Keimlík hjónÞegar ég kom heim úr vinnunni í dag sá ég að Simmi minn hafði tekið gúllas úr frysti áður en hann fór til vinnu í morgun. Ég hafði náttúrlega ekki haft hugsun á því.
Ég hringdi í hann til þess að fá að vita hvort hann hefði haft einhvern sérstakan rétt í huga þegar hann tók bitana úr frysti.
"Nei, nei, ástin mín eldaðu bara úr þessu það sem þér dettur í hug," sagði hann.
"OK, ég finn eitthvað út úr þessu og kem þer á óvart," sagði ég.
Mér datt strax í hug að elda úr þessu kínverskan pottrétt og snaraði mér í það þegar leið að kvöldverði. Þegar ég var búin að steikja kjötið og skera niður gulrætur, paprikku og lauk og ætlaði að finna til ananasinn og soyasósuna var hvorugt til. Ég slökkti á eldavélinni og skondraði út í kaupfélag, sem heitir núna Kjarval, og reddaði því sem vantaði.
Þegar ég kom heim var síminn hringjandi. Í símanun var Simmi minn með frábæra hugmynd.
"Heyrðu, elskan, hvað segirðu um að elda kínverskan pottrétt úr gúllasinu?"
Ætli þetta sé ekki dæmi um að eldast saman og í sömu átt en ekki að þroskast í sundur eins og stundum er talað um?