Síður

mánudagur, 18. september 2006

"Amma, elskarðu þetta munstur?" sagði ömmustelpan þegar hún kom út af baðherberginu og hafði verið að horfa á sama mynstrið í nokkrum handklæðum, baðmottunni, sápuskálinni, tannburstaglasinu, klósettrúllustatívinu, klósettburstahaldaranum og snyrtivörustauknum.
Var nema von að barnið spyrði.

laugardagur, 16. september 2006

Húsmóðirin í mér tók öll völd í dag. Áður en ég vissi af var ég búin að ryksuga, þurrka af og skúra slotið. Þegar því lauk slettii ég í form og bakaði eina súkkulaðiköku. Ekk gert það í mörg ár eða svo. Ekki nóg með það heldur útbjó kallinn, sem ég skúra hjá, rækjusalat og það hefur ekki verið búið til á mínu heimili síðan fyrir Reyðafjörð og það eru 10 ár síðan við fluttum þangað. Og svo fengum við gesti og það gerist mjög sjaldan. Merkilegur dagur. Ég hlýt að vinna í lottóinu líka.
Ömmustelpu var skutlað til okkar og við erum búnar að fara í stóran hjólatúr og á róló og nú bíðum við eftir að steikin hjá afa verði tilbúin.
Veðrið er dáasamlegt og það ilmar steikarlykt úr öðru hverju húsi í þorpinu mínu. Friður og ró ríkir einhvern veginn yfir öllu.
Gott.

fimmtudagur, 14. september 2006

Það ætti að virkja þjóðarsálina til að fá réttlæti fullnægt og kveða niður óréttlæti í stað þess að virkja hana eingöngu til þess að standa með Íslendingum í útlenskri keppni eða söfnunum af ýmsu tagi þó að þær séu góðra gjalda verðar.
Af hverju tökum við okkur ekki saman og mótmælum háu matarverði? Eða háu bensín og olíuverði? Háum vöxtum, eyðileggingu landsins, rányrkju í hafinu svo eithvað sé nefnt. Við látum bjóða okkur ýmislegt óréttlæti, röflum heima við eldhúsborð og látum þar við sitja. Samtakamáttur þjóðarinnar er til en því miður ekki nýttur.

miðvikudagur, 6. september 2006


Gleðigrénjumúsin í mér lét heldur betur á sér kræla í morgun. Ég gat varla þakkað fyrir mig af geðshræringu.
Þegar ég kom inn í nýbúakennslustofuna mína eftir löngu frímínútur í morgun, beið mín veisluborð, blóm og gjafir. Börnin mín af erlendu bergi brotin héldu mér óvænt afmælisveislu. Þeim fannst það engu skipta þótt ég ætti afmæli í júní. Þau vildu bara einfaldlega gleðja mig. Sem þau svo sannarlega gerðu. Þau sungu afmælissönginn fyrir mig á íslensku og sögðu svo öll til hamingju með afmælið hvert á sínu tungumáli: tælensku, pólsku, litháísku, mongólsku og tagalog.
Þetta var afskaplega indæl og ljúf kennslustund, þar sem snæddar voru hnallþórur, drukkið kók, spjallað og hlustað á tónlist.
Svona dagar gera mann einhvern veginn að betri manneskju.

mánudagur, 4. september 2006

Ég sá einhvern tíma auglýstar forstofulausnir. Ég er enginn sérfræðingur í íslensku, alla vega veit ég að ég kann ekki allt sem ég vildi kunna, en þetta orð, forstofulausnir, fannst mér svo ljótt og asnalegt að það var næstum því fyndið.
En málið er að þegar ég flutti í nýjasta húsið mitt, þá vantaði mig forstofulausnir ef ég skildi orðið rétt. Forstofan mín er svo lítil og mjó að það rúmast ekki skápur þar og ómögulegt að hafa frístandandi fatahengi, því það tekur of mikið pláss. Ég er búin að hafa eitt slíkt síðan ég flutti inn, fyrir tveimur árum, sem Gréta systir lánaði mér. Það er þannig að þegar of margar flíkur hafa verið settar á það, þá dettur það á hliðina. Frekar pínlegt þegar það hendir gesti.
Í gær leystist forstofan eða þannig.
Við keyptum í IKEA tvö forláta fatahengi til að festa á vegg og höfum þau hlið við hlið svo mú er hægt að hengja upp margar yfirhafnir og leggja frá sér hatta ef vill. Forstofan stækkaði um helming.

sunnudagur, 3. september 2006

Á meðan Simmi minn, doktorinn og löggilti táningurinn unnu hörðum höndum við að gera upp Vesturgötu 46 sat ég inni í téðu húsi og réð krossgátuna í sunnudagsmogganum eða næstum því; á nokkur orð eftir. Gekk síðan út í sólina og góða veðrið og sópaði mulning, nagla, spýtnabrak og fleira rusl af gangstettinni fyrir framan húsið og reyndi að ímynda mér um leið allt það fólk sem hefur gengið þarna um í gegnum tíðina.
Það væri gaman að geta farið aftur í tímann og tekið tali nokkra menn og konur sem átt hafa þarna leið um og skyggnst inn í fortíðina, þó ekki væri nema nokkur andartök.

laugardagur, 2. september 2006



Frjáls eins og fuglinn

Ef ég væri fugl
væri ég föst í loftneti.

föstudagur, 1. september 2006


Þú ert nú meiri þorskhausinn

Ég er þorskur.
Þegar ég var seiði
synti ég frjáls um í sjónum
við suðurströndina.
Þá safnaði ég sjóði
því bankinn sagði mér
að græddur væri geymdur eyrir.
Þá gat ég synt í gegnum moskvana.
Nú er ég föst í netinu.
Því meira sem ég sprikla til að losa mig
því fastar festist ég.
Í netinu.
Bankanetinu.

fimmtudagur, 31. ágúst 2006

Mér skilst að það sé að hefjast eitthvert ægilegt Flóaævintýri... úff, ég er víst orðin sjómannskona aftur. Mig vantar gamalt og ódýrt bílrúff undir sjómanninn minn svo hann komist stundum heim til mín. Annars sækji ég hann bara niður á Reykjvíkurhöfn þegar jólin fara að nálgast.

miðvikudagur, 30. ágúst 2006


Ótrúlegt hvað landinn getur staðið saman þegar eitthvað er að gerast. Ég vissi ekki hver Magni var fyrir nokkrum vikum og svo er örugglega um fleiri en mig. Núna er ég komin í lið með þeim sem styðja Magna. Eins og mér sé, inn við bein, ekki slétt sama hvort Magni sé að syngja á Borgarfirði eystri eða í Kaliforníu. Ég fór á fætur klukkan hálf þrjú í nótt og sendi honum fullt af atkvæðum úr símanum mínum. Ég eyddi líka tíma við að komast inn á rockstar í gegnum msn eins var búið að auglýsa en það gekk ekki hjá mér. Nú er ég að velta því fyrir mér af hverju ég láti svona múgæsingu hafa áhrif á mig og hvort Magni myndi gera eitthvað fyrir mig klukkan hálf þrjú um nótt ef ég bæði hann.

þriðjudagur, 29. ágúst 2006


Einn af uppáhalds-
dögunum mínum er í dag.
Höfuðdagurinn.
36 ár síðan við Simmi minn gerðum það heyrinkunnugt að við vildum eiga hvort annað. Þá var til siðs að trúlofast með hring sem við og gerðum.
Á höfuðdaginn.
Góður dagur.

mánudagur, 28. ágúst 2006

Það var einkennileg tilfinning að aka út úr þorpinu á föstudag með Sólbrekku í eftirdragi á þessum árstíma. Skólinn byrjaður og hugurinn allur þar þannig að ég var með svona "svíkjastundaneraðgleyma" tlfinningu. Það var samt brunað upp í Reykholt og helgin tekin með stæl þar. Tilefnið fararinnar var að fara á hið fræga Bjarnaball í Aratungu á laugardeginum en af því veðrið var svo gott tókum við forskot á sæluna og fórum á föstudag og reistum Sólbrekku. Veðrið var yndislegt, eiginlega besta helgin veðurlega séð í sumar. Mér finnst líka skemmtilegra að vera í útilegu þegar farið er að skyggja. Við hengdum upp ljósaseríur og kveiktum á kertum og höfðum humarveislu um miðnætti á föstudag. Það var ægilega kósí. Við vorum nokkur hjón sqaman og hafði Gunnar Daníel skipulagt ballferðina.
Bjarnaball var hin mesta skemmtun. Mikið dansað og mikið tjúttað. Þarna skemmtu Raggi Bjarna og Þuríður auk annarra stuðbolta.

föstudagur, 25. ágúst 2006

Ég má ekki borða hvítlauk. Ekki ef ég vil hafa manninn, sem sefur stundum hjá mér, góðan. Ég anga víst alveg hræðilega ef ég læt þessa matartegund inn fyrir mínar varir. Allavega að hans mati. Ég nota þess vegna mjög sjaldan hvítlauk. Ég hef stundum talið hann vera ímyndunarveikan, því mér hefur fundist með ólíkindum hvað hann getur kvartað yfir lyktinni, jafnvel þó ég hafi ekki vitað að það væri hvílaukur í matnum. Stundum nota ég reyndar tilbúnar krukkusósur og þar getur laukurinn leynst.
Ég var ein heima í kvöldmat í gær og hugsaði mér gott til glóðarinnar og eldaði pastarétt með hvítlauk. Ég notaði tvo geira en eldaði tvöfalt, með hádegið í dag í huga.
Báturinn kom óvænt að landi þannig að klukkan 23, fjórum klukkutímum eftir að ég borðaði hvílaukinn, sem maðurinn hafði ekki hugmynd um, náði ég í hann niður á bryggju og það fyrsta sem hann sagði þegar hann settist inn í bílinn var: "Varstu að borða hvílauk?"
Ég verð víst að trúa honum.

þriðjudagur, 22. ágúst 2006

Ég hef reynt eins og ég get að taka ekki með mér vinnuna heim undanfarin ár. Og bara tekist þokkalega vel. Ég tek helst ekki með mér verkefni nemenda heim eins og ég gerði hér á árum áður en hugurinn er alltaf við skólann og krakkana.
Ég stóð sjálfa mig heldur betur að verki áðan eða rétt fyrir kvöldmat. Ég "loggaði" mig inn á Mentor og skráði þar mætinmgu nemenda minna í dag og skrifaði þar í dagbók og skráði þar heimanám.
Sem sagt, ég er hætt að vinna heima það sem ég var vön að gera heima en byrjuð að gera það sem ég gerði aldrei áður heima.
Það er ekki öll vitleysan eins.
En þægilegt að geta farið í tölvuna heima ef tími hefur ekki unnist til þess á vinnustaðnum eða allar tölvur uppteknar eða netið legið niðri.

mánudagur, 21. ágúst 2006

 
Tengdadóttirin Posted by Picasa
Tengdadóttirin á afmæli í dag. Eitthvað farin að skríða á fertugsaldurinn. Ekki að það skipti einhverju máli, aldur er mjög afstæður í hennar huga. Hún á vini á öllum aldri. Enda er hún skemmtileg og falleg og laðar að sér fólk.
Hún er frábær kokkur og gerir bara góðan mat.
Það skiptir engu hverju hún klæðist, allt fer henni vel. Mér fannst svolítið skrítið þegar ég kynntist henni fyrst að hún skyldi fara í spariföt hversdags en svo lærði ég þetta. Hún fer í það sem hana langar að fara í í það skiptið. Ég hef t.d. farið með henni í fjallgöngu í síðkjól. Hún á sinn eigin fatastíl, er trú honum og það finnst mér frábært hjá henni.
Hún sendi tengdapabba sínum einu sinni kort sem endaði á orðunum...megi lukkan hanga aftan í rassgatinu á þér til æviloka...og fær þessi elska hér með orðin til baka.
Við, gamli minn, ákváðum að fara á menningarnótt þeirra í höfuðborginni. Við erum svo heppinn að Doktorinn býr í göngufæri við menninguna þannig að við lögðum bílnum heima hjá honum upp úr hádeginu og gengum tvo í átt að herlegheitunum. Ég var með ákveðið plan í huga. Mig langaði að sjá og heyra Bogomil og Flís og fara á myndlistarsýningu Kjartans Guðjónssonar. Allt annað sem yrði skemmtilegt á vegi okkar yrði bara bónus. Þetta gekk eftir. Bogomil var flottur með salsamúsikina og verkin hans Kjartans flottari en Þorvalds Skúlasonar, sem var með sýningu á sama stað, þó ég haldi að Þorvaldur sé dýrari og frægari. Ég þekkti ekkert til Kjartans Guðjónssonar fyrr en ég heyrði viðtal við hann í útvarpinu um daginn. Ég var með The old steam í eyrunum í kraftgöngutúr um Nesið. Mér fannst kallinn vera svo mikill töffari í röddinni og tilsvörum, þrátt fyrir háan aldur, þannig að mig langaði að berja myndirnar hans augum og sé ekki eftir því.
Við hittum fullt af fólki sem við þurftum að spjalla við og sáum hitt og þetta skemmtilegt.
Kvöldverður var snæddur hjá Doktornum. Við höfðum með okkur grill og humar og buðum upp á humar í forrétt. Tengdadóttirnn var með kjötsúpu því að í mat komu einnig útlenskir vinir sem var verið að gæða e-u ekta íslensku.
Eftir kvöldmat var stormað aftur út og nú að sjá Megasukk sem ætluðu að koma fram í ruslaportinu hjá Við Tjörnina. Þar byrjaði upphitunarhljómsveit, sem ég man ekki hvað heitir, og síðan Fræbblarnir. Megasukk lét standa á sér þannig að Fræbblarnir spiluðu ein tíu til fommtán lög en aldrei kom meistarinn með sukkatið. Að lokum tilkynnti Valli í Fræbblunum að þeir kæmu eftir flugeldasýningu. Þar með misstum við af því en í staðinn fengum við þarna þrusugóða tónleika með Fræbblunum. Ég held að ég léti aldrei Fræbblana í græjurnar heima en það var rosalega gaman að sjá þá svona "læf."
Við horfðum á flugeldasýninguna frá Vesturgötunni.
Fínn dagur í höfuðborginni.
Fín menningarnótt frá mínum bæjardyrum séð.
Enda fór ég heim eftir flugeldasýninguna.

þriðjudagur, 15. ágúst 2006


Nú fer lífið að færast í réttar skorður. Ég var á frábæru námskeiði fimmtudag og föstudag og er búin að fara tvo daga í vinnuna svo hið dásamlega letilíf er að baki. Þó að námskeiðið, sem var á vegum Ísbrúar, hafi verið gott var það það besta að vera þar með Betu minni, vinkonu frá Kennóárunum. Mér finnst að í nokkur andartök hafi 35 ár þurrkast út og við orðnar að kennaraskólaskvísum aftur.
Það var fínt að hitta samstarfsfólkið aftur eftir frí. Allt komið á fulla ferð í skipulagningu og bara gaman að því.

miðvikudagur, 9. ágúst 2006


Þriðjudaginn 1.ágúst tengdum við Sólbrekku aftan í Trúberinn og lögðum af stað í leit að sól. Við fundum hana í Borgarfirðinum, svo við plöntuðum okkur að Varmalandi og nutum þar "bleðurvíðunnar" í tvo daga. Héldum svo áfram leitinni og fundum næst sól og hita á Akureyri. Við ætluðum helst ekki að vera neins staðar þar sem skipulögð dagskrá var en við urðum veðurteppt þarna í fjóra sólarhringa. Einn daginn fór mælirinn á Ráðhústorginu upp í 24°. Þá er ekkert vit í öðru en að setjast niður með kaldan drykk í glasi. Við vorum ekkert að fylgjast með auglýsri dagskrá heldur gerðum bara það sem okkur fannst skemmtilegast. Lágum í sólbaði og nutum þess að vera löt í fríi. Svo finnst okkur líka gaman að rölta niður í bæ og fá okkur að borða á góðum veitingastað. Við tókum þáttí brekkusöngnum þeirra og horfðum á flugeldasýninguna, sem var stórkostleg.