Síður

mánudagur, 25. október 2010

Taugagigt
Þegar ég vaknaði í morgun, ennþá að fá stingandi pílur í hausinn, ákvað ég að væla dálitið í Helga. Var svo heppin að eiga gat klukkan níu þegar símatíminn er hjá honum. Ég náði sambandi við hann og lýsti hausverknum svo nákvæmlega að hann sjúkdómsgreindi mig án nokkurrar umhugsunar. Taugagigt. Alltaf er nú eitthvað nýtt. Mér fannst allavega betra að fá úrskurðinn taugagigt heldur en heilaæxli eða heilablóðfall en það er það sem ég hélt að væri að mér. Annaðhvort eða bæði. Helgi gaf mér Voltaren og svo á ég að koma í blóðþrýstingsmælingu. Geri það á morgun. Komst ekki í dag sökum anna.

1 ummæli:

murta sagði...

Mér finnst þetta svaka fínt lúkk á blogginu. Vona að þér líði betur. Lov jú xxx