þriðjudagur, 25. nóvember 2003
Manni getur nú sárnað þegar maður er spurður að því hvort maður fari ekki örugglega á kóræfingu.
Enn undrast ég á tækninni og hvað heimurinn skreppur saman á degi hverjum. Ég spjallaði við Döbbu Jones áður en fór á kóræfingu og hún sagði mér að þau skötuhjúin hefðu farið í heimsókn til Tracyar, systur Daves, í dag. Þegar ég kom heim af æfingu kíkti ég á póstinn minn og þar fann ég sendingu frá Tracy. Það er rétt eins og ég hafi líka verið þar í heimsókn.
mánudagur, 24. nóvember 2003
Ömmuljósin mín þrjú heita Karl Kolbeinn sem 10 ára gamall síðan í júlí, Nanna sem er 3 ára síðan í maí og Lúkas Þorlákur sem fæddist 6. nóv. s.l.
Sjálfsmyndin markast af því sem maður er. Ég er t.d. Þorlákshafnarbúi, kona, eiginkona, móðir, kennari, Sunnlendingur, aðeins of þung, kristin, vinur, húsmóðir, starfsfélagi, hjálparkokkur, kórfélagi, dóttir, systir og síðast en ekki síst, amma. Ég er afskaplega upptekin af því að vera amma þó að ég geti ekki verið í hlutverkinu beinlínis dags daglega. Suma titlana þarf maður að rækta, aðrir eru bara þarna og gerir mann að því sem maður er. Húsmóðirin notar ekki mikinn tíma nú orðið en mikill tími fer í "aðeins of þung." Kennarinn á algjörlega lungað úr deginum, kórfélaginn öll þriðjudagskvöld og suma sunnudaga. Það er gaman að velta þessu fyrir sér og finna út hvaða hluti manns er mikilvægastur. Ég ætla að hugsa aðeins lengur.
sunnudagur, 23. nóvember 2003
Fyrir viku síðan vorum við, Simmi minn, að skoða okkur um í borginni Wrexham í Wales. Svava Rán og Dave búa í úthverfi hennar og tekur nokkrar mínútur að fara niður í miðbæ með strætó. Þar þykir sjálfsagt að skilja bílinn eftir heima og taka strætó. Það er ekkert mál að keyra barnavagninn beint inn í strætóinn og þar inni er staður fyrir vagninn. Þar sem þau búa, í Rhosllanercrugog, er mjög stutt í alla þjónustu, allt sem Svava Rán þarf dags daglega hefur hún í nokkurra mínutna göngufæri. Hvort sem það er slátrarinn, bókasafnið, heilsugæslan, apótekið eða matvörubúðir.
Ég keypti ljóðabókina Bónusljóð í Bónus í gær. Ég missti af henni þarna um árið þegar hún kom út, enda bjó ég þá á Austurlandi, langt frá Bónus. Ljóðin hans Andra Snæs falla mér vel í geð, ég hef svo gaman af alls kyns orðaleikjum. Þegar ég las þetta ljóð í gær:
Hann sér ekki
jafn illa og hann
vill vera að láta
maðurinn sem greip um
melónur konunnar.
Datt mér þessi mynd af hjónakornunum í Iowa í hug.
Hann sér ekki
jafn illa og hann
vill vera að láta
maðurinn sem greip um
melónur konunnar.
Datt mér þessi mynd af hjónakornunum í Iowa í hug.
laugardagur, 22. nóvember 2003
Doktorsefnið í Iowa hringdi um hádegisbilið,þar sem við Simmi minn vorum að ganga frá í Króniku. Það var eldsnemma morguns hjá þeim Iowaverjum en Kalla langaði aðeins að heyra í gamla settinu sínu. Honum gengur rosalega vel með doktorsrannsóknina sína og stefnir á að ljúka fyrr en áætlað var. Enda vinnur hann 28 tíma í sólarhring eða þar um bil. Við, gamla settið fengum svona smá amerískan jólafíling þegar við vorum búin að spjalla við hann en það verður að koma í ljós hvað verður. Kannski maður fari bara í Búnaðarbankann og taki út það sem maður á þar á reikningi.........
miðvikudagur, 19. nóvember 2003
Allt í einu er maður komin heim aftur. Fyrst núna er það orðið raunverulegt fyrir mér að dóttir mín er orðin móðir og sest að í útlöndum. Það er yndislegt að hún skuli vera orðin móðir en öllu erfiðara fyrir okkur, gamla settið, að hafa hana og barnið svona langt í burtu. Við vitum þó núna að hún á frábæran tilvonandi eiginmann, umhyggjusaman og elskulegan. Það róar okkur. Hún býr í fallegu úthverfi af Wrexham, þar sem hún hefur allt innan seilingar sem hún þarf. Þarna er enginn að drepast úr lífsgæðakapphlaupi. Lífið snýst um eitthvað allt annað. Íslendingar gætu lært heilmikið af Walesverjum ef þeir kærðu sig um.
miðvikudagur, 12. nóvember 2003
Þá er búið að pakka. Þrátt fyrir að við Simmi minn séum bara með naríur og tannbustana í farangrinum urðum við að pakka niður í stóru, stóru ferðatöskuna, sem sumir vilja meina að rúmi mann, vegna allra pakkanna sem við vorum beðin fyrir. Það er nú ekki amalegt að koma eins og jólasveinninn til Wales. Það eru alla vega fleiri pakkar í töskunni sem Dabbiló þarf að taka upp heldur en hún hefur fengið undanfarin jól í jólagjöf. Ég hlakka svo til ferðarinnar, þó aðallega að hitta Lúkas litla dótturson minn, að ég er með tilhlökkunarhnút í maganum eins og lítið barn sem bíður jólanna.
mánudagur, 10. nóvember 2003
Ég hef oft skoðað myndirnar hans Hallgríms á heimasíðu Ölfuss en uppgötvaði ekki fyrr en um daginn er ég skoðaði þessa gaumgæfilega að hún er af Karli Kolbeini, tekin á Sjómannadag 2001. Hann kom frá Ameríku daginn áður. Hann var nánast krúnurakaður daginn eftir a ðhans eigin ósk. Mér finnst hann nú voðalega sætur með mikið hár.
Við systurnar vorum allar á árshátíðinni, hver með sínum vinnustað. Rut með Jóni slökkviliðinu en Gréta með leikskólanum. Gunnar Daníel var í landi og var auðvitað á vettvangi. Þarna voru líka gamlir nemendur sem eru auðvitað fullorðnir menn í dag. Ég var í slagtogi með kennaraliðinu og skólastjóranum sem sló í gegn sem Litla ljót.
sunnudagur, 9. nóvember 2003
Það var rosalega gaman á árshátíðinni. Ég hef ekki fengið neinar athugasemdir við skemmtiatriðinu okkar kennaranna en við skemmturm okkur allavega mjög vel við samningu atriðisins og á æfingum sem voru alls tvær. Ég varð að fara heim áður en ég var búin að fá nóg af því að önnur stóra táin var komin út úr svörtum sokkabuxunum. Þetta var svo áberandi, að mér fannst og leið svo illa yfir þessu að ég fór heim. Simmi var mjög sáttur við það og ég var fegin þegar ég vaknaði í morgun að hafa drifið mig. Það var þá ekkert mál að syngja í messu.
Ég fer stundum með aukasokkabuxur með mér á ball síðan ég datt fyrir framan veitingahús í Reykjavík, fyrir mörgum árum og bæði hnén fóru út úr en gerði það ekki í gær. Ég býst við að ég geri það að föstum lið hér eftir að hafa aukabuxur með.
Ég fer stundum með aukasokkabuxur með mér á ball síðan ég datt fyrir framan veitingahús í Reykjavík, fyrir mörgum árum og bæði hnén fóru út úr en gerði það ekki í gær. Ég býst við að ég geri það að föstum lið hér eftir að hafa aukabuxur með.
laugardagur, 8. nóvember 2003
Hér er doktorsefnið önnum kafið við að rannsaka svefn rottuungans. Flestir hrylla sig og segja oj, þegar rottuungar eru nefndir en þegar ég sá þetta með berum augum vorkenndi ég greyjunum. Þeir eru með snúrur og tæki fest við heilann og tengdir við tölvu. Ég vildi helst frelsa þá úr prísundinni. En þessar rannsóknir eiga vonandi eftir að koma að góðu gagni.
föstudagur, 7. nóvember 2003
Í Iowa city í Ameríku hleypur um lítið stelpuskott, sem heitir Nanna. Ammu og afi á Íslandi þrá ekkert heitar en fá að kynnast henni betur en bara í gegnum síma. Hún á ótal gullkorn sem við höfum fengið að heyra en faðmlagið, brosið og knúsið sem fæst með nálægðinni bíður betri tíma. Þegar hún frétti af nýja frændanum í Wales spurði hún hvort hann talaði amerísku.
Hver veit nema þau eigi eftir að spjalla saman á ensku.
Hver veit nema þau eigi eftir að spjalla saman á ensku.
Alltaf er hann að skreppa meira og meira saman þessi heimur sem við lifum í. Frá því ég kom heim úr vinnunni í dag er ég búin að tala við gamla settið mitt sem er statt á Kanarí og vill fylgjast með því sem er að gerast innan fjölskyldunnar eða þeirra afkomenda. Ég er einnig búin að tala við hana dótlu sem liggur á fæðingardeild á sjúkrahúsi í Wales með sinn litla nýfædda son, alsæl en örþreytt af svefnleysi því sá stutti, Lúkas, heimtar sitt og engar refjar. Ég er líka búin að tala við doktorsefnið, hann son minn, sem er staddur í New Orleans, tilbúinn til þess að halda fyrirlestur, um svefn og svefnrannsóknir á ungviði, á stórri ráðstefnu um þessi mál. Hann á að tala á morgun klukkan korter fyrir níu á staðartíma, sem mun þá vera klukkan korter fyrir þrjú á íslenskum.
Mitt starf um þessar mundir er að senda hlýja strauma til míns fólks, vítt og breytt um veröldina.
Mitt starf um þessar mundir er að senda hlýja strauma til míns fólks, vítt og breytt um veröldina.
Stundum labba ég inn í fatabúðir og finnst allt ljótt sem er á boðstólum. Búðirnar eru troðfullar af fötum en ekkert til sem mig langar í. Ég var í kjólahugleiðingum um daginn og kíkti inn í margar búðir. Sárvantar einn eða svo. Í skápnum mínum eru sjö kjólar en ég á samt engan til að fara í. Ég var alls ekki í kjólahugleiðingum í gærkvöldi þegar ég fór á konukvöld í Kjarna Mosó. Þar sem ég er á leið minni inn í Króniku geng ég fram hjá gínu í kjólnum sem mig langar í. Kjóllinn var aukaatriði á gínunni, það voru skartgripirnir um háls hennar sem var verið að auglýsa. Ég herjaði það út að fá að máta kjólinn þegar flestar konurnar voru farnar heim. Hann var eins og saumaður á mig. Núna hangir hann inni í skáp hjá hinum kjólunum mínum.
Ég fékk rangar upplýsingar um þyngd Lúkasar Þorláks. Hann fæddist 53 cm og svo ruglaði ég með þyngdina. Hann fæddist 3480 g sem eru þá tæplega 14 merkur. Dave hringdi í gær, alveg að springa úr monti. Hann sagði að ég yrði að koma eins fljótt og ég gæti til að sjá hann. Hann vissi ekki að ég var þá þegar búin að kaupa farseðil til London. Hann sagði mér að Svava Rán gæti orðið komið í símann svo ég hringdi á spítalann til hennar. Það var yndislegt að heyra í hinni nýbökuðu móður. Ég á bara eftir að átta mig á að dóttir mín sé raunverulega orðin móðir.
Hér getur að líta nýjasta barnabarnið mitt. Er hann ekki frábær?
fimmtudagur, 6. nóvember 2003
Fæddur er í Wales, Lúkas Þorlákur Jones. Hann kom í heiminn korter fyrir eitt í nótt, þannig að draumur mömmu hans um fæðingardag rættist þ.e. 6. nóvember. Hann átti að fæðast þann 27. okt. en lét aðeins bíða eftir sér. Hann er um 15 merkur og 55 cm. Ekki gekk þetta þrautalaust hjá henni dótlu minni. Hún var búin að kveljast í eina tólf tíma þegar barnið var tekið með keisaraskurði. Ég er ekki búin að fá alla söguna í smáatriðum. Hún var dösuð en alsæl þegar hún hringdi í mig í nótt en var að fara að sofa. Dave sendi mér símanúmer áðan sem hann sagði að ég gæti hringt í og fengið samband við Svövu Rán en hún bað bara fyrir kveðju til mín og ætlar að hringja seinna. Tracy, systir Daves, er búin að senda mér myndir af prinsinum (sem ég kann því miður ekki að senda út á netið) og grét ég yfir þeim eins og það hefði aldrei áður fæðst barn í heiminn. Ég á tvö gullfalleg barnabörn fyrir og þessi er ekki síðri. Ég blæs á þetta:"Hverjum þykir sinn fugl fagur." Þau eru falleg.
Ég er búin að kaupa farmiða til London. Við gamla settið skellum okkur út næsta fimmtudag og verðum langa helgi hjá nýbökuðu foreldrunum og nýjasta barnabarninu. Við, gömlu, áttum erfitt með sofna aftur í eftir að hafa fengið tíðindin og skeggræddum þennan nýjasta viðburð innan fjölskyldunnar fram eftir nóttu.
Ég er búin að kaupa farmiða til London. Við gamla settið skellum okkur út næsta fimmtudag og verðum langa helgi hjá nýbökuðu foreldrunum og nýjasta barnabarninu. Við, gömlu, áttum erfitt með sofna aftur í eftir að hafa fengið tíðindin og skeggræddum þennan nýjasta viðburð innan fjölskyldunnar fram eftir nóttu.
laugardagur, 1. nóvember 2003
Ég hef ekki um annað hugsað og talað í allan dag en hvað það var gaman hjá mér í gærkvöldi. Simmi minn er nú það þroskaður að hann tekur þátt í gamninu með mér þótt hann hafi ekki fengið að vera með. Ég hitti sem sagt nokkur bekkjarsystkin mín frá Selfossi á Menam, veitingahúsinu hennar Stínu Árna, og áttum við þar frábæra stund. Tilefnið var að ákveða hvernig við myndum halda uppá 40 ára fermingarafmæli okkar á vori komanda. Það fór þannig að ég lenti í undirbúningsnefnd ásamt því frábæra fólki Guðna Mallings (Guðnabakarí) og Ljótí (Dómhildi hjá Osta og smjörsölunni). Við verðum að skipuleggja "skólaferðalag" fyrir gömlu bekkjarfélagana í vor eða 8. maí. Fermingardagurinn var á sínum tíma 10. maí en hann ber upp á mánudag næst svo þann áttundi varð fyrir valinu.
Umræðurnar í gærkvöldi voru allar í manstu-stílnum. Það er gaman að því hvað fólk man mismunandi hluti og hefur sett mismunandi atvik á minnið. Ekki ætla ég að uppljóstra neinu hér en ýmislegt var rifjað upp sem er auðvitað bara okkar í millum.
Ég hlakka til samkundunnar sem við þrjú eigum eftir að skipuleggja og ég tala nú ekki um undirbúningsfundina. Þeir gætu orðið ógleymanlegir líka.
Umræðurnar í gærkvöldi voru allar í manstu-stílnum. Það er gaman að því hvað fólk man mismunandi hluti og hefur sett mismunandi atvik á minnið. Ekki ætla ég að uppljóstra neinu hér en ýmislegt var rifjað upp sem er auðvitað bara okkar í millum.
Ég hlakka til samkundunnar sem við þrjú eigum eftir að skipuleggja og ég tala nú ekki um undirbúningsfundina. Þeir gætu orðið ógleymanlegir líka.