Síður

föstudagur, 2. maí 2003

Samræmda prófið í íslensku var í morgun hjá 10. bekk. Mér leist þokkalega á það. Ekki mikið um svínarí eins og hefur komið fyrir. Þó var ein spurning sem ég er ekki enn búin að svara. Spurning úr texta. Ég er enn að velta svarinu fyrir mér. En ég skil ekki af hverju þarf að eyða mörgum spurningum um sama efni eins og spurningarnar um orðflokkana í þessu prófi. Einnig voru tvær spurningar, mjög svipaðar um aðalsetningar og aukasetningar en ekkert spurt um bragfræði eða myndmál, eins og ég eyddi miklum tíma í þann þátt. Reyndar var ein svínaríisspurning. Spurt var hvað orðið sínkur merkir. Hvernig í ósköpunum eiga blessuð börnin að þekkja þetta orð? Ég veit um einn texta þar sem orðið kemur fyrir og það er í eldgamalli stafsetningarbók sem allir eru löngu hættir að nota.

þriðjudagur, 29. apríl 2003

Ég hef alltaf litið á drauma og draumaráðningar sem sæmilega skemmtilegt umræðuefni en ég trúi ekki á drauma, að fólk sé berdreymið eða dreymi fyrir daglátum. Það er eitthvað sem samræmist ekki lífinu á 21. öldinni að tala um undirmeðvitund, drauma og að finna eitthvað á sér. Það þyrfti alla vega að sanna þetta fyrir mér með óyggjandi hætti ef ég ætti að trúa. Þess vegna tel ég það algjöra tilviljun að þegar mig dreymdi að einn samstarfsmaður minn faðmaði mig að sér þá gerðist það nákvæmlega eins þegar ég mætti til vinnu og einnig er það tilviljun að þegar mig dreymi Guðna Ágústsson, að gefa mér góð ráð fyrir sparnaði, þá hann kom á kennarastofuna daginn eftir og talað meðal annrs um að fólk ætti erfitt í dag með að spara. Ég er a.m.k. mjög ánægð með að draumurinn sem mig dreymdi í nótt kom ekki fram í morgun í vinnunni eins og hann var í raun þ.e. ég að gera stykki mín í litla fötu í herbergi að stöddum nokkrum mönnum og konum.....

mánudagur, 28. apríl 2003

Ég er hálf slorpíkuleg í dag eftir djamm helgarinnar. Hef ekki orku í þetta lengur. Þarf að fara snemma að sofa til að halda fullri starfsorku. Þetta var nú ekkert venjulegt heldur. Grillpartý á miðvikudag, útskriftarpartý á fimmtudag, saumó á föstudag og söngfélagspartý á laugardag. Allt rosalega skemmtilegt það vantar ekki en fyrir konu á sextugsaldri er þetta einum of. Hefði viljað slaka á næstu helgar en það eru engin grið gefin, næstu helgar eru bókaðar en sem betur fer hafa þær ekki allar fjögurra daga frí.

laugardagur, 26. apríl 2003

Ég var þæg og góð og gegndi því að vera í bíógallanum, með aur í vasanum klukkan 19:30 í gærkvöldi. Ég var sótt heim og saumaklúbbnum smalað saman og rennt á Eyrarbakka í Rauða húsið. Þar var haldinn fundur um vorferð sem við höfum ekki farið í mjög reglulega. Líklega eru hátt í tuttugu ár síðan síðast svo það var kominn timi til að gera eitthvað í málinu. Til stendur að dvelja hjá Dúnu og Alla á Hestakránni eina helgi í maí og njóta þess sem þau geta boðið upp á. Og nú fá karlarnir okkar að koma með. Siðan fengum við okkur gott að borða og drekka og höfðum það næs.......
Þá er Gvendur í Götu genginn á vit feðranna. Við sungum við jarðarförina úti í Selvogi í dag.

föstudagur, 25. apríl 2003

Góða veðrið togaði í mig og ég fór út. Átti erindi á pósthúsið og í Rás en kom við í verBÚÐINNI og fékk mér kaffið hennar Hörpu. Það er frábær hugmynd hjá henni að hafa kaffihús og fiskbúð á sama stað. Það verður varla íslenskara. Mig dreymir um að Café Krónika verði bókakaffihús. Ég er búin að koma fyrir nokkrum bókum en ég er ekki nógu oft að flækjast þarna til stjórna honum Simma mínum. Ég er búin að segja honum að setja upp fleiri bókahillur en hann gegnir mér ekki svo skrýtið sem það nú er. Það hefur dottið inn fólk sem greinilega hefur verið að læra og lesa og vinna á fartölvur. Það er vonandi byrjunin.
Ég hálfvorkenni þessum pólítíkusum um þessar mundir. Mér finnst það vera niðurlægjandi fyrir þá að heimsækja vinnustaði og tala fyrir daufum eyrum fólks og jafnvel finna fyrir pirringi af því þeir eru að trufla fólk í kaffitímum. Ég vildi ekki þurfa að ganga á milli fólks og biðja það um að styðja mig til þess að ég héldi vinnunni minni. Samfylkingin kom á kennarastofuna um daginn og í morgun kom Kristján Pétursson. Fólk nennir ekki einu sinni að spyrja neins, því er alveg sama. Ég er algerlega á móti svona sérframboðum eins og Kristján er með. Tveggja flokka kerfi væri alveg nóg fyrir okkur.
Nú er upprunninn tími partýa og óvissuferða. Það var grillpartý hjá skólastjórahjónunum á síðasta vetrardag, saumaklúbbsóvissuferð í kvöld og söngfélagspartý á laugardagskvöld. Söngfélagsball, sem við sjáum um sjálf, þann 2. maí og ég er búin að skrá mig í óvissuferð með kennaraliðinu þann 9. maí. Og þá er fátt eitt upp talið. Mér finnast óvissuferðir frekar óheppilegar, ég er alltaf í vandræðum með fatnað, þó svo að eitthvað sé útgefið hvað hann varðar. Í kvöld á ég að vera tilbúin heima hjá mér klukkan 19:30 í bíógallanum með aur í vasanum. Ég gæti hæglega klúðrarð þessu. En í óvissuferð kennaranna á að hafa vaðstígvél meðferðis, sundföt og hlý föt. Verðlaun verða veitt fyrir asnalegasta jakkann. Nú get ég ekki hugsað um annað en þennan jakka. Mér datt í hug í morgun að taka traustataki jakka sem hangir alltaf hjá yfirhöfnum kennranna og er stundum notaður sem leikmunur en það er löggujakki. Gæti verið móðgandi fyrir einhverja og ég vil aldrei móðga neinn. Ég verð að hugsa upp einhvern annan jakka.
Ég prófaði eitt af þessum furðulegu prófum sem tröllríða netheimum og þetta er útkoman.
Jæja, útkoman var að ég væri hnetusmjör og síðan mín þoldi ekki álagið.
Ég veit þá að héreftir tek ég ekki nein svona próf. Mér er nú líka sléttsama.

miðvikudagur, 23. apríl 2003

Ég varð að taka á mig krók heim úr skólanum í dag því ég á enga grillsteik heima. Labbaði í stafalogni og næstum því hitasvækju í kaupfélagið, sem heitir núna 11-11 og breytist von bráðar í Krónu, og smellti mér á lambasteik. Þar sem til stendur að kennararnir grilli hjá skólastjóranum í kvöld lætur maður ekki sjá sig nema með lambakjöt, annað væri helgispjöll á hans heimili. Ég er ekki komin í grillstuð enn þá þannig að ég keypti ekki grillkartöflur, grillgrænmeti, grillolíu, grillþetta og grillhitt ég keypti bara kartöflusalat sem meðlæti, afskaplega ófrumlegt. Ég keypti heldur ekki grillbakka, makkarónukökur, marssúkkulaði, jarðarber og bláber í eftirrétt heldur súkkulaði -jógúrt- hnetur og ávexti sem á ekki að grilla heldur bara hella í skál og úða í sig. Ég hlýt að fá grillstemmninguna í mig eftir kvöldið í kvöld. Svo á ég eina hvítvín sem ég sting í pokann líka og hvolfi væntanlega í mig. Ummm... hvað ég hlakka til.

mánudagur, 21. apríl 2003

Svo er það hið árlega páskakaffi hjá mömmu og pabba. En aumingja Simmi kemst ekki fyrr en leikurinn er búinn.
Heilagleiki páskanna var meðtekinn í tveimur messum í gær. Fyrst var messað í Þorlákskirkju, fyrir hádegi og síðan í Strandarkirkju. Ég var búin að fá frí frá söng þessa helgi. Við hjónakornin ætluðum að vera á Austurlandi, búa í íbúð Svövu Ránar og keyra svo á Fáskrúðsfjörð og athuga hvernig nýja skólastjóranum þar reiðir af og svo ætluðum við auðvitað á Reyðarfjörð að rifja upp þrjú ár sem við áttum þar og heimsækja skólastjórahjónin. En af þessari ferð varð ekki af því að hann Simmi minn rekur fyrirtæki sem þarf að sinna. Það varð sem sagt að hafa opið í Króniku á laugardaginn. Sjálfstæðismenn í mosó voru með hið árlega páskabingó á torginu og það hefði vrið fáranlegt að hafa lokað í kaffihúsinu á staðnum. Við riðum nú ekki feitum hesti frá þessum degi en borgaði sig samt.
Fyrst ég var heima þá fór ég auðvitað og söng með kórnum mínum. Það er mín slökun og félagsskapurinn skemmtilegur. Nú svo hitti ég Guðrúnu Eggerts í messu og hún kom með mér heim og þáði hádegismat hjá hjá okkur. Það var gaman að eiga við hana spjall, við hittumst allt of sjaldan.

laugardagur, 19. apríl 2003

Við Simmi minn hringdum tvö símtöl til útlanda í gærkvöldi. Fyrst töluðum við við Jones kærustuparið í Wrexham í Wales. Það er allt í þessu fína með þau, bara ástfangin og sæl með lífið og tilveruna. Voru búin að vera tvo daga í sumarhúsi foreldra Dave þar sem þau voru í 22 stiga hita. Svava Rán sólbrann en Dave varð dökkbrúnn og enn sætari fyrir vikið að sögn hennar. Hún segir að hann megi ekki hugsa um sól þá verði hann brúnn.
Við hringdum svo til Iowa City USA og þar svaraði höfðinginn Karl Kolbeinn og sagði að mamma sín og pabbi hefðu farið fyrir svona tíu mínútum ti Chicago og ætluðu að hitta þar einhverja Íslendinga. Hann var heima og Tim vinur hans hjá honum en átti von á barnapíu rétt bráðum. Það rigndi en snjóaði hagléli öðru hverju á stærð við "golfballs" að sögn Kolbeins.

föstudagur, 18. apríl 2003

Við vorum að koma úr bíltúr með Jónu Stínu og Finna. Við keyrðum um yndislegastu sveit landsins, Flóann. Það er svo gott að vera staddur í Bæjarhreppnum og horfa yfir fjalllaust landið og sjá þar sem haf og himinn mætast. Við byrjuðum á Eyrarbakka og Stokkseyri, þá tekur Bæjarhreppurinn við og síðan Villingaholtshreppurinn og við beygðum Urriðafossafleggjarann og sáum hið nýja brúarstæði fyrir Þjórsárbrú. Skoðuðum aðeins ný hverfi á Selfossi og undruðumst uppbygginguna þar en enduðum í ís í Eden, rétt eins og í gamla daga.
Í hádeginu hjálpuðum við Grétu og Gunnari að borða afganga úr fermingarveislu Kolbrúnar. Þrátt fyrir 70 manna veislu í gær var nóg til handa stórfjölskyldunni í dag.
Ég hef stundum kvartað við hann Simma minn yfir því að það sé bara ekki hægt að rífast við hann eða fá hann til að ræða út um ýmis málefni sem mér finnst þurfa að útkljá. Þetta getur gert mér ansi gramt í geði. Hann hefur alltaf haldi því fram að það sé betra að þegja en að segja einhverja vitleysu. Hann hrósaði líka sigri þegar hann las málháttinn sem hann fékk í páskaegginu sem ég gaf honum og hann stalst til þess að borða á skírdagskvöld. Málhátturinn hljóðar svona: Þögn er viskutákn en mælgi heimsku mark.

fimmtudagur, 17. apríl 2003

Hann sonur minn sendi mér þetta ljóð og ég hugsaði um leið:" Mikið rosalega er strákurinn minn góður, hann jafnast á við bestu ljóðskáld sem Ísland hefur alið." En ég misskildi sendinguna auðvitað, hann var bara að segja mér hversu góður Steinn Steinar var og hversu vel valin orð standa tímans tönn.

Nú baðar jörð í blóði,
og barist er af móði,
og þessu litla ljóði
mun lítil áheyrn veitt.
Og þótt ég eitthvað yrki
um Englendinga og Tyrki,
má telja víst það virki
sem verra en ekki neitt.

Ég ligg hér einn og lúinn,
úr lífsins harki flúinn,
og vilja og vopnum rúinn
á vinsamlegum stað.
Manns hug ei hátt skal flíka,
ég hefi barist líka
og átt við ofraun slíka.
En ekki meira um það.

Vort líf er mikil mæða
og margt vill sárið blæða,
og knappt til fæðu og klæða
er kannske nú sem þá.
En samt skal sorgum rýma,
þótt sækist hægt vor glíma,
því eflaust einhverntíma
mun einhver sigri ná.

Og berjist þeir og berjist
og brotni sundur og merjist,
og hasli völl og verjist
í vopnabraki og gný.
Þótt borgir standi í báli
og beitt sé eitri og stáli,
þá skiptir mestu máli
að maður græði á því.


Steinn Steinarr
1908-1958


Hefði þetta getað verið samið í gær?
--

Karl Æ. Karlsson
Department of Psychology
Behavioral and Cognitive Neuroscience
E-415 Seashore Hall
Iowa City, IA 52242
Home Tel: +(319) 338-9318
Lab Tel: +(319) 335-3975
e-mail: karl-karlsson@uiowa.edu
Ég er ekki gerð fyrir það að vinna á veitingastað. Ég get ekki selt hluti sem ég bý til sjálf eða hann Simmi minn og ég get ekki rukkað fólk sem gleymir að borga og ég verð svo þreytt í fótunum á "plammpinu" (skyldi þetta vera gott og gilt íslenskt orð?) fram og til baka að ég er alveg að niðurlotum komin eftir smá stund. Sem betur fer er komið að stuttu fríi.

þriðjudagur, 15. apríl 2003

Hún er kölluð Karlotta. Fallegt nafn. Ég heyrði hennar fyrst getið fyrir nokkrum vikum. Það var hringt í mig og ég spurð hvort ég vildi hitta hana í október. Ég varð svo glöð að ég fór að gráta. Ég held að ég hafi haldið að ég myndi aldrei hitta hana. Það er reyndar ástæða fyrir því. En það er komið í ljós að hennar er von og ég hlakka alveg rosalega mikið til.

mánudagur, 14. apríl 2003

Í dag hófst páskafrí hjá mér sem kennari. Það er ósköp ljúft og ég segi nú alltaf, þegar fólk segir :"Bara komin í frí, ha?" að það séu forréttindi að fá að vera kennari. Þá nennir fólk ekki að tala meira um þetta, finnur líklega að ég er í kennslu af eintómri hugsjón en ekki vegna löngu fríanna sem ég fæ alltaf öðru hverju. Ég fór á sama tíma á fætur og venjulega en ekki til að fara í skólann heldur í Mosó að reyna að hjálpa til við störfin á Króniku. Það er ótrúlega erfitt að detta svona inn dag og dag og eiga að finna á sér hvað á að gera næst. Það gleymist ýmislegt sem kokkurinn heldur að ég finni á mér að eigi að gera. Og svo fæ ég skammir en þær fara nú bara inn um annað og út um hitt. Enda sé ég ekki hann Simma minn fara upp í skóla og redda einum íslenskutíma bara rétt si svona. Ég sé hann ekki fyrir mér kenna um viðtengingarhátt sagna eða undirflokka fornafna.

sunnudagur, 13. apríl 2003

Söngurinn hefur hljóðnað og fermingarveislan afstaðin. Ég skaust í Mosó til að hjálpa til við frágang. Hugsa með sér, hann Simmi minn var með fermingarveislu í dag. Ég bara spyr, hvar var hann eiginlega þegar börnin okkar fermdust? Af hverju eldaði hann ekki matinn þá? Ef ég man rétt keyptum við dýrum dómum kokka og fínerí til að hafa allt sem flottast. Mig grunaði bara ekki það, og sjálfsagt ekki hann heldur, að hann gæti kokkað, hvað þá séð um veislu. Ég er búin að vera gift þessum manni í 31 ár og kysst hann í 35 ár og er enn að kynnast honum. Þvílíkt og annað eins. Hvenær tekur þetta enda? Ég held ég vilji engan enda það er alltaf jafn spennadi að hitta hann að loknum vinnudegi, jafnvel eftir öll þessi ár, hversu súr og sæt sem þau hafa verið.
Pálmasunnudagur runninn upp bjartur og fagur. Simmi minn er farinn í Mosó að sjá um fermingarveislu. Ég þarf að vera hérna heima til þess að syngja við fermingarmessu í Þorlákskirkju. Hann hefði nú heldur viljað hafa mig með en svona er lífið. Mér finnst það líka ágætis afsökun að þurfa að syngja við messu því ég á mjög erfitt með að sjá um mat og þjónusta fólk. Það vantar í mig þann þáttinnn. Ég verð svo stressuð að ég fæ andarteppu. Ég er hrædd um að það sé of lítill matur, hann sé vondur, illa fram borinn og allt sé ómögulegt. Ég er þokkaleg í skúringum og uppvaski en ekki þó nema rétt þokkaleg. Ég er ómöguleg í afgreiðslu. Ég gaf fólki í gær kökusneiðar með kaffinu af því mér fannst kökurnar ljótar og ekki hægt að selja þær. Þar tapaði Snör ehf.

laugardagur, 12. apríl 2003

Dagurinn var tekinn snemma. Það þurfti að koma Dúllu Jones á Leifstöð, í veg fyrir flug eins og Reyðfirðingar segja. Þegar við mættum þar, með klukkutíma fyrirvara, leist okkur ekki á blikuna. Leifstöð var eins og hin fræga stappaða síldartunna nema hvað það flæddi út úr henni. Ég giska á að um 100 farþegar hafi verið í biðröð fyrir utan hús, komust hreinlega ekki inn. Við sáum að Dúlla næði aldrei á tilskildum tíma í innritun. En það kom tilkynning, í hátalarakerfinu, að allir á leið til London hefðu forgang og hinir farþegarnir ættu að hliðra til. Síðast þegar ég heyrði í henni var hún að hlaupa að hliði 32. Á þessari stundu, klukkan 10:50, ættu þau skötuhjú, Dúlla og Dave Jones að vara að hittast á Heathrov (andsk...ég kann ekki að skrifa híþró). Þarf að fletta því upp.

fimmtudagur, 10. apríl 2003

Ráðgátan, um hvort Íslensk málnefnd væri virkilelga hætt að reyna að uppræta þágufallssýki, er leyst. Magnþóra kom með úrklippu úr DV handa mér þar sem Silja Aðalsteinsdóttir er að fjalla um besta aprílgabbið. Þetta með þágufallssýkina var aprílgabb í málfarsmínútu Spegilsins. Ég fer alltaf í dálitla fýlu þegar fólk er með aprílgabb þar sem ekkert þarf að "hlaupa", ég er á móti svona asnalegu gabbi, en það má segja að ég hafi "hlaupið" núna því ég eyddi löngum tíma við tölvuna í gær að lesa heimasíðu Íslenskrar málnefndar þar sem ég leitaði dyrum og dyngjum að einhverri umfjöllun um þágufallssýki en fann ekkert. Sem von er. Við ætlum að berjast aðeins lengur við þessa meintu sýki en ég spái því að komandi kynslóðir eigi eftir að slaka á kröfunum um notkun ópersónulegra sagna.

þriðjudagur, 8. apríl 2003

Heyrði því fleygt að Íslensk málnefnd væri hætt að skipta sér af þágufallssýki. Mig bráðvantar nánari fréttir af þessu.
Pöntunarþjónustan kemur með kjöt í karrí í kvöld. Ég mun anga af indversku kryddi í skólanum í kvöld en til stendur að breyta okkur Ástu í sminkur. 10. bekkur ætlar að uppfæra hið vinsæla leikrit Síldin kemur, síldin fer. Ég sá generalprufu í gær og krakkarnir standa sig með prýði. Hlakka til að sjá þetta aftur.
Við, stelpurnar í saumaklúbbnum, náðum að kjafta saman til klukkan rúmlega eitt í nótt. Aldrei slíku vant. Við gleymdum okkur bara alveg yfir einhverju skemmtilegu fánýti. Til þess er leikurinn gerður. Ég hef líka fengið að finna fyrir því í dag, dauðsyfjuð, því venjulega sef ég tvo til tvo og hálfan tíma fyrir miðnætti.

mánudagur, 7. apríl 2003

Pöntunarþjónustan er búin að hringja. Nú fékk ég að velja á milli spaghettí bolognese eða plokkara. Ég valdi plokkarann vegna umræðna í síðustu viku (eða var það þar áður) um þverrandi fiskát Íslendinga. Ég mun bæta aðeins úr því í kvöld. Ég mun væntanlega seðja sætabrauðshungur mitt síðar í kvöld en það er saumaklúbbur hjá Svanhildi. Það verður ljúft að slaka á með stelpunum.

sunnudagur, 6. apríl 2003

Talaði við Kalla í gærkvöldi. Það er allt gott að frétta í Ameríku, þannig lagað, gott veður og allir hraustir. Kolbeinn er farinn að sýna gelgjustæla, ekki orðinn tíu ára gæinn. Hann skammast sín stundum fyrir foreldra sína. Hefur beðið Elsu að klæða sig eins og hinar mömmurnar eru klæddar. En eins og allir vita, sem þekkja Elsu, færi hún aldrei út úr húsi í gallabuxum, strigaskóm og í bol með áletruninni IOWA. Ég benti Kalla á hvað hann og Svava Rán hefðu haft það gott að þurfa aldrei að skammast sín fyrir okkur, gamla settið hans. Kalli kímdi og spurði mig hvort ég myndi ekki eftir því þegar hann og Svava Rán kúrðu ofan í aftursætið á bílnum, áleið út úr þorpinu, því þau skömmuðust sín svo rosalega fyrir okkur að það mátti enginn af þeirra vinum sjá þau með okkur. Minni mitt náði nú ekki svona langt að kannast við þetta en spurði hverju sætti. Jú, pabbi var með bólur á enninu og kenndi síðum hártoppi um. Til þess að losna við bólurnar tók hann toppinn frá með grænni spennu. Hvernig áttu þau að lifa með þessum hryllingi?

laugardagur, 5. apríl 2003

Ég finn fyrir sorg þegar ég sest fyrir framan tölvuna mína og opna síðuna mína. Mér verður hugsað til þeirra sem hafa hætt að skrifa um hugðarefni sín á netið vegna ömurlegra umsagna sem þeir fá um skoðanir þeirra á lífinu og tilverunni. Mér finnst þetta svo skemmtilegur vettvangur til þess að skrifa um allt og ekkert og hefur liðið vel með það hingað til. Veit ekki hvert framhaldið verður. Ég hef reynt að innræta þá hugsun hjá nemendum mínum að virða skoðanir annarra en láta samt sína skoðun í ljós þó þeir séu ekki á sama máli en gera það kurteislega þannig að viðmælandinn verði ekki sár og móðgaður. Það að kunna samræðulist er lífsnauðsyn en það þarf þetta til, að virða það þó allir hafi ekki sömu skoðanir. Margt fullorðið fólk virðist gleyma allri kurteisi þegar það les skoðanir annarra og lætur allt flakka án þess að hugsa hvort það særi og meiði. Kurteisi kostar ekkert.
Ég tók próf um það hversu góð íslenskumanneskja ég væri hjá Eddu og útkoman er vægast sagt ömurleg. Ég fékk 5 stig af 20 mögulegum og umsögnin var þessi:
Do you speak icelandic? Þetta gekk kannski ekki alveg nógu vel en æðrastu ekki, íslenskan er svo ótrúlega orðrík að lengi væri hægt að tala með orðum sem enginn venjulegur Íslendingur hefði heyrt. En það er alltaf hægt að auðga mál sitt með lestri góðra bóka - og hjá Eddu eigum við nóg af þeim á sanngjörnu verði!
Á ég ekki bara að segja upp og finna mér aðra vinnu?

föstudagur, 4. apríl 2003

Kötturinn Ferguson hvarf að heiman fyrir rúmri viku. Hann stökk ofan af svölunum hjá Svövu Rán og kom ekki aftur eins og hann var vanur. Svava Rán er búin að vera ómöguleg yfir þessu. Það er búið að leita um allan Hornafjörð en enginn hefur séð köttinn. Viti menn- hann birtist í gærkvöldi fyrir neðan svalirnar og mjálmaði hátt og bauð sjálfan sig velkominn heim. Mikil varð gleði Svövu Ránar. Hún skilur ekkert í því af hverju kötturinn fór svona illa að ráði sínu eins og hún er góð við hann en málið er að hann er jú fress, ógeldur og þarf sitt.
Var ekki föstudagur í gær? Nei, það er föstudagur í dag. Er alltaf föstudagur? Nei, ég bara spyr, því ég skil ekki hvert tíminn fer.Einhver gáfaður maður sagði að tíminn væri afstæður. Ég verð að taka þátt í því.
Ég var á Enjokynninigu hjá Magnþóru í gærkvöldi og nú finnst mér allt svo ógeðslega skítugt hjá mér, því ég hef aldrei þrifið með Enjo. Og verra er að ég á ekkert Enjodót þannig að ég verð að hanga innan um drulluna og ógeðið heima hjá mér. Ég ætla að reyna að þrífa upp á gamla móðinn en það verður bara til að sýnast þangað til ég hef efni á að kaupa Enjo. Þar til - ryk, drulla og skítur.

fimmtudagur, 3. apríl 2003

Ég varð svo spennt í gær þegar Elsa hringdi og sagði að það væri hægt að fá flug núna frá Minneappolis fyrir 20 þúsund. Hún var að pæla í að senda Kolbein strax, þó skólinn væri ekki búinn, til að spara pening. Við höfum hingað til borgað hátt í 100 þúsund fyrir hann. Mér fannst hugmyndin hennar góð og fór strax að skipuleggja í huganum nýja uppröðun húsgagna svo færi vel um pilt hjá mér og talaði við Halldór í morgun um það hvort Kolbeinn mætti ekki koma í skólann þó stutt sé eftir af kennslu. Auðvitað var það velkomið. Þá eru þeir feðgar ekki eins hrifnir af hugmyndinni. Ég hringi í kvöld til að heyra betur í þeim.

miðvikudagur, 2. apríl 2003

Það er af sem áður var þegar ég stjórnaði skemmtanalífi okkar hjóna. Ef mig langaði að fara eitthvert eða gera eitthvað þá ákvað ég það og sagði Simma mínum frá því og hann kom með mér. Hann er allt í einu farinn að taka sjálfstæðar ákvarðanir. Segir hiklaust við mig að hann langi ekki að fara ef ég sting upp á einhverju. Hann hefur annaðhvort tekið út þroska núna á gamals aldri eða orðinn leiður á að ég stjórni öllu. Og ekki nóg með það heldur tekur hann einn og óstuddur ákvörðun um hvað skuli gert til skemmtunar. Hann sagði við mig í gærkvöldi: " Það verður farin óvissuferð á vegum Kiwanis á laugardaginn. Það er búið að skrá þig og þú kemur með." Ég sem hata óvissuferðir. Ég þoli ekki að vita ekki nákvæmlega hvað ég er að fara að gera, aðallega vegna klæðnaðarins. Hugsa sér að vera í útivistarfötum og lenda svo inni á fínum veitingastað? Eða vera í sparidressi og lenda í gönguferð úti í rigningu? Þetta hefur nefnilega komið fyrir mig og það er andstyggilegt.
Voðalega verður leiðinlegt að geta ekki lengur lesið það sem Murtan hefur haft að segja hingað til. Hún er hætt. En svona er lífið, allt breytist, ekkert er alltaf eins. Það verður að taka því.

þriðjudagur, 1. apríl 2003

Ég reyndi að herja út frí frá messusöng á páskum, á kóræfingu í kvöld. Ég vona að það gangi því þá ætlum við Simmi minn að fara austur á Hornafjörð og hertaka íbúðina hennar Svövu Ránar og vera þar frá því á skírdagskvöld og fram á annan í páskum. Tímann á svo að nota til þess að heimsækja Austfirðinga.
Á sunnudaginn áttum við Simmi minn 31 árs brúðkaupsafmæli. Er það ekki bara vel af sér vikið?

mánudagur, 31. mars 2003

Þegar ég var búin að kenna í dag og undirbúa næsta dag labbaði ég til mömmu og ætlaði að bjóða henni á kaffihús í Þorlákshöfn. Hún var upptekin en vildi endilega lána mér bílinn sinn. Ég þáði það og fór til Jóhönnu, keypti blóm handa eigendum verBÚÐARINNAR, þeim Hörpu og Benna og fékk mér þetta dúndurfína kaffi og hitti fullt að skemmtilegu fólki og frétti hitt og þetta. Aðaluppistaðan í verBÚÐINNI er fiskur, sem sagt fiskbúð en hana hefur jafn sárlega vantað og kaffihúsið. Þarna eru tvær flugur slegnar í einu höggi og útkoman lofar góðu.
Á föstudaginn fengum við Simmi minn okkur nýjan bíl. Nýjan, gamlan, auðvitað en snöggtum nýrri en sá rauði er við erum búin að eiga síðan skömmu fyrir jól. Nýi bíllinn gengur fyrir olíu en er samt ekki olíubíll, þrátt fyrir að gamli bíllinn hafi gengið fyrir bensíni og sé bensínbíll. Þetta hefur nú þegar valdið smá misskilningi því ég hef sagt við fólk að nýi bíllinn minn sé olíubíll og fólk sér mig þá fyrir sér á stórum tankbíl. Það er ekki þannig. Nýi bíllinn er árgerð 1999 og er rosalega góðður og þægilegur nema hvað hann fór ekki í gang í morgun. Ég varð alveg brjáluð og varð að hlaupa í skólann til að mæta ekki of seint á meðan Simmi minn fékk Jón Davíð til að draga í gang og eitthvað svoleiðis vesen. Ég vona að hann verði búinn að kaupa nýjan geymi eða nýjan bíl þegar hann kemur heim í kvöld.

sunnudagur, 30. mars 2003

Við, Ester, sluppum óskaddaðar frá ferðinni í Hólaskóg á Gnúpverjaafrétti nema hvað við fengum mjög svo takmarkaðan svefn. Ég sem tók með mér svefnpillur til öryggis gat ekki notað þær því við þurftum að vera á vakt alla nóttina. Hormónarnir flæða svo um blessaða unglingana að þeir ráða ekkert við sig. Fyrirbærið að hlýða er ekki til í þeirra vitund. Þeir gegna engu og virða hvorki reglur né boð og bönn. Það segir mér svo hugur að það ættu unglingarnir að koma með í farteskinu að heiman. Skólinn ætti ekki að þurfa að taka unglinga á hlýðninámskeið eins og hunda. Ég er pirruð, búin að standa í þessum bransa í 32 ár og alltaf versnar þetta. Agaleysið er algjört.
Fræðslan sem börnin fengu var fín og á meðan á fræðslunni stóð voru börnin til fyrirmyndar. Það mega þau þó eiga.
Í kvöld fá foreldrar þessara barna fyrirlestur frá Eiríki Péturssyni lögregluþjóni, þeim sama og var með krökkunum í Hólaskógi.

þriðjudagur, 25. mars 2003

Fyrstu tónleikarnir okkar með nýjum kórstjora voru í kvöld í kirkjunni. Hann er einnig undirleikari karlakórs Selfoss enda söng hann líka í kvöld. Það var slæðingur af fólki sem borgaði 1000 kall inn og þetta var bara ágætt hjá okkur. Við buðum karlakórsfélögum upp á kaffi og ,,meððí" á eftir.
Þá er næsta mál að pakka ýmsu dóti ofan í tösku, því sem dugar til sólahringsdvalar á Gnúpverjaafrétti. Ég er búin að pakka eyrnatöppum og svefnpillum enda verða ferðafélagar mínir 32 8. bekkingar. Til stendur að fræða ungviðið um skaðsemi fíkniefna svo það er best að enginn fái að vita um svefntöflurnar mínar.

mánudagur, 24. mars 2003

Fór í skólann, kyssti Simma minn bless fyir utan, kenndi, æfði leikrit fyrir árshátíð, fór heim í hádeginu, borðaði og vaskaði upp. Fór aftur upp í skóla með viðkomu í bankanum, lagfærði leikritið, tók aðra æfingu, fór yfir próf og undirbjó morgundaginn. Síðan var skipulagsfundur með tenglum 8. bekkjar vegna fyrirhugaðrar ferðar með bekkinn í fjallaskála. Gréta systir, sem er tengill, keyrði mig til Jóhönnu og þar keypti ég garn í peysu og síðan skutlaði hún mér heim og nú bíð ég eftir að hann Simmi minn komi með kvöldmat handa mér til að hita upp í bylgjunni. Ég held að það verði steiktur fiskur núna. Ég verð að útbúa kaldan brauðrétt í kvöld sem Karlakór Selfoss á að gæða sér á eftir tónleikana á þriðjudagskvöld. Svo er það imbakassinn í kvöld, eins og venjulega, nema hvað ég ætla að prjóna líka.

sunnudagur, 23. mars 2003

Þegar ég vaknaði í morgun leit ekki út fyrir að ég gæti staðið við það sem til stóð í dag. Ég vaknaði svo rám að það var eins og ég hefði verið að drekka vískí í heila viku og reykt Havanavindla með. Ég hef svo oft prófað það sko! Ég söng, í morgunsárið, Son Guðs ertu mað sanni, fyrir hann Simma minn, svona til að prófa röddina, og hann dæmdi mig alls ófæra til messusöngs. Ég dreif í mig heitt te og mýktust raddböndin allverulega en áhyggjur hafði ég samt talsverðar af framlagi mínu til söngs, því messan á Strönd var ekki það eina sem til stóð að syngja í dag heldur var einnig á dagskrá lokaæfing fyrir tónleikana næsta þriðjudag. Ég söng, sem sagt í dag, með minni ,,hámu og rásu" rödd í dag nánast óslitið frá klukkan hálf eitt til klukkan sjö. Hvort ég kem upp orði, í kennslu á morgun eður ei, kemur í ljós.

laugardagur, 22. mars 2003

Enn og aftur komin helgi. Það bregst ekki. Ég er hálf slorpíkuleg enn þá og fór ekki með Simma í Króniku eins og ég geri gjarnan á laugardögum. Ætla að ná þessari flensu úr mér en það er nú eins og það er, erfitt að liggja kyrr og hvíla sig. Áðan ætlaði ég að ná mér í Skólavörðuna á náttborðinu mínu og kíkja aðeins í blaðið en áður en ég vissi af var ég búin að taka af rúminu, koma sængurfötunum af stað í þvottavélinni, ryksuga kattarhár úr rúminu og henda sængunum út á svalir. Skólavarðan er enn óhreyfð. Ég skil þetta ekki, ég sem er yfirleitt svo rúðustrikuð get alls ekki skipulagt heimilisstörf. Þau gerast bara einhvern tímann.
Ég hef tekið eftir því að ,,snúíska" er vinsæl um þessar mundir. Þetta er mállýska sem mikið var notuð í saumaklúbbnum mínum í gamla daga þegar Begga Árna og Kata voru enn með okkur. Við gengum um ferbættar í bleðurvíðu. Simmi var á Fúrbelli og Jón heitinn Ólafsson á Fálaskelli. Við skemmtum okkur konunglega yfir svona löguðu þegar við enn áttum alla framtíðina fyrir okkur. Þetta mun upphaflega verið komið frá Tóta heitnum í Glóru, pabba hans Labba, en hann mismælti sig oft skemmtilega. Talaði t.d. um að fara til bakarans á rak við. Labbi hafði gaman að þessu og spurði fólk gjarnan hvort það vildi eina skeið eða skeina Eið. Begga gat svarað fyrir sig og spurði hann á móti hvort hann vildi heldur laminn krabba eða kraminn Labba. Núna, 20 árum siðar, heyri ég fólk skemmta sér yfir þessu. Mér finnst það frábært. Hvort viltu skafa hafís eða hafa skafís?

föstudagur, 21. mars 2003

Ég var ekki nógu hress til að fara í skólann í morgun en ekki nógu veik til að sofa á mitt græna. Þannig að ég er búin að hengslast hérna um íbúðina eins og ræfill og stytta mér stundir við ýmislegt eins og ráða krossgátur, lesa Sám eftir Sundman, vafra um netið, spjalla við Svövu Rán, brjóta upp handklæði, vaska upp frá því í gær, horfa á sjónvarpið, borða smávegis og horfa út um gluggann. Þetta er nú allnokkuð. Ég þoli ekkert kraftmeira en þetta því þá ætlar hausinn að springa. Ég hef'ði allavega ekki viljað standa fyrir framan englana mína í áttunda og þusa eitthvað um óákveðin fornöfn eða ræða við níunda bekk um það af hverju Sámur drap ekki Hrafnkel heldur gaf honum valkosti. Kennslan þolir engan heilsubrest. Spái því að ég verði skratti góð á morgun.

fimmtudagur, 20. mars 2003

Ég gafst upp um hádegið og fór heim þjökuð af flensunni sem hefur verið kölluð unglingaveikin. Svona er maður ungur í anda. Veikist af unglingaveiki. Ég ætla að vona að þetta verði fljótt að ganga yfir hjá mér. Sumir nemenda minna hafa veikst mjög mikið og legið meira en viku. Þetta er hundvondur andskoti. Mér er illt í hausnum, hálsinum, augunum er með beinverki og hita, er í hitakófi og fæ hóstaköst. Ég ætla að leggjast undir fiður. Nei, annars ég ætla að skríða undir nýja flísteppið sem Kaupþing sendi mér um daginn. Ekki veit ég af hverju.

miðvikudagur, 19. mars 2003

Bush ætlar í stríð til þess að það geti orðið friður í heiminum. Stríð og friður eru andstæður. Ætti ég að hringja í Bush og segja honum það? Það er ekkert víst að hann viti það. Hann fæddist ekki það gáfáður að vitið nýtist honum. Stóra spurningin er hinsvegar af hverju hann er að þessu brölti. Á kennarastofunni minni sýnist sitt hverjum. Sumir segja að hann vilji eiga olíuna þeirra þarna í Írak á meðan aðrir vilja meina það að það þurfi að eyða vopnum í heiminum svo vopnaframleiðendur hafi ástæðu til að búa til fleiri. Auðvitað eru peningar með í báðum dæmunum. Mér finnst bara að allir eigi að vera góðir við alla. Svo einfalt er það nú.

þriðjudagur, 18. mars 2003

Það er yfir 20 stiga hiti hjá Ameríkönunum mínum. Gróðurinn rétt að byrja að grænka en samt svona hiti. Ég vildi að þau væru nær svo ég gæti knúsað þau öll. Það er svo sárt að fá ekki að fylgjast með þroska barnabarnanna nema í gegnum símann og á myndum. Sem betur fer hefur fjölskyldan eignast digital myndavél þannig að ég fæ reglulega myndir af ömmuljósunum mínum. Ég kann bara ekki að láta þær út á netið. Mér er meinilla við að uppljóstra svona fákunnáttu minni en verð að játa mig sigraða.
Hann Simmi minn er alltaf að fá hugmyndir og ég dreg hann niður á jörðina jafnóðum. Það væri efni í heila bók að segja frá öllu sem honum dettur í hug að gera. Hann hefur nú prófað einhverjar þeirra, ekki get ég neitað því. Ein brilliant hugmyndin hans núna var að við myndum nota íbúðina hennar Svövu Ránar í páskafríinu á meðan hún skreppur til kærastans í Wales og nota tækifærið og heilsa upp á Austfirðinga. Frábær hugmynd en gengur ekki upp. Við erum boðin í fermingarveislu, hann á að sjá um aðra fermingarveislu og ég á að syngja í nokkrum fermingarmessum um páskana. Það mátti láta sig dreyma um skemmtilega tilbreytingu.
Sá þykist allt mega sem valdið hefur, meira að segja lýsa stríði á hendur öðrum þjóðum. Það er ekki eins að 21. öldin sé gengin í garð. Ástandið minnir á Evrópu á miðöldum þar sem smákóngar voru úti um allar trissur og börðust til að ná yfirráðum hér og þar. 48 stundir. Ætli Buskurinn haldi að hann sé að leika í spennumynd?

mánudagur, 17. mars 2003

Hvernig stendur á því að svona vitleysingar eins og Bush og Blair komast til valda? Ég bara spyr eins og fávís kona. Ég trúi því ekki enn að þeir ráðist á Írak, ég bara trúi því ekki. Ég hélt að mannskepnan væri vitibornari en þetta. Ég ætla að hlusta á beina útsendingu klukkan eitt í nótt og.............
Hún dótla mín hefði ekki áhyggjur af rykinu sínu ef hún sæi rykið hjá henni mömmu lummu núna. Ég þurrkaði nokkur rykkorn í burtu hjá henni og fæ hana til að líða illa yfir því. Já, hérna hér, það er ekki ofsögum sagt að aðgát skal höfð í nærveru sálar. Ég sem bara ræð ekki við þessa mömmutilfinningu að vilja stjana við ungana mína. Ég hef ekki enn náð þeim þroska að snúa þessu við. En það er ekki öll nótt úti enn!!!!!
Ég rakst af tilviljun um daginn á blogg þar sem minnst var á kennsluaðferð sem kallast að ganga í burt aðferðin. Mér lýst vel á þessa aðferð. Ég býst við að hún sé ekki alveg ný af nálinni en líkast til aldrei verið skilgreind sem kennsluaðferð áður. Henni var ekki lýst kennslufræðilega enda ekki skrifuð á þeim vettvangi eða verið að predika eitthvað nýtt. Í gegnum tíðina hef ég lesið um hinar ýmsu kenningar um kennsluaðferðir og kennsluhætti og þreifað mig áfram til þess að finna hina einu sönnu kennsluaðferð sem hentar best. Töflukennsla, bekkjarkennsla, einstaklingsmiðað nám, söguaðferðin, LTG aðferðin, bandprjónaaðferðin, leitarnám, ítroðsluaðferðin, hljóðaðferðin og ég veit ekki hvað og hvað. Þegar upp er staðið er hún líklega vænst til árangurs þessi sem kallast að ganga í burt aðferðin.

sunnudagur, 16. mars 2003

Við, Simmi minn, brenndum austur á Hornafjörð á föstudag og vorum komin þangað um hálf ellefu um kvöldið. Við áttum notalega helgi með henni dóttur okkar í fögru umhverfi Hornafjarðar. Útsýnið úr glugganum hjá henni er eins og málverk og ekki spillti veðrið fyrir. Stafalogn og hressandi þoka á laugardeginum en sólin skein á okkur í þegar við risum úr rekkju í morgun.Við fengum okkur langan göngutúr í gær og nutum veðurblíðunar. Elduðum góðan mat og höfðum það huggulegt. Svava Rán hefur tekið upp breytta lifnaðarhætti, hún er hætt að reykja, hugsar um hvað hún lætur ofan í sig og er byrjuð að synda. Batnandi manni er best að lifa.Hún er aðeins að pota í BA ritgerðina sína og er það eins gott fyrir hana að drífa hana af fyrst hún er ákveðin í að flytja til Wales í sumar. Erfiðara verður fyrir hana að ljúka við ritgerðina eftir að hún er flutt af landinu og farin að takast á við það að aðlagast nýju lífi.
Kötturinn Ferguson var mjög feginn að komast heim. Það er alveg ljóst að hann veit hver á hann og hvar hann á heima.

fimmtudagur, 13. mars 2003

Það ríður ekki við einteyming ólánið sem getur elt mann. Ég keypti mér sem sagt nýja baðvog um daginn, mjög nútímalega og flotta vog sem verslunin Rás hafði til sölu. Ástæðan fyrir því ég ákvað að eyða fjármunum í þetta tæki var að gamla vogin mín var frekar orðin ónákvæm. Ég gat nokkuð ráðið þyngd minni um u.þ.b. 5 kíló upp eða niður. Af því ég er frekar rúðustrikuð manneskja þoldi ég lítt áð búa við þetta ótrygga ástand. Og þá kemur áfallið. Hin nýja baðvog sýnir 2 kílóum meira en hæsta tala sýndi á þeirri gömlu!!!
Ég er byrjuð aftur í vatnsleikfimi og búin að taka Neshringinn einu sinni og nú stendur til að fjölga þeim ferðum.

miðvikudagur, 12. mars 2003

Það er alveg ljóst að ég verð að skreppa austur á Hornafjörð um helgina og athuga með hana dóttur mína. Hún er farin að synda á hverjum degi, ískápurinn er fullur af hollum mat og hún er hætt að reykja. Ég þarf að sjá þetta með eigin augum, það er engin spurning. Best að nota tæikifærið og skila kettinum af mér um leið.

laugardagur, 8. mars 2003

Við höfum verið með ritunarátak í skólanum okkar að undanförnu sem hefur tekist frábærlega vel. Ég hef verið að velta fyrir mér einu stílbragði sem sumir nemenda minna nota en það er "þú-stíllinn." Þetta fer fyrir brjóstið á mér og ég notaði tækifærið í gær eftir námskeiðið og ræddi þetta við Baldur Hafstað. Hann var sama sinnis og ég og vitnaði í gamlan íslenskusnilling, sem reyndar kenndi mér efnafræði í Kennó, á sínum tíma, Helga Hálfdánarson. Hann var einhverju sinni að agnúast út í þú-stílinn og benti á fréttamanninn, karlmann, sem átti viðtal við fyrirsætuna sem svaraði honum alltaf með þú. "Þegar þú málar þig......" "Þegar þú gengur fram á pallinn í síðum kjól....." Eða unga manninn sem var að ræða við farlama gamlingja og notaði þú við að lýsa uppgöngu á fjall. Þessi dæmi sannfæra mig um að kenna nemendum mínum að gæta sín á "þú-stílnum." Auðvitað er hægt að nota hann en ekki um of.
Við, nokkrir samkennarar mínir, höfum verið á námskeiði hjá þeim snillingum Þórði Helgasyni og Baldri Hafstað. Þeir "agítera" fyrir hinu talaða orði í skólanum enda heitir námskeiðið Lifandi frásagnir í skólastarfi. Þeir vilja veg sögunnar hinn besta og telja að kennarinn þurfi að segja sögur til þess að fá nemendur til þess að gera það líka. Þeir létu okkur æfa þetta í gær og urðum við að standa upp fyrir framan hvert annað og segja sögu. Mér finnst allt í lagi að segja ókunnugum sögu. Það er öllu erfiðara að segja sögu fólki sem maður vinnur með og telur sig þekkja eða fólki sem þekkir mann sjálfan til margra ára. Ég lærði þarna inn á nýja hlið hjá mörgum gömlum vinum mínum og mun sjá þá í aðeins öðruvísi ljósi hér eftir sem er af hinu góða.

föstudagur, 7. mars 2003

Það er hægt að kynnast fólki sem maður þekkir!!!

miðvikudagur, 5. mars 2003

Maður skyldi aldrei segja aldrei. Það hef ég sannreynt nú. Ég hét því fyrir nokkrum árum að aldrei skyldi húsdýr búa á mínu heimili framar. Börnin mín héldu hin ýmsu dýr í gegnum tíðina og það lenti auðvitað á okkur gamla settinu að hugsa um dýrin. Má þar nefna kettina Flekk Karlsberg, Katrínu miklu, Klöru og son hennar Lúkas, páfagauka, hvítar mýs, hamstra, hundinn Vilhjálm prins, gullfiska, kanínur og hænur. Hvert þessara dýra á sína sögu sem ekki verður sögð hér en heitið strengdi ég fyrir nokkrum árum þegar Klara og Lúkas yfirgáfu þesssa jarðvist. Köttur að nafni Ferguson hefur nú búið hjá mér í þrjár vikur og hefur dvalið tvisvar áður niokkra daga í senn. Það að hann skuli búa hjá mér staðfestir það að ég hef enga stjórn á lífi mínu.
Árni Johnsen gerir það ekki endasleppt. Kvíabryggja verður án efa orðið að lúxus betrunarhúsi áður en langt um líður. Mér finnst nú alveg sjálfsagt að allir sofi í góðum rúmum, burt séð frá hvort þeir hafi gerst brotlegir við landslög eður ei. Það er einkennandi fyrir Árna að redda svona málum eins og að fá ný rúm þegar þau vantar. Mér finnst að það ætti að vera til staðall, hjá hinu opinbera, um það hve margar nætur eigi að sofa í rúmi áður en það er endurnýjað. Svo koma bara ný rúm þegar þau eru fullnýtt. Það hlýtur alla vega að vera til skrá um fjölda gistinátta í fangelsisrúmum svo þetta ætti að vera auðvelt. Skyldi vanta mann hjá Ríkinu í þessa stöðu? Staðan er kannski ekki til? Það mætti búa hana til handa mér.

mánudagur, 3. mars 2003

Ef ég byrja á morgun eða hinn að velja ofan í mig matinn, þá gæti ég verið búin að missa nokkur kíló áður en ég fer til Edinbogar. 12 vikur til stefnu......0,5 kíló á viku...... sem þýðir 6 kíló af.....vá þetta er möguleiki. Ákveð mig í fyrramálið.
Bolludagur
Bððððööööö...... búin að éta yfir mig af bollum.....þá hringir síminn......"Hvort viltu fiskbollur eða kjötbollur í kvöldmat?" er spurt. Ég, sem er með magann fukkan af rjómabollum og á algjörum bömmer yfir því, spyr símamanninn hvort fiskbollurnar séu framleiddar af Siggömmu. Svarið er játandi. Þá stenst ég ekki freistinguna og hætti snarlega við að borða ekki kvöldmat. Fiskbollurnar hennar Siggömmu eru bestar.

laugardagur, 1. mars 2003

Það var gaman í gær.
Það var allt í lagi í gær.
Það var fiskur í matinn.
Það var flott á henni hárið.
Það var hrint mér.
Það var rekið mig út úr tíma.
Það var stolið skólatöskunni minni.
Nemendur mínir hafa enga tilfinningu fyrir því að eitthvað sé að þessum þremur síðustu setningum. Ég er ekki tilbúin til þess að viðurkenna þetta sem málbreytingu sem er komin til þess að vera. Ég ætla að berjast gegn þessu a.m.k. þangað til ég fer á eftirlaun.Ef þetta er ein málbreytingin enn get ég ekki annað sagt en að málið breytist ótrúlega hratt hjá okkur. Við verðum að láta í minni pokann fyrir þágufallssýkinni, sjá á eftir beygingum sagna en nota þolmynd þannig að hjartað fær sting.

fimmtudagur, 27. febrúar 2003

Það hefur oft verið þrautinni þyngri að gera námsefnið það áhugavert fyrir nemendur að þeim þyki eitthvað varið í það. Hvað þá með íslenska málfræði, ljóð og ritun. Margur hausverkurinn hefur hlotist af við heilabrot um það hvað hljóti náð fyrir augum nemenda. Svo geta hlutirnir gerst án nokkurra heilabrota. Eitt lítið skyndiverkefni þótti það skemmtilegt að það var endurtekið á skátafundi um kvöldið. Ég sem hef oft notað gömul skátaverkefni í kennslunni til að reyna að lífga upp á hana. Mig grunaði aldrei að málið gæti snúist við. Þetta er það sem gefur lífinu gildi. Krakkaranir léku sér á skátafundi með skólaverkefni í ritun.

Með skyndiverkefni á ég við þegar ég læt krakkana gera eitthvað sem mér dettur í hug þá stundina, og dríf í því, en hef ekki eitt löngum tíma í undirbúning.

miðvikudagur, 26. febrúar 2003

"Mér vantar nýja skó en mér langar meira í nýjar buxur."
Ég hef reynt eftir bestu getu, allan minn kennsluferil, að kenna börnum að nota rétt fall með ópersónulegum sögnum. Ég hef fyrir löngu játað mig sigraða þó svo ég eigi erfitt með að hætta að reyna. Fyrir 20 árum gerði Ásta Svavarsdóttir rannsókn á þágufallssýki 11 ára barna og nú fyrir stuttu gerði Björn Gíslason svipaða rannsókn, einnig hjá 11 ára börnum. Niðurstaðan er sú að þágufallssýki eykst. Þolfallsfrumlag er á undanhaldi og þágufallsfrumlag er ríkjandi. Er þá til nokkurs að vera að eyða meiri tíma og fjármunum í að kenna það rétta og viðurkenna málbreytinguna? Málið er alltaf að breytast og þróast og þessi breyting virðist hafa náð fótfestu. Mér hefði einhvern tímann fundist hljómur uppgjafar í þessari uppástungu en það má nú skipta um skoðun og nú finnst mér ég bara vera nútímamanneskja að geta sagt þetta.

mánudagur, 24. febrúar 2003

Ég er ekki bara stolt af börnunum mínum heldur barnabörnunum einnig. Nanna litla, sem verður þriggja ára í maí og hefur dvalið 79 daga á Íslandi af ævi sinni ef allar dagar eru taldir, syngur íslensku barnalögin alveg eins og hver annar íslenskur krakki. Ég heyri það reyndar bara í gegnum símann. Við sungum saman í gær Krumminn í hlíðinni. Svo kann barnið náttúrlega fullt af amerískum barnalögum. Af Kolbeini er það að frétta að hann tók einhvers konar samræmt próf í ensku um daginn og fékk A+. Það fannst honum flott því þessa einkunn fengu ekki allir í bekknum, þrátt fyrir að vera amerískir. Ekki nóg með það heldur eru það bara þeir sem skara fram úr sem eru látnir þreyta prófið. Amma gamla á Íslandi er að vonum hreykin.
Ég var ákveðin í því í morgun þegar ég vaknaði að dagurinn í dag yrði dagurinn sem ég byrjaði aftur að borða eins og fugl. Það gekk svo vel frá því í byrjun ágúst síðastliðinn og fram að jólum. Það fuku ein 5-6 kíló. Frá jólum hef ég hins vegar borðað eins og hestur og búin að bæta tveimur kílóum aftur við. Þetta byrjar samt ekki vel. Það er vetrarfrí í skólanum og ég er að flækjast með Simma í Króniku og hann grillaði svo girnilega kjúklinga að ég stóðst ekki freistinguna og hámaði í mig vænum skammti og frönskum með. Jæja, ég byrja bara aftur á morgun.

sunnudagur, 23. febrúar 2003

,,Ég er ekki að fatta þetta."
Þetta er fyrirsögn á grein í Mogganum í dag, skrifuð af Baldri Hafstað prófessor við KHÍ. Ég er búin að bíða eftir því að heyra um þessa nýjustu breytingu á ylhýra málinu okkar frá fræðimönnum. Það er þegar hjálparsögnin að vera er notuð með sögn í nafnhætti. Nemendur mínir segja gjarnan: ,,Ég er ekki alveg að skilja þetta." ,, Ég er ekki að ná þessu." Ég hef heyrt þetta í yngri bekkjum einnig og hef haft miklar áhyggjur af þessu. Ég er fegin að fræðimenn á borð við Baldur hafi einnig áhyggjur. Málið okkar verður ansi fátæklegra af beygingum sagna ef þetta verður að málvenju. Baldur kennir íþróttafréttamönnum öðrum fremur um þessa breytingu. Það má vel vera að það sé rétt hjá honum, ég veit það ekki en við sem styðjum málvernd ættum að vera vel á verði. Kannski er þetta tískubóla sem springur en ef ekki þarf að bregðast við.
Hringdi til Ameríku áðan. Fjölsyldan var varla búin að nudda stírurnar úr augunum. Það er þetta með tímamismunin sem gerir sambandið enn erfiðara. Ég er venjulega sofnuð í miðri viku áður en þau koma heim úr vinnunni þannig að helgarnar henta betur til samskipta. Tímaritið sem Kalli fékk greinina birta í heitir Journal of Neuroscience. Það er tímarit fyrir taugasérfræðinga, líffræðinga og sálfræðinga sem fara inn á lífeðlisfræðileguhlið sálfræðinnar. Þetta er mikill heiður fyrir strákinn minn. Hann er að lýsa í greininni rannsókn sem hann gerði á rottuungum og varðar ákveðna tegund svefns ungviðis. Ekki veit ég hversu ánægður hann verður með þessa útskýringu mömmu sinnar en þetta er það litla sem ég skil í þessu. Mér finnst það alveg frábært að hann skuli vera að rannsaka svefn þar sem ég hef átt við svefnvandamál að stríða í 30 ár og hann virðist hafa erft þann fjanda frá mér.
Ég get endalaust verið stolt af börnunum mínum. Núna var Kalli að fá birta grein í einu af virðulegustu vísindatímaritum heims. Ég er bara ekki alveg viss um á nafnið á blaðinu, það kemur þegar ég hef náð sambandi við hann. Hann er bara alltaf í vinnunni drengurinn.
Enginn er eins duglegur að finna afsökun fyrir því að fara út að borða og við Simmi. Við hittum Ástu mágkonu og hennar fyrrverandi í bænum í gær, skoðuðum nýju íbúðina hennar og fórum svo á Carúsó, öll fjögur. Það er alltaf jafn gaman að fara á góðan veitingastað og eiga skemmtilegt spjall við skemmtilegt fólk. Íbúðin hennar Ástu er geggjuð. Ásta er líka alltaf jafn smekkleg og kann að koma sér flott fyrir.
Partýið var gott og alveg ótrúlega gaman að sjá upptökuna af skemmtiatriðunum. Allir svo ánægðir með þetta án þess að vera nokkuð montnir. Annars mættu skáldin, söngvararnir, tónlistarmennirnir, leikararnir og leikstjórinn alveg vera svolítið montinn með þetta því í mínum huga var þetta frábært.
Við Simmi fórum snemma heim því Krónika beið morgunsins. Það var eins gott að vera klár í þann slaginn því að á torginu var upphitun, frá klukkan 13:00, fyrir bikarleik Aftureldingar og HK. Mikil stemning myndaðist með tónlist, andlitsmálningu og bjórdrykkju. Hún gamla mín kann ekki alveg á þessa hluti og missti nokkru sinnum andlitið þegar hún sá fullorðna menn málaða í rauðu og hvítu í framan, í furðulegum fötum með skringilega hatta á höfðinu. Og svo klikkja þeir út með að þamba bjór. Ég sem hélt alltaf að íþróttir og áfengisneysla færi ekki saman. Alltaf er hægt að læra e-ð nýtt. Svo töpuðu þeir leiknum. "Kallagreyin."

föstudagur, 21. febrúar 2003

Ég hlakka til kvöldsins. Partý á vegum þorrablótsnefndar. Það á hella upp á mann bjór, snæða e-ð gott og horfa á upptöku frá þorrablótinu. Það er eins og fólk sé ekki búið að fá nóg. Fleirri, fleiri æfingar, blótið sjálft og svo þarf að sjá allt aftur á videoupptöku. En er þetta ekki alltaf svona. Þegar maður skoðar myndaalbúm þá staldrar maður lengst við myndir af sjálfum sér. Er ekki svo?

fimmtudagur, 20. febrúar 2003

Djöf....... er ég búin að vera löt að undanförnu að hreyfa mig. Ég nenni ekki í vatnsleikfimina og er mjög flínk við að búa mér til afsakanir til þess að sleppa við að fara án mikils samviskubits. Nú finn ég ekki fleiri afsakanir og verð að viðurkenna leti mína og ómennsku. Klukkuna vantar korter í..... nei, ég nenni ekki. Ég ætla að fara og klappa kettinum eða lesa eða hanga í tölvunni eða....... það er nóg að gera.
Talaði við Svövu Rán áðan. Hún var stödd í Leifsstöð á leið til Belgíu með 17 nemendur í skiptinemaferð. Mun dvelja á gamalkunnum slóðum í hálfan mánuð. Hópurinn verður í Antverpen þar sem Dúllan mín var í heilt ár í háskóla 1996-1997. Hún segist vera búin að jafna sig þokkalega eftir slysið. Hún var fegin að hún svaf í rútunni frá Hornafirði þegar farið var fram hjá slysstaðnum. Hún er enn með sauminn í höfðinu og öll marin og blá á öðrum handleggnum. Uppáhldsstaðirnir hennar í Antverpen hjálpa henni örugglega að jafna sig betur andlega.
Pabbi varð 75 ára í gær. Við, stórfjölskyldan, gáfum honum rennibekk. Hann varð eins og smástrákur á jólum með gjöfina sína og sagði að við fengjum öll e-a rennda hluti í jólagjöf t.d. borðfætur. Gott hjá gamla.
Það er bara alltaf frí. Þetta átti nú ekki að hljóma eins og ég væri mikið að kvarta. Á mánudag er vetrarfrí í skólanum og í þar næstu viku er öskudagur sem reyndar er ekki frídagur en við gerum örugglega eitthvað annað en að stunda hefðbundna kennslu. Í fyrra komu margir krakkanna í grímubúningum og ég lét bekkinn minn gera allt vitlaust, af ánægju, í skólanum. Við fórum fram í hol, í halarófu, og sungum um leið og við bönkuðum upp á í öllum kennslustofum og drógum alla fram með okkur. Þetta var algjörlega óundirbúið. Ég var reyndar búin að undirstinga skólastjórana. Sumir nemendur og kennarar voru hálf tvístigandi í fyrstu en það tókst að ná öllum fram og var gengið um alla ganga, upp og niður stiga og sungið. Ævintýrið endaði í snigli inni í turni. Ég var þarna að stela 30 ára gamalli hugmynd. Við gerðum þetta í Kennó á sínum tíma en þá fórum við í aðra skóla. Yfirgáfum Kennó og héldum syngjandi upp í Stýrimannaskóla í, halarófu, þaðan í Menntaskólann við Hamrahlíð og enduðum í MR. Það var alstaðar tekið vel á móti okkur og tekið undir grínið nema í MR af e-m forpokuðum ástæðum.
Lítið fór fyrir kennslu hjá mér í gær. Ég kenndi bara fyrsta tíma og fór svo með skólanefndinni í skólaheimsóknir í Reykjavík.Við Hildigunnur erum fulltrúar kennara í skólanefnd. Við heimsóttum Víkurskóla, sem er enn í byggingu, og Engjaskóla sem er tiltölulega nýr. Við kíktum í Kennarahúsið, borðuðum á Pottinum og pönnunni og skoðuðum nýbygginguna við Melaskóla. Þetta var mjög fróðlegt allt saman, í ljósi þess að til stendur að stækka skólann okkar, einu sinni enn, og það má margt læra af öðrum. Sérstaklega var okkur bent á hvað gleymdist af hálfu arkítekta og varð að bæta úr eftir á ef það var þá hægt.

þriðjudagur, 18. febrúar 2003

Svava Rán ber sig vel í dag. Adda, sú sem keyrði bílinn, er búin að heimsækja hana og þær spjölluðu um slysið sem er gott fyrir þær báðar. Adda var nýbúin að kaupa bílinn og hann var ekki í Kaskó þannig að nú á hún engan bíl en bara skuld. Svava Rán ætlar að halda því til streytu að fara til Belgíu. Það er á fimmtudaginn sem sú ferð er fyrir löngu plönuð. Það er vegna Belgíufararinnar sem kötturinn Ferguson er einu sinni enn til húsa hjá okkur Simma. Við erum eins og amma og afi hans. Hann fær að sofa í millini eins og Kolbeinn gerir þegar hann er hjá okkur. Nú fékk ömmuhjartað hnykk. Ég á tæplega þriggja ára sonardóttur sem aldrei hefur sofið í millinu. Hvenær það verður fer eftir framtíðarplani foreldra hennar.

mánudagur, 17. febrúar 2003

Ég er búin að þakka guði fyrir það að eiga hana dóttur mína á lífi í dag. Hún lenti í bílslysi í gær og það var ekkert nema guðsmildi að hún og mæðgurnar sem hún ferðaðist með skyldu sleppa lifandi. Bíllinn fór tvær veltur en endaði á hjólunum sem betur fer því bíllinn valt í hnédjúpu vatni. Þær fara sem sagt á bólakaf tvisvar sinnum áður en bíllinn stoppar. Svava Rán fékk sár á höfuðið og voru tekin fimm spor í það á heilsugæslunni á Kirkjubæjarklaustri en þangað fór lögreglan með þær eftir að vegfarandi hafði skutlað þeim heim á e-n sveitabæ fyrir austan Klaustur. Á svona stundum er erfitt að vera langt í burtu frá sínum nánustu. Svava Rán hefði þurft áfallhjálp þarna strax en henni fannst hún þokkalega hress sem reyndist ekki rétt mat hjá henni. Þegar hún var komin ein heim í íbúðina sína klukkan hálf þrjú í nótt gat hún ekki sofnað og endaði í taugaáfalli í morgun. Hún gat þó beðið skólastjórann sinn að keyra sig á heilsgæsluna á Hornafirði og þar fékk hún huggun og róandi og er búin að sofa vel síðan. Vaknaði áðan og leið miklu betur.

sunnudagur, 16. febrúar 2003

Simmi minn er búinn að vera svo duglegur að synda undanfarið. Hann fer klukkan hálf sjö á morgnana í sundlaugina áður en hann fer í Mosó. Þá dreg ég sængina betur yfir haus. En ég skrönglaðist með honum áðan. Eyddi hluta úr dýrmæturm sunnudagsmorgni í að synda. Ég verð nú að viðurkenna það að það hressir og bætir bæði líkama og sál. Ég var svo hress þegar ég kom heim að ég tók skurk í bókhaldinu.
Elsa, tengdadóttir mín, á systur sem heitir Kristín og býr í Seattle í Bandaríkjunum. Hún flutti þangað með honum Emil sínum fyrir átján árum eða svo. Þau eru stödd á Íslandi núna. Emil í fyrsta skipti eftir að þau fluttu. Þau voru svo sæt að koma í mat í Króniku til að heilsa upp á Simma á föstudaginn. Magga, mamma Elsu og Kristínar, var með þeim. Ég missti af þeim, því miður. Emil var að gera samning við Hampiðjuna. Hann skiptir heilmikið við þá vegna einkafyrirtækis síns en hann býr til dráttartóg fyrir jeppa og eru umsvif hans alltaf að aukast.
Föstudagurinn var fínn í Króniku. Innkoma dagsins nær líklega þriggjastafa tölu. Það gerist nú ekki oft. Það sem gerði skurk í daginn var samstarfsfólk mitt. Á leið heim ofan af Skaga var komið við hjá honum Simma mínum og hádegisverðurinn snæddur þar. Þær voru ekki síður ánægðar vinkonur Simma sem reka verslanir á torginu því vinkonur mínar sáu ýmislegt nýtilegt hjá þeim og hendur skiptu um aur og varning.
Ég sá ekki þáttinn um Michael Jackson fyrr en í gær þannig að ég var ekki umræðuhæf fyrr en nú. Mér hefur sýnst umræðan snúast um hversu mikið viðundur Mikki sé en mér, finnst eftir að hafa séð þáttinn, að þáttagerðarmaðurinn leiki sér einmitt með það og geri þáttinn út á það. Þetta var auglýst sem heimildamynd en er það alls ekki heldur þáttur í æsifréttastíl. Það var afskaplega lítið gert úr tónlistarhæfileikum mannsins heldur dregin upp mynd af einmana sérvitringi sem er raunveruleikafirrtur og býr sér til veröld til þess að lifa í því hann hefur ekki hugmynd um það hvernig hinn venjulegi maður gerir það. Hann er sorglegt dæmi um það hvernig frægð og auðævi geta farið með fólk. Ég gef ekki mikið fyrir þennan Martin Bashir sem gerir þáttinn. Er hann ekki viðundur á vissan hátt?

laugardagur, 15. febrúar 2003

Það er alltaf gaman að fá tilbreytingu í vinnuna sína. Hann var svo sannarlega öðruvísi föstudagurinn en venjulega en þá var hinn árlegi starfskynningadagur hjá nemendum okkar, sem foreldrafélagið sér um, en við kennaraliðið förum af staðnum. Nú héldum við upp á Akranes og heimsóttum þar báða grunnskólana. Fyrst fórum við í Grundaskóla þar sem gamall Kennaraskólafélagi er skólastjóri, hann Gutti, og svo heimsóttum við Brekkubæjarskóla þar sem ég kenndi frá janúar og til vors árið 2000. Ég fór inn í gamla bekkinn minn sem er núna 10.bekkur, var þá 7.bekkur, og heilsaði upp á liðið. Krakkarnir þekktu mig allir og átti ég góða stund með þeim. Það var líka gaman að hitta kennarana aftur þó spjallið við hvern og einn hafi bara verið stutt. Það er búið að byggja við skólann síðan ég var þarna, reyndar hinn skólann líka, og hefur vinnustaða kennara gjörbreyst frá því sem var.
Hégómagirndin er allt söm við sig. Það gladdi mig mjög mikið þegar ein í Brekkubæjarskóla spurði mig hvort það væri ekkert að éta í Þorlákshöfn. Sem sagt, hún sá að ég hafði grennst!!!!!

miðvikudagur, 12. febrúar 2003

Ætli fólk þroskist endalaust eða er lærir maður bara af reynslunni? Ég er sem sagt komin á sextug aldur (ég trúi því ekki að þetta standi þarna) og er enn að læra á sjálfa mig. Ég er kannski bara svona treggáfuð. Það er tvennt sem ég hef uppgötvað um sjálfa mig í vetur. Annað er það að mér finnst miklu betra að þurrka mér ,eftir bað, með litlu handklæði en stóru, svokölluðu baðhandklæði. Ég hef bara alltaf haldið að það ætti að nota baðhandklæði eftir bað og gert það án þess að hugsa. Til allrar lukku þá voru öll stóru handklæðin í óhreina tauinu einn daginn, ég varð að nota lítið og fann þá muninn. Hér eftir slít ég stórum handklæðum eingöngu við að þurrka á þeim ullarpeysur.
Hitt atriðið sem ég fann um sjálfa mig, einn góðan veðurdag fyrir stuttu, var hvað mér líður misvel eftir því í hvaða fötum ég klæðist. Í sumum fötum er ég lítil og feit en í öðrum næstum því "hoj og slank." Næst á dagskrá hjá mér er að henda út úr skápnum öllum "feitum" fötum og nota einungis þessi "grönnu.". Af hverju var ég ekk búin að "fatta upp á" þessu miklu fyrr? Skrítið.

þriðjudagur, 11. febrúar 2003

Mamma mín hefur alltaf talað um Sigrík Eiríksson, langafa minn, sem ónytjung og letiblóð, því hann hékk inni í bæ við lestur, skriftir og grúsk og sinnti engu um bústörf. Hann lét langömmu mína, Sumarlínu Sumarliðadóttur eina um störfin, hvort sem það voru innistörf eða útistörf. Það hefur, aftur á móti, alltaf verið talað um hana sem dugnaðarfork. Þau bjuggu að Krossi í Innri-Akraneshreppi en fluttu síðar í Hjallhús á Akranesi. Sá bær stóð nálægt þeim stað er Akraborgin lagðist að bryggju á Akranesi á meðan hún gekk. Sigríkur hefur heldur betur fengið uppreist æru með Íslendingabók, því þar er hann skráður bóndi og fræðimaður. Það sem ég veit um grúskið hans inni í bæ er að hann fékk lánaðar bækur á bæjum í sveitinni og skrifaði þær upp. Hefur sjálfsagt ekki haft ráð á að eignast bækur á annan hátt. Þessar bækur eru flest allar til á Landsbókasafni þ.e. allar nema þær er féllu í hlut Guðrúnar, ömmu minnar. Hennar hlutur er týndur.

mánudagur, 10. febrúar 2003

Sunnudagurinn leið í ró eins og vera ber.Ég las heilmikið og reyndi að láta fótboltagargið í sjónvarpinu, sem sumir í fjölskyldunni eyða sunnudeginum í, ekki hafa áhrif á mig en mikið djöf.... er það erfitt. Svo ég fór til mömmu í vöfflur. Þar hittist oft stórfjölskyldan á sunnudögum. Skemmtilegur siður. Þar fylgist maður með því sem er að gerast í fjölskyldunni. Í gær mættum við systurnar, Hulda og Steini. Jón Davíð var lasinn, Gunnar á leið heim af sjónum og eins og fyrr vqr getið, karlinn minn gjörsamlega límdur við sjónvarpið.

laugardagur, 8. febrúar 2003

Nú er vika síðan þorrablótið var og enn svífur andi þess yfir vötnunum. Eitt sem er svo skemmtilegt við það er hversu margir brottfluttir koma til að hitta vini og ættingja og skemmta sér með þeim. Það hlýnar mjög í mér hjartað á svona stundum sökum þess hve margir gamlir nemendur heilsa, jafnvel knúsa og kyssa mig. Þessum elskum sem koma svona fram hlýtur e-n tíma að hafa liðið vel í kennslustund hjá mér. Ég lít allavega þannig á þó svo mér sé það fulllsjóst að Bakkus eigi e-n þátt í knúsinu. Öl er innri maður.

föstudagur, 7. febrúar 2003

Ég var ákveðin í því að setjast í leisíboj þegar ég kæmi heim úr vinnunni og lesa e-ð af þessum bókum sem ég nældi mér í í gær. Ég settist en áður en ég vissi af var ég sprottin upp aftur og búin að þrífa íbúðina. Nú vantar ekkert nema blómvönd á stofuborðið. Þetta er voða þægilegt að losna við rykið og draslið án þess að vera búin að plana það áður.
Ég gleymdi að horfa á Sex and the city í gærkvöldi, það var e-n veginn ekki fimmtudagur í mér. Dótla mín segir að þær stöllur, Carrie og vinkonur, þroskist lítt og læri alls ekkert af reynslunni. Ég hefði nú samt viljað sjá þáttinn því þeim fer fækkandi. Þáttagerðarmenn á þrotum með hugmyndir og það er kannski farið að sjást á þáttunum. Líka svona af því að hún Inga var að líkja okkur Carrie saman þá vil ég nú fylgjast með henni á meðan hægt er. Það var líklega bara vegna píkusalatsskóna sem hún líkti okkur saman þrátt fyrir að verðmunur sé trúlega allnokkur á skónum okkar.
Mér finnst dómurinn yfir, karlanganum, honum Árna Johnsen einum of strangur. Honum varð, jú, á í messunni en það hafa margir stolið miklu meiru og komist upp með það. Ég get ekki annað en vorkennt honum innilega.

fimmtudagur, 6. febrúar 2003

Kallinn, sem ég skúra hjá, bað mig um að koma í bæinn eftir kennslu í dag því hann vildi endilega bjóða mér á tónleika. Ef það væri ekki hægt að fá miða gætum við farið í bíó. Ég tendraðist öll upp og rauk í bæinn um leið og við Ásta Júlía vorum búnar að gera kennsluáætlun fyrir næsta hálfan mánuð fyrir 8., 9. og 10. bekk í íslensku. Þegar til kom reyndist uppselt á tónleikana og myndin sem minn heittelskaði vildi sjá var ekki sýnd fyrr en klukkan 9 og það fannst honum of seint. Þá var plan C notað. Það er það skemmtilegasta sem ég veit. Notalegur staður, kallinn minn, með allar sínar skemmtilegu hugmyndir, kertaljós og pizza og rauðvín með. Ekki nóg með það heldur röltum við í yndislegu veðri í bókabúð (af hverju ætli þær séu opnar á kvöldin?) og keyptum okkur 6 bækur. Allar sín úr hverri áttinni en flottar bækur samt. 500 fyrstu orðin, Nanna fær hana. Halla, ljóð Steins Steinars, myndskreytt af Louisu Mattíasdóttur, Kolbeinn fær hana. Bót í máli, fyrir mig. Síðasta rannsóknaræfingin, fyrir Simma. Þjóðsögur við veginn, fyrir okkur og Sidney Seldon sömuleiðis. Náttborðið mitt er sem sagt fullt af bókum núna. Þá líður mér vel.

miðvikudagur, 5. febrúar 2003

Þegar ég staulaðist, paufaðist eða hentist heim úr skólanum seinnipartinn í dag, þá þakkaði ég máttarvöldunum fyrir það að ég hafði ekki lést meira en raun ber vitni (þrátt fyrir góðan ásetning) því ég hefði að öðrum kost fokið útí veður og vind. Ég ætlaði að kúra upp í rúmi með góða bók, veðrið og gnauðið í því segja að þannig eigi að hafa það í dag, en vinnan er alltaf með manni. Ég tók einn bunka af prófum með heim, er samt ekki byrjuð á þeirri yfirferð, heldur hef ég eytt núna einum og hálfum tíma í að skoða námsleikina sem skólavefurinn býður upp á. Ég er nú meiri asninn að eyða mínum síma í þetta í stað þess að gera þetta í skólanum en svona er þetta bara. Góða bókin sem bíður eftir að ég lesi hana heitir Fjölgreindir og fjallar um fjölgreindarkenningu Gardners. Fjölgreindarkenningin er í tísku núna og þar verður maður að tolla svo maður sé viðræðuhæfur. (Ég þoli ekki þetta maður hjá mér endalaust, ég verð að skipta um stíl til þess að þola sjálfa mig). Eins gott.

þriðjudagur, 4. febrúar 2003

Hann kom sér vel í morgun, trassaskapurinn í mér. Ég var sem sagt ekki búin að druslast við að skila hækjunum sem hann Steini lánaði mér í haust eftir hnjáaðgerðina svo að hann Simmi minn notaði hækjurnar til þess að komast út úr húsi í morgun. Það er ljótt að segja það en hann gat ekki stigið í fótinn en keyrði samt í bæinn. Hann gat ekki beygt ökklann og var mjög kvalinn. Hann er svo heppinn að það er læknamiðstöð í sama húsi og Krónika svo hann fór til læknis. Þá kemur það sem mér finnst svo einkennilegt. Það er ekki vitað hvað er að honum en samt fékk hann tvær tegundir af pillum og er strax miklu betri. Þeir ríða ekki við einteyming þessir læknar.

mánudagur, 3. febrúar 2003

Bara kennsla framundan og slaka á heima sagði ég í gær. Jæja, í dag byrjaði einn nemandi minn hjá mér í aukakennslu en það verður bara einn tími á viku. Ég prófarkalas líka í dag BA ritgerð frá gömlum nemanda mínum. Ég verð stolt þegar gamlir nemendur koma til mín eða hringja til að fá ráðleggingar, hvað þá þegar ég fæ að lesa BA ritgerðirnar þeirra. Það finnst mér heiður. Ég hef áður lesið BA ritgerð. Það var ritgerðin hennar Hörpu litlu Guiðfinns. Hún er stjórnmálafræðingur og þessi sem ég las yfir í dag er lika að útskrifaast sem stjórnmálafræðingur.Ég ætti kannski að fara að snúa mér meir að stjórnmálum? Ætli vanti e-s staðar góða samfylkingarmanneskju á lista? He, he.
Allir eru útum allt að tala um þorrablótið. Raddirnar eru allar jákvæðar, sama hvaðan ég heyri þær. Heimatilbúna skemmtiatriðið er komið til að vera. Ekki spurning. Ég má vera ánægð með að hafa átt hugmyndina og komið henni á koppinn. Það hefur meirra að segja flogið fyrir að það hefði alveg mátt sleppa Ríó tríóinu. En við vissum ekki í upphafi þegar Ríó var pantað að heimaatriðið yrði klukkutímaprógramm. Fyrst var talað um kortersprógramm en þegar snillingar mætast er allt hægt og þeir hefðu auðveldlega getað haft þetta lengra. Það verður bara þannig næst. En strákarnir í Ríó klikkuðu ekki frekar en venjulega.

sunnudagur, 2. febrúar 2003

Það held ég að blótið hafi lukkast vel. Ég var aldrei í vafa um að heimasniðnu atriðin myndu slá í gegn. Enda gerðu þau það. Allir mjög ánægðir, eða ég hitti allavega engan sem kvartaði. Mín reynsla er sú að það er alltaf mest gaman að bröndurum um einhvern sem maður þakkir og svo eigum við svo mikið af frábæru listafólki hérna, sem getur gert kraftaverk. Það var svo gaman í haust þegar ég fór á stúfana að tala við skáldin og leikarana. Það sögðu allir já, strax. Og allir með þessa hugsun að ef við ætlum að halda úti menningu í Þorlákshöfn þá verðum við að gera eitthvað í því sjálf. Svo var svo rosalega gaman á æfingunum. Mikið hlegið og mikið grínast. Ég er bara nokkuð ánægð með sjálfa mig og mitt hlutverk á þessu þorrablóti. Steinninn í maganum err farinn og fargið yfir mér er farið og það hrósuðu mér svo margir í gær að ég tek því eins og ég hafi komist þokkalega frá þessu. Þeir sem höfðu eitthvað við veislustjórnina að athuga komu allavega ekki að máli við mig.
Nú er bara ekkert að gera framundan nema standa sig í kennslunni og slaka á heima. Frábært.

laugardagur, 1. febrúar 2003

Það er búið að "snúlla" upp á mér hárið og teikna á mig nýtt andlit þannig að ég er að verða æðislega fín. Nú er bara að skella sér í kjólinn og píkusalatsskóna og standa sig!!!!!!
Jæja, þá er maður búin að hitta tilvonandi tengdasoninn. Við buðum skötuhjúunum upp á pizzu á Ítalíu í gærkveldi. Hann er svona þrælmyndarlegur, huggulegur og skemmtilegur.Ég skil hana dótlu mína alveg að falla fyrir þessum welska prinsi. Þau mæta svo auðvitað á þorrablótið í kvöld. Úbs, þorrablót...... nú fékk ég smá kipp og titring... jæja, þetta er að verða búið.