Síður

laugardagur, 28. febrúar 2004

Mér voru veitt verðlaun í gærkvöldi í söngfélagspartýi fyrir bestu mætingu í sópran á árinu. Þetta kom mér mjög svo á óvart en gladdi mig um leið.
Ég var mjög stolt af því í gær að vera Þorlákshfnarbúi. Hér var haldin Menntaráðstefna með frábærum fyrirlesurum frá Háskólanum á Akureyri, Oddeyrarskóla á Akureyri og Kennaraháskóla Íslands. Stefán skólanefndarformaður var með erindi svo og Billi í 10. bekk og Helga í 9.bekk. Jón kennari fékk þessa hugmynd fyrir um það bil einu og hálfu ári og sá hann algjörlega um að skipuleggja og koma ráðstefnunni á fót. Hann á heiður skilinn fyrir framtakið. Rauði þráðurinn hjá fyrirlesurum var samstarf heimilis og skóla, þannig að erindin höfðuðu jafnt til skólafólks og foreldra. Svona metnaðarfull ráðstefna styður án efa við jákvæða ímynd skólans okkar.

miðvikudagur, 25. febrúar 2004

Ég sakna gömlu góðu öskupokanna. Mér finnst þessi útlenski " grikk eða gott" siður ekkert sérstaklega skemmtilegur. Ég er nú samt viss um að krakkarnir vildu ekki fara aftur til fortíðar.
Kom við í fiskbílnum á leiðinni heim úr vinnunni og keypti mér reykta ýsu. Get varla beðið eftir að það komi kvöldmatur. Reykt ýsa er sælgæti. Það hefur ekki gengið hingað til að reka fiskbúð í þorlákshöfn. Ég ætla að vona að þessi hugmynd með fiskbílinn gangi upp og sé komin til að vera því það eiga ekki allir aðgang að fiski hér þó svo að þorpið sé sjávarþorp. Það er spurningin um að styðja það sem er á staðnum en rjúka ekki í burtu eftir allri þjónustu.
Öskudagur er kærkomin tilbreyting. Krakkarnir koma margir hverjir í skólann í búningum og sumir kennarar einnig. Það er alltaf spennandi að sjá hvaða hugmynd Sigrún Berglind fær þetta árið. Nú mættin daman sem þvottasnúra með blaktandii þvotti á. Halldór var líka góður í nýja Manchester United búningnum sínum. Það er að skapast sú hefð að ganga í halarófu um ganga skólans, undir trommuslætti. Fara elstu nemendur þá af stað og safna saman öllum nemendum með því að banka á stofuhurðirnar og skipa öllum að vera með þannig að rófan endar í um 250 manna halarófu. Þegar veðrið er gott, eins og í dag, er farið út, á sokkaleistunum, og inn um einhvrjar aðrar dyr. Inn og út, út og inn, upp og niður, niður og upp. Og sungið af krafti.

þriðjudagur, 24. febrúar 2004

Þá er það ákveðið. Elsa kemur í heimsókn með krakkana 13. mars. Vísindamaðurinn Kalli á ekki heimangengt. Doktorsritgerðin gengur fyrir öllu. Þetta verður bara stutt gaman skemmtilegt. Þau fara aftur út 25. mars. Það eru nákvæmlega tvö ár síðan þau komu síðast öll saman. Ég hef sem sagt ekki séð Elsu og litla skottið í tvö ár. Enn lengra líður þar til ég sé vísindamanninn. Ég hlakka svo til að fá þau heim að ég er að kafna.

mánudagur, 23. febrúar 2004

Ég held að hann sé að senda ömmu sinni fingurkoss.
Nú er ég í allt öðru umhverfi á blogger en í gömlu tölvunni og ég er í vandræðum. Það birtist ekki allt sem ég skrifa. Hvaða, hvaða!!
Þá er ég loksins tengd við heiminn aftur. Búin að vera utanveltu í nokkra daga. Nýja tölvan mín er frábær. DELL Dimension 2400 Intel Celron 2.5GHz örgjörvi 512MB DDR vinnsluminni 80 GB 7200 snúninga diskur 58x/24x/40X CD-RW skrifari 10/100 netkort Intel Extreme 3D skjákort Sound Blaster samhæft hljóðkort 6 USB 2.0 tengi Altec Lancing hátalarar Logitech MouseMan Optical mús Norton Anti Virus 2003 Microsoft Works 7 Winóws XP Home 3ja ára ábyrgð. Gamla greyið mitt, eða hennar Elsu, var búin að fá nóg eða réttara ég af henni enda orðin háöldruð, 6 ára gömul. Ég nota samt enn skjáinn hennar Elsu, hann er 17" stór en verst er að hann er grár á litinn en nýja dótið svart. Það verður bara að hafa það í bili. Ég kann mér varla læti yfir tækninni. Það er eins og að tölvan lesi hugsanir mínar, svo fljót er hún að vinna.

mánudagur, 16. febrúar 2004

Ég spjallaði við Lúkas Þorlák áðan. Hann sagði: "Ummm, aaaaa og íhíhí. Ég sagði:"Æ, ó Guð, æ, æ, ó. Mjög skemmtilegt samtal.

sunnudagur, 15. febrúar 2004

Það var skemmtileg hugmynd hjá henni Huldu litlu Gunn, systurdóttur minni, að halda upp á 30 ára afmælið sitt með hádegisverði. Hún fékk hús foreldra sinna að láni og bauð fullt af fólki í frábæran mat og huggulegheit. Mér finnst reyndar með ólíkindum að daman skuli vera orðin þrítug. Mér finnst það hafa bara verið í gær að ég var að passa hana, líklega um tveggja og hálfs árs gamla. Við bjuggum þá á Kléberginu og Hulda var að leika sér á stéttinni fyrir framan. Allt í einu er hún horfin og ég fer að leita. Ég leita og leita. Fer um allt hverfið og inn um allt húsið og hleyp til og frá, alltaf meira og meira taugaveikluð. Hulda litla Gunn var hvergi. Ég vissi ekki hvað ég átti til bragðs að taka. Svava Rán var sofandi í rúminu sínu, Kalli einhvers staðar að leika sér og Hulda litla týnd. Ég var alveg að fara yfir um á tauginni. Hljóp í öll nærliggjandi hús og bað um aðstoð. Húsmæður voru komnar út á götu mér til aðstoðar og ég alls ófær um að skipuleggja nokkra leit sökum stress. Ég hringdi í pabba, hann reyndi að róa mig og sagði mér að kanna húsið betur og það passaði, þegar hann kom, var ég búin að finna barnið. Hún hafði farið á bak við hús, komist inn þvottahúsmegin en ekki ráðið við að opna inn í íbúðina og gefist upp og sofnað í þvottahúsinu með höfuðið ofan í þvottabala. Þvílíkur léttir. Ég upplifði svo mikla skelfingu þarna að þessi atburður mun aldrei gleymast. Síðan á ég smá part í Huldu litlu Gunn.
Ég hef ekki komist inn á tölvuna mína í tæpa viku eða síðan ég "dánlódaði" yahoo messenger til þess að geta talað við Lúkas í beinni. Tölvan mín þoldi ekki álagið en svo komst ég allt í einu inn í dag. Ekki veit ég hverju sætir. Ég er alla vega búin að panta mér nýja græju og vona ég bara að hún birtist sem fyrst.

mánudagur, 9. febrúar 2004

Þorrablótið var frábært frá upphafi til enda. Yfir þorpinu svífur "æ, það er heilt ár í næsta blót" andi. Það er svo gaman að svona heimatilbúnum skemmtiatriðum. Ég held að allir séu sammála um það. Það er svo gaman að hitta gamla vini og kunningja og gamla nemendur líka.
Þegar ég var í Kennó á sínum tíma tók ég handavinnu sem valgrein. Ég hafði frábæran kennara, hana Hólmfríði Árnadóttur. Hjá henni saumaði ég buxur á ungbarn sem börnin mín notuðu svo síðar meir. Mikið var nostrað við þessa flík, allir saumar tvöfaldir og saumaskapur allur vandaður mjög. Núna, 35 árum síðar brúkar Lúkas Þorlákur buxurnar og er svona líka sætur í þeim þótt þær séu kannski ekki alveg nýjasta tíska.

laugardagur, 7. febrúar 2004

Þorrablótsdagurinn er runninn upp bjartur og fagur. Það var öðruvísi í morgun, þegar ég leit út um gluggann, þá rétt grillti í Heilsugæsluna fyrir skafrenningi, en það eru svona 150 m í hana frá mér. Nú er hið fegursta veður. Mikill spenningur hefur ríkt í þorpinu undanfarna dag. Allir eru á einhvern hátt a undirbúa sig fyrir þorrablótið. Karlar jafnt sem konur kaupa sér ný föt og konur fara í strípur, klippingu, lit og plokk og áreiðanlega eitthvað meira. Skemmtikraftarnir og nefndin eru þöglir/þögul sem gröfin, enginn fær að vita fyrr en í kvöld hverjir hafa litað bæinn það rauðan á árinu að ástæða þykir að grínast með það á þorrablóti.
Kalli hringdi heldur betur ánægður í gærkvöldi. Pakkinn með þorramatnum var kominn til hans. Nú ættu þeir feðgar að setja upp pöntunarþjónustu því það þykir kraftaverki næst að hafa komið íslenskum þorramat alla leið til Miðvesturríkis í USA með öllum reglum uppfylltum.
Svava Ránin mín situr sjálfsagt í Rhos með hugann á þorrablótinu í Þorlákshöfn. Það er ótrúlegt að heilt ár skuli verið liðið síðan hún og Dave komu á blót, eins og margt hefur breyst í þeirra lífi síðan.

miðvikudagur, 4. febrúar 2004

Hann Kalli minn stendur fyrir þorrablóti í Iowa. Það hefur ekki verið neitt smámál að koma matnum til hans. Það er búið að taka marga daga að fá það á hreint hvernig skuli á málum haldið. Þeir þarna bússmennirnir í Ameríku eru alltaf að herða reglur um innflutning og pakkasendingar en eftir japl, jamm og fuður og margar símhringingar yfir Atlandshafið fengu þeir feðgar upp gefið hvernig skuli bera sig að. Pakkinn er farinn af stað og "þorramatshungraðir" Íslendingar bíða spenntir eftir innihaldinu. Vonandi verða þeir ekki fyrir vonbrigðum með matinn því það kostar ekkert lítið að senda svona pakka.

þriðjudagur, 3. febrúar 2004

Ég er að velta því fyir mér hvernig í ósköpunum ég geti gert verkefni úr háttum sagna, beygingum og kennimyndum svo áhugavert og spennandi að nemendur mínir hlakki til að vinna það. Ég er bara alveg mát. Reyndi að breyta til í dag og greip bók sem sumum nemendum hefur þótt gaman að kíkja í. En þá komu fyrir orð eins og grandvar, gljúpur, kotroskinn og hispurslaus. Ekki beint áhugavekjandi.

mánudagur, 2. febrúar 2004

Það væri nú seint hægt að segja um hann Simma minn að hann sé félagsmálatröll. En það er svo mikið að gera hjá honum þessa dagana í félagsmálum að það sést á honum öðru hverju alvörusvipur. Það er Kiwanis þetta og Kiwanis hitt og svo fundir og æfingar í sambandi við þorrablótið.Hann dæsir á meðan hann stoppar heima, hripar niður athugasemdir og skiptir um stresstösku. Ég veit bara ekki hvernig þetta endar. En það er tilbreyting fyrir mig að sitja ein heima og ráða yfir fjarstýringunni. Enda kom upp úr dúrnum að ég kann ekki almennilega á hana. "En skratti hefur kallinn gott af þessu vafstri." Ég segi nú ekki annað.

laugardagur, 31. janúar 2004

Er í Króniku að láta tímann líða. Það kom einn í hádegismat. Ekki ríðum við feitum hesti frá því en í kvöld erum við með 100 manna þorrablót hjá Kiwanis í Mosó. Það er of skammur tími til þess að kíkja í kjólabúðir en langur tími til að hanga yfir engu. Á eftir að skera alla pungana, bringukollana og það allt á bakka en ég hristi það fram úr annarri erminni rétt bráðum. Simmi sér um sósur, mús og pottrétt.
Simmi var að kalla rétt í þessu að bjóða mér yfir á Áslák til þess að horfa á fótboltaleik á stóru tjaldi..... svei mér....ég held ég fari með honum, það drepur tímann smá stund.

föstudagur, 30. janúar 2004

Simmi minn keypti sér nýtt battery í gemsann sinn í gær. Hann var í hleðslu í alla nótt og til hádegis, þá tók ég hann úr sambandi því hann á að tæma sig aftur til þess að batterýið endist nú eitthvað. Samt hringdi ég í símann, seinnipartinn, til þess að láta hann vita að ég væri í Ráðhúskaffi og skildi ekkert í því að hann svaraði ekki. Hann í Mosó og síminn heima þar sem ég skildi við hann. Er maður í lagi eða er maður ekki í lagi?
Bók vikunnar er eftir Isabel Allende, Á slóð skepnunnar. Bók síðustu viku, Áhrif mín á mannkynssöguna, var að mínum dómi bara rétt skítsæmileg. Það truflaði mig að sumt gerist í Þorlákshöfn og það er eins og að höfundur hafi ekki unnið heimavinnuna sína áður en hann skrifaði. Hann er jú að skálda en hvernig á Þorlákur frá Þorlákshöfn að geta hafa borið út póstinn í 60 ár í 53 ára gömlu þorpi?