Síður

sunnudagur, 22. maí 2011


Fínir skápar
Þegar við fluttum í húsið, okkar fyrir tæpum sjö árum, var ekkert í baðherberginu nema klósett og sturta. Við vorum svo hepinn að eiga lítinn vask og blöndunartæki sem sett var upp og til þess að geta haft handklæði og annað baðherbergisdót þar inni notuðum við gamlar frístandandi hillur frá Svövu Rán. Handklæðaofn keyptum við og sturtuklefa. Ég var hætt að taka eftir þessu hálfkláraða herbergi, orðin samdauna einhvern veginn. Mér brá bara þegar gestir sögðu: "Má ég nota baðherbergið." Þá mundi ég eftir ástandinu og skammaðist mín.
Við létum loksins vera að því um daginn að kaupa innréttingu. Notuðum auðvitað heimamennina í smíðina þ.e. Fagus.
Ég er svakalega ánægð með baðherbergið mitt núna.
Gestir geta notað það að vild án þess að ég skammist mín.

2 ummæli:

murta sagði...

Við hlökkum öll mikið til að koma og kúka hjá þér :)

Guðrún sagði...

Hjartanlega velkomin, alltaf. Það er líka miklu skemmtilegra að kúka á svona fínu baðherbergi.