
Árið 2009
Eftir hinn fyrsta vinnudag á nýbyrjuðu ári er ég að velta því fyrir mér hvernig árið 2009 var. Ég var ekkert að spekulera í þessu á meðan ég var í frábæru jólafríi en þegar rútínan tekur aftur við rankar maður til lífsins og fer aftur að hugsa.
Mér finnst árið 2009 hafa runnið hjá án þess að ég tæki neitt sérstaklega eftir því. Það finnst mér sorglegt því hver mínúta sem maður lifir er svo dýrmæt.
Ég verð að draga fram úr hugskoti mínu hvað ég gerði á þessu ári og reyna að rifja það upp. Þegar ég legg mig fram þá kemur ýmislegt skemmtilegt í ljós sem ég gerði en ég held að í mínum huga verði árið 2009, í framtíðinni, árið eftir hrun. Árið sem ég var að jafna mig andlega eftir hrunið.
Hrunið skildi eftir sig djúpt far hjá mér. Ekki það að ég tapaði peningum, ég átti enga fyrir, heldur varð ég svartsýn á framtíðina og fann til mikils svartnættis þegar ég hlustaði á Geir Haarde fara með Guð blessi Ísland ræðuna 6. okt 2008. Ég sá bara enga framtíð neins staðar. Það var bara svartur veggur framundan.
Ég held að ég hafi að mestu leyti náð mér en þó finn ég stöku sinnum örla á þessu hræðilega svartsýni. Ég reyni að sjá björtu hliðarnar og tek undir með fólki þegar talað er um að ekkert annað en bjartsýni á framtíðina sé í boði en ég er oft að leika þá og látast.
Maður getur verið skratti góður leikari.






