Síður

fimmtudagur, 24. febrúar 2005

Skrambans, ansans ári. Ég gleymdi mér í dag og fór heim og reif í mig hádegisverð og mundi ekki eftir kvennasúpunni fyrr en ég kom aftur upp í skóla. Og ég sem ætlaði að koma nýrri nafngift á framfæri um nafn á fyrirbærið. María á hugmynd að nafni. Ég má bara ekki láta það koma fyrir oftar að gleyma mér.
Mig vantar einhvers konar "rímænder."
Ég fór í mánaðarskoðunina í dag hjá Sjónlagi. Ég skora svona líka hátt. Kem rosalega flott út. Sé ótrúlega vel og allt það. Ég þarf samt að nota +1,5 við lestur og ég er ALLTAF að lesa. Þannig að ég keypti mér fimmtu lesgleraugun í dag. Ég dreifi þeim um allt hús. Hef ein á náttborðinu, önnur í forstofunni, þriðju í eldhúsglugganum, fjórðu í vasanum og fimmtu eru venjulega týnd.
En þvílíkur munur að fara í sund. Nú sé ég hverjir eru í lauginni og það besta er að ég sé hverjir eru í heita pottinum. Áður þurfti ég að hlusta á raddirnar og ég hafði það þannig ef ég þekkti þær ekki þorði ég ekki í pottinn. Nú er ég ekkert hrædd. Ef ég þekki ekki fólkið þá er það bara allt í lagi og ef ég þekki það þá er það líka í fínu lagi en áður átti ég kannski að þekkja það en sá bara ekki hver var á ferð. Það gat verið dálítið pínlegt.

Hann hringdi í mig í kvöld hann Lucky Luke, Lúkas Þorlákur, Lukku Láki og sagði: "hææææ." Ég skildi alveg hvað fólst í þessu. Hann saknar mín og vildi gjarnan sjá mig oftar og langar bara að segja mér svo margt. Ég held að nú sé komin tími fyrir ömmu að kaupa sér flugmiða og skreppa til Wales til þess að knúsa prinsinn. Posted by Hello

miðvikudagur, 23. febrúar 2005

Það verður örugglega bið á því að ég fái fataskápa í svefnherbergið. Pabbi setti þessa líka svakalegu fataslá þegar ég flutti inn en hún átti bara að vera til nokkurra nótta. En hann Simmi minn bætti um betur á meðan ég var í vinnunni í dag. Hann setti hillu yfir slánna. Þannig að nú hef ég 185 cm langa hillu til þess að setja draslið á sem enn er á stólum eða á gólfinu. Það er mjög þægilegt að hafa engar hurðir. Ég er dálítið spennt fyrir því. En ég á eftir að finna hvort ryk safnast upp á þessa hillu. Ef svo er nenni ég vafalaust ekki að búa lengi við þetta og kaupi mér fínan skáp með hurðum og skúffum og ýmsum græjum.

þriðjudagur, 22. febrúar 2005

Ég hef gætt að mataræðinu mínu í mörg ár, eiginlega síðan ég var 17 ára. Ég veit alveg hvað má og ekki má og fer næstum því alltaf eftir því. Ég hef alltaf passað að hreyfa mig mikið og var um tíma sjálf að kenna eróbikk. Samt er ég of þung og með of hátt kólestról í blóðinu. Ég hreyfi mig þó nokkuð ennþá. Geng í vinnuna, fer í leikfimi þrisvar í viku, syndi á morgnana og fer í göngutúra um helgar. Svo kemur tengdapabbi, sem ég hef haft áhyggjur af lengi vegna mataræðis hans og lítillar hreyfingar og mælist með kólestról eins og hjá nýbura og ekkert að blóþrýstingnum. Ég held að ég blási á allar kenningar um mat og hreyfingu.

laugardagur, 19. febrúar 2005

föstudagur, 18. febrúar 2005

Það er í dag ssem strákurinn minn mun verja doktorsritgerðina sína. Stór dagur. Kalli minn alveg að verða doktor. Doktor í lífeðlislegri sálarfræði eða heilafrumufræði. Það er ekki til almennileg íslensk þýðing á þessu. Hann hefur numið við Cognitive and Behavioral Neuroscience Department of Psychology University of Iowa
Hefur aðeins verið í rúm fjögur ár að stúdera þarna. Duglegur strákur sem ég á.
Hann hefur fengið margar greinar birtar í virtum vísindaritum um heiminn.(Til þess að sjá greinarnar þarf að slá karlsson k and blumberg á leitarstikuna). Hann mun byrja klukkan hálf þrjú í dag að tala að bandarískum tíma, þá er klukkan hálf níu í kvöld hjá okkur. Hann mun tala í klukkutíma og vörnin tekur um þrjá tíma. Hann ætlar að verja fyrir opnum tjöldum en ekki fara í hliðarherbegi eins og flestir gera við þennan skóla. Hann er ekkert kvíðinn, líklega er kvíðahnúrurinn bara í minum maga og pabba hans. En hann er vel undirbúinn og við munum vera í því í allan dag og kvöld að senda hlýja strauma vestur um haf.
Við erum montin af stráknum okkar.
Rosalega montin.
Við erum eiginlega alveg að springa úr monti.

fimmtudagur, 17. febrúar 2005

Ég skrifaði þennan pistil í Bæjarlíf sem kom út fyrir viku.....

Það mun hafa verið á vordögum 1998 að Sigrúnu Ágústsdóttur datt það í hug að það gæti orðið gaman að konur í þorpinu, sem ættu heimangengt í hádeginu, kæmu saman einu sinni í viku og borðuðu saman súpu og salat. Hún reifaði þessa hugmynd sína við nokkrar kunningjakonur sínar og það varð úr að þær fóru að hittast í Duggunni á fimmtudögum. Þarna komu saman konur úr ýmsum áttum og áttu saman góðar stundir yfir súpunni sinni og skemmtilegu spjalli. Sumar komu beint úr vinnunni aðrar komu að heiman. Sumar komu alltaf en aðrar komu stundum. Það var engin kvöð og engin binding. Sumar hættu að koma, einhverra hluta vegna og aðrar nýjar komu í staðinn. Þegar Duggan hætti starfsemi var það sjálfgert að konurnar hættu að hittast en þær vonuðu alltaf að einhver ráð fyndust. Þegar Ráðhúskaffi hóf starfsemi voru þær ekki seinar á sér að hafa tal af Jóa og Hafdísi og tóku þau konunum opnum örmum. Á fimmtudögum er alltaf búið að dúka eitt borð í hádeginu og leggja á það, sérstaklega fyrir súpukonur og baka brauð og búa til salat.
Konurnar, sem eru enn að hittast á fimmtudögum, vilja koma því hér með á framfæri við konur í þorpinu, sem eiga heimangengt í hádeginu, að þetta eru indælar stundir og góð afslöppun og tilbreyting og vilja endilega sjá sem flestar.
Fyrir hönd súpukvenna,
Guðrún Sigríks

....og viti menn. Þetta hreif. Jói þurfti að bæta við borðum í dag og dekka fyrir langtum fleiri en hann átti von á. Nú vorum við svo margar að við heyrðum ekki hver í annarri þannig að spjallhópar mynduðust. En það var bara gaman að því. Hið besta mál.

sunnudagur, 13. febrúar 2005


Sunnudagsmorgunn Posted by Hello
Enginn á ferli.
Engin hreyfing.
Ekkert fótatak.
Bærinn minn hefur breitt
hvítt mjúkt teppi yfir sig
og sefur vært.

laugardagur, 12. febrúar 2005


Ég gerði í dag dálítið sem ég hef ekki gert áður. Ég fór á þæfingarnámskeið til hennar Steinunnar handavinnukennara og bjó mér til eplagræna tösku. Gréta systir bjó til bláa með sama sniði. Þetta var mjög skemmtilegt. Það er þannig í okkar fjölskyldu að það nægir aldrei að búa til einn hlut, það fer alltaf fjöldaframleiðsla í gang. Við Gréta eigum örugglega eftir að gera fleiri hluti. Við verðum bara að bíða í nokkra daga eða þar til við verðum búnar að viða að okkur efni og öllu því sem til þarf. Posted by Hello

þriðjudagur, 8. febrúar 2005

Rakst á síðu á netflakki sem heitir Sellan.is. Það gladdi gamla kennarahjartað mitt að sjá að tvö ungmenni frá Þorlákshöfn, þar með gamlir nemendur grunnskólans, eru pistlahöfundar. Þau Una Björg og Olav Veigar. Ég sé ekki betur en þau séu hinir ágætustu pennar. Gott mál.

sunnudagur, 6. febrúar 2005

Þorrablótið var frábært eins og lög gerðu ráð fyrir. Skemmtiatriðin meirisháttar, eins og konan sagði. Sigrún Berglind fór á kostum í gervi Sofíu frænku/ Ragnars Matthiasar. Ég vildi bara helst fá að sjá þetta allt aftur. Þar kemur kosturinn í ljós að vera í þorrablótsnefnd, þá fær maður skemmtiatriðin gjörsamlega í æð. Við, Simmi minn, dönsuðum af okkur rassgatið, eins og Elsa tengdadóttir myndi orða það. Við vorum búin með úthaldið um hálf þrjú og drógum okkur þá í hlé. Sunnudagurinn hefur svo farið í þreytu fremur en þynnku. Við höfum greinilega gengið of nálægt okkur. En það lagast, þó síðar verði. Mikið er ég rosalega ánægð með að það skuli vera vetrarfrí í skólanum á morgun. Í fyrramálið mun renna upp dagur tvö í leti.

laugardagur, 5. febrúar 2005

Þá er þorrablótsdagurinn runninn upp. Við, Simmi minn erum tilbúin. Bíðum bara eftir því að Gréta og Gunni sæki okkur. Ætlum að hita upp hjá Öldu og Valda. Svo stjum við hjá kennaraliðinu. Þannig að ég mun hafa samstarfsfólkið á eina hlið og bestu vini á aðra. Það eru nú reyndar í kennaraliðinu frábærir vinir og saman valið skemmtilegt fólk.
Það hefur tekið allan daginn að græja sig. Ég átti allt í einu fullan skáp af engu til að fara í. Fann sex eða sjö samkvæmiskjóla (passaði reyndar ekki í alla) en valdi svo einn þægilegan. Hann er ekki sexí, fremur konulegur en hvað er maður annað en kona? Besta af öllu er að fara á ball með engin gleraugu. Jú, það eru ein frá Tiger í veskinu ef textablöð skyldu vera á borðum og ég ekki alveg að kunna textann. (Hin nýja íslenka hljómar svona).
Ég fór ekki í brúnkumeðferð, eins og allar konurnar á Reyðarfirði. Ég býst við því að konurnar í Þolló hafi líka farið í brúnku og salurinn muni líta út eins og grísaveisla á Spáni en hvað um það.
Það er bara flott.
Það verður örugglega gaman.
Rosalega gaman.
Maður finnur núna, þegar klukkan nálgast sex, fiðringinn í loftinu.
Þorrablótsfiðringinn.

föstudagur, 4. febrúar 2005

Hornhimnufræðingurinn er svona líka ánægður með mig. Honum finnst ég reyndar dulítið heimtufrek en útkoma aðgerðarinnar er vonum betri. Hann segir að ég sjái betur en jafnaldrar mínir. Vá........ Ég verð samt að lesa með +1.5 gleraugum að það er það sem ég kvartaði pínu yfir eða þannig. Hann benti mér á að maður sem færi í hnjáaðgerð á báðum hnjám gæti varla ætlast til þess að ganga daginn eftir. Ég vissi nú allt um það. Fór sjálf í hnjáaðgerð fyrir tveimur árum, á öðru hnénu og var heima í viku, sitjandi í Lazyboy horfandi á imbakassann allan daginn og lét Simma minn stjana við mig.
Jæja, hvað um það, ég fór í Kringluna, í Tiger, að tillögu fræðingsins, og keypti mér fern gleraugu +1,5 á 200 kr. stykkið. Nú verð ég að venja mig á að vera með gleraugu á mér en ekki á nefinu og nú get ég valið um fjórar tegundir eftir skapi eða fötum eða veðri eða einhverju.
En munurinn að ganga úti gleraugnalaus, maður minn, það er ólýsanlegt.

fimmtudagur, 3. febrúar 2005

Á að mæta hjá hornhimnufræðingnum á morgun. Hann vill fylgjast með mér. Ég er með langan lista af spurningum. Það er svo skrýtið að vera allt í einu með allt öðruvísi sjón. Ég veit eiginlega ekkert hvernig ég á að vera eða hvernig ég á horfa og sjá. Líklega er heilagreyið mitt með rugluna. Hann hefur hingað til séð mér fyrir fjarsýnissjón en verður núna að rembast við að sýna mér heiminn með nærsýni. Er þetta ekki of mikið álag fyrir gamlan og gráan heila?
Simmi minn verður á aukavakt þannig að að ég er bíllaus (ég ætla samt ekki að láta það eftir mér að kaupa mér bíl, ég get alveg gengið í vinnuna áfram og hef gott af því) þannig að Rut systir ætlar að keyra mig í bæinn. Það er það sem ég segi: það er gott að eiga góða að.

þriðjudagur, 1. febrúar 2005

Er öll að steypast út í harðsperrum enda ekkert skrítið við það. Ég fór í almennilegan eróbikk tíma í gær. Ég hef ekki gert það í tvö og hálft ár. Bara dúllað í sundi og göngum. Alltaf finnst mér nú eróbikkið jafnskemmtilegt. Skýringin er kannski sú að ég var sjálf eróbikkleiðbeinandi í nokkurn tíma og mér fannst það svo gaman. Ég fékk kikk út úr því að standa fremst, fyrir framan spegilinn og skipa kellingunum fyrir. Ég var sprækari í gær en ég átti von á. Bara nokkuð ánægð með sig sú gamla. Ég ætla að fara þrisvar í viku og athuga hvort eitthvað saxist á spikið sem var farið og hefur læðst að mér aftur.

sunnudagur, 30. janúar 2005

Helgin hefur liðið í indælis friði og ró. Það er vinnuhelgi hjá Simma mínum. Hann tók Ástu systur sína með austur á föstudag. Hún gisti hjá okkur og spjölluðum við yfir hvítvínsglasi eða glösum langt fram á nótt. Simmi fór snemma í bólið enda vaknar hann klukkan 20 mínútur gengin í sex dagana sem hann á vakt. Það er alltaf gaman að hafa Ástu og spjalla.
Ég var ekkert í tiltekt innanhúss enda mér sagt að forðast ryk. Ég var að velta því fyrir mér hvort væri þá betra að láta það eiga sig eða þurrka það en lét það eiga sig. En í dag dró eitthvað mig út í garð og tók ég saman í fullan ruslapoka draslið frá gamlárskvöldi. Þá fann ég vortilfinningu og fór í göngutúr neshringinn. Það var eins og á Laugaveginum. Fullt af fólki í sömu erindagjörðum og ég, að ganga.
Ég ætla að hafa togarasteik handa Simma mínum þegar hann kemur heim. Ég er búin að krydda kjötið eftir hans fyrirmælum og skera lauk og kartöflur í báta og krydda eftir mínum smekk. Best að fara að hita ofninn.
Lífið þessa dagana snýst eingöngu um augun mín. Mér finnst þetta allt með ólíkindum. Simmi minn var viðstaddur aðgerðina á miðvikudaginn og horfði á sjónvarpsskjá þar sem hann sá þetta allt í smáatriðum. Augnsperra sett á augað til að halda því opnu, hornhimnan skorin næstum því í hring og flett upp eins og lok á aski, lazergeisla beint í sárið þannig að megn sviðalykt gaus upp. Tilgangurinn var að leiðrétta hornhimnuna svo fjarsýnin hverfi. Hornhimnan sett á sinn stað og hitt augað tekið fyrir. Það tók mínútu að laga skárra augað og rúma mínútu að laga hitt því þar var einnig sjónskekkja. Mér var pakkað inn í teppi eins og á snyrtistofu látin fá bolta í hendurnar sem ég átti að kreista ef ég fyndi þörf fyrir að blikka augunum. Ég kreisti boltann aldrei og fann ekkert til. Mér var sagt að líta á klukkuna á veggnum þegar ég reis upp og var hún 18 mínútur genginn í eitt. Sem sagt ég var með sjón. Ég má ekk nudda augun í viku, má ekki fara í sund í hálfan mánuð og verð að bera augndropa í augun fjórum sinnum á dag í fjóra daga og nota gervitár eftir þörfum í nokkrar vikur. Ég verð að sofa með augnhlíf fyrstu næturnar til að forðast það að nudda augun í svefni. Augnhlífin er nánast eins og skíðagleraugu. Simma finnst þau svo flott að ég hann er búinn að falast eftir þeim þegar ég hætti að nota þau. Ég fór í skoðun daginn eftir og hornhimnufræðingurinn var mjög ánægður með mig. Ég er aftur á móti eitthvað döpur núna því ég verð að hafa gömul gleraugu frá Simma til að lesa og vinna smálega vinnu eins og að naglalakka mig. Ég er kannski óþolinmóð. Ég má búast við að það taki 3-6 mánuði að jafna mig alveg. Og það eru bara komnir fjórir dagar.
En eitt er alveg skelfilegt. Ég má ekki mála mig um augun í viku. Ég fór ómáluð í skólann á föstudaginn í fyrsta skipti á ævinni. En huggun harmi gegn, þá slepp ég fyrir þorrablót.

fimmtudagur, 27. janúar 2005

Er enn með það mikla móðusjón að ég get ekki verið lengi við skjáinn.... kem tvíefld, þó siðar verði, eins og maðurinn sagði.

miðvikudagur, 26. janúar 2005

Ég sé .........án gleraugna!!!!!!!! Vá..................