Síður

laugardagur, 22. maí 2004

Ég vildi að ég gæti kysst hana Grétu systir til haminju með 50 ára afmælið en hún er á Spáni. Það væri ekki amalegt að vera þar með henni. En þetta er sá tími í skólanum þar sem erfitt er að fara frá. Ég gat kysst hana mömmu til hamingju með 75 ára afmælið sem var í gær. Hún fór til Spánar en kom heim daginn fyrir afmælið.

fimmtudagur, 20. maí 2004

Það var þéttsetinn bekkurinn í Strandarkirkju
eins og alltaf þegar messað er þar.
Þéttsetinn bekkurinn af fólki.
Þéttsetinn af trúuðu fólki.
Presturinn í Hveragerði þjónaði fyrir altari.
Séra Baldur predikaði.
Hann talaði um stríðshrjáðan heim eins og áður í sinni predikun.
Hann vonaði líka að guðs vilji verði á jörðu og himni.
Þegar maður sér í fréttum slösuð eða dáin börn vegna stríðsátaka spyr maður sjálfan sig hver sé vilji hans.
Maður finnur fyrir öllum þessum frídögum þegar maður er að reka veitingahús sem byggir á iðnaðar-og verkamönnum sem vinna virka daga og þurfa almennilegan íslenskan mat í hádeginu. Ég legg til að við hættum þessari hræsni og fækkum frídögum sem hafa orðið til vegna trúarinnar. Í Ameríku er það eingöngu ofsatrúarfólk sem tekur frí þessa daga og á Bretlandi fer fólk til vinnu þegar við erum með annan í þessu og annan í hinu. Við nennum ekki að vinna og notum hvert tækifæri til þess að hanga heima.

þriðjudagur, 18. maí 2004

Mikið er það nú svekkjandi þegar maður fer að heiman að morgni í támjóum skvísuskóm og stuttum leðurjakka og lendir svo í rigningu á leiðinni heim í hádeginu. Það er líka svekkjandi þegar maður missir ofan á sig tómatsneið, í þessu sama hádegi, og hún lendir ofan í brjóstvasa á nýþveginni og straujaðri skyrtu. En maður bítur bara á jaxlinn og bölvar í hljóði. Einhver kenndi mér það fyrir margt löngu.

mánudagur, 17. maí 2004

Mikil undur og stórmerki eru tölvur og það sem þeim tilheyrir. Við, Simmi minn, fylgdumst með Lúkasi Þorláki borða kvöldmatinn sinn í gær. Við horfðum á hann og heyrðum líka í honum. Ótrúlegt. Hann situr bara eins og fínn maður og lætur mömmu sína mata sig. Kominn með tvær tennur og borðar orðið allt. Við, amman og afinn, störðum á tölvuskjáinn með bros út að eyrum og vorum örugglega frekar fávitaleg, skríktum og hlógum en áttum varla orð til að lýsa því hvað barnið er myndarlegt og fallegt. Þegar hann eldist verður þetta orðinn eðlilegst hlutur í heimi, að tala saman í gegnum tölvuna.

sunnudagur, 16. maí 2004

Það er skemmtilegt fólk í Söngfélagi Þorlákshafnar.
Óvissuferðin var skemmtileg.
Skemmtileg óvissa.
Allur sólahringurinn var mjög skemmtilegur.
Ég gleymdi alveg að vera hrædd við óvissuna um leið og rútan lagði af stað.
Af því þetta var júróvisíondagur ríkti júróvisíonstemmning í hópnum. Gömul júróvisóionlög voru æfð og flutt. Veðbanki var í gangi um gengi okkar manns. Ég spáði honum áttunda sætinu af því átta er talan mín. Simmi spáði 19 sætinu af því 19 er talan hans. Hann vann sem sagt pottinn. Skipti honum reyndar með öðrum en varð nokkrum þúsundköllum ríkari. Komum heim úr ferðinni ríkari en við vorum við upphaf hennar. Þvílík lukka sem ríkir yfir okkum hjónunum þessa vikuna. Ég rauk í að athuga Lottótölurnar en ég var bara með tvær réttr. Það dugir víst ekki.

laugardagur, 15. maí 2004

Nú bíður óvissa.
Mikil óvissa.
Söngfélagsóvissa.
Mér líður betur þegar farið er í vissuferðir.
En læt mig hafa það.
Ég má ekki missa af neinu.
Er í útifötum.
Bíngódress í tösku og hvítvín.
Simmi minn tilbúinn og ætlar með í þetta skipti.
Bjór í bakpoka og tannbursti.
Kem eftir 24 klukkutíma.


föstudagur, 14. maí 2004

Vann í Króniku eftir vinnu í dag.
Nú eru komnir koflóttir dúkar á borðin.
Og kertastjakar.
Hjálpaði Maríu að skreyta með gerviblómum.
Ég skreytti með gerviblómum.
Við hengdum gerviburkna upp um allt.
Gervibukna. Ég.
Annaðhvort læt ég ráða yfir mér eða ég þekki mig ekki.
Það er svo fínt í Króniku núna.
Loksins alvöruveitingahús.
Café Krónika.
Það var opið til klukkan níu í kvöld
enda nokkrir kallar að borða
og fá sér bjór og hafa það huggulegt.
Mjög huggulegt.

fimmtudagur, 13. maí 2004

Nú eru kræsingarnar orðnar svo ómótstæðilegar í Króniku að það er engin leið að standast þær.

miðvikudagur, 12. maí 2004

Talan átta kom upp. Ég er 10 flöskum ríkari. Ég sem sagði við hann Simma minn í gær að ég vonaði að ég ynni ekki svona í fyrsta sinn af því ég dreif í stofna klúbbinn með látum. Ég er greinilega bara mjög heppin manneskja.

þriðjudagur, 11. maí 2004

Ég stofnaði léttvínsklúbb í dag. Stal hugmyndinni frá samstarfsfélögum, sem stálu henni annars staðar frá. Við erum 10 í klúbbnum og ég skipaði sjálfa mig sem formann og skráningarstjóra. Klúbbfélagar völdu sér tölu frá 0-9. Ég valdi mér auðvitað átta. Allir komu svo með eina flösku til mín í dag og nú er að bíða eftir því að það verði dregið í Happdrætti Háskólans, því sá sem hefur öftustu töluna í stærsta vinningi Háskólans hefur unnið allar flöskurnar.

mánudagur, 10. maí 2004

Í dag eru 40 ár síðan ég fermdist. Ég fermdist í Selfosskirkju ásamt 40 öðrum krökkum. Séra Sigurður Pálsson fermdi. Það var sól og blíða þennan dag. Ég var í bláum kjöl sem hún Rannsí saumaði á mig og með hvíta nelliku í hárinu. Lykt af nelliku minnir mig æ síðan á ferminguna. Á laugardaginn var hittumst við fermingarsystkinin í tilefni afmælisins. Við hittumst 19 krakkar á Selfossi klukkan fimm í bakarínu hans Guðna, fórum í skoðunarferð um Selfoss undir leiðsögn Gúnda og Valla, keyrðum í Ölfusið þar sem Hannes tók við fararstjórn og borðuðum svo öll saman á Hafinu Bláa.
Það var gaman.
Það var rosalega gaman.
Frá fyrstu mínútu var gaman.
Það var gaman allan tímann.
Mikið rosalega var annars gaman.
Mikið á ég skemmtileg fermingarsystkin.

föstudagur, 7. maí 2004

Í Bónus með Grétu systir.

Bónus, Bónus herm þú mér
er ódýrast að verlsa hjá þér?
Jóhannes brosti í kampnn og hló
en Jón Ásgeir bjó
um sig
í hjörtum landsmanna.
Nítján ferðir bringusund, léttar teygjur við bakkann djúpulaugarmegin, baksund yfir.
Líður eins og fuglinum fljúgandi. Frjáls. Svíf á vatninu.
Líkamsrækt dagsins aflokið. Góð tilfinning. Mjög góð.
Lauginni verður lokað um óákveðin tíma.
Á von á að fitna eins og þessi sem sat á fjósbitanum.

Er að velta fyrir mér hlaupaskónum þeim reyðfirsku.
Spegill,spegill....

Allir sáu hvað hún var illa til höfð
fötin fóru illa
buxurnar ópressaðar
hárið klesst
skórnir óburstaðir
Spegillinn sagði:
"Ekki gleyma varalitnum heima."

fimmtudagur, 6. maí 2004

Litli prinsinn minn af Wales er 6 mánaða gamall í dag. Fyrir 12 dögum síðan vorum við saman, heima hjá honum, í 20 stiga hita og klæddum okkur í sumardressið okkar, sem er alveg eins. Hvítur bolur og kvartbuxur úr hör.
Óskalisti

Ég vildi óska að það væru leikföng út úm allt.
Ég vildi óska að það væru fleiri raddir í kringum mig.
Ég vildi óska að ég þyrfti að reima skó.
Ég vildi óska að ég þyrfti að setja meira í pottana.
Ég vildi óska að ég væri að kaupa bleiupakka.
Ég vildi óska að ég segði stundum:"Ertu búinn að læra?"
Ég vildi að sumir vegir væru styttri.

þriðjudagur, 4. maí 2004

Hér fór fram mikil viðhöfn á dögunum. Maðurinn, sem ég sef hjá, fékk í jólagjöf fyrir einum 17 árum síðan forláta mikil kúrekastígvél. Hann hefur gengið í þeim síðan. Skiptir ekki máli hvernig búningurinn er sem maðurinn klæðist, alltaf hefur hann notað kúrekastígvélin. Vð spariföt, léttan klæðnað, gallabuxur, smóking og stuttbuxur. Veðrið hefur heldur ekki skipt máli. Stígvélin hafa verið notuð í sól og blíðu, kulda og trekki, rigningu og krapa, frosti og fannbyl. Nokkrum sinnum hafa þau fengið yfirhalningu hjá skósmið.
Um daginn benti ég manninum á að hann væri ekki lengur snyrtilegur í þessum stígvélum og benti honum ofurvarlega á gat hér og gat þar á stígvélunum. Orðið snyrtilegur fór eitthvað fyrir brjóstið á honum svo að hann kyssti stígvélin, viðhafði hugljúf kveðjuorð og lagði þau, í orðsins fyllstu, á hilluna. Núna skreyta stígvélin forstofuna í hosiló. Það hefur hvarflað að mér að láta gylla þau, eins og sumir gerðu við barnaskó hér á árum áður en ég held ég hafi þau eins og þau eru. Skökk, skæld og götótt.

föstudagur, 30. apríl 2004

Ég sá grasið grænka í gær. Mig langar út núna til þess að heyra það vaxa en ég er búin að láta bókhaldið sitja svo lengi á hakanum að það gengur ekki lengur.


þriðjudagur, 27. apríl 2004

Á rölti okkar um Chester varð á vegi mínum einn af þessum sem láta mig fá í hnén. Það er alveg sama hvernig maðurinn lítur út, bara ef hann er í pilsi. Hann þarf ekkert endilega að spila á sekkjapípu en það er ekki verra.
Ekki fer nú alltaf allt eins og ráðgert er. Laugardagurinn var æðislegur framan af. Við fórum til Englands, til Chester, í steikjandi hita og blíðu. Við lögðum bílnum fyrir utan borgina og tókum strætó inn í miðborg. Það er svo erfitt að finna bílstæði þar. Borgin er mjög falleg og allt svo hreint og snyrtilegt. Þar eru borgarmúrar frá dögum Rómverja. Við gengum eftir múrnum en könnuðum ekki hvort hann sé allur heill enn þá. Ég geri það bara næst. Iðandi mannlíf var í miðborginni og mjög gaman að ganga þar um. Aðeins var kíkt á veitingastaði og búðir. Þegar heim kom um kvöldið bjuggu Svava Rán og Dave sig upp og fóru á stredderí í fyrsta skipti saman síðan á þorrablóti í Þorlákshöfn 2003. Við, gamla settið, fengum að passa Lúkas. Það er ekki erfitt, við sitjum og horfum á barnið og dáumst að því. En þá gerðist það. Hann fékk allt í einu einkennileg útbrot og varð svo allur rauður. Okkur leist nú ekkert á þetta og vorum komin á fremsta hlunn með að hringja í foreldrana en liturinn hvarf af barninu og hann sofnaði vært svo við gerðum það ekki. Í hádeginu á sunnudeginum þegar við vorum að fara að búa okkur til að fara upp í sveit (í Wales) og skoða gamla kastala og minjar fékk Lúkas aftur svona einkenni en miklu sterkari og nú bólgnuðu augun líka og hann leið út af. Það var erfið stund að upplifa. Við fórum öll í hendingskasti með barnið á bráðamóttöku á spítala þar sem hann fékk meðhöndlun gegn bráðaofnæmi. Líklegast er ofnæmið vegna pensilíns sem hann hefur verið að taka vegna sýkingar í annarri kinninni. Hann var lagður inn en fékk samt að fara heim um kvöldið af því hann var orðin góður. Mánudagurinn fór svo einnig í spítala- og læknastúss með drenginn. Við Simmi könnuðum þá miðbæ Wrexham ofan í kjölinn. Við fórum í kirkju sem heitir The Parish Church of St. Giles. Elstu heimildir um hana eru frá elleftu öld. Þar inni kveiktum við á kertum og báðumst fyrir. Hver ástvinur fékk sitt kerti og sína bæn. Litla familían skutlaði okkur til Manchester um kvöldið og Lúkas lék á alls oddi sem betur fer.

laugardagur, 24. apríl 2004

Ég er nú ekki alltaf ánægð með fótboltaáhugann á heimilinu en þegar fótboltaáhugamenn taka sig til og panta leiguflugvél og fljúga beint til Manchester til þess að fara á leik verð ég uppnumin af hrifningu. Ég fékk sem sagt far í gær með mönnum á leið á Old Trafford að sjá Manchester United spila við Liverpool. Þetta flug tekur bara tvo og korter. Svava Rán, Dave og Lúkas tóku á móti okkur og bíltúrinn heim í Rhosllenercrugog tekur 40 mínútur. Veðrið alveg hreint frábært, sólin skín á okkur og allur gróður orðin grænn og blóm sprungin út. Þjóðarblómið þeirra Walesverja er pásklilja og vex hún hér út um allt. Við fórum í bæinn að skoða okkur um. Þá förum við sem sagt til Wrexham. Rhos er eins og Kópavogur en Wrexham Reykjavík. Simmi eldaði æðislegan humarrétt handa okkur þegar við komum heim. Dave hafði aldrei borðað humar áður. Áttum svo notalega kvöldstund. Vöknuðum snemma í morgun. Notum hverja stund sem gefst til að leika við Lúkas. Erum búin að taka morgungöngu um hverrfið þeirra. Hér er allt svo krúttlegt og sætt. Allir svo vingjarnlegir. Fólk heilsar og spjallar aðeins um allt og ekkert. Við erum á leið til Chester að skoða gamlar minjar frá Rómverjum.

miðvikudagur, 21. apríl 2004

Í ár eru 40 ár síðan ég fermdist. Ég lenti, ásamt Guðna og Dómhildi í nefnd, sem á að sjá til þess að hópurinn hittist. Við höfum verið í tölvu -og símasambandi og ákveðið hvað við ætlum að gera í tilefni afmælisins. Fyrst þurfti nú að finna alla krakkana. Ég er svo gleymin að þýddi ekkert fyrir mig að setjast niður og skrifa nafnalista. Ég hringdi í Gunnu Bjarts og bað hana að fara í skólann eða kirkjuna og fá nöfnin upp gefin. Hún þurfti þess ekki. Hún fór til Stínu og saman settu þær á blað 36 nöfn og ég er búin að liggja í símaskrá og þjóðskrá að finna út heimilisföng. Allir eru fundnir og ég sendi út bréf í dag og nú er að biða og sjá hversu margir láta heyra í sér.

mánudagur, 19. apríl 2004

Fékk þetta bréf á ímeili.

Örfá sæti laus til Manchester 23-26 apríl

Flugtímar
23. april FI 842 KEFLAVIK - MANCHESTER 09:00 12:35
26. apríl FI 843 MANCHESTER - KEFLAVIK 23:05 00:35 + 1

Fékk þetta rétt seinna.

það er laust, sendu mér nöfn og kennitölur ferðalanga og svo hvort þú vilt greiða þetta með korti eða í gegnum banka og ég klára málið

Þetta kom í dag.

Geng frá þessari bókun og sendi þér farseðlana í pósti

Eins gott að þeir komi. Er farin að pakka í huganum.






laugardagur, 17. apríl 2004

Vor eða ekki vor

leit út um gluggann minn snemma
allt hvítt
sofnaði vært aftur
-dreymdi að önnur augabrúnin væri miklu ljósari en hin-
við næsta útkikk
var enginn snjór
sólin skein
og vorfiðringur laust hjartað
og fiðrildi magann
þá sá ég fánana á 11-11
og hvítfyssandi öldutoppana
á sjónum
glugginn minn laug

föstudagur, 16. apríl 2004

Tónleikarnir hennar Guðrúnar Gunnars, Óður til Ellýar, voru hreint frábærir. Það toppar náttúrlega engin söngkona Ellýu Vilhjálms, en þetta var skemmtilaga til fundið hjá Guðrúnu að heiðra minningu Ellýar með tónleikum og syngja lögin hennar. Guðrún er líka svo skemmtileg manneskja þannig að bragur kvöldsins var léttur og hlýr. Við hjónakornin keyptum diskinn hennar Guðrúnar og spiluðum hann þegar við komum heim, aukatónleikar.
Ég fór sem sagt tvisvar í Ráðhúskaffi í gær (kvennasúpan í hádeginu) og aftur seinnipartinn í dag. Ester, Rán og ég komum þar við svona í lok vinnuvikunnar og áður en skúringarnar heima hófust.

þriðjudagur, 13. apríl 2004

Ég verð að fara að halda því leyndu fyrir börnunum mínum hversu skemmtanalífið hjá okkur gamla settinu er mikið og fjölbreytt. Þau (þykjast) hneykslast pínu en öfunda okkur og eru farin að hlakka til elliáranna ef ég skil þau rétt. Nú hef ég um tvennt að velja næsta laugardag, að fara með Kiwanis í leikhúsið eða hitta nokkra árganga sem voru hér í skóla, fólk um og yfir fimmtugt, í Versölum og tjútta þar svolítið. Ég er búin að skrá okkur gamla minn í leikhúsið með kennaraliðinu 4. júní að sjá Chicago og sá hópur er vanur að skemmta sér á síðasta vetradag sem er í næstu viku. Eins gott að maður er í góðu formi.

mánudagur, 12. apríl 2004

Þá er að kveldi kominn síðasti dagur páskafrísins og jafnframt eini dagurinn í fríinu þar sem ég hef ekki haft einhverjum skyldum að gegna. Ég var ýmist í Króniku, messusöng eða fermingarveislum. Dagurinn í dag hefur verið eins og ég vil hafa frídaga. Legið lengi frameftir, lesið og glápt á imbakassann. Hún er við hæfi bókin sem ég er að lesa en það er María Magdalena eftir Marianne Fredriksson. Ég er bara svo gjörn á að trúa öllu sem ég les á prenti að ég verð að passa mig við lestur bókarinnar og segja öðru hverju við sjálfa mig að þetta sé skáldsaga. Hún hefur varla getað kafað svo djúpt í sagnfræðina hún Marianne að allt sem hún segir sé nákvæmlega eins og það gerðist. Ég sé hlutina samt í nýju og örðuvísi ljósi nú en áður og það hlýtur að vera allt í lagi.

sunnudagur, 11. apríl 2004

Tvær páskamessur að baki og páskakaffi hjá mömmu. Ekkert páskaegg í ár. Höfum ekki gott af páskaaeggjaáti. Ætlaði raunar að kaupa eitt handa Simma mínum en eggin frá Nóa-Síríusi voru búin í Bónus og bara til e-r púka egg í kuffulaginu. Ég vildi ekki gefa honum púkaegg.
Það var svolítið erfitt að byrja klukkan tíu í morgun að syngja Sigurhátíð sæl og blið í kirkjunni vegna reisu sem ég fór alveg óvænt í í gærkvöldi. Við fórum með pizzuna okkar til Grétu og Gunna í gær og svo gerðu einnig Alda og Valdi. Þetta er hluti Bó-hópsins. Þegar komið var að því að syngja Undir bláum mána var leigubíll kominn í hlaðið og við send út í hann og lentum í HM café á Selfossi. Þar var Meistari Rúnar Júl að spila. Hörkufjör og stuð. Ekki spillti fyrir að kærir selfysskir vinir voru þarna einnig. Vinir sem við höfðum planað að hitta þetta kvöld (þeir vissu það bara ekki) en það plan fór út um þúfur þegar ég mundi eftir páskamessunum. Það fór samt þannig að við hittumst, óvænt. Skynsemin var sem betur fer með mér í för og fór ég tiltölulega snemma heim og vona ég að ég hafi skilað Sigurhátíð sæl og blíð nokkuð skammlaust.

föstudagur, 9. apríl 2004

Ég var svo stolt af honum Simma mínum í gær. Maturinn í fermingarveislunni var svo góður hjá honum. Svínkjöt, kjúklingur og heitt lambakjöt ásamt salötum og sósu. Allt bragðaðist þetta frábærlega vel. Ekki skemmdi svo fyrir hversu fötin voru flott skreytt en það gerði nýi starfskrafturinn hans, listakonan María Svandís.

miðvikudagur, 7. apríl 2004

Ég hefði ekki trúað því að óreyndu hversu hlý orð, kort, faðmlög, handtök, kossar, skeyti, blóm og minningargjafir gerðu okkur gott. Það gerir okkur einhvern veginn sterkari að finna hlýhuginn þarna úti.

þriðjudagur, 6. apríl 2004

Ég segi það enn og aftur: "Ég er ekki hönnuð með það fyrir augum að vinna á veitingastað." Í dag var ég látin þrífa ofninn, eldavélina og hamborgarpönnuna á Króniku og nú er ég skinnlaus á höndunum. Ég á bara að dúllast við skriftir og lestur. Allavega lestur.

mánudagur, 5. apríl 2004

Karl Kolbeinn, sem er í 5. bekk í Elementary school í Iowa city, fékk þau fyrirmæli hjá kennaranum sínum um daginn að skrifa um minningu sem hann ætti í svona klassískum stíl eins og hann orðaði það við mig. Af því ég veit að þessi minning, sem hann skrifar um er skáldskapur sé ég ekki annað en að drengurinn sé efni í skáld, jafnvel ljóðskáld. Hann hrífur lesandann með sér í fallegum ljóðrænum, rómantískum texta en skellir honum síðan niður allharkalega í raunveruleikann. Sagan hans flokkast því sem raunsæisrómantík, ef það er til.
My Grandpa's House
By Kolbeinn

I walk along side the ocean listening to the waves of the ocean crashing against the rocks. The light breeze touches my face. I turn around to look at my grandma slowly walking towards me with two cups of hot cocoa. Looking past her, I see the mountain high above the sea- like a overlord for nature. I see the birds returning from the sea with small fishes in their mouths landing on a ledge feeding the fish to the young ones. Looking back at the house, I see my grandpa jogging towards my grandma with three blankets and his cup of cocoa. They both sit down at the same time. Then I join them and we turn on our DVD player and watch Anger Management.

sunnudagur, 4. apríl 2004

Í kollinum á mér ruglast saman gleði og hamingja, sorg og söknuður. Ég á eftir að ná áttum.

mánudagur, 29. mars 2004

Skrýtið að það skuli allt vera hvítt úti. Skrýtið að hafa Kalla allt í einu heima eftir að hafa ekki séð hann í tvö ár. Skrýtið að hafa Svövu Rán heima með lítið barn sem hún á sjálf. Skrýtið að hugsa til þess að fá aldrei oftar hringingu sem endar á orðunum: "Ég var bara að forvitnast." Skrýtið þetta líf.

sunnudagur, 21. mars 2004

Mér er ekki viðbjargandi. Var búin að fá Simma til að koma með mér á Selfoss á málmblásturstónleika en svo nenni ég ekki sjálf þegar til kemur. Vil heldur húka í leisíboj með sakamálasögu og lesa. Og ég held svei mér þá að mér þyki orðið þægilegt að heyra fótbaltagargið úr sjónvarpinu. Það er orðið eins og undirspil hjá mér fyrir letilíf á sunnudegi.

laugardagur, 20. mars 2004

Barnið er gullfallegt en húfan, keypt í ellefu - ellefu í Þo. er ekki eins falleg. Amma mun vanda valið betur næst. Lúkas er of mikill höfðingi til þess að bera svona barnalega húfu.
Hvað skyldi strákurinn minn vera að segja?
Það væri nú ekki vitlaust að vera góður í útlensku.
Ef maður skrollar niður síðuna þá finnur maður Karl Karlsson sem hefur ótrúlegarn áhuga á vissum hluta heilans. Einhvern tíma lærði ég eitthvað um hippocampus, ég man bara ekki alveg hvað það var.

fimmtudagur, 18. mars 2004

Það er alveg nauðsynlegt að fara í kvennasúpuna í Ráðhúskaffi í hádeginu á fimmtudögum. (Vá, fjórir forsetningaliðir í röð, ætli þetta sé leyfilegt?) Þarna koma saman konur sem hittast alla jafna ekki og spjalla yfir súpu, salati og brauði. Þarna fær maður fréttir úr þorpinu og fréttir af fólki. Ég frétti t.d. í dag að Gugga var að eignast ömmustelpu. Ég lærði líka hvernig ég á að fara að því að hætta að týna sundgleraugunum mínum. Jóna Stína mætti, þrátt fyrir að hafa verið í stóraðgerð fyrir nokkrum dögum. Svo er maturinn góður og Ráðhúskaffi er fínn staður.

miðvikudagur, 17. mars 2004

Fyrir algjöra tilviljun heyrði ég í morgun að Þórhildur Helga, skólastjóri á Fáskrúðsfirði og fyrrum kennari í Þorlákshöfn, yrði gestur í Laufskálanum klukkan níu. Ég var svo heppin að vera að kenna á "hárréttum" stað klukkan níu og gat hlustað á þáttinn. Kláraði hann reyndar í frímínútum á kennarastofunni. Það var gaman að heyra í stelpunni, hún hefur skoðanir á hlutunum og kemur því til skila sem hún hefur að segja. Mér fannst athyglisvert það sem hún sagði um munin á bóknámsgreinum og verkgreinum. Ég er allt of mikil bóknámsmanneskja til þess að hafa haft hugmyndaflug í að hugsa eins og vinkona mín Þórhildur Helga.
Í kvöld var ég dómari. Það er nú ekki amalegt hlutverk. Var, ásamt Ástu Júlíu og leikurunum Jóni Hjartarsyni og Soffíu Karlsdóttur að dæma í Stóru upplestrarkeppninni. Við höldum keppnina bara ein og sér hérna í Höfninni, í fyrsta skipti, og var þetta mjög hátíðleg og skemmtileg stund. Krakkarnir sem lásu voru allir frábærir en við urðum að velja þrjá og það er alltaf erfitt. En við komusmst að samkomulagi um þá þrjá bestu, Berglindi Söru, Júlí Heiðar og Ástu Björk. Fengu þau verðlaun frá Sparisjóðnum og allir fengu bók frá Eddu-miðlun.

þriðjudagur, 16. mars 2004

Nú hefur hljóðnað aftur í hosiló. Elsa og ömmuljósin mín flugu til Minneapolis í gær. Gistu hjá vinkonu sinni þar og Elsa keyrði alla leið til Iowa í dag. Engin smá dugnaður þar. Kalli kom heim frá Chicago á sömu sekúndu og þau renndu í hlað. Skemmtileg tilviljun. Hann var þar um helgina að skoða aðstæður í háskóla þar og að flytja fyrirlestur fyrir starfsmenn og prófessora á rannsóknarstofu. Honum var boðin staða þarna en piltur ætlar að skoða fleiri skóla áður en hann ákveður sig.
Ég er næstum því viss um að ég hafi einhvern tíma spjallað um það við hann að það borgaði sig að vera duglegur í skólanum svo hann fengi góða vinnu seinna á ævinni. En mig óraði aldrei fyrir því að hann yrði enn í skóla, kominn á fertugsaldur, og ekki hættur enn.

þriðjudagur, 9. mars 2004

Ég er búin að vera í barbíleik, teikna dýr, blóm og krakka, rifja upp allar gömlu sögurnar eins og Búkollu, Láka jarðálf og söguna af Kúlusi síðan á laugardag og barnaleikföng eru hér úti um allt. Lífið er yndislegt. Kolbeinn hefur stækkað frá því í fyrrasumar og hárið hefur vaxið all mjög. Hann er "bara" töffari. Elsa er eins og hún var fyrir tveimur árum en Nanna litla hefur vitanlega breyst enda að verða fjögurra ára gömul. Við, gamla settið, kviðum því agnarögn (lygi, það var stór ögn) að hún myndi ekki þýðast okkur, yrði feimin, jafnvel hrædd en það var nú oðru nær. Það var eins og hún hefði verið hjá okkur alla daga. Hjúfraði sig að okkur og knúsaði strax. Það var YNDISLEG tilfinning. Hún er frábært barn, skýr og skemmtileg, þæg og góð og eldklár. Auk þess gullfalleg og algjör dúlla. Við fórum þrjú saman í sund í gær, (við gamli erum að verða vatnssósa, tvisvar á dag í lauginni) og það var æðislega gaman. Fórum nokkrar ferðir í rennibrautinni og sulluðum í heita pottinum. Það er sama hvert Nanna fer alls staðar hittir hún frænkur eða frænda.
Foreldrar hennar hafa greinilega verið duglegir að sýna henni myndir af ömmu og afa því hún sagði á leiðinni frá Leifsstöð: "Var afi Simmi ekki með brúnt hár?"

laugardagur, 28. febrúar 2004

Ferðatillhögun Elsu tengdó og barnabarnanna minna í Ameríku breyttist. Þau koma næsta laugardag. Ótrúlegt, bara vika.
Mér voru veitt verðlaun í gærkvöldi í söngfélagspartýi fyrir bestu mætingu í sópran á árinu. Þetta kom mér mjög svo á óvart en gladdi mig um leið.
Ég var mjög stolt af því í gær að vera Þorlákshfnarbúi. Hér var haldin Menntaráðstefna með frábærum fyrirlesurum frá Háskólanum á Akureyri, Oddeyrarskóla á Akureyri og Kennaraháskóla Íslands. Stefán skólanefndarformaður var með erindi svo og Billi í 10. bekk og Helga í 9.bekk. Jón kennari fékk þessa hugmynd fyrir um það bil einu og hálfu ári og sá hann algjörlega um að skipuleggja og koma ráðstefnunni á fót. Hann á heiður skilinn fyrir framtakið. Rauði þráðurinn hjá fyrirlesurum var samstarf heimilis og skóla, þannig að erindin höfðuðu jafnt til skólafólks og foreldra. Svona metnaðarfull ráðstefna styður án efa við jákvæða ímynd skólans okkar.

miðvikudagur, 25. febrúar 2004

Ég sakna gömlu góðu öskupokanna. Mér finnst þessi útlenski " grikk eða gott" siður ekkert sérstaklega skemmtilegur. Ég er nú samt viss um að krakkarnir vildu ekki fara aftur til fortíðar.
Kom við í fiskbílnum á leiðinni heim úr vinnunni og keypti mér reykta ýsu. Get varla beðið eftir að það komi kvöldmatur. Reykt ýsa er sælgæti. Það hefur ekki gengið hingað til að reka fiskbúð í þorlákshöfn. Ég ætla að vona að þessi hugmynd með fiskbílinn gangi upp og sé komin til að vera því það eiga ekki allir aðgang að fiski hér þó svo að þorpið sé sjávarþorp. Það er spurningin um að styðja það sem er á staðnum en rjúka ekki í burtu eftir allri þjónustu.
Öskudagur er kærkomin tilbreyting. Krakkarnir koma margir hverjir í skólann í búningum og sumir kennarar einnig. Það er alltaf spennandi að sjá hvaða hugmynd Sigrún Berglind fær þetta árið. Nú mættin daman sem þvottasnúra með blaktandii þvotti á. Halldór var líka góður í nýja Manchester United búningnum sínum. Það er að skapast sú hefð að ganga í halarófu um ganga skólans, undir trommuslætti. Fara elstu nemendur þá af stað og safna saman öllum nemendum með því að banka á stofuhurðirnar og skipa öllum að vera með þannig að rófan endar í um 250 manna halarófu. Þegar veðrið er gott, eins og í dag, er farið út, á sokkaleistunum, og inn um einhvrjar aðrar dyr. Inn og út, út og inn, upp og niður, niður og upp. Og sungið af krafti.

þriðjudagur, 24. febrúar 2004

Þá er það ákveðið. Elsa kemur í heimsókn með krakkana 13. mars. Vísindamaðurinn Kalli á ekki heimangengt. Doktorsritgerðin gengur fyrir öllu. Þetta verður bara stutt gaman skemmtilegt. Þau fara aftur út 25. mars. Það eru nákvæmlega tvö ár síðan þau komu síðast öll saman. Ég hef sem sagt ekki séð Elsu og litla skottið í tvö ár. Enn lengra líður þar til ég sé vísindamanninn. Ég hlakka svo til að fá þau heim að ég er að kafna.

mánudagur, 23. febrúar 2004

Ég held að hann sé að senda ömmu sinni fingurkoss.
Nú er ég í allt öðru umhverfi á blogger en í gömlu tölvunni og ég er í vandræðum. Það birtist ekki allt sem ég skrifa. Hvaða, hvaða!!
Þá er ég loksins tengd við heiminn aftur. Búin að vera utanveltu í nokkra daga. Nýja tölvan mín er frábær. DELL Dimension 2400 Intel Celron 2.5GHz örgjörvi 512MB DDR vinnsluminni 80 GB 7200 snúninga diskur 58x/24x/40X CD-RW skrifari 10/100 netkort Intel Extreme 3D skjákort Sound Blaster samhæft hljóðkort 6 USB 2.0 tengi Altec Lancing hátalarar Logitech MouseMan Optical mús Norton Anti Virus 2003 Microsoft Works 7 Winóws XP Home 3ja ára ábyrgð. Gamla greyið mitt, eða hennar Elsu, var búin að fá nóg eða réttara ég af henni enda orðin háöldruð, 6 ára gömul. Ég nota samt enn skjáinn hennar Elsu, hann er 17" stór en verst er að hann er grár á litinn en nýja dótið svart. Það verður bara að hafa það í bili. Ég kann mér varla læti yfir tækninni. Það er eins og að tölvan lesi hugsanir mínar, svo fljót er hún að vinna.

mánudagur, 16. febrúar 2004

Ég spjallaði við Lúkas Þorlák áðan. Hann sagði: "Ummm, aaaaa og íhíhí. Ég sagði:"Æ, ó Guð, æ, æ, ó. Mjög skemmtilegt samtal.

sunnudagur, 15. febrúar 2004

Það var skemmtileg hugmynd hjá henni Huldu litlu Gunn, systurdóttur minni, að halda upp á 30 ára afmælið sitt með hádegisverði. Hún fékk hús foreldra sinna að láni og bauð fullt af fólki í frábæran mat og huggulegheit. Mér finnst reyndar með ólíkindum að daman skuli vera orðin þrítug. Mér finnst það hafa bara verið í gær að ég var að passa hana, líklega um tveggja og hálfs árs gamla. Við bjuggum þá á Kléberginu og Hulda var að leika sér á stéttinni fyrir framan. Allt í einu er hún horfin og ég fer að leita. Ég leita og leita. Fer um allt hverfið og inn um allt húsið og hleyp til og frá, alltaf meira og meira taugaveikluð. Hulda litla Gunn var hvergi. Ég vissi ekki hvað ég átti til bragðs að taka. Svava Rán var sofandi í rúminu sínu, Kalli einhvers staðar að leika sér og Hulda litla týnd. Ég var alveg að fara yfir um á tauginni. Hljóp í öll nærliggjandi hús og bað um aðstoð. Húsmæður voru komnar út á götu mér til aðstoðar og ég alls ófær um að skipuleggja nokkra leit sökum stress. Ég hringdi í pabba, hann reyndi að róa mig og sagði mér að kanna húsið betur og það passaði, þegar hann kom, var ég búin að finna barnið. Hún hafði farið á bak við hús, komist inn þvottahúsmegin en ekki ráðið við að opna inn í íbúðina og gefist upp og sofnað í þvottahúsinu með höfuðið ofan í þvottabala. Þvílíkur léttir. Ég upplifði svo mikla skelfingu þarna að þessi atburður mun aldrei gleymast. Síðan á ég smá part í Huldu litlu Gunn.
Ég hef ekki komist inn á tölvuna mína í tæpa viku eða síðan ég "dánlódaði" yahoo messenger til þess að geta talað við Lúkas í beinni. Tölvan mín þoldi ekki álagið en svo komst ég allt í einu inn í dag. Ekki veit ég hverju sætir. Ég er alla vega búin að panta mér nýja græju og vona ég bara að hún birtist sem fyrst.

mánudagur, 9. febrúar 2004

Þorrablótið var frábært frá upphafi til enda. Yfir þorpinu svífur "æ, það er heilt ár í næsta blót" andi. Það er svo gaman að svona heimatilbúnum skemmtiatriðum. Ég held að allir séu sammála um það. Það er svo gaman að hitta gamla vini og kunningja og gamla nemendur líka.
Þegar ég var í Kennó á sínum tíma tók ég handavinnu sem valgrein. Ég hafði frábæran kennara, hana Hólmfríði Árnadóttur. Hjá henni saumaði ég buxur á ungbarn sem börnin mín notuðu svo síðar meir. Mikið var nostrað við þessa flík, allir saumar tvöfaldir og saumaskapur allur vandaður mjög. Núna, 35 árum síðar brúkar Lúkas Þorlákur buxurnar og er svona líka sætur í þeim þótt þær séu kannski ekki alveg nýjasta tíska.

laugardagur, 7. febrúar 2004

Þorrablótsdagurinn er runninn upp bjartur og fagur. Það var öðruvísi í morgun, þegar ég leit út um gluggann, þá rétt grillti í Heilsugæsluna fyrir skafrenningi, en það eru svona 150 m í hana frá mér. Nú er hið fegursta veður. Mikill spenningur hefur ríkt í þorpinu undanfarna dag. Allir eru á einhvern hátt a undirbúa sig fyrir þorrablótið. Karlar jafnt sem konur kaupa sér ný föt og konur fara í strípur, klippingu, lit og plokk og áreiðanlega eitthvað meira. Skemmtikraftarnir og nefndin eru þöglir/þögul sem gröfin, enginn fær að vita fyrr en í kvöld hverjir hafa litað bæinn það rauðan á árinu að ástæða þykir að grínast með það á þorrablóti.
Kalli hringdi heldur betur ánægður í gærkvöldi. Pakkinn með þorramatnum var kominn til hans. Nú ættu þeir feðgar að setja upp pöntunarþjónustu því það þykir kraftaverki næst að hafa komið íslenskum þorramat alla leið til Miðvesturríkis í USA með öllum reglum uppfylltum.
Svava Ránin mín situr sjálfsagt í Rhos með hugann á þorrablótinu í Þorlákshöfn. Það er ótrúlegt að heilt ár skuli verið liðið síðan hún og Dave komu á blót, eins og margt hefur breyst í þeirra lífi síðan.

miðvikudagur, 4. febrúar 2004

Hann Kalli minn stendur fyrir þorrablóti í Iowa. Það hefur ekki verið neitt smámál að koma matnum til hans. Það er búið að taka marga daga að fá það á hreint hvernig skuli á málum haldið. Þeir þarna bússmennirnir í Ameríku eru alltaf að herða reglur um innflutning og pakkasendingar en eftir japl, jamm og fuður og margar símhringingar yfir Atlandshafið fengu þeir feðgar upp gefið hvernig skuli bera sig að. Pakkinn er farinn af stað og "þorramatshungraðir" Íslendingar bíða spenntir eftir innihaldinu. Vonandi verða þeir ekki fyrir vonbrigðum með matinn því það kostar ekkert lítið að senda svona pakka.

þriðjudagur, 3. febrúar 2004

Ég er að velta því fyir mér hvernig í ósköpunum ég geti gert verkefni úr háttum sagna, beygingum og kennimyndum svo áhugavert og spennandi að nemendur mínir hlakki til að vinna það. Ég er bara alveg mát. Reyndi að breyta til í dag og greip bók sem sumum nemendum hefur þótt gaman að kíkja í. En þá komu fyrir orð eins og grandvar, gljúpur, kotroskinn og hispurslaus. Ekki beint áhugavekjandi.

mánudagur, 2. febrúar 2004

Það væri nú seint hægt að segja um hann Simma minn að hann sé félagsmálatröll. En það er svo mikið að gera hjá honum þessa dagana í félagsmálum að það sést á honum öðru hverju alvörusvipur. Það er Kiwanis þetta og Kiwanis hitt og svo fundir og æfingar í sambandi við þorrablótið.Hann dæsir á meðan hann stoppar heima, hripar niður athugasemdir og skiptir um stresstösku. Ég veit bara ekki hvernig þetta endar. En það er tilbreyting fyrir mig að sitja ein heima og ráða yfir fjarstýringunni. Enda kom upp úr dúrnum að ég kann ekki almennilega á hana. "En skratti hefur kallinn gott af þessu vafstri." Ég segi nú ekki annað.

laugardagur, 31. janúar 2004

Er í Króniku að láta tímann líða. Það kom einn í hádegismat. Ekki ríðum við feitum hesti frá því en í kvöld erum við með 100 manna þorrablót hjá Kiwanis í Mosó. Það er of skammur tími til þess að kíkja í kjólabúðir en langur tími til að hanga yfir engu. Á eftir að skera alla pungana, bringukollana og það allt á bakka en ég hristi það fram úr annarri erminni rétt bráðum. Simmi sér um sósur, mús og pottrétt.
Simmi var að kalla rétt í þessu að bjóða mér yfir á Áslák til þess að horfa á fótboltaleik á stóru tjaldi..... svei mér....ég held ég fari með honum, það drepur tímann smá stund.

föstudagur, 30. janúar 2004

Simmi minn keypti sér nýtt battery í gemsann sinn í gær. Hann var í hleðslu í alla nótt og til hádegis, þá tók ég hann úr sambandi því hann á að tæma sig aftur til þess að batterýið endist nú eitthvað. Samt hringdi ég í símann, seinnipartinn, til þess að láta hann vita að ég væri í Ráðhúskaffi og skildi ekkert í því að hann svaraði ekki. Hann í Mosó og síminn heima þar sem ég skildi við hann. Er maður í lagi eða er maður ekki í lagi?
Bók vikunnar er eftir Isabel Allende, Á slóð skepnunnar. Bók síðustu viku, Áhrif mín á mannkynssöguna, var að mínum dómi bara rétt skítsæmileg. Það truflaði mig að sumt gerist í Þorlákshöfn og það er eins og að höfundur hafi ekki unnið heimavinnuna sína áður en hann skrifaði. Hann er jú að skálda en hvernig á Þorlákur frá Þorlákshöfn að geta hafa borið út póstinn í 60 ár í 53 ára gömlu þorpi?

miðvikudagur, 28. janúar 2004

Og hann spáir harðnadi frosti. Kannski að maður ætti ekki að vera í stuttu pilsi svona rétt á meðan þorrinn er. En það styttist óðum í þorrablót. Nú er tími til að pæla í hvaða gömlu druslu maður hengir utan á sig á þorrablótinu. Ársgamall kjóll í mínum skáp er kannski ekki svo gamall, hver veit það svo sem hvort hann er keyptur í gær eða dag? Það er eins gott að vera ekkert að kaupa flýkur eftir heimsfræga hönnuði, þeir segja frá því í slúðurblöðunum ef aumingja leikkonurnar mæta í kjólum frá í fyrra. Ætli það sé ekki hneykslast á því líka innan tískuheimsins? Jæja, mér er slétt sama um það, ég finn eitthvað til að fara í. Það er allavega fullur skápur af einhverju.

þriðjudagur, 27. janúar 2004

Þá erum við u.þ.b. að leggja af stað í kjarabaráttu. Númer hvað ætli hún sé á mínum ferli? Hef alls ekki tölu á því. Enn einu sinni ríkir bjartsýni en ekki yrði ég hissa þó að vonbrigði yrðu eina ferðina enn. Stefnt er á að skrifa undir nýja samninga 31. mars n.k. eða þegar þeir gömlu eru lausir. Það yrði þá nýtt met ef af því yrði. Við höfum mjög oft unnið mánuðum saman án samninga. Ég er spennt fyrir mörgu í þessum nýju kröfum okkar. Þarf samt að velta sumu betur fyrir mér.

mánudagur, 26. janúar 2004

Það er lítil ömmustelpa úti í hinum stóra heimi að vaxa og þroskast og dafna án þess að amma Gunna geti lesið sögur fyrir hana, sungið vísur eða klappað, kysst og knúsað. Amma gamla er nú yfirleitt mjög upptekin af því hversu heimurinn hefur skroppið saman og er ekki að verða að neinu en þegar kemur að því að langa til að þess að hitta sína nánustu virðist heimurinn allt of stór.
Ætli fólk eigi yfirleitt mynd af sér í vinnunni sinni? Ég held að það sé nú ekki endilega víst. Mér datt í hug þegar ég var að lesa Tilhugalífið hans Jóns Baldvins, sem kom út í fyrra, þegar minnst er á það að hann var einn, EINN, vetur við kennslu í Hagaskóla og það birtist mynd af honum við kennslu, í bókinni, að það væri engin mynd til af mér við kennslustörf þó að ég væri búin að vera all nokkru lengur við þetta heldur en Jón Baldvin. Auðvitað veit ég að það er ekki sama Jón og séra Jón, en mér finnst bara samt allt í lagi að það sé, þó ekki væri nema ein mynd, til af mér af 33 ára kennsluferli mínum. Í morgun var tækifæri. Skólastjórinn kom í heimsókn í stofuna til mín, til þess að mynda mína elskulegu nemendur, og heimtaði ég af honum um leið að hann myndaði mig við störf sem hann og gerði.

sunnudagur, 25. janúar 2004

Það var skrítið að fara í sund í björtu. Við höfum synt í svartamyrkri frá því í haust, þannig að það þurfti smá stund til að venjast birtunni. Við skelltum okkur í sund eftir hádegið og tókum skammtinn okkar þrátt fyrir að það sé sunnudagur. Við erum svo ákveðin í því að sundið sé orðið fastur liður í tilverunni að við festum okkur árskort. Það marg borgar sig þegar farið er a.m.k. fimm sinnum í viku. Kíktum svo á gamla settið mitt. Þar var veisluborð eins og svo oft á sunnudögum. Ég stóðst allar freistingar enda búin að svindla nóg þessa vikuna. Geri ekki ráð fyrir glansmynd næst en hana fær maður bara ef kíló eða meira fer.

laugardagur, 24. janúar 2004

Þá er þorrinn genginn í garð og fylgir honum kuldi og trekkingur. Kiwaniskarlarnir buðu konum sínum upp á þorramat í gærkvöldi. Borðaði ég vel af flestum réttum þrátt fyrir að þessi tegund matar sé ekki á lista þeirra dönsku. Ég svindlaði af ásettu ráði enda fékk ég glansmynd á fimmtudag. Eftir að hafa borðað og sungið, undir stjórn Sigvala Bjarnasonar, var komið við í Ráðhúskaffi. Þar var trúbadorinn Addi Ása að skemmta og flott stemming þar. Við urðum svo skella okkur í Króniku í morgun og elda þar handa nokkrum mönnum frá Suðurverk. En nú stendur til að fara að lesa bókina hans Guðmundar Steingrímssonar, Áhrif mín á mannkynssöguna. Sumum finnt hún góð og öðrum ekki. Ég á eftir að dæma.

fimmtudagur, 22. janúar 2004

Lúkas Þorlákur hefur eignast hljómborð og tekur smáæfingu á það á degi hverjum. Það er eins gott fyrir hann og ekki er ráð nema í tíma sé tekið þar sem hann mun alast upp í landi þaðan sem heimsfrægir kórar koma frá. Nema piltur sé að velta fyrir Idol keppni. Hvur veit?

þriðjudagur, 20. janúar 2004

Fyrir ári síðan fór ég á æfingar fyrir þorrablótið og skemmti mér konunglega á hverrri einustu æfingu enda ekk von á öðru þegar skáld og söngvarar bæjarins koma saman. Nú fer Simmi á æfingar og kemur heim í hláturskasti en neitar algjörlega að segja mér hvað sé verið að æfa. Það verður bara að bíða til þorrablóts.

mánudagur, 19. janúar 2004

Er nokkur hissa þó mig langi til að taka þetta barn í fangið knúsa það og kjassa og kenna því að segja Gunnamma?
Ég hef haft áhyggjur af því hversu ég hef mjög minnkað bóklestur á síðastliðnum árum. Ég las alltaf rosalega mikið. Reyndar ekki alveg eins mikið og Njörður P. Njarðvík lagði til í bókmenntafræðinni í Háskólanum að maður gerði en hann vildi að við læsum 104 bækur á ári, þ.e. tvær á viku. En kannski er ég komin í gírinn núna, búin að lesa 5 bækur síðan um jól. Les u.þ.b. eina bók yfir helgi. Núna er ég að klára Svo fögur bein. Mjög spennandi saga með óvenjulegu sjónarhorni en gengur upp.

fimmtudagur, 15. janúar 2004

Ég hélt að ég kynni bæklinginn utanað frá De danske vægtkonsulenter (Íslensku vigtarráðgjöfunum). En annað kom á daginn eftir að hafa farið í vigtun í dag og setið fund. Ég var farin að gera ýmsar vitleysur og þar með snerist dæmið við. ÞYNGDIST þessa vikuna. ARRRRRGGGGG og garg.
Við erum nú ekki að fara með okkur á þrifum eða tiltekt, hjónakornin í hosiló. Við drusluðumst áðan með jólakassana niður í geymslu. Ég er sem sagt ekki búin að þrífa neitt almennilega frá því fyrir jól og afsökunum var að kassarnir voru fyrir mér. Ég hef þá enga afsökun eftir vinnu á morgun og reyni kannski að gera eitthvað af því sem þessar myndalegu húsmæður gera um hverja helgi. Ég ætla samt ekki að lofa neinu því ég ætla á kaffihúsið og bókasafnið og ef ég kræki mér í góða bók tek ég hana framyfir tiltekt.

þriðjudagur, 13. janúar 2004

Ég synti bara tíu ferðir í morgun, hafði það fyrir afsökun hversu kalt vatnið var nema ég hafi einfaldlega verið svona löt. Ég yljaði mér í heita pottinum í staðinn, sem er mjög gott fyrir vöðvabólgu og aðra krankleika.
Það er mjög kalt núna, bæði úti og inni og alls staðar. Ég þurfti aukapeysu í sumum kennslustofanna í dag en var samt krókloppinn og með ískaldann nefbroddinn. Ég er svo forsjál að ég hef upp í skóla eina gamla peysu til þess að nota í kuldaskeiðum. Ég ætti samt ekki að vera að kvarta neitt, búandi hérna á suðvesturhorninu. Það ku vera bandvitlaust veður í öðrum landshlutum. Fólki er ráðlagt að vera ekkert á ferðinni.
Ég er búin að ákveða að fara ekki í sund í fyrramálið. Hann spáir þannig að ég er viss um að vatnið verður enn kaldara í fyrramálið en það var í dag. Úff!!!!

sunnudagur, 11. janúar 2004

Það verður flogið beint til Manchester 6. febrúar og heim aftur á sunnudeginum til þess að fara á völlinn. Þetta fréttir maður ef horft er mikið á fótboltann í sjónvarpinu. Ég hefði reynt að fá að fljóta með ef þetta væri ekki einmitt þorrablótshelgin. Simmi er formaður nefndarinnar svo hann verður að vera á svæðinu. En það verður sjálfsagt farið á annan leik, af nógu er að taka í enska fótboltanum.
Mikið vildi ég að stundum væru barnabörnin mín hérna hjá mér. Þau mættu drasla allt út, suða og rella, grenja og garga, rífast og vera óþekk. Ég held bara að ekkert þeirra hagi sér svona. En sama, rosalega sakna ég þess að geta ekki séð þau þó ekki væri nema smástund. Núna er Lúkas orðin tveggja mánaða og af myndum að dæma meiri háttar karl.
Sunnudagsrólegheit, rökkrið færist hægt yfir þorpið mitt, bjart aðeins lengur en í gær. Fótboltasuðið í sjónvarpinu. Lauk áðan við að lesa Rottuholuna eftir Björn Þorláksson. Gaman að lesa hana en ég er ekki alveg búin að átta mig á persónusköpuninni hjá honum. Mér finnast persónurnar ekki alveg nógu trúverðugar. Þær skipta um karakter nema ég sé að misskilja e-ð. Ég tók þessa bók í bókasafninu á föstudaginn þegar ég fór í menningarleiðangur í "bæinn". Fór á bókasafnið og kaffihúsið. Það er sem sagt komið kaffihús hér og hittumst við nokkur af kennarastofunni þar eftir vinnu. Þetta er skemmtileg nýung í þorpinu. Við fórum líka nokkrar stelpur af kennarastofunni í bíó á fimmtudagskvöld. Sáum Love actually, sem er alveg frábær mynd. Allavega þegar stelpuhópur fer saman. Áður en við fórum í bíó hitti ég vigtarráðgjafana mína og það er skemmst frá að segja að ég fékk ekki glansmynd í dagbókina mína.

miðvikudagur, 7. janúar 2004

Það hlýtur eitthvað að vera að þegar maður, á einum og sama deginum, skrifar kennitöluna sína vitlaust í bankanaum og leitar að poka sem maður hefur áður sett upp á handlegginn á sér og heldur þar með á.

sunnudagur, 4. janúar 2004

Það verður gott að komast aftur í eðlilegt ástand á morgun. Þetta er búið að vera aldeilis frábært jólafrí en það verður samt fínt að fara í vinnuna. Mér finnst eins og ég sé búin að vera langa lengi í fríi enda er ég búin að snúa sólarhringnum nánast við. Ég hef samt farið í Króniku að vinna nokkra daga. Ég hef verið að reyna að skipuleggja önnina í huganum en ég festi mig ekki við neitt sérstakt. Það gerist ekkert bitastætt fyrr en maður kemur á kennarastofuna í fyrramálið.

laugardagur, 3. janúar 2004

Einn af jólasiðunum á mínu heimili hefur verið sá að taka mynd af borðhaldinu á aðfangadagskvöld. Ég hef séð um þetta þannig að það eru til myndir af fólkinu mínu við jólaborðið frá 1972 til dagsins í dag með einhverri smá undantekningu. Ég tók líka alltaf mynd af krökkunum við jólatréð áður en pakkarnir voru teknir upp. Ég ætla einn góðan veðurdag að safna þessum myndum saman í þemamyndaalbúm sem verður þá um leið einn af þráðunum í lífshlaupinu. Það er gaman að bera þessar myndir saman og virða fyrir sér breytinguna á hinu og þessu. T.d. pæla í tískunni, hárgreiðslunni, gardínunum, matarstellinu svo eitthvað sé nefnt. Það er eitt sem breytist ekki og það er hamborgarhryggurinn. Auðvitað alltaf nýr hryggur en alltaf hryggur og sama meðlætið. Brúnaðar kartöflur, sósa, rósakál, rauðkál og bleika ógeðið. Og svo segir einhver: "Ég hef nú oft fengið góðan mat en aldrei eins og þennan."

föstudagur, 2. janúar 2004

Höfðum lokað í Króniku í dag. Áttum ekki von á neinum fastakúnnum þannig að......en auðvitað er þetta ekki nógu gott, hvers konar veitingastaður er þetta eiginlega. En smá huggun gegn samviskunni, allir bestu veitingastaðirnir í heimsborgunum hafa lokað einn dag í viku. Skítt með smellinn. Mér finnst mjög gott að húka hérna heima, hlusta á útvarpið, horfa á sjónvarpið, lesa og þess á milli gera ekki neitt. Er að lesa Öxina og jörðina hans Ólafs Gunnarssonar. Þar eru svo miklir ribbaldar að ég tók mér pásu til að meðtaka öll ósköpin.

miðvikudagur, 31. desember 2003

Ég finn alltaf fyrir þessari skrítnu depurð á þessum degi. Það er þessi tregða að skilja við eitthvað sem maður þekkir og verður að taka á móti einhverju sem maður þekkir ekki. Hvað skyldi nýja ári bera í skauti sér? Þessari spurningu fylgir dálítill kvíði og svo er það spurningin hvernig gamla árið fór með mann eða öllu heldur hvernig fór maður með gamla árið. Það er uppgjörið við árið og sjálfan sig. Ég held ég megi vel við una. En ætla örugglega að bæta mig að einhverju leyti. Það hlýtur að vera hægt.

mánudagur, 29. desember 2003

Við erum komin heim heil á húfi, eins og Kalli sagði alltaf þegar við komum inn í þorpið þegar hann var nokkra ára og við höfðum skroppið af bæ. Einhver setning sem hann hafði lært af Doddabókunum. "Húrra, komin heim heil á húfi." Við biðum smá stund í Mosó og lögðum svo í'ann. Eina ófærðin var í Mosó, eftir það var leiðin greið. En þeir höfðu úr nógu að moða í fréttunum að segja frá ófærð, vondu veðri og útkalli björgunarsveita.
Ég lauk við Storm. Frábær saga. Einar notar sama stílbragð og í Óvinafagnaði. Hann lætur persónur sögunnar skiptast á að segja frá í fyrstu persónu. Mér finnst það mjög sniðug lausn. Stormur er ótrúleg persóna. Mér finnst gaman að lesa um hann en ég er fegin að ég þekki engan slíkan. Ja, nema þeir leynist víða stormarnir, hvur veit?
Við erum veðurteppt í Króniku. Það var allt í lagi með færðina í morgun. Enginn snjór á vegum en blint í hryðjum. En nú ku vera orðið ófært. Við verðum að bíða og sjá til hvort veðrið gangi ekki niður. Það er sem sagt venjulegur dagur í dag. Byrjuðum á sundi áður en við héldum yfir fjallið og elduðum mat í nokkra kalla. Ég hlakka til að komast heim í Lazyboy og halda áfram að lesa STORMINN hans Einars Kárasonar. Frábær bók.

laugardagur, 27. desember 2003

Við erum búin að bjóða nokkrum vinum í mat í kvöld. Það verður þröngt setinn bekkurinn í hosiló en við vonum að þetta bjargist. Á boðstólum eru síldarréttir og rúgbrauð, sem ég smyr og sker niður eins og að um lagtertu væri að ræða, pörusteik með öllu tilheyrandi og ekta ensk jólakaka í eftirrétt. Þeir sem ekki hafa áhuga á þeirri mjög svo koníaksvættu köku fá Sörur. Nú svo á ég nokkra konfektmola frá Jóa Fel. Dálítið svona sitt úr hverrri áttinni. En það er fólkið sem er það besta og við hlökkum til að fá gestina. Hver veit nema ballfiðringur komi svo í fæturna þegar líður tekur á kvöldið. Það er nú ekki langt að rölta héðan og út í Versali.
Nú situm við hjónakornin og spekúlerum í óvæntri uppákomu, eins og síðast þegar þessi vinahópur snæddi hjá okkur, en e-ð erum við hugmyndasnauð þetta augnablikið. Síðast lásum við Þorraþræl með tilþrifum, lásum hann eins og við værum að rífast. Okkur fannst það rosalega fyndið. Besta að fara og leggja hausinn í bleyti.

föstudagur, 26. desember 2003

Friður og ró, ró og friður. Alveg eins og ég vil hafa það. Ég er vön að borða yfir mig á þessum tíma, aftur og aftur, en ég virðist hafa lært eitthvað hjá "de danske vægtkonsulenter" allavega er ný hugsun þarna á bak við. Hef samt stungið örfáum konfektmolum upp í mig en ekkert í líkingu við það sem ég hef innbyrgt af þannig góðgæti áður á jólum. Lauk við að lesa BETTÝ áðan. Mér finnst hún rosalega góð. Ég hef heyrt að hún fái misjafna dóma. En hún fellur að mínum smekk. Það er verst að það má ekki tala um hana fyrr en allir hafa lesið hana, svona álíka og var með bíómyndina Crying Game.
Allir mínir hafa það gott. Iowa fólkið mitt hefur verið hjá íslenskum vinum en Walesbúarnir í óða önn að skapa sín eigin jól. Ég er svo heppin að þau skötuhjú fengu sér tölvu í jólagjöf þannig að nú fæ ég myndir af Lúkasi Þorláki á hverjum degi. Þetta þýðir að ég verð að fara að hressa upp á tölvukostinn minn því ég er að verða eftirá í tækninni. Ég t.d. las um daginn að svo fáir í heiminum nota enn windows 98 að þeir eru hættir að uppfæra það kerfi, ég er sem sagt ein af þessum örfáu.

mánudagur, 22. desember 2003

Hann Kalli minn afmæli í dag. Hann er, eða verður korter fyrir miðnætti, 32 ára gamall. Hann fæddist á Fæðingarheimili Reykjavíkur og mældist 50 cm og vó 3450 g. Fæðingin gekk mjög vel. Ég var sett af stað, með "drippi" í æð, því hann átti samkvæmt ritúalinu að vera mættur á svæðið fyrir löngu. Það trúir því enginn, þegar ég segi, að ég hafi gengið með hann í 10 mánuði en þannig var það nú samt. Enda virkaði drippið.
Þetta var frekar einmanalegur dagur. Ég fór alein með leigubíl á Fæðingarheimilið og þar átti allt að vera svo heimilislegt en eftir á að hyggja var allt mjög ópersónulegt þarna. Allavega var ekkert útskýrt, það var bara komið fram við mann eins og maður hefði aldrei gert neitt annað en að eignast krakka, en því var nú fjarri. Ég ætla ekki að fara út í nein smáatriði hér en þegar litli fallegi drengurinn minn loksins kom, korter fyrir miðnætti, var tilveran ekki lengur einmanaleg, ég hafði ábyrgð á mínum herðum, enga smá ábyrgð. Ég hvíslaði að honum, þarna í fæðingarherberginu, að ég skyldi sjá til þess að aldrei skyldi neitt illt henda hann. Þvílíkt loforð. Pabbi hans kom daginn eftir, á aðfangadag, að kíkja á hann og mig, með þann stærsta bangsa sem hefur verið búinn til. Jónki tröll var hann nefndur.
Þarna vorum við, Kalli litli og ég, fyrstu jólin hans.
Það var skrítið aðfangadagskvöld, að vera á spítala. En ég verð ævarandi þakklát Þóru móðursystur minni og Didda heitnum að þau skyldu heimsækja mig á spítalann þetta kvöld.
Læknirinn minn, hann Jón Þ. kíkti til mín rétt eftir fæðingu og sagði að ég hefði rétt fyrir mér með 10 mánaða meðgöngu, drengurinn var með bítlahár, langar neglur og öll fósturfita var farin af honum. Hann sagði líka: "Af hverju beiðstu ekki í korter, þá væri þetta hann Þorlákur litli frá Þorlákshöfn, fæddur á Þorláksmessu." Ég hef lengi haft grun um það að honum Kalla mínum hefði ekki þótt leiðinlegra að heita Þorlákur en Karl Ægir.

sunnudagur, 21. desember 2003

Eftir Króniku í gær fórum við í jólaleiðangur með Öldu og Valda í bæinn. Það var ógisslega gaman hjá okkur (eins og unga fólkið segir). Skoðuðum hitt og þetta og keyptum fullt af skemmtilegtum óþarfa og fengum okkur bjór og borðuðum á Ítalíu, sem er besti millliklassastaðurinn, og fórum á Kaffi List og írskan pöbb. Besta af öllu var að Simmi minn komst í stuð og keypti sér jakkaföt, skyrtu og bindi, frakka og naríur. Hann fer ekki í jólaköttinn.
Ég fékk allt í einu löngun til þess að baka. Langaði bara reglulega mikið til þess og lét það eftir mér. Bakaði amerískar smákökur jólasveinsins. Þær eru betri en bestu Maryland cookies þó ég segi sjálf frá. Sólskinsköku bakaði ég líka. Nú verða Kalli og Svava Rán alveg ómöguleg að geta ekki fengið þó ekki væri nema ein sneið. Ef ég man rétt var þessi kaka alltaf í miklu uppáhaldi. Hef ekki bakað hana í mörg ár. Rístoppa bakaði ég og eina marengstertu. Ég hef mikla minnimáttarkennd þegar kemur að marengstertum því systur mínar eru snillingar á því sviði en þessi lítur rosalega vel út hjá mér. Ég fór með afraksturinn og færði móður minni. Geymi reyndar heima nokkrar Sörur, rístoppa og jólasveinakökur í stömpum. Færði Simma mínum eina Söru áðan af því hann eldaði svo góðan kvöldmat handa mér en hann hefur ekki lyst á henni. EINNI LÍTILLI SÖRU. Það er ekki í lagi með hann. Ég er mest hrædd um að ég eigi eftir að gæða mér á henni þrátt fyrir góð áform.

miðvikudagur, 17. desember 2003

Þegar ég fór seinnipartinn í dag upp í skóla, til að taka þátt í jólakvöldvöku nemenda minna, var ég á háhæluðum skóm og með regnhlíf og hún spenntist ekki upp. Samt er bara vika til jóla. Og Dave, tilvonandi tengdasonur, setur samasemmerki á milli Íslands og hvítra jóla.
Svava Rán á afmæli í dag. 29 ára gömul. Áður en ég hringdi í hana, hringdi hún í mig til þess að óska mér til hamningju með daginn. Nú þegar hún er sjálf orðin móðir finnst henni afmælisdagurinn vera meiri dagur fyrir mömmuna en afmælisbarnið. Ég er alveg sammála henni, mér finnst alltaf að ég eigi dálítið í þessum afmælisdögum barnanna minna. Allavega upplifi ég í huganum þennan dag þegar þau fæddust. Við, Svava Rán, vorum saman á Sjúkrahúsi Selfoss. Hún kom í heiminn 4:10 að viðstöddum pabba hennar sem fannst ekki mikið tilkoma. Hann hefði líklega heldur vilja vera frammi í bítibúri að segja hjúkkunum brandara. Ég var alsæl með litla fallega barnið mitt. Hún var svo mannaleg með mikið kolsvart hár. 52 cm á lengd og vó 3610 g.

þriðjudagur, 16. desember 2003

Einn dagur eftir af jólaþemadögum í skólanum og jóakvöldvakan er á morgun. (Af hverju ætli sé hætt að tala um litlu jólin? Ég sakna þess). Krakkarnir okkar
Esterar eru að æfa frumsamið leikrit þar sem hæfileikaar margra fá að njóta sín í leik,dansi og söng. Ég er að mestu búin að ganga frá prófum og þvíumlíku en á þó smávegis eftir af umsögnum. Það reddast, við höfum fimmtudaginn til að hnýta síðustu hnútana. Á föstudag er svo kertadagurinn svokallaði og eftir það skellur á mann jólafrí. Við erum aðeins á eftir þingmönnunum í frí enda ekki með alveg eins góð laun. Skyldi þingmanni líða eins og mér þegar hann er spurður hvenær jólafríið byrjii hjá honum? Mér finnst nefnilega alltaf eins og fólk sé að benda mér á að ég vinni ósköp lítilmótlegt starf þegar ég er spurð um jólafríið. Það er búið að koma því inn hjá mér að ég sé að svíkast undan verki með því að vera alltaf í fríi. En ég er nú með svo sérstaklega mjótt bak.

sunnudagur, 14. desember 2003

Ég hef verið á kafi í jólaundirbúningi í dag. Var í miðjum klíðum að gera baðherbergið hreint, sem er ekkert mál með ENJO, þegar Rut systir hringdi og bauð mér að vera með í Sörukökugerð. Ég hljóp út frá hálfhreinsuðu baðherberginu, tók það loforð af Simma að hreyfa ekki við neinu þar, og fór í það að vera með í Sörunum. Ég hef einu sinni reynt að gera gervisörur en þær mislukkuðust svo ég hef ekki þorað að fara út í þessar ekta en Rut er svo mikill snillingur í kökugerð. Hún var verkstjóri og stjórnaði mér og Grétu og Huldu litlu Gunn í gegnum þennan svakalega feril sem Sörugerðin er. Nú á ég 70 Sörur í frystinum sem Simmi heldur að ég muni henda fyrir næstu jól ef fer fyrir þeim eins og öllum smákökunum sem ég bakaði hér á árum áður. Krakkarnir mínir nörtuðu í þær, Simmi borðar þær ekki. Hann tók þann sið upp eftir Jóni afa sínum á Stokkseyri. Það var sama þó ég reyndi að borða þær og troða þeim í gesti, þær kláruðust aldrei. Ég hlýt að hafa bakað of mikið.
Baðherbergið ljómar nú af ENJO hreinleika, Simmi er búinn að hengja upp stækkunarspegilinn og nýja snaga fyrir handklæðin. Ég finn að jólin eru að nálgast.
Halldór skólastjóri fór á kostum eins og við mátti búast á jólaglöggi starfsfólks skólans á föstudagskvold. Nú lýsti hann Landsmóti UMFÍ sem haldið var í Þorlákshöfn árið 2007. Við, starfsfólkið, komum öll við sögu þannig að hann gerir pínu grín af okkur öllum. Halldór ætti að fá laun úr rithöfundasjóði fyrir þetta árlega framtak sitt á sviði sögugerðar. Auðvitað var svo IDOL keppni þar sem hver söngpípan á fætur annarri sté á svið. Dómarar voru Raggi og Ester og þau stóðu sig frábærlega. Raggi var auðvitað Bubbi og Ester Sigga. Ester var eiginlega betri Sigga en Sigga sjálf. Sigurvegarinn var Sigrún Berglind sem söng Júróvisjónlag frá 1985 á finnsku ef ég skildi útlenskuna rétt. Frábær skemmtun og ekki skemmdi glöggið hennar Esterar fyrir neinum.

mánudagur, 8. desember 2003

Helgin liðin með sínum skemmtunum og fjöri. Það var konukvöld hjá Kiwanis á föstudagskvöld. Bara eins og í gamla daga, bíngó og brandarar. Á laugardag vorum við hjónakornin í Króniku og urðum að hafa opið frameftir vegna þess að Mosfellingar voru að tendra ljósin á bæjartrénu og margir þurftu kaffi og kakó hjá okkur. Vegna þessa komst ég ekki í jólagjafaleiðangur eins og ég hafði hugsað mér en fór til Röggu á Monroe í klippingu. Við gerðum okkur sér ferð í bæinn í gær til að kaupa smá dótarí. En kvöldið áður vorum við hjá Jónu Svövu í fertugsafmælinu hennar sem hún hélt í Kiwanishúsinu. Það var rosalega gaman. Hún fékk gítarspilara til að halda uppi söng og fjöri. Hann Sigvaldi, bróðir hans Viðars, kom með gítarinn sinn og það var aldeilis tekið á söngnum. Verst að ég gat lítið sungið vegna kennaraveiki í hálsi.

miðvikudagur, 3. desember 2003

Það er ekki mjög jólalegt um að litast núna. Snjórinn farinn, rigningin lemur á gluggana og vindurinn gnauðar og hvín. Jólaskreytingar hamast við að reyna að hanga á sínum stað. Kyrjukórinn er með jólastund í Versölum í kvöld og þær báðu mig um að lesa sögu. Ég segi eiginlega aldrei nei, svo það verður úr að ég lesi. Ég valdi söguna Hlutaveikin eftir Þórarinn Eldjárn eftir ábendingu góðrar samstarfskonu, hennar Guðbjargar Ingveldar. Ég býst við að það verði fólk á öllum aldri þarna í kvöld og Þórainn getur svo auðveldlega skrifað fyrir alla aldurshópa. Hann getur ekki stillt sig um að vera með orðaleiki í þessari sögu, eins og í ljóðunum sem hann skrifar fyrir börn, þannig að hún féll strax í kramið hjá mér þó ekki væri nema þess vegna en svo er boðskapurinn líka góður.

mánudagur, 1. desember 2003

Ef kunningjar míinir og vinir sæju ekki um að rækta sambandið ætti ég enga kunningja og vini. Ég fer nánast aldrei í heimsóknir til fólks og hringi eing0ngu í mína nánustu. Sem betur vill nú samt einn og einn hitta mig enn og kíkir í heimsókn. Í gær kom Dísa vinkona mín, frá því við vorum unglingar í Meitlinum. Hún er líka frænka hans Simma. Við jöskuðumst við Dísa, áttum jaskaúlpur og fórum á Voffanum hennar að jaska. Ég veit ekki hvort fleiri hafa gert þetta.
Ásta mágkona og Dóra Sif komu líka í stutta heimsókn. Það er allaf jafn gaman að hitta þær mæðgur. Ásta býr í höfðuðborginni en Dóra Sif í Brussel, samt koma þær, ásamt Hrefnu, eldri dóttur Ástu, sem býr í Róm, oftar í heimsókn heldur en mágafólkið okkar Simma og systkinabörn sem búa þó í sama þorpi og við. En það er eins og ég segi, ég get ekki kvartað við neinn því ég er sjálf verst. Ég sé þó flesta hina bregða fyrir í kaupfélaginu og á götunni eða í skólanum og fæ fréttir af ættingjunum gegnum ættarhöfðingjana.