Síður

sunnudagur, 31. ágúst 2003

Það er aldeilis búið að taka á skemmtanalífinu um helgina. Frábært kennarapartý á föstudagskvöld hjá Halldóri og Ester og hátíðardansleikur vegna umdæmisþings Kiwanis í Reykjavík á laugardagskvöld. Við höfðum það huggulegt á hóteli. Á meðan karlarnir voru að klára þingið notuðum við Ólína aðstöðuna sem boðið er upp á, með því að borga dálítið aukreitis, fórum í heitu pottana, fengum axlanudd og sátum smá stund í gufubaði. Slökun og næs. Eftir ræðuhöld og skemmtiatriði spilaði hljómsveitin Upplyfting og við dönsuðum eins og vitleysingar en ekki eins og virðulegt eldra Kiwanisfólk. Það sem mér fannst best var að Steini, í Dumbó og Steina, var veislustjóri og hann tók lagið með hljómsveitinni. Hann söng Angelíu. Lagið okkar Simma. Fyrsta lagið sem við dönsuðum vangadans við. Það var fyrir margt löngu og ekki óraði mig fyrir því að eiga eftir að dansa aftur eftir þessu lagi hvað þá að Steini sjálfur syngi það "live" fyrir okkur. Þetta er dálítið hallærislegt lag og texti sem "lagið okkar" en er engu að síður samt lagið okkar. Ég var nýbúin að minna Simma minn á að muna eftir því í jarðarförinni minni ásamt nokkrum öðrum lögum.

föstudagur, 29. ágúst 2003

Höfuðdagurinn í dag. Uppáhaldsdagur hjá mér. Við Simmi minn erum af hinni svokölluðu hippakynslóð en tókum ekki þannig beint þátt í gjörðum þeirra og hugmyndum á meðan á ævintýrinu stóð. Auðvitað höfðu hipparnir áhrif á heimsmenninguna en þetta frjálslyndi í ástarmálum var e-ð sem við létum fram hjá okkur fara og vorum svakalega lummó og settum upp trúlofunarhringa á þessum degi fyrir einum 33 árum. Fórum með rútu í bæinn,til þess að kaupa hringina, hálfum mánuði áður eða þegar hann átti helgarfrí á sjónum. Geymdum þá í skrifborðsskúffunni hans og settum þá upp í næsta helgafríi. Keyptir hjá Jazorski, breiðir með mynstri. Laugardagur. Hann fór á fótboltaleik í Hveragerði með strákunum og ég beið heima titrandi af spenningi. Hann kom með rósavönd seinnipartinn og við laumuðumst inn í herbergið mitt og settum á okkur handjárnin. Ég orðinn tvítug, hann ekki alveg orðinn nítján. Mömmu hafði grunað e-ð, því hún dró fram kampavínsflösku þegar við komum fram. Um kvöldið var svo farið á sveitaball með vinunum. Þorlákshöfn var eins og nafli alheimsins á þessum tíma. Ótrúlega mörg sambönd urðu til innan þorpsins og þau lifa, held ég öll enn þann dag í dag, góðu lífi.
Vigtunardagur í dag. Argggg... og garg. Þyngdist um 700 grömm. Ég veit ekki hvar þetta endar. Ég á í mjög djúpum samræðum við sjálfa mig núna. En Simmi minn var að stinga upp á pizzu og rauðvíni í kvöldmat.............

fimmtudagur, 28. ágúst 2003

Þá er búið að kenna samkvæmt stundaskrá í eina viku og ekki seinna vænna en að brjóta upp hefðbundna töflu. Á morgun verður haustgleði hjá okkur. Ester, Jóhanna og ég vorum allan seinni partinn að undirbúa útivist á morgun. Vonandi verður veðrið gott. Ég gleymdi þessum degi þegar ég gerði kennsluáætlun til 19. sept. svo e-ð á eftir að riðlast hjá manni. Æ, það verður að bíta í það súra enni eins og e-r sagði........
Erla og Steini eignuðust dóttur um hálf tólf í morgun. Ég veit ekki enn hversu þung og stór sú nýfædda er. Þar með er Rut systir orðin amma og Jón Davíð orðinn afi og ég orðin ömmusystir fjögurra barna. Ömmusystir gerir mann eldri en amma en það er nú allt í lagi. Ég vissi strax að ég ætti auðvelt með að muna afmælisdag barnsins, tuttugu og átta núll átta. Ég man Kolbrúnar dag og ár svona, tuttugu og níu núll níu átta níu.

miðvikudagur, 27. ágúst 2003

Mér finnst æðisgengið að geta farið í vinnuna mína berfætt í bandaskóm og jakkalaus. Ég hefði sjálfsagt líka getað haft stráhatt á höfðinu án þess að hann fyki út í buskann. Gamall draumur er líklega bara að rætast en hann snerist um það að eiga heima þar sem hægt væri að ganga úti með stráhatt án þess að binda hann undir kverk. Þá var ég auðvitað að tala um útlönd. Hver hefði trúað því að draumurinn rættist í Þorlákshöfn?

þriðjudagur, 26. ágúst 2003

Við, gamla dressið, skruppum inn á afrétt þeirra Gnúpverja eftir vinnu í dag. Áttum nokkuð undarlegt erindi. Jæja, undarlegt og ekki undarlegt. Honum Simma mínum dettur svo margt í hug. Héldum að þar yrði næðingur og að hausthrollur færi um okkur. Það var nú öðru nær. 22 stiga hiti um kvöldmatarleytið. Næðingurinn var haustylur og birtan var haustbleik, lyktin var haustilmur og gróðurinn var haustgrænn. Þokkalegur staður að dvelja á.......

mánudagur, 25. ágúst 2003

Ég heyri alveg ótrúlega oft fótboltalýsingar. Maðurinn, sem ég skúra hjá og sef reyndar líka, lætur engan leik í sjónvarpinu fram hjá sér fara. Og hann kaupir SÝN líka. Ég er með langan þolinmæðisstuðul, sem betur fer fyrir hann. En það er eitt sem fer í mínar fínustu taugar sem tengist reyndar ekki manninum mínum heldur öðrum mönnum. Þeir virðast halda það margir, íþróttafréttamenn og þeir sem lýsa leikjum, að orðatiltækið ...að vera á skotskónum ... sé til. Ég held að e-r hafi sagt þetta fyrir löngu í gríni en er orðið, fyrir misskilning, fast í málkennd sumra. Greyin sem vita ekki betur.
Ég var orðin skíthrædd um það að málefnið, "samráð olíufélaganna" færi í glatkistuna og þetta yrði þagað í hel. En, viti menn, það var talað um þetta í sjónvarpsfréttum í kvöld og Þráinn Bertelsson minnist á þetta í Bakþönkum Fréttablaðsins. Ég ætla bara rétt að vona að þeir fái makleg málagjöld sem hafa rænt okkur stórum fjárfúlgum með röngu bensínverði.

sunnudagur, 24. ágúst 2003

Grenjumúsin ég, grenjaði í gærkvöldi þegar hann Simmi minn setti lag á fóninn og sagist ætla að syngja þetta fyrir mig í sextugsafmælinu mínu. Hann hefur 7 ár til þess að æfa sig. En lagið syngur auðvitað Friðjón, á Austfirskum staksteinum II. Lagið er mjög fallegt og fjallar textinn um hjón sem byrjuðu ung að vera saman og ætla að halda því áfram. Við kúrðum saman í nýja sófanum okkar og ég datt svona líka ofan í djúpt tilfinningaástand.
Í dag hefur dagurinn farið í að þrífa sameignina. Þar höfum við fundið verkaskiptingu eins og á svo mörgum öðrum hlutum. Ég ryksuga stigaganginn og þríf geymsluganginn og þvottahúsið en hann sér alfarið um ruslakompuna. Ég er mjög sátt við þessa tilhögun.
Ég dúllaði svo við að pakka inn afmælisgjöfinni handa Dave tilvonandi tengdasyni. Hann verður þrítugur 3. september og ég þarf að koma pakkanum í póst á morgun svo hann fái hann fyrir afmælisdaginn. Í pakkanum eru líka buxur sem ég saumaði á Döbbu Jones. Ég hef ekki saumað buxur í 4 eða 5 ár en nú gerði ég það þó að eigandinn sé viðs fjarri. Það sem maður lætur hafa sig út í er með ólíkindum. Ég ætla rétt að vona að þær passi. Þetta eru náttúrlega óléttubuxur með teygjuefni yfir bumbuna svo þess vegna eru meiri líkur á að þær passi. Babbie Jones mun vonandi hafa það gott fyrir innan teygjuefnið.

laugardagur, 23. ágúst 2003

Hún Elsa, tengdadóttir mín, varð 31 árs 21 ágúst. Það er svo dýrt að senda pakka til Ameríku þannig að ég setti bara smáaur inn á debbarann og hringdi í hana og sagði henni að hún yrði að eyða aurunum í sjálfa sig. Hún ákvað strax að fá sér nudd. Ég vona að hún standi við það og njóti þess.

föstudagur, 22. ágúst 2003

Dásamleg þessi föstudagskvöld. þá borðum við pizzu, drekkum rauðvín og hlustum á Friðjón. Hvað er betra?
Föstudagur er vigtunardagur. Nú höfðu 300 grömm farið. Það hefði nú mátt vera meira en samt, betra en ekkert. Ég borða helmingi minna en mig langar til, þannig að þetta er þrælerfitt. Ég ætla að hafa næstu viku svipaða í matarræði og ef það fara bara 300 grömm eða minna af þá verð ég að gera e-ð róttækt. Pæla kannski í pizzunni og rauðvíninu.......

miðvikudagur, 20. ágúst 2003

Það var ósköp ljúft að fá börn inn í skólann í dag. Ég segi nú stundum í gríni að það skemmtilegasta við skólastarfið sé undirbúningurinn. En það er nú ekki rétt. Mér fannst voða gaman að hitta bekkinn minn, 9.b, í morgun. Börnin hafa svo sannnarlega breyst í unglinga, alla vega stelpurnar. Þær voru svo fínar og sætar, málaðar og uppdressaðar. Strákarnir eru óðum að breytast í töffara. Mér finnst svo stutt síðan ég fékk umsjón í bekknum en þá voru þau í 6. bekk, lítil og sæt og dauðhrædd við að fá nýjan kennara sem þau þekktu ekki neitt. Ég held að þau hafi nú tekið mig í sátt en ég finn svo sannarlega fyrir muninum á því að kenna unglingum 53 ára eða 32 ára. Mér finnst ég ekki ná eins til þeirra og áður. Ég verð að beita ömmusjarmanum í stað þess að vera vinkona. Ég kenndi mörgum foreldrum nemenda minna að lesa og skrifa á sínum tíma. Enda er ég farin að telja niður, bara 7 ár eftir í kennslu. Hugsa með sér (eins og dótla mín segir).

mánudagur, 18. ágúst 2003

Vilborg Dagbjartsdóttir sagði einu sinni í ljóði að lítil börn með skólatöskur kæmu með haustið. Mér datt þetta ljóð í hug þegar ég labbaði í morgun í skólann, ég fann allt í einu fyrir haustinu þó svo að ég sæi hvergi lítil börn á ferli með skólatöskur. Haustið hefur líklega bara verið innan í mér af því ég var að fara að byrja að vinna í skólanum. Það rigndi hressilega á mig í morgun, þegar ég fór heim í hádeginu og líka þegar ég fór heim upp úr fimm. Og það rignir enn og komið kvöld. Dagurinn var góður. Maður reynir að gera alla hluti í einu og verður pínu ruglaður en þegar upp er staðið hefur margt gerst. Innkaupalisti fyrir umsjónarbekkinn tilbúinn, stofan að verða klár, drög að stundatöflu nýbúa komin, kennsluáætlun fyrir 9. og 10. bekk fyrstu vikurnar komin í hausinn á mér svo e-ð sé nefnt. Það var gott að hitta samstarfsfólkið aftur. Lífið fer að komast í eðlilegt horf eftir sældarlíf sumarsins.

sunnudagur, 17. ágúst 2003

Við létum Menningarnótt ekki alveg fara fram hjá okkur. Við fórum í bæinn gagngert til þess að hlusta á Spaðana. Þeir voru með tónleika í Norræna húsinu kl. 16. Það tók tíma sinn að komast eftir Miklubrautinni þangað vegna gífurlegrar umferðar. Það hafðist þó á endanum og sjáum við ekki eftir því að hafa lagt þetta á okkur því Spaðarnir eru óforbetranlegir. Við skemmtum okkur konunglega ásamt fjölda annarra sem sátu eða stóðu þröngt í litlum sal í Norræna húsinu. Við rákumst á grein í blaðinu daginn áður þar sem e-r var að tala um það hve sorglegt væri að horfa upp á Norræna húsið hverfa þarna í Vatnsmýrinni innan um stóru húsin sem væri búið að byggja þarna. En Norræna húsið er eina húsið í Reykjavík teiknað af heimsfrægum arkitekt. Alvar Aldo ef ég man rétt, hinum finnska. Greinarhöfundi fannst húsinu og arkitektinum lítil virðing sýnd. Þarna sátum við svo á kaffistofunni, fyrir tónleikana, Simmi í fyrsta skipti en ég í annað. Meira um tónleikana. Þegar þeir fóru að spila lagið um hana Ásu sneri ég mér forviða að Simma og spurði hann hvernig stæði á því að Spaðarnir væru að spila lag og syngja texta frá Jóni Haralds. Simmi hélt nú frekar að Jón hefði tekið lagið upp eftir Spöðunum. Ég sem hélt alltaf að Jón ætti það. Hann spilaði það síðast fyrir mig á Hafnardögunum. Það er sama hvernig í þessu liggur, Spaðarnir eru góðir, Jón er góður og lagið er gott.

fimmtudagur, 14. ágúst 2003

Ég labbaði 4 km í gær og fyrradag einnig en lét nægja í dag að færa til húsgögn. Ég er búin að lofa sjálfri mér því að á hverjum degi, hér eftir, skuli eiga sér stað einhvers konar líkamsrækt sem komi allaveaga á móti um það bil einni vel smurðri brauðsneið. Það er 4-5 km ganga á móti 100-150 hitaeiningum. Sjúkk......
Enn erum við Simmi minn að færa til húsgögn og koma öllu í samt lag eftir að höfðinginn, Karl Kolbeinn, og uppáhaldsdóttirin, Svava Rán, yfirgáfu skerið. Það er nú líka vegna þess að við keyptum þennan líka flotta sófa og þegar hann kom í dag urðum við að máta og máta og það sem við hugsuðum í upphafi gekk ekki heldur er uppröðun húsgagna næstum eins og fyrir innlit- útlit. Nei, ég segi nú bara svona. Ég gæti farið að halda saumaklúbb skammlaust.

þriðjudagur, 12. ágúst 2003

Ég vildi að ég væri eins góður sölumaður og maðurinn í sófabúðinni. Þegar ég hringdi í dag og afpantaði sófasettið sem ég lét taka frá í gær, þakkaði hann mér rosalega vel fyrir að ég skyldi hringja og láta sig vita að ég tæki það ekki. Hálf tíma síðar hringdi hann til baka og sagði mér að hann ætti stakan sófa handa mér og ég fengi hann á mjög góðu verði. Ég féll á bragðinu, brunaði í búðina og festi mér gripinn. Það besta er nú samt að sá sófi er alveg eins og draumasófinn minn. Ég get alls ekki auglýst það sem við Simmi minn höfum á boðstólum af því ég held alltaf að það sé ekki nógu gott. Hvað þá hringt eftir kúnnum. Ég væri kannski orðin moldrík ef ég kynni þessa kúnst.

mánudagur, 11. ágúst 2003

Þá er Dabba Djóns flogin heim til sín og við gamla settið endanlega orðin ein í hosiló. Dabba er svo hamingujsöm með lífið og tilveruna að við höfum engan rétt til þess að grenja yfir því hvað hún býr langt í burtu. Hún á sitt líf og við verðum að halda áfram með okkar. Við tókum til í hosiló, þegar hún var farin og við gátum skilað dýnunni sem hún svaf á, og færðum til húsgögn til þess að sjá út hvernig við gætum nú gert sem huggulegast hjá okkur. Mér líður nefnilega svo hræðilega illa þegar einhver kemur í heimsíkn og það er ekkert nema leisíboj í stofunni. Það virkar frekar fráhrindandi á gesti. "Nei, ég sest bara hérna," segir fólk og tyllir sér á vondan borðstofustól, þegar ég býð sæti í leisíboj. Þannig að til stendur að kaupa sófa. Hvað á ég þá að gera við leisíboj?

fimmtudagur, 7. ágúst 2003

Við fengum konu frá Pilpseyjum til að kenna okkur að elda filipseyskan mat. Hún kom í morgun og eldaði einn rétt fyrir okkur og kenndi okkur um leið. Það var frábært að fylgjast með henni. Ég hafði áður reynt að gera e-ð svipað og hún var að gera, nema handbrögðin voru gjörólík. Hvernig hún skar allt grænmetið niður í strimla var unun á að horfa. Ég er vön að gera þetta allt öðruvísi. Hér eftir verður boðið upp á filipseyska núðlurétti í Café Króniku.