 |
| Rósavettlingar á einmánuði heita þessir |
Hef fengið óslökkvandi áhuga á rósavettlingum. Leitaði og leitaði að mynstrum og var við það að gefast upp þegar mér barst í hendurnar gersemi og gull. Bók með skrilljón uppskriftum af rósavetttlingum í ýmsum myndum. Fékk valkvíðakast, því ég vissi ekki hvar ég átti að byrja. Sá svo að það skipti engu máli, ég ætla að prjóna þá alla og það skiptir ekki máli hvar ég byrja. Þessir á meðfylgjandi mynd urðu fyrstir. Ég er núna búin með annan vetttlinginn og byrjuð á hinum. Ógeðslega flottir.,
1 ummæli:
Veit ekki hvort ég eigi að segja þér frá því en rósavettlingarnir mínir hafa líka vakið lukku hér í Bretlandi...
Skrifa ummæli