| Krakkinn, löngu síðar. |
Þannig að þegar hann fæddist, 22. des 1971 fór ég að plana hvernig ég reddaði því að framtíð litla barnsins mín yrði í lagi. Það varð náttúrlega að skíra barnið á skikkanlegum tíma en ég yrði að koma okkur, Simma mínum, í hjónaband áður. Þannig háttaði til árið 1972 að skírdag bar upp á 30 mars og þá var ágætt fyrir mig að draga hann út í Selvog og láta hann giftast mér í Strandarkirkju og það var siður að messa í Þorlákshöfn á föstudaginn langa og þá væri bara fínt að bera barnið til skírnar.
Við gamla dressið, búin að vera í hjónabandi í heilan sólarhring, bárum krakkann til skírnar í messu í skólanum í Þorlákshöfn og allir eða sem sagt ég, urðu glaðir.
Krakkinn laus við lausaleikskróastimpilinn.
En ég, þar með komin í hjónaband.
Sem lafir enn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli