Síður

sunnudagur, 15. febrúar 2004

Það var skemmtileg hugmynd hjá henni Huldu litlu Gunn, systurdóttur minni, að halda upp á 30 ára afmælið sitt með hádegisverði. Hún fékk hús foreldra sinna að láni og bauð fullt af fólki í frábæran mat og huggulegheit. Mér finnst reyndar með ólíkindum að daman skuli vera orðin þrítug. Mér finnst það hafa bara verið í gær að ég var að passa hana, líklega um tveggja og hálfs árs gamla. Við bjuggum þá á Kléberginu og Hulda var að leika sér á stéttinni fyrir framan. Allt í einu er hún horfin og ég fer að leita. Ég leita og leita. Fer um allt hverfið og inn um allt húsið og hleyp til og frá, alltaf meira og meira taugaveikluð. Hulda litla Gunn var hvergi. Ég vissi ekki hvað ég átti til bragðs að taka. Svava Rán var sofandi í rúminu sínu, Kalli einhvers staðar að leika sér og Hulda litla týnd. Ég var alveg að fara yfir um á tauginni. Hljóp í öll nærliggjandi hús og bað um aðstoð. Húsmæður voru komnar út á götu mér til aðstoðar og ég alls ófær um að skipuleggja nokkra leit sökum stress. Ég hringdi í pabba, hann reyndi að róa mig og sagði mér að kanna húsið betur og það passaði, þegar hann kom, var ég búin að finna barnið. Hún hafði farið á bak við hús, komist inn þvottahúsmegin en ekki ráðið við að opna inn í íbúðina og gefist upp og sofnað í þvottahúsinu með höfuðið ofan í þvottabala. Þvílíkur léttir. Ég upplifði svo mikla skelfingu þarna að þessi atburður mun aldrei gleymast. Síðan á ég smá part í Huldu litlu Gunn.

Engin ummæli: