Síður

mánudagur, 30. október 2006

Íslenska orðabókin mín, sú sem Menningarsjóður gaf út 1963, er orðin ansi lúin og losnaði alveg úr kilinum á dögunum. Bók þessi hefur verið mjög mikið notuð síðan hún komst í mínar hendur en ég fékk hana sem viðurkenningu fyrir góðan námsárangur, frá Lionsklúbbi Selfoss, vorið 1967. Námsárangurinn var fyrir íslensku. Aðra bók fékk ég líka á þessum tímamótum mínum í lífi mínu, að útskrifast úr grunnskóla, en það var bókin Vandringer í Köbenhavn; sem sagt einhver sá ástæðu til þess að verðlauna mig í dönsku. Það er dálítið skondið því síðast þegar ég var í Danaveldi og ætlaði að flíka þessari kunnáttu minni var mér alltaf svarað á ensku. Ég hef líklega ekki hljómað mjög dönskulega.
Það er ekki eingöngu orðabókin góða sem er mikið notuð um þessar mundir heldur les ég Norrænu goðafræðina fram og til baka, auk þess að leita upplýsinga um goðafræði á netnu. Í gær bættist svo Biblían við þennan bókabúnka sem uppflettirit til upplýsíngaöflunar og til þess að sefa fróðleiksfýsn mína.
Það er ekki svo að ég sé að fara á kaf í trúarbragðafræði heldur verður að sækja upplýsingar í þessi rit þegar krossgáta Morgunblaðsins er ráðin.

föstudagur, 27. október 2006


...og svo var nokkurra vikna reifi skorið af í dag...

fimmtudagur, 26. október 2006

Álag í vinnunni
vetur
álag í vinnunni
dimmt yfir
álag í vinnunni
hálsbólga
hausverkur
álag í vinnunni
váááá
álag í vinnunni
reddaðu þessu
sjáðu um þetta
gerðu þetta
gerðu hitt
hringdu
segðu
talaðu
bjargaðu
smá álag í vinnunni.

laugardagur, 21. október 2006


Renndum okkur í höfuðborgina í morgun í góða veðrinu. Dunduðum okkur við hitt og þetta skemmtilegt og fórum m.a. í humarsúpu í hádeginu til Kjartans í Sægreifanum. Þar er alltaf jafn gaman að koma þar við og ekki bregst súpan hjá honum. Við buðum löggilta unglingnum með okkur og fannst honum heilmikið til staðarins koma.

Strákurinn minn, hann doktor Kalli, skrifar samfélagsgagnrýni í Moggann í dag. Skemmtilegur penni strákurinn og sá hefur skoðanir á hlutunum. Ég held hann hafi hlustað meira á pabba sinn en mig.

miðvikudagur, 18. október 2006


Stundum væri gott að geta breytt tímanum.
Lengt sólarhringinn eða bætt dögum í vikuna.
Ég vildi alla vega að Lúkas Þorlákur og Dúlla Jones hefðu stoppað dulítið lengur á Klakanum kalda. Vikan er allt í einu liðin og mér finnst eins og við hefðum ætlað okkur að gera miklu meira en við gerðum. En samt sem áður gerðum við heilmargt og minningarnar eftir vikudvölina eru til staðar til að hlýja sér á.
Lúkas svaf í millinu,
hann lék sér á gólfinu,
hann lék sér í garðinum,
hann fór á bryggjurúnt með afa,
amma las fyrir hann,
afi fór í eltingaleik með honum,
og spilaði fótbolta með honum,
hann fékk þriggja ára afmælisveislu þar sem fjöldi fólks úr báðum ættum mætti,
hann fékk mjúka pakka og harða pakka,
amma og afi dáðust að stærðfræðihæfileilkum hans,
amma og afi fylgdust með honum leika sér í tölvunni,
og undruðust að eiga barnabarn sem talar ensku,
Lúkas heimsótti Huldi ömmu á hverjum morgni,
Lúkas heyrði bara íslensku í sjö daga.
Við mæðgurnar erum farnar að plana næstu samveru.
Hlakka til.

föstudagur, 6. október 2006


Nú eru aðeins þrír sólarhringar þar prinsinn af Wales kemur á Klakann til að vera hjá ömmu og afa í eina viku. Afi á kannski eftir að fara með hann á róló, eins og hann gerði í sumar í Wales, en þeir munu að öllum líkindum ekki fara í stuttbuxum. Það verður gaman að heyra hversu mikið hann hefur farið fram í að tala. Það er alltaf jafn skrítið að heyra hann tala ensku. "I´m doing great," heyrði ég að hann sagði um daginn þegar ég var að tala við Dabbiló í símann. Hann var í tölvuleik og gekk greinilega vel að eigin áliti. "Pardon me," segir þessi litla dúlla þegar hann hnerrar og hann notar "please" og "thank you" óspart. Það er ekki bara tungumálið sem hann lærir heldur menningin einnig. Hin rómaða breska kurteisi.

fimmtudagur, 5. október 2006

Haustið kom mér í opna skjöldu í morgun.
Ég hafði ekki nennt í sokkabuxurnar, bara til þess að fara strax úr þeim aftur í sundlauginni, svo ég stóð úti, korter fyrir sjö í morgun, í pilsi og berfætt í skónum og varð að gjöra svo vel og skafa allar rúður á bílnum mínum. Það var náttúrlega engin skafa í bílnum svo ég varð að hlaupa inn og finna mér eitthvað til að skafa með. Fann ég forláta spaða sem kom að góðum notum. Svo varð ég að skafa aftur eftir sundið, svo mikið var frostið.
En þá var ég komin í sokkabuxurnar og var líka heit eftir átökin í lauginni.

mánudagur, 25. september 2006


35 ár síðan ég varð kennari.
Þegar ég hitti hópinn fyrir utan FSU brá mér agnarögn.
Var þetta gamla fólk jafngamalt mér?
En þessi tilfinning varði bara smástund.
Þegar maður fór að spjalla þá þurrkuðust hrukkurnar út, aukakílóin hurfu, skallarnir fylltust af hári, gráu hárin breyttu um lit og allir urðu eins og þeir voru fyrir 35 árum.
Þetta var dásamlegur dagur. Veðrið gat ekki verið betra. Örlygur skólameistari sýndi okkur FSU. Siggi og Esther höfðingajar heim að sækja í stóra hellinn á skógræktarsvæðinu. Bjarni Harðar sögumaður fór á kostum.
Bjössi Jónasar hélt partý seinnipartinn fyrir C bekkinn. Þar gátum við spjallað í rólegheitum. Nú er meira verið að tala um barnabörnin heldur en manstu þetta og manstu hitt sem gerðist í skólanum. Ég var voða fegin því ég er búin að gleyma svo miklu.
Allir bekkirnir, A,B,C,D,E,F og U, hittust svo í Glersalnum í Kópavogi um kvöldið þar sem snæddur var veislumatur og dansað fram eftir nóttu.
35 ár í bransanum en það er allt önnur saga.

föstudagur, 22. september 2006

Hefði getað náð þrennu um helgina en af því ég sleppti árshátíðinni í gærkvöldi þá verður það bara tvenna. Er sem sagt komin í bíngódressið og er að bíða eftir að Kiwanismaðurinn minn komi heim af sjónum, því stjórnarskipti munu eiga sér stað í kvöld og við ætlum ekki að missa af því.
Á morgun eru það svo 35 árin...

fimmtudagur, 21. september 2006

Fyrsta skipti í sögu minni, sem fagmanneskju og með 100 prósent stéttarvitund, sem ég er ekki að skemmta mér á árshátíð kennara á Suðurlandi.
Lítið eftir af kvótanum.
Komið haust.
Ætla að halda upp á 35 árin á laugardag.
Með gömlum bekkjarfélögum.
Öllum á sextugsaldri.
Þarf að eiga eitthvað inni þá af úthaldi.

miðvikudagur, 20. september 2006

Ég er ekki búin að skrifa undir yfirlýsingu á stopp.is þess efnis að ég lofi að keyra samkvæmt lögum. Mér finnst bara að allir eigi að gera það. En ég er ekki frá því að þetta átak sé að skila sér. Alla vega fór enginn bíll fram úr mér í dag á leið minni í höfuðborgina. Ég ók á löglegum, auðvitað, alla leið og umferðin virtist öll vera á löglegum, þangað til ég kom á Miklubrautina, inni í borginni sjálfri og hægði niður í 60 km, þá var ég allt í einu orðinm fyrir. Bílar fóru fram úr mér bæði hægra og vinstra megin.
Svo varð ég ekki vör við bíladóna fyrr en á Hafnarsandi á leiðinni heim. Þar þustu bílar fram úr mér, sem keyrði minn fjallajeppa á 90 km, og hurfu út í buskann.
Vonandi komust þeir á leiðarenda heilir á húfi eins og Doktarinn sagði forðum.
"Húrra, komin heim heil á húfi", var Kalli litli vanur að hrópa og klappa saman lófum, þegar við komum heim úr bíltúr og ókum fram hjá fyrstu húsunum í þorpinu.
Hann hafði lært þetta í Doddabók sem lesin var mörgum sinnum sem kvöldsaga.

þriðjudagur, 19. september 2006

Kallinn minn á afmæli í dag.
55 ára kallinn.
Hann er einu ári, þremur mánuðum
og ellefu dögum yngri en ég.
Þannig að ég er eldri og frekari.
Kallinn minn.
Orðinn gráhærður.
Ég sé hann samt alltaf fyrir mér með svart hár, herðabreiðan og miðmjóan.
Hann hætti um tíma að vera miðmjór en er orðinn það aftur.
Flottur kallinn minn.
Annað aðaláhugamálið hans er að elda mat.
Hitt áhugamálið er allt annað.
Nema í útilegum þá grilla ég en hann býr til sósuna.
Kallinn minn til margra, margra ára.

mánudagur, 18. september 2006

"Amma, elskarðu þetta munstur?" sagði ömmustelpan þegar hún kom út af baðherberginu og hafði verið að horfa á sama mynstrið í nokkrum handklæðum, baðmottunni, sápuskálinni, tannburstaglasinu, klósettrúllustatívinu, klósettburstahaldaranum og snyrtivörustauknum.
Var nema von að barnið spyrði.

laugardagur, 16. september 2006

Húsmóðirin í mér tók öll völd í dag. Áður en ég vissi af var ég búin að ryksuga, þurrka af og skúra slotið. Þegar því lauk slettii ég í form og bakaði eina súkkulaðiköku. Ekk gert það í mörg ár eða svo. Ekki nóg með það heldur útbjó kallinn, sem ég skúra hjá, rækjusalat og það hefur ekki verið búið til á mínu heimili síðan fyrir Reyðafjörð og það eru 10 ár síðan við fluttum þangað. Og svo fengum við gesti og það gerist mjög sjaldan. Merkilegur dagur. Ég hlýt að vinna í lottóinu líka.
Ömmustelpu var skutlað til okkar og við erum búnar að fara í stóran hjólatúr og á róló og nú bíðum við eftir að steikin hjá afa verði tilbúin.
Veðrið er dáasamlegt og það ilmar steikarlykt úr öðru hverju húsi í þorpinu mínu. Friður og ró ríkir einhvern veginn yfir öllu.
Gott.

fimmtudagur, 14. september 2006

Það ætti að virkja þjóðarsálina til að fá réttlæti fullnægt og kveða niður óréttlæti í stað þess að virkja hana eingöngu til þess að standa með Íslendingum í útlenskri keppni eða söfnunum af ýmsu tagi þó að þær séu góðra gjalda verðar.
Af hverju tökum við okkur ekki saman og mótmælum háu matarverði? Eða háu bensín og olíuverði? Háum vöxtum, eyðileggingu landsins, rányrkju í hafinu svo eithvað sé nefnt. Við látum bjóða okkur ýmislegt óréttlæti, röflum heima við eldhúsborð og látum þar við sitja. Samtakamáttur þjóðarinnar er til en því miður ekki nýttur.

miðvikudagur, 6. september 2006


Gleðigrénjumúsin í mér lét heldur betur á sér kræla í morgun. Ég gat varla þakkað fyrir mig af geðshræringu.
Þegar ég kom inn í nýbúakennslustofuna mína eftir löngu frímínútur í morgun, beið mín veisluborð, blóm og gjafir. Börnin mín af erlendu bergi brotin héldu mér óvænt afmælisveislu. Þeim fannst það engu skipta þótt ég ætti afmæli í júní. Þau vildu bara einfaldlega gleðja mig. Sem þau svo sannarlega gerðu. Þau sungu afmælissönginn fyrir mig á íslensku og sögðu svo öll til hamingju með afmælið hvert á sínu tungumáli: tælensku, pólsku, litháísku, mongólsku og tagalog.
Þetta var afskaplega indæl og ljúf kennslustund, þar sem snæddar voru hnallþórur, drukkið kók, spjallað og hlustað á tónlist.
Svona dagar gera mann einhvern veginn að betri manneskju.

mánudagur, 4. september 2006

Ég sá einhvern tíma auglýstar forstofulausnir. Ég er enginn sérfræðingur í íslensku, alla vega veit ég að ég kann ekki allt sem ég vildi kunna, en þetta orð, forstofulausnir, fannst mér svo ljótt og asnalegt að það var næstum því fyndið.
En málið er að þegar ég flutti í nýjasta húsið mitt, þá vantaði mig forstofulausnir ef ég skildi orðið rétt. Forstofan mín er svo lítil og mjó að það rúmast ekki skápur þar og ómögulegt að hafa frístandandi fatahengi, því það tekur of mikið pláss. Ég er búin að hafa eitt slíkt síðan ég flutti inn, fyrir tveimur árum, sem Gréta systir lánaði mér. Það er þannig að þegar of margar flíkur hafa verið settar á það, þá dettur það á hliðina. Frekar pínlegt þegar það hendir gesti.
Í gær leystist forstofan eða þannig.
Við keyptum í IKEA tvö forláta fatahengi til að festa á vegg og höfum þau hlið við hlið svo mú er hægt að hengja upp margar yfirhafnir og leggja frá sér hatta ef vill. Forstofan stækkaði um helming.

sunnudagur, 3. september 2006

Á meðan Simmi minn, doktorinn og löggilti táningurinn unnu hörðum höndum við að gera upp Vesturgötu 46 sat ég inni í téðu húsi og réð krossgátuna í sunnudagsmogganum eða næstum því; á nokkur orð eftir. Gekk síðan út í sólina og góða veðrið og sópaði mulning, nagla, spýtnabrak og fleira rusl af gangstettinni fyrir framan húsið og reyndi að ímynda mér um leið allt það fólk sem hefur gengið þarna um í gegnum tíðina.
Það væri gaman að geta farið aftur í tímann og tekið tali nokkra menn og konur sem átt hafa þarna leið um og skyggnst inn í fortíðina, þó ekki væri nema nokkur andartök.

laugardagur, 2. september 2006



Frjáls eins og fuglinn

Ef ég væri fugl
væri ég föst í loftneti.