að blása hárið. Ég labbaði svo í rólegheitum í skólann og gekk þar frá smámálum og labbaði svo til múttu. Göngutúrinn gerði mér bara gott en ég fer hægt yfir. Finnst vont að ganga hratt.
Horfði á brjóstin mín í speglinum en ekki lengi.
 Ég hefði aldrei getað orðið hjúkka. Fæ alltaf illt í rassgatið þegar ég sé skurð eða sár.

þriðjudagur, 29. maí 2012

Brjóstaskoðun

Ég átti tíma hjá Þórdísi lýtalækni klukkan 10 í morgun. Simmi minn keyrði mig á stofuna til hennar og kom með mér inn. Þórdís sjálf var ekki við heldur staðgengill hennar, Þyrí sjúkraliði. Ég varð pínu spæld en Þyrí kunni greinilega alveg til verka og hún skoðaði mig og tók plástra sem voru yfir drenlagnargötunum og gaf mér fulla skoðun. Brjóstin mín líta eins vel út og þau eiga að gera átta dögum frá aðgerð. Ennþá er bólga og bjúgur í þeim en það er eðlilegt. Hún sagði að ég mættti fara í sturtu, bara standa ekki lengi og láta buna á mig og ekki of heita.
Ég fékk nýjan tíma hjá Þórdísi eftir hálfan mánuð.

mánudagur, 28. maí 2012

Afmælisveisla

Nanna, ömmustelpa, varð 12 ára  föstudaginn 25. maí. Þá bauð hún öllum bekknum í partý heim til sín en í dag bauð hún ömmum og öfum, frændum og frænkum í mat. Við tókum mömmu og pabba og Nonna með okkur og vorum náttúrlega ekki svikinn af matnum hennar Elsu. Hún gerir alveg ótrúlega góðar pizzur, bara í ofninum sínum. Þær eru betri hjá henni en á mörgum veitingastöðum. Hún gerir sósuna líka sjálf frá grunni. Nammi, namm. Og svo var súkkulaðiterta í eftirrétt.
Ég var með smá kvíða í brjósti að ég ræki mig utan í einhvern og finndi til í litlu brjóstunum mínum en það var auðvitað alveg ástæðulaust. Ég sat bara á stól og lét Simma minn stjana við mig. Ég er auðvitað aum ennþá enda bara ein vika frá aðgerð. Það var allt í lagi að sita í bílnum og allt í lagi með mig.
Posted by Picasa

sunnudagur, 27. maí 2012

Brjóstamjólk?

Mér líður betur og betur með hverjum deginum. Verkirnir minni og minni og þar með fækkar verkjastillandi pillunum jafnt og þétt sem ég hef verið að gleypa.
Ég var að spekulera í því morgun af hverju ég kannaðist svona við þessa tilfinningu sem ég hef í brjóstunum. Af því ég hef aldrei áður farið í brjóstaminnkun ætti ég ekki að kannast við tilfinninguna. En svo kveikti ég á perunni. Tilfinningin var eins og brjóstin væru stútfull af mjólk. Það eru reyndar 37 ár síðan en ég man tilfinninguna. Þrýstingur í brjóstunum og þau stíf. Þannig er ég núna. En það er af bjúg og bólgu sem á eftir að hjaðna.
"Það er eins og þú hafir misst 10 kíló," sagði María við mig í dag í sunnudagakaffinu hjá mömmu.
Gaman að heyra svona.

laugardagur, 26. maí 2012

Eins og sjúklingur

Mamma og pabbi kíktu við í gær. Mamma sagði að ég liti út eins og sjúklingur. Ég var ekki allskostar ánægð með þá athugasemd svo ég fór í sturtu til að þvo af mér aumingaútlitið. Þar sem ég er með mikla sauma umhverfis brjóstin, sem má ekki bleyta, varð ég að finna eitthvert ráð. Sturtubaðið fór sem sagt þannig fram að Simmi minn berháttaði sig og fór inn í sturtuklefann, ég stóð fyrir utan og stakk hausnum inn fyrir og hann þvoði mér þannig um hárið. Síðan fór ég inn í klefan og sturtaði mig frá tám og upp að mitti. Mér leið óneitanlega betur á eftir. En hárið var látið þorna af sjálfu sér og þá koma í það alls kyns fettur og brettur sem ég vil ekki hafa. Þannig að leikurinn var endurtekinn í morgun, alveg eins nema nú kláraði Simmi minn dæmið þannig að hann blés líka á mér hárið. Svo litaði ég augabrúnirnar.
Ég trúi því ekki að mamma segði í dag, ef hún sæi mig, að ég lti út eins og sjúklingur.
Ég á eftir að segja Simma mínum að við hárþvottinn í morgun, var ég með opin augun.

föstudagur, 25. maí 2012

Eftir aðgerð

Loksins rann dagurinn upp sem ég hafði beðið svo spennt eftir í rúmt ár. Aðgerðardagurinn. Brjóstaminnkunardagurinn. Ég hafði fengið daginn 7. maí úthlutaðan en hann var tekinn af mér og aðgerðinni seinkað um hálfan mánuð. Það kom sér vel, vegna vinnunnar, þannig að ég var alveg sátt. Mánudaginn, 21. maí, skutlaði Simmi minn mér á Landsspítalann Fossvogi, kvaddi mig þar um 10 leytið og ég hóf undirbúning fyrir aðgerð. Ég var náttúrlega fastandi, þannig að undirbúningur var byrjaður og ég hafði farið í sótthreinsandi  sturtu kvöldið áður en nú fór ég aftur í sturtu og þvoði mér samkvæmt fyrirmælum, háttaði ofan í rúm og beið smá stund. Þá var mér ekið í rúminu á skurðstofu , sem var á einhverri annarri hæð. Ég hitti Þórdísi Kjartansdóttur, lýtalækni og hún mældi brjóstin á mér út með venjulegu málbandi og teiknaði á þau hin ýmsu strik með svörtum tússpenna og spurði mig hvaða stærð ég óskaði eftir. "C," svaraði ég. Ég veit ekki enn hvort mér hefur orðið að ósk minni. Svo man ég að ég fékk net til að setja yfir hárið, sem var nóta bene blautt eftir sturtuna, og horfði upp í skurðstofuljós, fékk æðalegg, klukkan var hálf eitt og svo veit ég ekki meir fyrr en einhver sagði eitthvað við mig klukkan hálf fimm. Ég var meira og minna vönkuð það sem eftir lifði dags og margt er í þoku. Ég man þó að áður en nóttin skall á vildu hjúkkur að ég færi fram úr. Ég gat ekki staðið hjálparlaust, fékk stuðning og bað um að fara á klósettið. Ég var leidd þangað og þá gerði ég mér grein fyrir að ég var með dren úr báðum brjóstum. Það tók í og ég fann svo mikið til og svimaði svo mikið að ég gleymdi að hugsa um lítil brjóst.
Ég svaf mest lítið um nóttina. Lá á bakinu og leið þokalega vel.
Dagur tvö leið hratt, ég fékk morgunmat og borðaði hann með góðri lyst, eins og allan mat, naut umönnunar frábærs starfsfólks og hlustaði á útvarp. Simmi kom og einnig Kallli og Nanna.
Venjulega fara konur heim sólarhring eftir aðgerð en vegna drenlagnana fékk ég að vera annan sólarhring til. Mikið var ég fegin. Drenlögnin fór illa í mig. Bara það að vita að rör lægju inn í líkamann var óhugguleg tilhugsun.
Ég horfði á sjónvarpið um kvöldið, þ.á.m. fyrri undanúrslit í Júróvision þar sem Gréta Salóme og Jónsi komust áfram. Ég svaf vel alla nóttina og morguninn líka, þrátt fyrir annir á spítalanum.
Um morguninn, á degi þrjú  voru drenlagnirnar teknar. Það var ekki þægilegt en mér fannst útilokað að kvarta þar sem þetta var sjálfskaparvíti hjá mér. Þ.e. ég bað um aðgerðina en fékk ekki einhverja veiki. Mér leið pínu eins og aðskotahlut eða svindlara þar sem ég lá innan um alvörveikt fólk. En þetta var bara mín eigin hugsun. Allir hafa staðið pottþétt við bakið á mér. Líka starfsfólkið á spítalanum. Simmi minn kom um hádegisbil og fór ég með honum heim. Sat eða hálflá í stól allan daginn og reyndi að hafa það næs en varð bara þreyttari og þreyttari í bakinu. Svaf eiginlega ekkert um nóttina vegna þreytuverkja í bakinu en varð samt að liggja á því. Þori að leggjast á hliðina.
Dagurinn í gær var þokkalegur. Simmi er eins og besti læknir. Hann skipti um á skurðinum og klæddi mig í annan haldara. Hann stjanar við mig.
Ég fann svo í morgun þegar ég vaknaði, eftir góðan nætursvefn, að mér leið miklu betur en veit að ég á taka lífinu með ró og mun gera það.

laugardagur, 21. apríl 2012

Bæjarhreinsun

Ég nota mikið göngustíginn sem tengir götuna mína við Skálholtsbraut, bæði gangandi og hjólandi. Hann hefur verið frekar subbulegur upp á síðkastið eða kannski miklu lengur. Það fer alltaf meira og meira í taugarnar á mér. Ég hef ekki orðið var við það að hann hafi nokkurn tíma verið hreinsaður síðan ég flutti í götuna fyrir átta árum. Hann var fullur af laufi og grastoppar vaxa alls staðar meðfram girðingarkantinum sem er öðru megin.
 Ég tók mig til í morgun, vopnuð stunguskólflu, mokstursskóflu og strákúst og þreif stíginn eins vel og ég gat. Sópaði laufinu saman og pjakkaði svo grastoppana upp og skóf líka fullt af mosa upp. Þegar þessu lauk var ég svo ánægð með verkið að ég lét ekki staðar numið heldur þreif líka meðfram girðingunni innst í botnlanganum. Þar var gras vaxið yfir malbikið á stóru svæði og þurfti ég að stinga það upp með stunguskóflunni. Þetta var svolítið erfið vinna þannig að ég plataði, Simma minn, í að hjálpa mér sem hann og gerði. Við vorum komin með svo myndarlega hrúgu af grasi, mosa og laufum þegar verkinu lauk að við urðum að ná í jeppakerruna hans pabba og moka hrúgunni upp í hana og fara með úrganginn á haugana.
Ef allir bæjarbúar gerðu þetta, þ.e. að fara út og hreinsa götun sína, meðfram girðingarköntum  og gangbrautarköntum hjá þeirra húsum liti bærinn miklu betur út. Og ekkert mál ef allir hjálpast að.
Ég var í einn og hálfan klukkutíma við mína hreinsun og hvað er það að gefa samfélaginu til að bærinn verði snyrtilegri?
Og mér líður svo vel að hafa unnið þessa vinnu.

miðvikudagur, 4. apríl 2012

Tvær flugur í einu höggi

Svona af því ég er í páskafríi bauð hann Simmi minn mér með sér í bíltúr í vinnunni hans. Hann er svona altmuligmann hjá Hafnarnesi-Ver og þar með stundum flutningabílstjóri.Í dag var rúnturinn Reykjavík, með fisk til útflutning hjá Eimskip, Hafnarfjörður að sækja umbúðir og Grindavík að ná í rækjutroll. Þá lá beinast við að fara Suðurstrandaveginn heim og kominn hringur.
Þetta gekk allt eftir hjá okkur. Bíllinn náttúrlega vinnubíll og þess vegna fór ég í gallabúxum og úlpu en ekki neinu sparidressi.
Aðalástæðan fyrir því að ég hoppaði með, var að ég ætlaði að nota ferðina og skjótast í páskainnkaup í leiðinni svona til að spara mer rándýran olíusopann og til að fylla á galtómann ísskápinn. Alls staðar á ferð okkar voru lágvörubúðir til að skjótast í þannig að ég hefði ekki tafið ferðina neitt að ráði enda með innkaupalistann tilbúinn. Krónan í Hafnarfirði er við hliðina á Kænunni þar sem við gúffuðum í okkur hádegismat, Bónus er á Völlunum í Hafnarfirði og Nettó í Grindavík.
Ekkert varð af innkaupum vegna þess að peningabuddan mín var ekki í veskinu, sem ég þreif með mér, eins og ég hélt. Simmi á ekkert kreditkort en það stendur til að kaupa páskglaðninginn með kreditkorti.
Við verðum að skjótast á eftir á Selfoss og nota kortið mitt og díselolíuna mína.

laugardagur, 31. mars 2012

Annar í brúðkaupsafmæli og skírn

Krakkinn, löngu síðar.
Í dag fyrir 40 árum bárum við, Simmi minn, drenginn okkar til skírnar. Það var mér mikið kappsmál að drengurinn yrði ekki, í kirkjubókum og öðrum mikilvægum plöggum, kallaður lausaleikskrói, utanhjónabandsbarn, bastarður eða hvaða nöfn voru notuð um börn sem voru getin utan hjónabands. Við, Simmi minn, lifðum í synd. Við sváfum saman án þess að hafa hlotið blessun kirkjunnar til þess að mega það. Mér leið hrikalega illa að vera svona vond manneskja. En ég var svo heppin að einhver sagði mér það að ef við giftum okkur áður en krakkinn yrði skírður væri allt í fína. Þá slyppi krakkinn viða að vera skráður fæddur utan hjónabands.
Þannig að þegar hann fæddist, 22. des 1971 fór ég að plana hvernig ég reddaði því að framtíð litla barnsins mín yrði í lagi. Það varð náttúrlega að skíra barnið á skikkanlegum tíma en ég yrði að koma okkur, Simma mínum, í hjónaband áður. Þannig háttaði til árið 1972 að skírdag bar upp á 30 mars og þá var ágætt fyrir mig að draga hann út í Selvog og láta hann giftast mér í Strandarkirkju og það var siður að  messa í Þorlákshöfn á föstudaginn langa og þá væri bara fínt að bera barnið til skírnar.
Við gamla dressið, búin að vera í hjónabandi í heilan sólarhring, bárum krakkann til skírnar í messu í skólanum í Þorlákshöfn og allir eða sem sagt ég, urðu glaðir.
Krakkinn laus við lausaleikskróastimpilinn.
En ég, þar með komin í hjónaband.
Sem lafir enn.

föstudagur, 30. mars 2012

Brúðkaupsafmæli

Í dag eru 40 ár síðan við, Simmi minn, gengum í hjónaband. Vá, hvað þetta var eitthvað hrikalega hátíðleg setning. Sama með það, við erum búin að vera í hnappheldunni í fjörutíu ár. Eignast tvo krakkalakka og komið þeim, sem betur fer til manns og sitjum svo tvö eftir og hugsum um hvort annað. Krakkarnir okkar eru auðvitað það sem máli skiptir, að þeim líði vel og allt það og svo komum við.
Við erum alltaf með veislu í farangrinum, eins og Hemmingway  og erum alltaf í góðum gír. Hugsum alltaf um að það sem máli skiptir en að  er að líða vel í núinu.
Að láta sér líða vel í núinu.
Það verður ekkert betra seinna.
Núið er lífið.
Fyrir fjörutíu árum var líka núið.
Já, núið er snúið því það er allt í einu búið
En á  hverju augnabliki er nýtt nú.
Svona vorum við aldamótaárið 2000.Sæl og södd.
Við Simmi minn grípum hvert nýtt nú sem kemur
og ætlum að eiga saman þá daga sem við getum lifað í nýju núi.

fimmtudagur, 29. mars 2012

Brjóstaminnkun

Af hverju ætla  ég í brjóstaminnkun loksins núna að verða 62 ára gömul? Af hverju ekki fyrir löngu síðan? Það er vegna þess að ég vissi ekki að ég væri með of stór brjóst. Ég vissi að þau voru stór en ekki að þau væru of stór.
Það eru líklega um 20 ár síðan mér var í raun og veru bent á að ég væri með það stór brjóst að ég ætti að íhuga brjóstaminnkun. Dagný Magg sýndi mér brjóstin sín eftir aðgerð og ráðlagði mér að gera slíkt hið sama. Mér fannst hún flott eftir aðgerð en ég sá ekki að ég þyrfti á brjóstaminnkun að halda og fannst strax þá alveg útilokað að fara að skera í heilbrigðan vef og skemma þar með náttúrusköpun.
Oft er höfuðverkur, bakverkur eða vöðvabólga notað sem afsökun fyrir brjóstaminnkun en ég hef hvorki þjáðst af höfuðverkné bakverk en er með mikla vöðvabólgu í öxlum og hef alltaf sagt að ég viti ekki með vissu hvort bólgan stafar af of stórum brjóstum eða einhverju öðru.  Brjóstalitlar konur geta fengið vöðvabólgu. Ég er líka með djúp för í axlirnar eftir brjótahaldara en það eru líka margar konur, sem eru með minni brjóst en ég.
Ég hef safnað saman í hausinn á mér nokkrum atriðum um brjóstastærð mína í gegnum árin og svo á einum tímapunkti í janúar 2011 safnaðist allt saman á einn stað í hausnum á mér og mér varð ljóst að ég yrði að gera eitthvað í þessu og rauk í símann og pantaði mér tíma hjá lýtalækni. Tímann fékk ég í apríl 2011 hjá Þórdísi Kjartansdóttur og eftir viðtal við hana var ég sett á biðlista. Ef ég var með efasemdir áður en ég hitti lýtalækninn hurfu þær gersamlega eftir viðtalið. Hún sagði að ég væri með svo stór og þung brjóst að Tryggingastofnun mundi borga hverja einustu krónu og þegar hún benti mér á að brjóstin væru búin að rífa sig frá bringubeininu varð ég alveg ákveðin í að fara í aðgerð.
Ég hef beðið róleg. Læknirinn sagði að hún tæki mig innan árs og nú hef ég fengið tíma þann 7. maí 2012.
Ég get varla beðið, ég hlakka svo til.


mánudagur, 26. mars 2012

Mánudagshugleiðing

Nú er heldur betur komin reynsla á hálfdagsvinnuna mína. Búin að vera heima næstum því alla mánudaga í vetur og föstudaga fram að áramótum. Mér finnst ég vera forréttindapíka að hafa þennan möguleika að hefja töku lífeyris og vinna 49% vinnu.
Ég finn að ég hef ekkert i unglingana að gera lengur. Eftir að ég tók að mér forfallakennsluna í handmennt og þar með farin að umgangast íslenska unglinga reglubundið aftur, finn ég gapið á milli mín og þeirra. Þetta eru náttúrlega bara stelpur og þær fá að hlusta á tónlist á meðan þær dúlla við handavinnuna. Tónlistin er langt fyrir ofan eða neðan mitt áhugasvið og umræðuefnið oft á tíðum fyrir utan minn skilning. Ég hef kannski fjarlægst svona mikið með því að hætta að vera með íslenskum krökkum og kenna eingöngu íslensku sem annað mál. Ég veit það ekki.
Alla vega er ég afskaplega ánægð að geta snarminnkað svona vinnuna, verið meira heima og gert það sem mig langar.
Mánudagar eru æðislegir.
Mér finnst samt mjög gaman að kenna handavinnu.

laugardagur, 11. febrúar 2012

Líkamsflækja

Þegar líkaminn minn þrýstist
upp við líkama þinn
langar mig kannski meira í þig
en þig langar í  mig
nema ef þig skyldi langa jafn mikið í mig
og mig langar þig
þá  myndum við hittast
í hita leiksins

fimmtudagur, 9. febrúar 2012

Líkamshreyfing

Ég gríp til eigin líkama
þegar ég vil hreyfa mig
get varla ætlast til þess
að ég
geti hreyft aðra líkama
nema ef vera skyldi
að kallinn vilji hreyfa sig
um leið og ég.