Síður

laugardagur, 21. apríl 2012

Bæjarhreinsun

Ég nota mikið göngustíginn sem tengir götuna mína við Skálholtsbraut, bæði gangandi og hjólandi. Hann hefur verið frekar subbulegur upp á síðkastið eða kannski miklu lengur. Það fer alltaf meira og meira í taugarnar á mér. Ég hef ekki orðið var við það að hann hafi nokkurn tíma verið hreinsaður síðan ég flutti í götuna fyrir átta árum. Hann var fullur af laufi og grastoppar vaxa alls staðar meðfram girðingarkantinum sem er öðru megin.
 Ég tók mig til í morgun, vopnuð stunguskólflu, mokstursskóflu og strákúst og þreif stíginn eins vel og ég gat. Sópaði laufinu saman og pjakkaði svo grastoppana upp og skóf líka fullt af mosa upp. Þegar þessu lauk var ég svo ánægð með verkið að ég lét ekki staðar numið heldur þreif líka meðfram girðingunni innst í botnlanganum. Þar var gras vaxið yfir malbikið á stóru svæði og þurfti ég að stinga það upp með stunguskóflunni. Þetta var svolítið erfið vinna þannig að ég plataði, Simma minn, í að hjálpa mér sem hann og gerði. Við vorum komin með svo myndarlega hrúgu af grasi, mosa og laufum þegar verkinu lauk að við urðum að ná í jeppakerruna hans pabba og moka hrúgunni upp í hana og fara með úrganginn á haugana.
Ef allir bæjarbúar gerðu þetta, þ.e. að fara út og hreinsa götun sína, meðfram girðingarköntum  og gangbrautarköntum hjá þeirra húsum liti bærinn miklu betur út. Og ekkert mál ef allir hjálpast að.
Ég var í einn og hálfan klukkutíma við mína hreinsun og hvað er það að gefa samfélaginu til að bærinn verði snyrtilegri?
Og mér líður svo vel að hafa unnið þessa vinnu.

miðvikudagur, 4. apríl 2012

Tvær flugur í einu höggi

Svona af því ég er í páskafríi bauð hann Simmi minn mér með sér í bíltúr í vinnunni hans. Hann er svona altmuligmann hjá Hafnarnesi-Ver og þar með stundum flutningabílstjóri.Í dag var rúnturinn Reykjavík, með fisk til útflutning hjá Eimskip, Hafnarfjörður að sækja umbúðir og Grindavík að ná í rækjutroll. Þá lá beinast við að fara Suðurstrandaveginn heim og kominn hringur.
Þetta gekk allt eftir hjá okkur. Bíllinn náttúrlega vinnubíll og þess vegna fór ég í gallabúxum og úlpu en ekki neinu sparidressi.
Aðalástæðan fyrir því að ég hoppaði með, var að ég ætlaði að nota ferðina og skjótast í páskainnkaup í leiðinni svona til að spara mer rándýran olíusopann og til að fylla á galtómann ísskápinn. Alls staðar á ferð okkar voru lágvörubúðir til að skjótast í þannig að ég hefði ekki tafið ferðina neitt að ráði enda með innkaupalistann tilbúinn. Krónan í Hafnarfirði er við hliðina á Kænunni þar sem við gúffuðum í okkur hádegismat, Bónus er á Völlunum í Hafnarfirði og Nettó í Grindavík.
Ekkert varð af innkaupum vegna þess að peningabuddan mín var ekki í veskinu, sem ég þreif með mér, eins og ég hélt. Simmi á ekkert kreditkort en það stendur til að kaupa páskglaðninginn með kreditkorti.
Við verðum að skjótast á eftir á Selfoss og nota kortið mitt og díselolíuna mína.

laugardagur, 31. mars 2012

Annar í brúðkaupsafmæli og skírn

Krakkinn, löngu síðar.
Í dag fyrir 40 árum bárum við, Simmi minn, drenginn okkar til skírnar. Það var mér mikið kappsmál að drengurinn yrði ekki, í kirkjubókum og öðrum mikilvægum plöggum, kallaður lausaleikskrói, utanhjónabandsbarn, bastarður eða hvaða nöfn voru notuð um börn sem voru getin utan hjónabands. Við, Simmi minn, lifðum í synd. Við sváfum saman án þess að hafa hlotið blessun kirkjunnar til þess að mega það. Mér leið hrikalega illa að vera svona vond manneskja. En ég var svo heppin að einhver sagði mér það að ef við giftum okkur áður en krakkinn yrði skírður væri allt í fína. Þá slyppi krakkinn viða að vera skráður fæddur utan hjónabands.
Þannig að þegar hann fæddist, 22. des 1971 fór ég að plana hvernig ég reddaði því að framtíð litla barnsins mín yrði í lagi. Það varð náttúrlega að skíra barnið á skikkanlegum tíma en ég yrði að koma okkur, Simma mínum, í hjónaband áður. Þannig háttaði til árið 1972 að skírdag bar upp á 30 mars og þá var ágætt fyrir mig að draga hann út í Selvog og láta hann giftast mér í Strandarkirkju og það var siður að  messa í Þorlákshöfn á föstudaginn langa og þá væri bara fínt að bera barnið til skírnar.
Við gamla dressið, búin að vera í hjónabandi í heilan sólarhring, bárum krakkann til skírnar í messu í skólanum í Þorlákshöfn og allir eða sem sagt ég, urðu glaðir.
Krakkinn laus við lausaleikskróastimpilinn.
En ég, þar með komin í hjónaband.
Sem lafir enn.

föstudagur, 30. mars 2012

Brúðkaupsafmæli

Í dag eru 40 ár síðan við, Simmi minn, gengum í hjónaband. Vá, hvað þetta var eitthvað hrikalega hátíðleg setning. Sama með það, við erum búin að vera í hnappheldunni í fjörutíu ár. Eignast tvo krakkalakka og komið þeim, sem betur fer til manns og sitjum svo tvö eftir og hugsum um hvort annað. Krakkarnir okkar eru auðvitað það sem máli skiptir, að þeim líði vel og allt það og svo komum við.
Við erum alltaf með veislu í farangrinum, eins og Hemmingway  og erum alltaf í góðum gír. Hugsum alltaf um að það sem máli skiptir en að  er að líða vel í núinu.
Að láta sér líða vel í núinu.
Það verður ekkert betra seinna.
Núið er lífið.
Fyrir fjörutíu árum var líka núið.
Já, núið er snúið því það er allt í einu búið
En á  hverju augnabliki er nýtt nú.
Svona vorum við aldamótaárið 2000.Sæl og södd.
Við Simmi minn grípum hvert nýtt nú sem kemur
og ætlum að eiga saman þá daga sem við getum lifað í nýju núi.

fimmtudagur, 29. mars 2012

Brjóstaminnkun

Af hverju ætla  ég í brjóstaminnkun loksins núna að verða 62 ára gömul? Af hverju ekki fyrir löngu síðan? Það er vegna þess að ég vissi ekki að ég væri með of stór brjóst. Ég vissi að þau voru stór en ekki að þau væru of stór.
Það eru líklega um 20 ár síðan mér var í raun og veru bent á að ég væri með það stór brjóst að ég ætti að íhuga brjóstaminnkun. Dagný Magg sýndi mér brjóstin sín eftir aðgerð og ráðlagði mér að gera slíkt hið sama. Mér fannst hún flott eftir aðgerð en ég sá ekki að ég þyrfti á brjóstaminnkun að halda og fannst strax þá alveg útilokað að fara að skera í heilbrigðan vef og skemma þar með náttúrusköpun.
Oft er höfuðverkur, bakverkur eða vöðvabólga notað sem afsökun fyrir brjóstaminnkun en ég hef hvorki þjáðst af höfuðverkné bakverk en er með mikla vöðvabólgu í öxlum og hef alltaf sagt að ég viti ekki með vissu hvort bólgan stafar af of stórum brjóstum eða einhverju öðru.  Brjóstalitlar konur geta fengið vöðvabólgu. Ég er líka með djúp för í axlirnar eftir brjótahaldara en það eru líka margar konur, sem eru með minni brjóst en ég.
Ég hef safnað saman í hausinn á mér nokkrum atriðum um brjóstastærð mína í gegnum árin og svo á einum tímapunkti í janúar 2011 safnaðist allt saman á einn stað í hausnum á mér og mér varð ljóst að ég yrði að gera eitthvað í þessu og rauk í símann og pantaði mér tíma hjá lýtalækni. Tímann fékk ég í apríl 2011 hjá Þórdísi Kjartansdóttur og eftir viðtal við hana var ég sett á biðlista. Ef ég var með efasemdir áður en ég hitti lýtalækninn hurfu þær gersamlega eftir viðtalið. Hún sagði að ég væri með svo stór og þung brjóst að Tryggingastofnun mundi borga hverja einustu krónu og þegar hún benti mér á að brjóstin væru búin að rífa sig frá bringubeininu varð ég alveg ákveðin í að fara í aðgerð.
Ég hef beðið róleg. Læknirinn sagði að hún tæki mig innan árs og nú hef ég fengið tíma þann 7. maí 2012.
Ég get varla beðið, ég hlakka svo til.


mánudagur, 26. mars 2012

Mánudagshugleiðing

Nú er heldur betur komin reynsla á hálfdagsvinnuna mína. Búin að vera heima næstum því alla mánudaga í vetur og föstudaga fram að áramótum. Mér finnst ég vera forréttindapíka að hafa þennan möguleika að hefja töku lífeyris og vinna 49% vinnu.
Ég finn að ég hef ekkert i unglingana að gera lengur. Eftir að ég tók að mér forfallakennsluna í handmennt og þar með farin að umgangast íslenska unglinga reglubundið aftur, finn ég gapið á milli mín og þeirra. Þetta eru náttúrlega bara stelpur og þær fá að hlusta á tónlist á meðan þær dúlla við handavinnuna. Tónlistin er langt fyrir ofan eða neðan mitt áhugasvið og umræðuefnið oft á tíðum fyrir utan minn skilning. Ég hef kannski fjarlægst svona mikið með því að hætta að vera með íslenskum krökkum og kenna eingöngu íslensku sem annað mál. Ég veit það ekki.
Alla vega er ég afskaplega ánægð að geta snarminnkað svona vinnuna, verið meira heima og gert það sem mig langar.
Mánudagar eru æðislegir.
Mér finnst samt mjög gaman að kenna handavinnu.

laugardagur, 11. febrúar 2012

Líkamsflækja

Þegar líkaminn minn þrýstist
upp við líkama þinn
langar mig kannski meira í þig
en þig langar í  mig
nema ef þig skyldi langa jafn mikið í mig
og mig langar þig
þá  myndum við hittast
í hita leiksins

fimmtudagur, 9. febrúar 2012

Líkamshreyfing

Ég gríp til eigin líkama
þegar ég vil hreyfa mig
get varla ætlast til þess
að ég
geti hreyft aðra líkama
nema ef vera skyldi
að kallinn vilji hreyfa sig
um leið og ég.

miðvikudagur, 8. febrúar 2012

Kuldahrollur

Hef breyst í kuldakreistu
hlusta á vindinn gnauða á nóttinni
í andvökunni
hann gnauðar á gluggann minn
rigningin ber og lemur
mér verður kalt við tilhugsunina
að skella mér út í laug
fyrir klukkan sjö
ákveð að fara ekki
mér gæti fundist of kalt
frétti svo á kennarastofunni
að vatnið hafi verið 29 gráður

miðvikudagur, 1. febrúar 2012

Hringormur

Hann skælbrosir
Hann Simmi minn var búinn að setja nýjan þorskbita í Tuppervaredall á eldhúsborðið þegar ég komst loksins heim í hádegismat í gær. Við hittumst sem sagt ekkert, hann var farinn þegar ég kom heim. Ég skildi samt að fiskurinn væri kvöldmatur. Bitinn leit girnilega út og hlakkaði ég til að elda hann.            
 Þegar að þeirri stundu kom féll mér allur ketill í eld. Við hlið fiskbitans spriklaði þessi líka feiti og fíni hringormur. Hann hló framan í mig.Ég fékk gæsahúð af hryllingi um mig alla. Þó ég geri mér grein fyrir því að ég hljóti einhvern tíma í gegnum tíðina hafa gúffað í mig hringorm þá vil ég ekki vita af því. Ég tilkynnti Simma mínum, þegar hann kom heim úr vinnunni, að þennan fisk gæti ég ekki borðað og líklega engan fisk á næstunni, kannski aldrei. Við sem höfum aukið fiskneyslu upp á síðkastið svona sem liður í hollara fæði.  Hann henti orminum í ruslið, skellti fiskinum í pott, bætti við rófum og gulrótum svo ég fengi eitthvað að borða, lagði á borð og sagði vesgú. Fiskfjandinn var svo hvítur og fallegur að ég fór að narta í hann og gat, með því að pikka hann í smátætlur, borðað pínu pons.
Ég er í fínu lagi í dag.
Enda heyrði ég einhvern tímann að hringormar væru bara prótein.

mánudagur, 30. janúar 2012

Starf eldri borgara

Ég hóf störf með eldri borgurum síðastliðinn mánudag. Ekki seinna vænna, búin að vera í félagi eldri borgara í eitt og hálft ár. Á mánudaginn var, byrjaði leshópur aftur eftir áramót og ákváðum við Sigga að taka þátt. Við mættum galvaskar og sögðumst vera komnar í aðlögun. Okkur var veltekið og virkilega gaman að spjalla um þær bækur sem viðstaddir höfðu verið að lesa.
Ég undisbjó mig betur fyrir daginn í dag en síðast.  Helst átti fólk að lesa eitthvað sem tengdist Svarfaðardal, Dalvík eða einhverju á því svæði en þangað stendur til að ferðast næsta sumar. Ég tók úr bókaskápnum mínum bókina Pelastikk og rifjaði hana upp og ákvað að lesa upphaf bókarinnar því þar er góð lýsing á því hvaða leiðir hann Logi gat farið heiman frá sér og niður á bryggju, nokkurra ára gamall en þangað vildi hann komast óséður. Gaman væri að koma á þær slóðir og finna leiðirnar sem hann notaði
Ekki tókst betur til en það í dag en að ég klikkaði á tímanum og mætti klukkutíma of seint. Þetta var vatn á myllu kvennanna sem voru staddar á Níunni. Þeim fannst aðlögunin bara takast nokkuð vel hjá mér. Byrjaði á því að gleyma.

miðvikudagur, 25. janúar 2012

Menntaverðlaun

Forsetinn og skólastjórinn
Ég var viðstödd í gær hátíðarsamkomu í sal FSU þar sem menntaverðlaun Suðurlands voru afhent í fjórða sinn en það eru Samtök sunnlenskra sveitafélaga sem veita þessi verðlaun.  Grunnskólinn í Þorlákshöfn hreppti hnossið að þessu sinni. Ég varð ósköp glöð þegar Halldór skólastjóri hringdi í mig og bauð mér að koma með sem gamall kennari við skólann. Ég þáði boðið enda er ég mjög stolt af þessum verðlaunum. Mér finnst ég eiga pínulítið í þeim sem kennari við skólann til 40 ára.
Það voru nokkrir sem fengu tilnefningar en okkar tilnefning var eftirfarandi:

Grunnskólinn Þorlákshöfn fyrir námslegar framfarir og samþættingu á leiklist og tónlistarlífi inn í starf skólans. Ber þar hæst öflugt samstarf við tónlistarskóla Árnesinga sem á sér orðið langa hefð í sögu skólans. Starfið hefur lagt grunn að því menningarlífi sem bæjarfélagið býr að og er einmitt til þess tekið í rökum þeirra sem sendu inn tilnefningar að með starfi skólans hafi verið lagður sterkur grunnur að því blómstrandi menningar og listalífi sem einkennir bæjarfélagið. Grunnskólinn er Grænfánaskóli þar sem nemendur vinna af metnaði að umhverfismálum. Svo sé vitnað orðrétt í tilnefningu móður 4 barna sem stundað hafa nám við skólann frá árinu 1987. Grunnskólinn í Þorlákshöfn er skóli í ungu og barnmörgu samfélagi þar sem fjölmenning er hátt hlutfall eða um 14 % og hefur skólanum tekist vel að sameina ólíka nemendur með fjölbreyttu starfi þar sem allir hafa möguleika á að finna sinn farveg.

laugardagur, 21. janúar 2012

Bóndadagur

Simmi að velja lög með Beggu
Í gær var bóndadagurinn. Í mínum huga á eiginkonan að gera manni sínum gott í mat þann dag. Mér er slétt sama þó bóndi minn hlaupi ekki í kringum bæinn í annarri skálminni enda líka erfitt fyrir hann í kringum raðhús. Í dag fá allir karlar hamingjuóskir á þessum degi og kaupmenn auglýsa alls kyns gjafir til handa mönnum. Það er eitthvað nýtískubull. Mamma segir að maður eigi að gera bónda sínum gott í matinn og hún talar um hangikjöt, kannski er það bara eitthvað sem hún hefur ákveðið en ég spurði hann Simma minn hvað hann langaði helst að borða. Hann var eitthvað að röfla um þorramat og ég var náttúrlega til í það. Mér finnst þorramatur mjög góður. En þegar ég greip súrfötuna í Bónus þa fitjaði minn upp á trýnið. Hann borðar ekki súrmat. 
Hvernig þorramat viltu þá Simmi minn, spurði ég.
Harðfisk og hangikjöt, svaraði hann.
.....svo voru Bítlarnir auðvitað settir á fóninn
Hmmm....
Æ, má ég ekki bara velja ganasteik? spurði hann.
Auðvitað mátti hann velja ganasteik. Ganasteik finnst mér besta afurð lambakjöts. Svo ganasteik var elduð í fyrsta skipti á nýju æðislegu Saladmaster rafmagnspönnunni og tókst svona líka frábærlega.
Þegar líða tók á bóndadaginn slökktum við á sjónvarpinu og Simmi minn, bóndinn, gerðist einkaplötusnúðurinn minn. Það finnst mér alltaf frábærar stundir. Hann sest á gólfið fyrir framan svakadiskagræju sem hann keypti sér á meðan hann rak veitingahús og spilar vel valin lög. Stundum nær hann í hjartaræturnar á mér þannig að ég fer að gráta af tilfinningasemi. Ég slapp við það í gær, þrátt fyrir að hann spilaði bæði Friðjón Jóhannsson og Beggu heitina Árnadóttur. Svo tökum við alltaf nokkur danspor t.d. við sum lög Björgvins.
Stuð á gamla dressinu.

miðvikudagur, 18. janúar 2012

Rósavettlingar

Rósavettlingar á einmánuði heita þessir
Hef fengið óslökkvandi áhuga á rósavettlingum. Leitaði og leitaði að mynstrum og var við það að gefast upp þegar mér barst í hendurnar gersemi og gull. Bók með skrilljón uppskriftum af rósavetttlingum í ýmsum myndum. Fékk valkvíðakast, því ég vissi ekki hvar ég átti að byrja. Sá svo að  það skipti engu máli, ég ætla að  prjóna þá alla og það skiptir ekki máli hvar ég byrja. Þessir á meðfylgjandi mynd urðu fyrstir. Ég er núna búin með annan vetttlinginn og byrjuð á hinum. Ógeðslega flottir.,

sunnudagur, 15. janúar 2012

Matarboð

Við, Simmi minn, brugðum okkur í höfuðborgina í gær, þegar ég kom heim frá frábærlega skemmtilegum bókafundi Delta Kappa Gamma sem haldinn var í best falda leyndarmáli Suðurlands, Hótel Eldhestum í Ölfusi.
Ferðin í höfuðstaðinn var til þess gerð að þiggja matarboð forseta borgarstjórnar og Doktors Kalla. Við vorum svona aukaspenar í þessu matarboði því uppistaðan var Yeomanfólkið. Það er nú ekki leiðinlegt að tengjast því skemmtilega fólki og eyða kvöldstund með því. Ástæða veislunnar var sjálfsagt sú að Kristín, sem býr í Seattle, var stödd á Skerinu ásamt eiginmanni og dótturinni Tönju. Þarna mættu öll systkini Elsu og flestir afkomendur þeirra, þannig að tvær kynslóðir skemmtu sér saman sem mér finnst alltaf skemmtilegast.
Á boðstólum var aðallega "heimaveidd" dýr eins Elsa orðaði það. Gæsabringur og gæsaleggir og andaeitthvað og andahitt og lundabringur og sjávarréttarsúpa og Lasagne og ég veit ekki hvað og hvað. Allt hvað öðru betra. Frábær eftirréttur, sem ég enn finn bragðið af.
Margir viðstaddir kunna að spila á gítar, þannig að spilað var og sungið og sungið meira.
Við, Simmi minn, fengum heila íbúð til afnota. Íbúð á Stýró sem systurdóttir Simma á. Þar höfðum við það eins og kóngafólk.
Svakalega líður mér alltaf vel í 101 Reykjavík.

sunnudagur, 8. janúar 2012

Iðjuleysi með prjónaskap

Sunnudagur
letidagur
morgunverður í rúmið, beygla með osti og sultu og bleksterkt kaffi
druslast á lappir
fréttarúntur á netinu
silfur egils
prjónað og hlustað á gamlar sögur á hlusta.is
núna er Jón Trausti uppáhalds
gott að sitja og prjóna og hlusta þegar rigningin lemur gluggana
næstbesta pizza í heimi sett í ofninn
smá rauðvín með
sunnudagur
unaðsleg værð yfir öllu
letidagur
iðjuleysi
hið fagra iðjuleysi

miðvikudagur, 4. janúar 2012

Textílkennari


Ég hlakka til að æfa mig á svona vél
Ég réð mig í dag í textílkennslu. Það vantar, frá og með áramótum textílkennara við skólann og svo skemmtilega vill til að ég á lausan tíma akkúrat þegar þessi kennsla er á stundaskrá. Þetta er val hjá 9. og 10. bekk og ég hlakka bara til. Ég tók handavinnu sem val í Kennó á sínum tíma og kann svo sem að taka upp snið og sauma flík þó svo ég hafi ekki kennt það áður. Ég saumaði mikið hérna í den. Saumaði bara allt sem vantaði á heimilið, nema jakkaföt á kallinn. Ég saumaði samt oft á hann buxur.  Saumaði dragtir á sjálfa mig, kjóla, buxur og pils og náttúrlega á blessuð börnin.  Mér sýnast efni hafa helst breyst frá því ég saumaði sem mest. Efnin hafa meiri teygjanleika núna en áður. Þá kemur til skjalann overlokksaumavél og þannig grip hef ég ekki notað svo þar er aðaláskorunin komin á mig.
Ég verð að læra á overlokk innan nokkura daga.
Ég bara verð.

þriðjudagur, 3. janúar 2012

Ein voða vitlaus

Lopapeysa í stærðinni medium
Þegar Svava Rán sagðist hvarvetna vekja athygli þar sem hún kemur í íslensku lopapeysunum sínum, fannst mér  það svo sniðug hugmynd, að prjóna peysur og semda henni og hún kæmi peysunum svo í verð, án þess að íslenska skattakerfið vissi og ég eignaðist pund í útlenskum banka. Ég er búin með eina peysu. Var bara fimm daga með hana en þegar ég var að klára hana fór ég að reikna dæmið. Lopinn kostar um 2500 krónur í eina peysu, sendingarkostnaður yrði um 1500 þannig að mig kostar dæmið 4000 krónur. Svava Rán hélt að hún gæti ekki selt svona peysu nema á 20-25  pund sem er 4-5000 krónur.                                       
Já, nú var ég dáldið vitlaus.
Og sit uppi með peysu sem mig vantar ekki.

mánudagur, 2. janúar 2012

Prjónadagurinn mikli

Á þessum síðasta degi jólafrísins hef ég setið og prjónað. Ég fór seinna á fætur en til stóð en um klukkan hálf eitt var ég sest með prjónana og prjónaði og prjónaði og hlustaði á Heiðarbýlið eftir Jón Trausta á hlusta. is.  Ég sleppti prjónunum 10 klukkutímum síðar. Ég hefði klárað peysuna ef ég hefði ekki þurft að rekja smávegis upp. Ég stóð upp til að fara á klósettið, hella mér upp á kaffi, borða eitt epli og ostbita. setja upp saltkjöt sem hann Simmi minn var búinn að undirbúa, skjótast út í búð eftir rófum, skræla þær og bæta við í pottinn. Nú svo borðaði ég með Simma mínum en hélt annars mest megnis áfram að prjóna.
Mér er illt í bakinu, öxlunum, handleggjunum, fingrunum og úlnliðunum. Ég verð að prjóna eftir vinnu á morgun til að æfa þessa aumu vöðva meira. Þetta eru lopavöðvarnir sem hafa rýrnað. Ég hef verið að prjóna úr fínna garni að undanförnu og nota vöðvana greinilega einhvern veginn öðruvísi.
Ég á líka bara einn lestur eftir af sögunni. Klára að hlusta á morgun.

sunnudagur, 1. janúar 2012

Óráðin framtíð


Gleðilegt ár
Á áramótum verð ég alltaf meir og viðkvæm og fæ undarlega eftirsjá þegar ártalið hverfur af sjónvarpsskjánum á miðnætti og verð ringluð og finn fyrir óöryggi þegar nýja ártalið birtist. En þessi blanda furðulegra tilfinninga varir, sem betur fer aðeins skamma stund. Ég finn fyrir hátíðleika þegar Nú árið er liðið er sungið og kemst aftur í jafnvægi.                                                                                  
Í gærkvöld rann þetta allt einhvern veginn saman við það að hlusta, horfa og opna kampavínsflöskuna og fylgjast með flugeldabrjálæði og tala í símann við afkomendur.     
                                              
Nýtt ár er hafið. 2012 er gengið í garð og við því tek ég með auðmýkt og þakklæti. Ég geng ekki að neinu sem gefnu í þessu lífi en er þakklát fyrir svo margt.