Steliþjófur
Ég stal perubrjóstsykri í dag. Alveg óvart. Það kom poki af perubrjóstsykri upp úr innkaupapokanum mínum frá Krónunni á Selfossi. Ég borða ekki perubrjóstsykur og kaupi hann þar af leiðandi aldrei. Þannig að nú langar mig helst að skila honum en veit ekki hver konan er sem hlýtur að eiga hann. Það er konan sem var á undan mér í röðinni. Það er nú svolítið skondið að ég var búin að stela af henni plastpokanum sem hún var búin að fá afhentan. Það var líka alveg óvart. Hún bað búðarstrákinn um annan poka og þegar ég fattaði hvers kyns var baðst ég afsökunar og konan brosti og sagði að þetta væri allt í lagi.
Hún hefði líklega ekki brosað til mín ef hún hefði vitað að ég væri í þann mund að sölsa undir mig brjóstsykrinum hennar.
Nú líður mér illa, vil sklia pokanum en veit ekki hvernig ég ætti að bera mig að því.
Kannski líður þeim svipað sem hafa sölsað undir sig miljörðum.
Langa til að skila þeim en vita ekki hvernig þeir eiga að bera sig að við það.
1 ummæli:
Ég er hlæjandi upphátt að þessu :) Og sammála; nammi með ávaxtabragði er tilgangslaust. Eða var það ekki áherslan í færslunni?
Skrifa ummæli