Síður

miðvikudagur, 31. desember 2003

Ég finn alltaf fyrir þessari skrítnu depurð á þessum degi. Það er þessi tregða að skilja við eitthvað sem maður þekkir og verður að taka á móti einhverju sem maður þekkir ekki. Hvað skyldi nýja ári bera í skauti sér? Þessari spurningu fylgir dálítill kvíði og svo er það spurningin hvernig gamla árið fór með mann eða öllu heldur hvernig fór maður með gamla árið. Það er uppgjörið við árið og sjálfan sig. Ég held ég megi vel við una. En ætla örugglega að bæta mig að einhverju leyti. Það hlýtur að vera hægt.

mánudagur, 29. desember 2003

Við erum komin heim heil á húfi, eins og Kalli sagði alltaf þegar við komum inn í þorpið þegar hann var nokkra ára og við höfðum skroppið af bæ. Einhver setning sem hann hafði lært af Doddabókunum. "Húrra, komin heim heil á húfi." Við biðum smá stund í Mosó og lögðum svo í'ann. Eina ófærðin var í Mosó, eftir það var leiðin greið. En þeir höfðu úr nógu að moða í fréttunum að segja frá ófærð, vondu veðri og útkalli björgunarsveita.
Ég lauk við Storm. Frábær saga. Einar notar sama stílbragð og í Óvinafagnaði. Hann lætur persónur sögunnar skiptast á að segja frá í fyrstu persónu. Mér finnst það mjög sniðug lausn. Stormur er ótrúleg persóna. Mér finnst gaman að lesa um hann en ég er fegin að ég þekki engan slíkan. Ja, nema þeir leynist víða stormarnir, hvur veit?
Við erum veðurteppt í Króniku. Það var allt í lagi með færðina í morgun. Enginn snjór á vegum en blint í hryðjum. En nú ku vera orðið ófært. Við verðum að bíða og sjá til hvort veðrið gangi ekki niður. Það er sem sagt venjulegur dagur í dag. Byrjuðum á sundi áður en við héldum yfir fjallið og elduðum mat í nokkra kalla. Ég hlakka til að komast heim í Lazyboy og halda áfram að lesa STORMINN hans Einars Kárasonar. Frábær bók.

laugardagur, 27. desember 2003

Við erum búin að bjóða nokkrum vinum í mat í kvöld. Það verður þröngt setinn bekkurinn í hosiló en við vonum að þetta bjargist. Á boðstólum eru síldarréttir og rúgbrauð, sem ég smyr og sker niður eins og að um lagtertu væri að ræða, pörusteik með öllu tilheyrandi og ekta ensk jólakaka í eftirrétt. Þeir sem ekki hafa áhuga á þeirri mjög svo koníaksvættu köku fá Sörur. Nú svo á ég nokkra konfektmola frá Jóa Fel. Dálítið svona sitt úr hverrri áttinni. En það er fólkið sem er það besta og við hlökkum til að fá gestina. Hver veit nema ballfiðringur komi svo í fæturna þegar líður tekur á kvöldið. Það er nú ekki langt að rölta héðan og út í Versali.
Nú situm við hjónakornin og spekúlerum í óvæntri uppákomu, eins og síðast þegar þessi vinahópur snæddi hjá okkur, en e-ð erum við hugmyndasnauð þetta augnablikið. Síðast lásum við Þorraþræl með tilþrifum, lásum hann eins og við værum að rífast. Okkur fannst það rosalega fyndið. Besta að fara og leggja hausinn í bleyti.

föstudagur, 26. desember 2003

Friður og ró, ró og friður. Alveg eins og ég vil hafa það. Ég er vön að borða yfir mig á þessum tíma, aftur og aftur, en ég virðist hafa lært eitthvað hjá "de danske vægtkonsulenter" allavega er ný hugsun þarna á bak við. Hef samt stungið örfáum konfektmolum upp í mig en ekkert í líkingu við það sem ég hef innbyrgt af þannig góðgæti áður á jólum. Lauk við að lesa BETTÝ áðan. Mér finnst hún rosalega góð. Ég hef heyrt að hún fái misjafna dóma. En hún fellur að mínum smekk. Það er verst að það má ekki tala um hana fyrr en allir hafa lesið hana, svona álíka og var með bíómyndina Crying Game.
Allir mínir hafa það gott. Iowa fólkið mitt hefur verið hjá íslenskum vinum en Walesbúarnir í óða önn að skapa sín eigin jól. Ég er svo heppin að þau skötuhjú fengu sér tölvu í jólagjöf þannig að nú fæ ég myndir af Lúkasi Þorláki á hverjum degi. Þetta þýðir að ég verð að fara að hressa upp á tölvukostinn minn því ég er að verða eftirá í tækninni. Ég t.d. las um daginn að svo fáir í heiminum nota enn windows 98 að þeir eru hættir að uppfæra það kerfi, ég er sem sagt ein af þessum örfáu.

mánudagur, 22. desember 2003

Hann Kalli minn afmæli í dag. Hann er, eða verður korter fyrir miðnætti, 32 ára gamall. Hann fæddist á Fæðingarheimili Reykjavíkur og mældist 50 cm og vó 3450 g. Fæðingin gekk mjög vel. Ég var sett af stað, með "drippi" í æð, því hann átti samkvæmt ritúalinu að vera mættur á svæðið fyrir löngu. Það trúir því enginn, þegar ég segi, að ég hafi gengið með hann í 10 mánuði en þannig var það nú samt. Enda virkaði drippið.
Þetta var frekar einmanalegur dagur. Ég fór alein með leigubíl á Fæðingarheimilið og þar átti allt að vera svo heimilislegt en eftir á að hyggja var allt mjög ópersónulegt þarna. Allavega var ekkert útskýrt, það var bara komið fram við mann eins og maður hefði aldrei gert neitt annað en að eignast krakka, en því var nú fjarri. Ég ætla ekki að fara út í nein smáatriði hér en þegar litli fallegi drengurinn minn loksins kom, korter fyrir miðnætti, var tilveran ekki lengur einmanaleg, ég hafði ábyrgð á mínum herðum, enga smá ábyrgð. Ég hvíslaði að honum, þarna í fæðingarherberginu, að ég skyldi sjá til þess að aldrei skyldi neitt illt henda hann. Þvílíkt loforð. Pabbi hans kom daginn eftir, á aðfangadag, að kíkja á hann og mig, með þann stærsta bangsa sem hefur verið búinn til. Jónki tröll var hann nefndur.
Þarna vorum við, Kalli litli og ég, fyrstu jólin hans.
Það var skrítið aðfangadagskvöld, að vera á spítala. En ég verð ævarandi þakklát Þóru móðursystur minni og Didda heitnum að þau skyldu heimsækja mig á spítalann þetta kvöld.
Læknirinn minn, hann Jón Þ. kíkti til mín rétt eftir fæðingu og sagði að ég hefði rétt fyrir mér með 10 mánaða meðgöngu, drengurinn var með bítlahár, langar neglur og öll fósturfita var farin af honum. Hann sagði líka: "Af hverju beiðstu ekki í korter, þá væri þetta hann Þorlákur litli frá Þorlákshöfn, fæddur á Þorláksmessu." Ég hef lengi haft grun um það að honum Kalla mínum hefði ekki þótt leiðinlegra að heita Þorlákur en Karl Ægir.

sunnudagur, 21. desember 2003

Eftir Króniku í gær fórum við í jólaleiðangur með Öldu og Valda í bæinn. Það var ógisslega gaman hjá okkur (eins og unga fólkið segir). Skoðuðum hitt og þetta og keyptum fullt af skemmtilegtum óþarfa og fengum okkur bjór og borðuðum á Ítalíu, sem er besti millliklassastaðurinn, og fórum á Kaffi List og írskan pöbb. Besta af öllu var að Simmi minn komst í stuð og keypti sér jakkaföt, skyrtu og bindi, frakka og naríur. Hann fer ekki í jólaköttinn.
Ég fékk allt í einu löngun til þess að baka. Langaði bara reglulega mikið til þess og lét það eftir mér. Bakaði amerískar smákökur jólasveinsins. Þær eru betri en bestu Maryland cookies þó ég segi sjálf frá. Sólskinsköku bakaði ég líka. Nú verða Kalli og Svava Rán alveg ómöguleg að geta ekki fengið þó ekki væri nema ein sneið. Ef ég man rétt var þessi kaka alltaf í miklu uppáhaldi. Hef ekki bakað hana í mörg ár. Rístoppa bakaði ég og eina marengstertu. Ég hef mikla minnimáttarkennd þegar kemur að marengstertum því systur mínar eru snillingar á því sviði en þessi lítur rosalega vel út hjá mér. Ég fór með afraksturinn og færði móður minni. Geymi reyndar heima nokkrar Sörur, rístoppa og jólasveinakökur í stömpum. Færði Simma mínum eina Söru áðan af því hann eldaði svo góðan kvöldmat handa mér en hann hefur ekki lyst á henni. EINNI LÍTILLI SÖRU. Það er ekki í lagi með hann. Ég er mest hrædd um að ég eigi eftir að gæða mér á henni þrátt fyrir góð áform.

miðvikudagur, 17. desember 2003

Þegar ég fór seinnipartinn í dag upp í skóla, til að taka þátt í jólakvöldvöku nemenda minna, var ég á háhæluðum skóm og með regnhlíf og hún spenntist ekki upp. Samt er bara vika til jóla. Og Dave, tilvonandi tengdasonur, setur samasemmerki á milli Íslands og hvítra jóla.
Svava Rán á afmæli í dag. 29 ára gömul. Áður en ég hringdi í hana, hringdi hún í mig til þess að óska mér til hamningju með daginn. Nú þegar hún er sjálf orðin móðir finnst henni afmælisdagurinn vera meiri dagur fyrir mömmuna en afmælisbarnið. Ég er alveg sammála henni, mér finnst alltaf að ég eigi dálítið í þessum afmælisdögum barnanna minna. Allavega upplifi ég í huganum þennan dag þegar þau fæddust. Við, Svava Rán, vorum saman á Sjúkrahúsi Selfoss. Hún kom í heiminn 4:10 að viðstöddum pabba hennar sem fannst ekki mikið tilkoma. Hann hefði líklega heldur vilja vera frammi í bítibúri að segja hjúkkunum brandara. Ég var alsæl með litla fallega barnið mitt. Hún var svo mannaleg með mikið kolsvart hár. 52 cm á lengd og vó 3610 g.

þriðjudagur, 16. desember 2003

Einn dagur eftir af jólaþemadögum í skólanum og jóakvöldvakan er á morgun. (Af hverju ætli sé hætt að tala um litlu jólin? Ég sakna þess). Krakkarnir okkar
Esterar eru að æfa frumsamið leikrit þar sem hæfileikaar margra fá að njóta sín í leik,dansi og söng. Ég er að mestu búin að ganga frá prófum og þvíumlíku en á þó smávegis eftir af umsögnum. Það reddast, við höfum fimmtudaginn til að hnýta síðustu hnútana. Á föstudag er svo kertadagurinn svokallaði og eftir það skellur á mann jólafrí. Við erum aðeins á eftir þingmönnunum í frí enda ekki með alveg eins góð laun. Skyldi þingmanni líða eins og mér þegar hann er spurður hvenær jólafríið byrjii hjá honum? Mér finnst nefnilega alltaf eins og fólk sé að benda mér á að ég vinni ósköp lítilmótlegt starf þegar ég er spurð um jólafríið. Það er búið að koma því inn hjá mér að ég sé að svíkast undan verki með því að vera alltaf í fríi. En ég er nú með svo sérstaklega mjótt bak.

sunnudagur, 14. desember 2003

Ég hef verið á kafi í jólaundirbúningi í dag. Var í miðjum klíðum að gera baðherbergið hreint, sem er ekkert mál með ENJO, þegar Rut systir hringdi og bauð mér að vera með í Sörukökugerð. Ég hljóp út frá hálfhreinsuðu baðherberginu, tók það loforð af Simma að hreyfa ekki við neinu þar, og fór í það að vera með í Sörunum. Ég hef einu sinni reynt að gera gervisörur en þær mislukkuðust svo ég hef ekki þorað að fara út í þessar ekta en Rut er svo mikill snillingur í kökugerð. Hún var verkstjóri og stjórnaði mér og Grétu og Huldu litlu Gunn í gegnum þennan svakalega feril sem Sörugerðin er. Nú á ég 70 Sörur í frystinum sem Simmi heldur að ég muni henda fyrir næstu jól ef fer fyrir þeim eins og öllum smákökunum sem ég bakaði hér á árum áður. Krakkarnir mínir nörtuðu í þær, Simmi borðar þær ekki. Hann tók þann sið upp eftir Jóni afa sínum á Stokkseyri. Það var sama þó ég reyndi að borða þær og troða þeim í gesti, þær kláruðust aldrei. Ég hlýt að hafa bakað of mikið.
Baðherbergið ljómar nú af ENJO hreinleika, Simmi er búinn að hengja upp stækkunarspegilinn og nýja snaga fyrir handklæðin. Ég finn að jólin eru að nálgast.
Halldór skólastjóri fór á kostum eins og við mátti búast á jólaglöggi starfsfólks skólans á föstudagskvold. Nú lýsti hann Landsmóti UMFÍ sem haldið var í Þorlákshöfn árið 2007. Við, starfsfólkið, komum öll við sögu þannig að hann gerir pínu grín af okkur öllum. Halldór ætti að fá laun úr rithöfundasjóði fyrir þetta árlega framtak sitt á sviði sögugerðar. Auðvitað var svo IDOL keppni þar sem hver söngpípan á fætur annarri sté á svið. Dómarar voru Raggi og Ester og þau stóðu sig frábærlega. Raggi var auðvitað Bubbi og Ester Sigga. Ester var eiginlega betri Sigga en Sigga sjálf. Sigurvegarinn var Sigrún Berglind sem söng Júróvisjónlag frá 1985 á finnsku ef ég skildi útlenskuna rétt. Frábær skemmtun og ekki skemmdi glöggið hennar Esterar fyrir neinum.

mánudagur, 8. desember 2003

Helgin liðin með sínum skemmtunum og fjöri. Það var konukvöld hjá Kiwanis á föstudagskvöld. Bara eins og í gamla daga, bíngó og brandarar. Á laugardag vorum við hjónakornin í Króniku og urðum að hafa opið frameftir vegna þess að Mosfellingar voru að tendra ljósin á bæjartrénu og margir þurftu kaffi og kakó hjá okkur. Vegna þessa komst ég ekki í jólagjafaleiðangur eins og ég hafði hugsað mér en fór til Röggu á Monroe í klippingu. Við gerðum okkur sér ferð í bæinn í gær til að kaupa smá dótarí. En kvöldið áður vorum við hjá Jónu Svövu í fertugsafmælinu hennar sem hún hélt í Kiwanishúsinu. Það var rosalega gaman. Hún fékk gítarspilara til að halda uppi söng og fjöri. Hann Sigvaldi, bróðir hans Viðars, kom með gítarinn sinn og það var aldeilis tekið á söngnum. Verst að ég gat lítið sungið vegna kennaraveiki í hálsi.

miðvikudagur, 3. desember 2003

Það er ekki mjög jólalegt um að litast núna. Snjórinn farinn, rigningin lemur á gluggana og vindurinn gnauðar og hvín. Jólaskreytingar hamast við að reyna að hanga á sínum stað. Kyrjukórinn er með jólastund í Versölum í kvöld og þær báðu mig um að lesa sögu. Ég segi eiginlega aldrei nei, svo það verður úr að ég lesi. Ég valdi söguna Hlutaveikin eftir Þórarinn Eldjárn eftir ábendingu góðrar samstarfskonu, hennar Guðbjargar Ingveldar. Ég býst við að það verði fólk á öllum aldri þarna í kvöld og Þórainn getur svo auðveldlega skrifað fyrir alla aldurshópa. Hann getur ekki stillt sig um að vera með orðaleiki í þessari sögu, eins og í ljóðunum sem hann skrifar fyrir börn, þannig að hún féll strax í kramið hjá mér þó ekki væri nema þess vegna en svo er boðskapurinn líka góður.

mánudagur, 1. desember 2003

Ef kunningjar míinir og vinir sæju ekki um að rækta sambandið ætti ég enga kunningja og vini. Ég fer nánast aldrei í heimsóknir til fólks og hringi eing0ngu í mína nánustu. Sem betur vill nú samt einn og einn hitta mig enn og kíkir í heimsókn. Í gær kom Dísa vinkona mín, frá því við vorum unglingar í Meitlinum. Hún er líka frænka hans Simma. Við jöskuðumst við Dísa, áttum jaskaúlpur og fórum á Voffanum hennar að jaska. Ég veit ekki hvort fleiri hafa gert þetta.
Ásta mágkona og Dóra Sif komu líka í stutta heimsókn. Það er allaf jafn gaman að hitta þær mæðgur. Ásta býr í höfðuðborginni en Dóra Sif í Brussel, samt koma þær, ásamt Hrefnu, eldri dóttur Ástu, sem býr í Róm, oftar í heimsókn heldur en mágafólkið okkar Simma og systkinabörn sem búa þó í sama þorpi og við. En það er eins og ég segi, ég get ekki kvartað við neinn því ég er sjálf verst. Ég sé þó flesta hina bregða fyrir í kaupfélaginu og á götunni eða í skólanum og fæ fréttir af ættingjunum gegnum ættarhöfðingjana.

laugardagur, 29. nóvember 2003

Jólaundirbúningurinn er hafinn á heimilinu. Það er búið að baka ekta ensku jólakökuna. Hún lítur vel út og nú er bara að vökva hana vikulega með koníaki svo hún verði nógu gómsæt á jólunum. Þetta er góð afsökun fyrir koníkasinnkaupum. Ég hef sterkan grun um að húsbóndinn á heimilinu ætli að sjá um vökvunina þetta árið. Það stendur til að breyta svolítið gömlum jólasiðum og þar á meðal hver vökvar. Annað sem stendur til að breyta er eftirrétturinn á aðfangadagskvöld. Það hefur alltaf verið jólarjómagrjónagrautur eða á fínna máli, ris a´la mande, en nú ætla ég að hafa sérrytruffle. Það er tími núna til að breyta því þetta verða fyrstu jólin okkar Simma míns ein í kotinu. Hver veit nema ég finni upp á einhverjum öðrum breytingum, bara svona í gamni. Við týndum jólunum okkar þegar við fluttum austur og erum enn að leita. Líklega er heillavænlegast að hætta leitinni og búa til ný jól sem snúast um okkur tvo. Ég er búin að gráta pínulítið yfir því hversu börnin mín eru langt í burtu en hreiðrið var orðið of fúið, þau urðu að fara sem er jú gangur lífsins.

miðvikudagur, 26. nóvember 2003

Enn er bara nóvember og allt á kafi í jóla þetta og jóla hitt. Jólaprófin byrja á morgun. Í hönd fer tíminn sem ég var vön að fara á límingunum. Það er í svo mörg horn að líta. Engu má gleyma. En ég mun hafa það náðugt þetta árið. Færri próf en oft áður að semja og fara yfir, bara einn bekkur í umsjón, þar með færri skemmtiatriðið á jólakvöldvöku að semja og æfa, minni íbúð til að þrífa og skreyta og bara einn kall að hugsa um og enginn krakki. Ég er hætt að baka margar sortir af smákökum til að henda fyrir næstu jól og finnst algjör della að þrífa öll skúmaskot eins og í gamla daga. Ég kveiki bara á kertum og kúri uppi í sófa með bók eða kallinn eða rauðvínsglas eða allt þetta þrennt og slaka á.

þriðjudagur, 25. nóvember 2003

Manni getur nú sárnað þegar maður er spurður að því hvort maður fari ekki örugglega á kóræfingu.
Enn undrast ég á tækninni og hvað heimurinn skreppur saman á degi hverjum. Ég spjallaði við Döbbu Jones áður en fór á kóræfingu og hún sagði mér að þau skötuhjúin hefðu farið í heimsókn til Tracyar, systur Daves, í dag. Þegar ég kom heim af æfingu kíkti ég á póstinn minn og þar fann ég sendingu frá Tracy. Það er rétt eins og ég hafi líka verið þar í heimsókn.