Síður

sunnudagur, 23. nóvember 2003

Ég keypti ljóðabókina Bónusljóð í Bónus í gær. Ég missti af henni þarna um árið þegar hún kom út, enda bjó ég þá á Austurlandi, langt frá Bónus. Ljóðin hans Andra Snæs falla mér vel í geð, ég hef svo gaman af alls kyns orðaleikjum. Þegar ég las þetta ljóð í gær:

Hann sér ekki
jafn illa og hann
vill vera að láta

maðurinn sem greip um
melónur konunnar.

Datt mér þessi mynd af hjónakornunum í Iowa í hug.

laugardagur, 22. nóvember 2003

Doktorsefnið í Iowa hringdi um hádegisbilið,þar sem við Simmi minn vorum að ganga frá í Króniku. Það var eldsnemma morguns hjá þeim Iowaverjum en Kalla langaði aðeins að heyra í gamla settinu sínu. Honum gengur rosalega vel með doktorsrannsóknina sína og stefnir á að ljúka fyrr en áætlað var. Enda vinnur hann 28 tíma í sólarhring eða þar um bil. Við, gamla settið fengum svona smá amerískan jólafíling þegar við vorum búin að spjalla við hann en það verður að koma í ljós hvað verður. Kannski maður fari bara í Búnaðarbankann og taki út það sem maður á þar á reikningi.........

miðvikudagur, 19. nóvember 2003

Allt í einu er maður komin heim aftur. Fyrst núna er það orðið raunverulegt fyrir mér að dóttir mín er orðin móðir og sest að í útlöndum. Það er yndislegt að hún skuli vera orðin móðir en öllu erfiðara fyrir okkur, gamla settið, að hafa hana og barnið svona langt í burtu. Við vitum þó núna að hún á frábæran tilvonandi eiginmann, umhyggjusaman og elskulegan. Það róar okkur. Hún býr í fallegu úthverfi af Wrexham, þar sem hún hefur allt innan seilingar sem hún þarf. Þarna er enginn að drepast úr lífsgæðakapphlaupi. Lífið snýst um eitthvað allt annað. Íslendingar gætu lært heilmikið af Walesverjum ef þeir kærðu sig um.

miðvikudagur, 12. nóvember 2003

Þá er búið að pakka. Þrátt fyrir að við Simmi minn séum bara með naríur og tannbustana í farangrinum urðum við að pakka niður í stóru, stóru ferðatöskuna, sem sumir vilja meina að rúmi mann, vegna allra pakkanna sem við vorum beðin fyrir. Það er nú ekki amalegt að koma eins og jólasveinninn til Wales. Það eru alla vega fleiri pakkar í töskunni sem Dabbiló þarf að taka upp heldur en hún hefur fengið undanfarin jól í jólagjöf. Ég hlakka svo til ferðarinnar, þó aðallega að hitta Lúkas litla dótturson minn, að ég er með tilhlökkunarhnút í maganum eins og lítið barn sem bíður jólanna.

mánudagur, 10. nóvember 2003

Ég hef oft skoðað myndirnar hans Hallgríms á heimasíðu Ölfuss en uppgötvaði ekki fyrr en um daginn er ég skoðaði þessa gaumgæfilega að hún er af Karli Kolbeini, tekin á Sjómannadag 2001. Hann kom frá Ameríku daginn áður. Hann var nánast krúnurakaður daginn eftir a ðhans eigin ósk. Mér finnst hann nú voðalega sætur með mikið hár.
Við systurnar vorum allar á árshátíðinni, hver með sínum vinnustað. Rut með Jóni slökkviliðinu en Gréta með leikskólanum. Gunnar Daníel var í landi og var auðvitað á vettvangi. Þarna voru líka gamlir nemendur sem eru auðvitað fullorðnir menn í dag. Ég var í slagtogi með kennaraliðinu og skólastjóranum sem sló í gegn sem Litla ljót.

sunnudagur, 9. nóvember 2003

Það var rosalega gaman á árshátíðinni. Ég hef ekki fengið neinar athugasemdir við skemmtiatriðinu okkar kennaranna en við skemmturm okkur allavega mjög vel við samningu atriðisins og á æfingum sem voru alls tvær. Ég varð að fara heim áður en ég var búin að fá nóg af því að önnur stóra táin var komin út úr svörtum sokkabuxunum. Þetta var svo áberandi, að mér fannst og leið svo illa yfir þessu að ég fór heim. Simmi var mjög sáttur við það og ég var fegin þegar ég vaknaði í morgun að hafa drifið mig. Það var þá ekkert mál að syngja í messu.
Ég fer stundum með aukasokkabuxur með mér á ball síðan ég datt fyrir framan veitingahús í Reykjavík, fyrir mörgum árum og bæði hnén fóru út úr en gerði það ekki í gær. Ég býst við að ég geri það að föstum lið hér eftir að hafa aukabuxur með.

laugardagur, 8. nóvember 2003

Hér er doktorsefnið önnum kafið við að rannsaka svefn rottuungans. Flestir hrylla sig og segja oj, þegar rottuungar eru nefndir en þegar ég sá þetta með berum augum vorkenndi ég greyjunum. Þeir eru með snúrur og tæki fest við heilann og tengdir við tölvu. Ég vildi helst frelsa þá úr prísundinni. En þessar rannsóknir eiga vonandi eftir að koma að góðu gagni.

föstudagur, 7. nóvember 2003

Í Iowa city í Ameríku hleypur um lítið stelpuskott, sem heitir Nanna. Ammu og afi á Íslandi þrá ekkert heitar en fá að kynnast henni betur en bara í gegnum síma. Hún á ótal gullkorn sem við höfum fengið að heyra en faðmlagið, brosið og knúsið sem fæst með nálægðinni bíður betri tíma. Þegar hún frétti af nýja frændanum í Wales spurði hún hvort hann talaði amerísku.
Hver veit nema þau eigi eftir að spjalla saman á ensku.
Alltaf er hann að skreppa meira og meira saman þessi heimur sem við lifum í. Frá því ég kom heim úr vinnunni í dag er ég búin að tala við gamla settið mitt sem er statt á Kanarí og vill fylgjast með því sem er að gerast innan fjölskyldunnar eða þeirra afkomenda. Ég er einnig búin að tala við hana dótlu sem liggur á fæðingardeild á sjúkrahúsi í Wales með sinn litla nýfædda son, alsæl en örþreytt af svefnleysi því sá stutti, Lúkas, heimtar sitt og engar refjar. Ég er líka búin að tala við doktorsefnið, hann son minn, sem er staddur í New Orleans, tilbúinn til þess að halda fyrirlestur, um svefn og svefnrannsóknir á ungviði, á stórri ráðstefnu um þessi mál. Hann á að tala á morgun klukkan korter fyrir níu á staðartíma, sem mun þá vera klukkan korter fyrir þrjú á íslenskum.
Mitt starf um þessar mundir er að senda hlýja strauma til míns fólks, vítt og breytt um veröldina.
Stundum labba ég inn í fatabúðir og finnst allt ljótt sem er á boðstólum. Búðirnar eru troðfullar af fötum en ekkert til sem mig langar í. Ég var í kjólahugleiðingum um daginn og kíkti inn í margar búðir. Sárvantar einn eða svo. Í skápnum mínum eru sjö kjólar en ég á samt engan til að fara í. Ég var alls ekki í kjólahugleiðingum í gærkvöldi þegar ég fór á konukvöld í Kjarna Mosó. Þar sem ég er á leið minni inn í Króniku geng ég fram hjá gínu í kjólnum sem mig langar í. Kjóllinn var aukaatriði á gínunni, það voru skartgripirnir um háls hennar sem var verið að auglýsa. Ég herjaði það út að fá að máta kjólinn þegar flestar konurnar voru farnar heim. Hann var eins og saumaður á mig. Núna hangir hann inni í skáp hjá hinum kjólunum mínum.
Ég fékk rangar upplýsingar um þyngd Lúkasar Þorláks. Hann fæddist 53 cm og svo ruglaði ég með þyngdina. Hann fæddist 3480 g sem eru þá tæplega 14 merkur. Dave hringdi í gær, alveg að springa úr monti. Hann sagði að ég yrði að koma eins fljótt og ég gæti til að sjá hann. Hann vissi ekki að ég var þá þegar búin að kaupa farseðil til London. Hann sagði mér að Svava Rán gæti orðið komið í símann svo ég hringdi á spítalann til hennar. Það var yndislegt að heyra í hinni nýbökuðu móður. Ég á bara eftir að átta mig á að dóttir mín sé raunverulega orðin móðir.
Hér getur að líta nýjasta barnabarnið mitt. Er hann ekki frábær?

fimmtudagur, 6. nóvember 2003

Fæddur er í Wales, Lúkas Þorlákur Jones. Hann kom í heiminn korter fyrir eitt í nótt, þannig að draumur mömmu hans um fæðingardag rættist þ.e. 6. nóvember. Hann átti að fæðast þann 27. okt. en lét aðeins bíða eftir sér. Hann er um 15 merkur og 55 cm. Ekki gekk þetta þrautalaust hjá henni dótlu minni. Hún var búin að kveljast í eina tólf tíma þegar barnið var tekið með keisaraskurði. Ég er ekki búin að fá alla söguna í smáatriðum. Hún var dösuð en alsæl þegar hún hringdi í mig í nótt en var að fara að sofa. Dave sendi mér símanúmer áðan sem hann sagði að ég gæti hringt í og fengið samband við Svövu Rán en hún bað bara fyrir kveðju til mín og ætlar að hringja seinna. Tracy, systir Daves, er búin að senda mér myndir af prinsinum (sem ég kann því miður ekki að senda út á netið) og grét ég yfir þeim eins og það hefði aldrei áður fæðst barn í heiminn. Ég á tvö gullfalleg barnabörn fyrir og þessi er ekki síðri. Ég blæs á þetta:"Hverjum þykir sinn fugl fagur." Þau eru falleg.
Ég er búin að kaupa farmiða til London. Við gamla settið skellum okkur út næsta fimmtudag og verðum langa helgi hjá nýbökuðu foreldrunum og nýjasta barnabarninu. Við, gömlu, áttum erfitt með sofna aftur í eftir að hafa fengið tíðindin og skeggræddum þennan nýjasta viðburð innan fjölskyldunnar fram eftir nóttu.

laugardagur, 1. nóvember 2003

Ég hef ekki um annað hugsað og talað í allan dag en hvað það var gaman hjá mér í gærkvöldi. Simmi minn er nú það þroskaður að hann tekur þátt í gamninu með mér þótt hann hafi ekki fengið að vera með. Ég hitti sem sagt nokkur bekkjarsystkin mín frá Selfossi á Menam, veitingahúsinu hennar Stínu Árna, og áttum við þar frábæra stund. Tilefnið var að ákveða hvernig við myndum halda uppá 40 ára fermingarafmæli okkar á vori komanda. Það fór þannig að ég lenti í undirbúningsnefnd ásamt því frábæra fólki Guðna Mallings (Guðnabakarí) og Ljótí (Dómhildi hjá Osta og smjörsölunni). Við verðum að skipuleggja "skólaferðalag" fyrir gömlu bekkjarfélagana í vor eða 8. maí. Fermingardagurinn var á sínum tíma 10. maí en hann ber upp á mánudag næst svo þann áttundi varð fyrir valinu.
Umræðurnar í gærkvöldi voru allar í manstu-stílnum. Það er gaman að því hvað fólk man mismunandi hluti og hefur sett mismunandi atvik á minnið. Ekki ætla ég að uppljóstra neinu hér en ýmislegt var rifjað upp sem er auðvitað bara okkar í millum.
Ég hlakka til samkundunnar sem við þrjú eigum eftir að skipuleggja og ég tala nú ekki um undirbúningsfundina. Þeir gætu orðið ógleymanlegir líka.

miðvikudagur, 29. október 2003

Þá er Vetur konungur genginn í garð. Það þýðir víst ekki annað en að bjóða kallinn velkominn en ég ætla bara að vona að hann verði jafn mildur við okkur Frónverja og hann hefur verið undanfarna vetur.
Það var metdagur hjá Simma mínum í Króniku. Það komu hvorki meira né minna en 70 manns í hádegisverð. Ég skil ekki hvernig hann fer að þessu. Hann hlýtur að sýna e-a Jesústæla fyrst allir fengu að borða. Ég fékk reyndar ekki grillaðan kjúlla eins og venja er á miðvikudagskvöldum, því allt kláraðist, en hann hafði tekið frá í skál handa mér hakkaðn fisk áður en hann bjó til fars úr honum þannig að ég gat gert mér mitt sérviskufars og steikt mér sérviskufiskibollur eða sem sagt í anda "de danske." Ég er sko ekki matvönd ég hlýði bara fyrirskipunum.

þriðjudagur, 28. október 2003

Ég kippist til í hvert sinn sem síminn hringir í þeirri von að það sé Svava Rán komin með hríðir eða Dave að tilkynna fæðingu Baby Jones en ekkert gerist enn. Hann átti að fæðast í gær samkvæmt því sem læknavísindin segja en það fyrirfinnst í ættinni að gengið sé lengur með en áætlað var. Svava Rán kom þó á hárréttum degi, sem betur fer var hún svona hugguleg við foreldra sína. Við gátum þá verið öll saman á jólunum. Komum heim á Þorláksmessu. Við Kalli eyddum aftur á móti fyrstu jólunum hans á fæðingardeildinni. Það er svo langt síðan að það var ekki búið að finna upp þetta að sængurkonur gætu farið heim til sín þegar þær vildu. Það ræddi ekkert um annað en viku legu á fæðingardeildinni.
Ég skil gemsann ekki við mig núna. Ætla að taka hann með í kennslustundir þangað til barnið er fætt. Segiði svo að hann sé ekki farinn að stjórna ömmu sinni.

föstudagur, 24. október 2003

Í dag er dagurinn þegar við konur fylktum liði til Reykjavíkur og felldum niður vinnu til þess að sýna það og sanna að okkar störf væru miklivæg, til að sýna það og sanna að þjóðfélagið lamast þegar við mætum ekki til vinnu og til þess að berjast fyrir bættum kjörum kvenna. Þessi dagur er ógleymanlegur en ég býst við að þegar upp er staðið þá hefðum við konur viljað sjá árungur baráttunnar fyrr í verki. En þolinmæði þrautir vinnur allar. Eitthvað hefur gerst þó enn sé spotti að landi.
Það er eitt sem víst er að ég verð ekki eins líkamlega þreytt í kennslunni eins og að vinna á veitingastað en oft þreytt engu að síður, bara öðruvísi.

miðvikudagur, 22. október 2003

Og svo er allt í einu komið vetrarfrí.
Ég ætla að gefa Siggu tengdó frí og fara sjálf með Simma í Króniku þannig að í sjálfu sér fæ ég ekki frí, vinnan er bara öðruvísi.

laugardagur, 18. október 2003

Ég er búin að afreka heilmikið í dag þó svo dagurinn sé stutt á veg kominn. Við Sigga tengdó fórum tvær í bæinn og sáum um Kroniku því Simmi þurfti að vera á svæðisráðsfundi hjá Kiwanis. Hann lagði línurnar fyrir daginn og sagðist halda að það kæmu svona 10 karlar að borða. Ég bjó til pylsupottrétt, sem krökkunum mínum þótti góður þegar þeir voru litlir, og Sigga steikti ýsu af sinni alkunnu snilld. Það borðuðu 23 hjá okkur en við urðum að metta alla eins og Jesús forðum og það tókst. Það kláráðist líka hver tutla hjá okkur.
Doktorsefnið í Ameríku hringdi og ég fékk hann til þess að útskyra fyrir mér hvað hann ætlar að rannsaka nákvæmlega. Hann varð voða feginn að fá tækifræi til þess því Mark, prófessorinn hans, sagði við hann um daginn að til þess að hann skyldi sjálfur hvað hann væri að gera yrði hann að geta útskýrt það fyrir mömmu sinni. Ég glósaði samtalið þannig að ég gæti sagt frá rannsókninni þegar ég hef lært glósurnar.
Nanna spjallaði aðeins. Hún taldi fyrir mig upp að ellefu, sagði þá:" Þrettán, nei tólf," en hætt þar með. Hún þekkir líka marga stafi og kann að skrifa þá og unir sér við skrifborð að "study" eins og Kolbeinn.
Hún spurði pabba sinn um daginn hvenær jólin kæmu. Hann sagði að þau kæmu um miðjan vetur. "Please, remind me," sagði Nanna þá.
Það er spurning hvort möguleiki sé á jólin fari fram hjá henni.

miðvikudagur, 15. október 2003

Mér finnst fuglar ekkert sérstakar skepnur. Allt í lagi með þá í fjarlægð en ég vil ekki hafa þá nálægt mér. Fuglasöngur getur verið ágætur og fuglar á flugi tignarlegir en það fer um mig einhver ónotahrollur við nálægðina. Dauður fugl er það versta. Það liggur einn hálfétinn á gangstéttinni á leið minni til vinnu og ég er að pæla í því hvað hann sé lengi að verða að mold. Ég get ekki fjarlægt hann, ekki einu sinni sparkað í hann og ég gleymi alltaf að fara yfir götuna áður en ég geng fram á hann. Ojbarasta.

þriðjudagur, 14. október 2003

Söngstjórinn bað mig um að doka við í fimm mínútur eftir æfingu. Ég gerði það án þess að vita hvað hann vildi. Hann lét mig taka nokkrar æfingar fyrir sig og reyndi að sýna mér hvernig ég gæti beitt röddinni betur. Ég hef aldrei fengið svona fína þjónustu áður. Enda kann ég ekkert að syngja þó ég sé að rembast þetta í kór. Ég á að æfa mig heima. Nú er bara að vita hvað fólkið í blokkinni segir.
Þegar ég var að horfa á Guðna og Össur borða kvöldmatinn sinn, sem var lax, í sjónvarpinu, datt mér hug hvort eldislaxinn sem slapp úr netunum þarna á Norðfirði og villtist eitthvað í burtu sé ekki orðinn villtur lax. Eða er þetta bara hártogun?
Mér varð á orði við hann Simma minn um sama sjónvarpsefni: "Mikið rosalega er þetta leiðinlegt." Simmi minn, sem er sjónvarpssjúklingur, var á sama máli. Menn að borða og reyna að finna út hvort laxastykkið á disknum væri úr villtum laxi eða eldislaxi. Hvaða máli skiptir það nú?

mánudagur, 13. október 2003

Ég elda á hverjum degi síðan ég breytti matarræðinu. Nú þigg ég ekki lengur að fá matinn tilbúinn heim á hverju kvöldi heldur matreiði ég sjálf eftir nýjum reglum. Soðið, þurrsteikt eða grillað. Allt vigtað og mælt eftir kúnstarinnar reglum. Mér finnst þetta voðalega skemmtilegt. Þetta væri líklega erfitt með fullt hús af krökkum en ég hef nú bara hann Simma minn og hann tekur dálítinn þátt í þessu með mér.
Ég fer að halda það að of vel sé fylgst með barnshafandi konum nútildags. Þetta hljómar örugglega eins og ég sé mjög gamaldags og sé á móti öllum nýungum. Það er það nú alls ekki, heldur hefur öll þessi athygli sem hún dótla mín hefur fengið síðustu mánuði gert hana óþarflega áhyggjufulla. Það er alltaf eitthvað sem hún hefur áhyggjur af í sambandi við komu litla barnsins hennar. Nú síðast var það að hún var sett í sónar í morgun, þó einungis tvær vikur séu í að stráksi líti dagsins ljós. Henni var sagt að hann væri líklega orðinn svo stór að það þyrfti að setja fæðingu af stað. Hún sem vill að þetta gangi allt sem eðlilegast fyrir sig. Það kom í ljós í sónar að barnið er ekki nema um þrjú kíló og allt í fína með það. Aumingja Svava Rán hélt að hún gengi með skrímslakrakka.

sunnudagur, 12. október 2003

Þessi helgi að verða búin. Var að gera matseðla fyrir Simma. Það er fljótlegt. Hann á fjögurra vikna plan og styðst alltaf við það.
Á föstudagskvöld var ég með saumó. Ég stefndi stelpunum heim til mín klukkan hálf níu og skilyrðin voru að mæta í bíógallanum með smáaur í vasanum. Þeir komu allar svona sætar og fínar alveg til í að sleppa handavinnunni og kökunum og gera eitthvað allt annað. Ég hellti smávegis upp á þær og fór með þær á Selfoss. Simmi og Rúnar Gunn skutluðu okkur. Við byrjuðum á Kaffi Krús og áttum þar frábæran hláturgusutíma fórum svo yfir í Pakkhúsið og skemmtum okkur þar til hálfeitt en þá kom hvorki meira né minna en Limma að sækja okkur. Við komum eins og drottningar í þorpið þó svo maðurinn sem ég sef hjá segist hafa þurft að hátta mig. Ég var samt drottning.
Hringdi í Dabbiló áðan. Hún fer í sónar í fyrramálið. Þeir vilja kíkja aðeins betur á Baby Jones. Nú get ég ekki orðið beðið eftir honum. Samt svo óraunverulegt af því ég sé ekki Döbbu dafna og stækka.
Til stendur að reyna að vaka aðeins lengur og hringa vestur yfir Atlandshaf á eftir. Þar er Kolbeinn að keppa í fótbolta í Davenport. Tveir leikir, hvorki meira né minna.

föstudagur, 10. október 2003

Gréta systir var að bjóða mér í skreppitúr á Selfoss. Hún vorkennir mér svo að vera bíllaus og komast aldrei neitt. Ég fer alltaf á laugardögum í Mosó og fer þá í bæinn ef ég þarf og svo fer ég í vigtun hjá de danske einu sinni í viku svo það þarf ekkert að vorkenna mér. Ég ætla nú samt að fara í skreppitúr á Selfoss með Grétu systir.

mánudagur, 6. október 2003

Ég lenti í skoðanakönnun áðan. Spurð út í tóbaksreykingar. Fyrstu viðbrögð mín eru að ég reyki ekki. Þannig hugsa ég um mig en svo vildi ég vera hreinskilin og sagðist stundum fá mér sígó ef ég væri að skemmta mér. Þá varð ég að svara allskonar spurningum um sígarettur og plástra og tyggjó og auglýsingar. Skrýtið, mér finnst ég ekki reykja. Enda held ég að ég geri það aldrei oftar. Bara.

sunnudagur, 5. október 2003

Dagur 12. Ég hef þurft að taka á honum stóra mínum þessa daga. Því síðan ég ákvað að breyta aðeins til á matardisknum mínum hef ég farið í tvær erfisdrykkjur, eina skírnarveislu, stjórnarskipti hjá Kiwanis, fimmtugsafmæli, út að borða og boðið upp á kökur og sælgæti. Ég hef staðist þetta allt og meira að segja tek mjög alvarlega það að áfengi er ekk leyft. Í rauninni hef ég ekki þurft svo mjög að taka á honum stóra því enn er þetta spennandi áskorun.
Við vorum 17 sem borðuðum saman í Rauða húsinu. Afmælisbarnið Sigga, Kalli, níu börn og sex tengdabörn. Það vantaði bara Svavar. Þetta var mjög skemmtilegt og ætti bara að gera oftar. Fólk borðaði ýmist fiskitvennu eða lambakjöt á eftir sjávarréttasúpu. Þetta var allt mjög ljúffengt. Ég var nú með smá sérþarfir vegna breysts/breyts/breystst (ég get ekki skrifað þetta orð) lífsstíls en það gekk allt upp.

laugardagur, 4. október 2003

Sigga tengdó er 75 ára í dag. Hún er ótrúleg kona. Vinnur fullan vinnudag og meira en það. Hún á það til að skipa okkur að setjast og hvíla okkur, því við hljótum að vera þreytt, og stjanar svo við okkur. Hún nýtur þess að gefa fólki að borða enda líður henni vel í vinnunni hjá Simma. Þar eru allir karlarnir eins og börnin hennar og hún stjanar við þá. Við ætlum öll , börnin hennar og tengdabörn, út að borða í kvöld á Rauða húsið á Eyrarbakka í tilefni afmælisins.

föstudagur, 3. október 2003

Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ sagði um daginn að það tæki 21 dag að breyta um lífsstíl. Það er dagur 10 hjá mér í dag......og gengur vel.

fimmtudagur, 2. október 2003

Mér finnst geggjað að fara í sund klukkan sjö að morgni. Nú er ég búin að fara í viku og það er alltaf jafn frábært. Vona að það verði bara þannig. Allavega: er á meðan er. Ég er nefnilega svo skratti löt við að fara út seinni partinn eða á kvöldin. Það á vel við mig að geta lokið líkamsræktinni fyrir vinnu. Ég botna bara ekkert í því að hafa ekki uppgötvað þetta fyrir löngu.

miðvikudagur, 1. október 2003

Var að enda við að þrífa sameignina. Ryksugaði teppið og geymsluganginn. Hef einstöku sinnum sleppt því án samviskubits því það hafa liðið margar vikur án þess að ég komi á þann gang. En síðan ég eignaðist þurrkarann gegnir öðru máli, ég á oft leið um þennan gang og hlýt þess vegna að eiga hlutdeild í skítnum þar. Búið og gert. Nú talar maður ekki lengur um hreingerningarlykt, sem var ekkert annað en Ajaxlykt því auðvitað eru allir löngu hættir að menga með hreingerningarefnum. Nú er það bara vatnið og réttir klútar.

mánudagur, 29. september 2003

Þvottavélin mín étur sokka. Það er eina skýringin á öllu sokkahvarfinu á heimilinu. Það hrannast upp stakir sokkar sem við getum ekki notað. Það tæki kannski enginn eftir því þó maður mætti í vinnuna í ósamstæðum sokkum en það er bara óþægilegt að vera í mismunandi gerð. Ég veit ekki annað en að ég láti alltaf inn í vélina tvo samstæða sokka þ.e. par en ótrúlega oft kemur annar sokkurinn út og hinn finnst hvergi. Ég hef það fyrir vana minn að geyma sokkinn í þeirri von að sá týndi komi í leitirnar en það er sama þó ég geymi sokka árum saman ég sit alltaf uppi með einhverja einmana sokka eins og ég kalla þá.

sunnudagur, 28. september 2003

Þegar Simmi hafði tekið við forsetatitlinum var ég krýnd kórónu. Það er skemmtileg tilbreyting að bera kórónu þó ekki sé nema stutta stund. Ég bæri hana alla daga ef hún væri ekki þung og óþægileg. Ég er nefnilega forsetafrú, eins og Dorit.
Það var Krónika í gær og skítsæmilegt að gera.
Í dag vorum við viðstödd skírn litlu dóttur Erlu og Steina. Hún fékk tvö falleg nöfn. Birgitta Ósk heitir daman. Steini hélt á henni undir skírn, svona líka pabbalegur. Á eftir athöfninni var veisla í Kíwanishúsinu. Kaffihlaðborð af flottustu gerð. Enda ekki von á öðru þegar Rut systir mín slettir í form. Strúna sá um brauðréttina. Það er ekki gert ráð fyrir að þeir sem ætli að borða sig grannan borði kökur svo ég fékk mér bara kaffi og var skíthrædd um að vera dónaleg að þiggja ekki veitingarnar. Vona bara að sem fæstir hafi tekið eftir því.

föstudagur, 26. september 2003

Áður en ég komst út úr húsi í morgun þurfti ég að vera búin að skipuleggja það vel áður. Ég varð að vera þannig klædd að ég gæti bæði kennt um morgunin og sungið við jarðarför eftir hádegi. Ég komst nefnilega ekki heim í hádeginu til þess að skipta um föt því þá var upphitun fyrir sönginn. Ég hafði einnig sundfötin meðferðis, snyrtidót, sjampó og hárblásara að ógleymdu tvöfldu nesti, morgunmat og hádegismat. Ég veit núna hvaðan hún dótla mín hefur skipulagsáráttuna. Ég var að drepast úr stressi í gærkvöldi yfir þessu öllu saman sem reyndist auðvitað ekkert vandamál þegar á reyndi. Aumingja Simmi minn tók lætin í mér inn á sig og vildi labba í Mósó í morgun svo ég hefði bílinn en mér fannst nú betra að hann hefði bílinn því e-n veginn þarf hann að komast heim fyrir kvöldið með veislumat í farteskinu handa 50 manns. Það er stjórnarskiptafundur hjá Kiwanis og hann á að taka við forsetaembættinu og ætlar líka að sjá um matinn. Ef e-r ætti að vera stressaður hefur hann leyfi til þess. Við ætlum nú samt að yfirgefa það samkvæmi eins fljótt og hægt er án þess að vera mjög dónaleg því hún Eyglo Granz, vinkona mín, ætlar að halda upp á 50 ára afmælið sitt í kvöld og því sleppi ég ekki. Hún og allt hennar lið er svo frábærlega skemmtilegt fólk að það er ekki hægt að missa af fjörinu sem ég veit að verður í Tryggvaskála á Selfossi í kvöld. Ég hefði heldur viljað vera hjá henni í kvöld heldur en með Kiwanis en hvað gerir maður ekki fyrir karlinn sinn?

fimmtudagur, 25. september 2003

Nú hef ég tvo morgna í röð farið í sund klukkan sjö, sko klukkan sjö um morgun. Ég syndi 500 metra og fer svo beint í skólann. Svona líka þrælhress en finnst ömurlegt að vera með blautt hárið. Nú er bara að velja á milli hressleika og blauts hárs. Sundhettan gerir reyndar smágagn.
Ég sleppi að strunsa kílómetrana mína í staðinn því ég er svo hrædd um að fá líkamsræktarlotugræðgi. Eins og það sé nú hætta á því. Annars veðrið svo frábært núna að ég held ég bara skelli mér í göngu.

þriðjudagur, 23. september 2003

Þegar maður hefur lesið eins frábæra grein og er í Mogganum í dag, og ber heitið Markaðssetning útlitsóánægjunnar, þá ákveður maður að nú sé komið nóg, hér eftir sættir maður sig við sjálfan sig eins og maður er. Fer svo í búð og ætlar að kaupa sér kjól fyrir næsta ball og kemst að því að í búðinni eru ekki seldir nógu stórir kjólar. Hvað er manni sagt með því annað en að maður sé of......of....... of........ eitthvað?
Maður er í hringiðu markaðssetningar útlitsóánægjunnar. Ég, og mínar líkar, er hinn dæmigerði markhópur fyrir útlitsóánægju.

mánudagur, 22. september 2003

Höfðinginn, Kolbeinn, hringdi um miðnætti á íslenskum til að tilkynna um úrslitinn í fótboltaleiknum. Hans lið vann 3-1. Hann hefði kannski ekki hringt ef öðruvísi hefði farið. En líklega eru grænu sokkarnir lukkusokkar. Það þýðir ekkert að vera í brúnum sokkum þegar flottara er að vera í grænum. Amma skilur það.
Þó að ég sé ekkert sérstaklega góð í útlensku get ég samt lesið þennan texta sem hún dótla mín sendi mér. Er mannshugurinn ekki frábær?

Aoccdrnig to a rscheearch at an Elingsh uinervtisy,
it deosn't mttaer in waht oredr the ltteers in a
wrod are, the olny iprmoetnt tihng is taht frist
and lsat ltteer is at the rghit pclae. The rset can
be a toatl mses and you can sitll raed it wouthit
porbelm. Tihs is bcuseae we do not raed ervey
lteter by it slef but the wrod as a wlohe.

sunnudagur, 21. september 2003

Kolbeinn er byrjaður að æfa fótbolta í Ameríku. Evrópskan fótbolta. Það er Spánverji sem þjálfar, hvorki meira né minna en frá Real Madrid. Hann er keyrður þrisvar í viku á æfingar og er á þessari stundu að keppa sinn annan leik. Um síðustu helgi tapaði liðið hans 4-2 en nú bíða amman og afinn á Fróni spennt eftir að frétta hvernig þessi leikur fer. Við þekkjum keppnisskapið í pilti og vitum hvað hann er tapsár. Við stöndum í huganum á hliðarlínunni og hrópum.

laugardagur, 20. september 2003

Það er greinilegt að börnin mín vita hvað kætir mig. Bæði eru þau búin að senda mér þennan texta sem þýtur á netinu eins og eldibrandur. Enda finnst mér þetta ákaflega merkilegt verandi búin að kenna krökkum í nokkra áratugi að lesa eftir hljóðaaðferðinni. Það væri gaman að athuga hvar í lestrarferlinu þessum áfanga er náð að geta lesið brengluð orð vandkvæðalaust. Ef þetta er í alvörunni frá Cambridge þá hljóta þeir að vita allt um það. Öldruð móðir mín og bleslindi maðurinn minn lásu textann miskviðalaust.

Svmkmaæt rnsanókn við Cmabrigde hkóásla þá

stkpiir ekki mlái í hðvaa röð stfiar í oðri eru, það

enia sem stikipr mlái er að frtsyi og stíasði

stinaurfn séu á rtéutm satð. Aillr hniir sfitarnir

gtea vireð í aöljrgu rlgui en þú gtuer smat lseið

það aðvuledlgea. Áæðsatn fiyrr þsesu er að

mnnashgrniuun les ekki hevrn satf friyr sig hleudr oirðð sem hiled.

Ja, hérna hér, segi ég nú bara.
Ég er alveg gáttuð.
Það fór eins og ég ætlaðist til, ég var ekkert sjóveik. Það örlaði á fiðringi í maganum síðasta hálftímann á heimleiðinni, en slapp. Vestamannaeyjar tóku vel á móti okkur. Veðrið frábært og eyjarnar alltaf jafn fallegar. Heimaklettur er upplýstur á kvöldin og var það stórfenglegt. Haustþingið var fínt. Ég lét einhver skipulagsatriði fara í fínu pirrurnar en það rist ekki mjög djúpt. Maturinn var frábær, bæði á þinginu og árshátiðinni. Hörkufjör á ballinu. Ég var búin að tryggja mér dansfélaga áður en það byrjaði. Ég veit hvernig samsetning kynjanna er í þessarri stétt og þar sem ég er ekki þeim hæfileikum búin að bjóða upp, þó svo ég sæi karlmann á lausu, þá er betra fyrir mig að hafa vaðið fyrir neðan mig ef ég á ekki að drepast úr leiðindum á svona samkundu. Mig vantar nefnilega líka hæfileikann til þess að ganga á milli og kjafta við fólk. Spjallhæfileikann kallar dótla mín það. Fyrirlestrarnir sem ég sótti voru fínir, þrátt fyrir tæknilegar truflanir, alla vega vöknuðu nokkrar spurningar sem ég ætla að leita svara við. Er þá ekki tilganginum náð?

fimmtudagur, 18. september 2003

Það hefur ekki verið talað um annað en sjóveikispillur og kojur og kvíða fyrir sjóferðinni að undanförnu. Mér dettur ekki í hug að ég verði sjóveik. Ég var fyrir nokkrum árum heila viku til sjós á Jóni á Hofi og var ekkert sjóveik. Ég fór meira að segja á dekk og gerði að kola með strákunum. Ég hef reyndar einu sinni farið með Herjólfi til Eyja og þá var ég rosalega sjóveik en það var allt annar Herjólfur enda var þá arið 1969.

miðvikudagur, 17. september 2003

Ég hringdi í Simma minn í hádeginu og bað hann að kaupa fyrir mig nærföt. Þetta fannst honum skemmtilegt verkefni og leysti það mjög vel af hendi þrátt fyrir að það hefur aldrei verið eins mikið að gera hjá honum á Króniku, síðan hann tók við, eins og í dag. Þegar hann var á leiðinni heim, með nærfötin, hringdi Alda Björg og bauð mér á nærfatakynningu, á stundinni. Þá var ég nýkomin úr baði, slugsandi um á sloppnum, og nennti alls ekki að klæða mig upp til þess að fara út. Enda var ég að pakka og gera mig klára fyrir Vestmannaeyjar.

þriðjudagur, 16. september 2003

Fyrsta kóræfing vetrarins er í kvöld. Ég ætla að mæta og prófa sjálfa mig. Ég gat varla sungið með í fyrra þó svo ég væri að reyna það. Það er eitthvað að hálsinum. Ég ræð ekki nógu vel við röddina. Ég er búin að vera hjá Einari Thoroddsen, í sprautum og innöndun stera, en ég er samt ekki ánægð með mig. Ef illa gengur í kvöld hætti ég að reyna að syngja. Hætti í kórnum. Það verður reyndar mjög erfitt. Kórinn er fastur punktur í tilverunni og búinn að vera það í mörg ár. En ég vil gera gagn en ekki ógagn.

mánudagur, 15. september 2003

Eiríkur Jónsson talar, í bakþönkum Fréttablaðsins, um skyrtertu sem hann fékk á ferð sinni á Reyðarfirði.
"Hann hlýtur að vera að tala um skyrtertuna okkar á Tærgesen," sagði ég við Simma. "Það var hvergi skyrterta í boði þar nema hjá okkur."
Við munum bara alls ekki eftir að Eiríkur hafi komið á Tærgesen svo þetta hlýtur að vera einhver önnur skyrterta.
Ég strunsaði kílómetrana mína í dag í sumarblíðu. Ég er búin að mæla þá. Þeir eru bara þrír. Ég er bara hress mað það. Þrír km á dag er betra en ekki neitt. Ég finn alveg að spikið er byrjað að bráðna. Sko ég finn það innan í mér, ekki að utan. Fötin mín eru jafn þröng ennþá. En bráðum byrjar "utanáfitan" líka að renna. Ég trúi því. Ég er bjartsýn í dag.

sunnudagur, 14. september 2003

Pizzan var svona ljómandi góð hjá mér. Prontóið hefði mátt vera betra. Langbesta prontóið er það sem Jonni Tynes kenndi mér að búa till í gamla daga. Þá mýkir maður lauk og hvítlauk í olíu, lætur niðursoðna tómata út í pottinn, smá sykur, basilíkum og tómatpúré. Þetta lætur maður malla í dágóðan tíma eða þar til þetta er orðið að fínu mauki. Í dag myndi ég líklega bæta út í þetta chilipipar og parmesanosti.
Þegar ég var að útbúa pizzuna í gær fékk ég smá vott af fortíðarþrá. Tvö tímabil í ævi minni dúkkuðu upp í hugann. Ég er í Básahrauni 11 að búa til pizzu. Börnin mín eru unglingar og kötturinn Katrín mikla réð miklu á heimilinu. Ég er búin að breiða pizzuna út og er að raða álegginu á þá kemur Kata inn um eldhúsgluggann og ég á fullt í fangi með að forða því að hún skilji ekki eftir moldug loppuför eða kattarhár á pizzunni. Blessuð sé minning Kötu. Við áttum hana í 9 ár og við Svava Rán og Simmi getum enn eytt löngum tíma í að tala um hana og rifja upp hvað hún var frábær köttur. Kalli var ekki eins hrifinn af henni enda með ofnæmi fyrir hinu og þessu.
Síðan er ég stödd á Básahrauni 9, Kolbeinn 3 ára. Ég er að útbúa pizzu og Kolbeinn er uppi á stól hinu meginn við skenkinn og hjálpar mér að koma álegginu á. Hann vildi skinku og ananas á bitann sinn. Gott ef ekki sveppi líka. Nú fékk ég enga hjálp með pizzuna en Simmi minn lagði á borð og tók upp rauðvínið sem smakkaðist frábærlega. Ég held samt alltaf mest upp á spænsku Rioja vínin.

laugardagur, 13. september 2003

Ég fór með Simma mínum í Króniku. Okkur grunaði að það yrði ekki mikið að gera, sem kom á daginn. Það komu tveir menn í mat og ein stúlka í samloku og franskar. Það er samt búið að vera fínt að gera núna í þrjár vikur. Það var hægt að borga marga reikninga í vikunni. Simmi bakaði gulrótarköku á meðan ég smurði smörrebröd svona til að æfa mig og svo bakaði ég fyrir hann tvær eplakökur. Hann er þá vel birgur fyrir næstu viku.
Ég borðaði engan hádegismat en fór heim með smörrebröd. Borðaði það í kaffitímanum. Ég sat og starði á það og hugsaði með mér að það væri kannski til eitthvað hitaeiningaminna. En þar sem ég fékk ekkert í hádeginu setti ég gúmmúlaðið ofan í mig. Ég verð líka að vita hvernig það smakkast sem ég bý til. Auðvitað var þetta mjög gott hjá mér. Mér varð á að tala upphátt um vangaveltur mínar um hitaeiningafjölda og slíkt í brauðinu og Simmi minn sagði að ef ég hefði áhyggjur yrði ég bara að gera eitthvað í málinu. Ég æsti mig og lýsti því fyrir honum hvað ég gerði mikið í málinu á hverjum einasta degi. T.d. í morgun langaði mig í kleinuna í krukkunni á borðinu hjá honum, litlu vatnsdeigsbollurnar með vanillukreminu í kæliskápnum hans, sneið af súkkulaðikökunni, stroganoffið með kartöflumúsinni, ísinn og ég tal nú ekki um afgangsfrönskurnar (hann tók of stóran skammt). Ég lét þetta allt á móti mér. Ég berst stöðugt við löngun í eitthvað. Fyrir utan þetta er ég búin að vera duglega að labba í vikunni. Tek hálftíma í að labba eins hratt og ég get. Ég á eftir að mæla hvað þetta er löng leið, giska á 4 km.
Ég elda eiginlega aldrei. Mér er færður kvöldmatur og borða skyr og ávöxt í hádeginu eða eitthvað létt. Við pöntum oft pizzu um helgar, til þess að hafa afsökun fyrir rauðvíninu. Nú er ég hins vegar að búa til pizzuna sjálf. Deigið er að hefast þó nokkrir tímar séu í matinn. Það verður betra þannig. Við erum hryllilegar pizzaætur. Þegar við vorum sjálf með pizzur á veitingastaðnum okkar á Reyðarfirði borðuðum við pizzur næstum því á hverjum degi. Þó að það væri alltaf eitthvað annað eldað líka langaði okkur mest í pizzu enda voru þær rosalega góðar hjá okkur. Ég er ekki montin manneskja. Þær voru bara góðar. Við fengum líka svo góðan kennara sem fylgdi pizzaofninum heila helgi. En svona heimapizza, sem ég er að gera núna, er öðruvísi, önnur hlutföll í deginu og deigið látið hefast strax en ekki geymt í kulda og látið kaldhefast, prontóið allt önnur tegund og ofninn nær ekki 300 gráðu hita eins og ekta pizzaofn. Ég hlakka samt til að borða heimapizzuna mína. Ekki er verra að ég mun fá með henni franskt bordeaux rauðvín, Chateau de Seguin frá árinu 2001, nr. 108816. Flaskan kostaði einar 1740 krónur í ríkinu í Smáralind.

föstudagur, 12. september 2003

Þau læðast að manni, sjúga sig föst og límast við mann svo hægt og rólega að það er ekki á nokkurn hátt hægt að verjast þeim. Ég hef verið meðvituð, í allnokkurn tíma, um að þeta gæti gerst en þrátt fyrir það eru þau komin. Ég hef reynt að sporna við þaim með því að stunda leikfimi, skokk, eróbikk, sund og göngur, ég hef reynt að losna við þau úr matnum mínum og pælt í því hvað fer ofan í mig allar götur frá því 1967. Ég hlussast samt með þau, aukakílóin, utan á mér. Þau hafa læðst að mér ein 12-14 og halda að þau eigi að vera þar. Hillary Clinton sagði frá því í spjallþætti hjá Jay Leno um daginn að það væri æ erfiðara fyrir konur, eftir því sem þær eltust, að losna við aukakílóin. Ég átti svo sem að vita það líka en var ekki búin að setja mig í hóp þeirra miðaldra. Ég verð víst að fara að drífa í því. En við aukakílóin verð ég aldrei sátt.

miðvikudagur, 10. september 2003

Ég fékk sendar myndir í pósti í dag frá Svövu Rán þar sem hún sýnir mér húsið sem hún býr í, bæði að utan og innan. Hún var búin að lýsa öllu svo vel fyrir mér að ég varð ekkert hissa þegar ég sá myndirnar nema ég hélt að raðhúsið hennar, sem er endahús, væri á hinum endanum. Þannig að nú verð ég að hugsa mér götuna hennar og húsið í öfuga átt. Það er svo sætt og fínt inni hjá henni en skrítið að sjá dótið hennar í ókunnugu húsi í Wales. Svona er lífið. Ég kíki á þetta með berum augum eftir nokkrar vikur. Búin að fá frí í vinnunni.
Hún dótla mín fékk skyndilega löngun til að lesa Bæjarlíf, sem sagt eitthvað frá heimahögunum. Það skil ég mætavel. Þegar ég flutti austur (Haddi Ásgeirs sagði nú austur fyrir hníf og gaffal) þá gerðist ég áskrifandi að Sunnlenska og fékk Hafnarfréttir, þáverandi fréttablað úr Höfninni, líka sent og var bara þokkalega dugleg að hringja á Suðurlandið til að fá fréttir. Ég varð að fá að fylgjast með, söknuðurinn var svo milkill. Mér virðist nú sem dótla sé ekki endilega að deyja úr heimþrá en vill greinilega fylgjast með því sem efst er á döfinni. Það eru þessar fínu myndir frá Hafnardögum í nýjasta Bæjarlífi. Ég skil bara ekkert í ljósmyndaranum að hafa ekki smellt einni af okkur Simma mínum við að selja kjúkling og franskar. Hann hlýtur að gera það næst.

sunnudagur, 7. september 2003

Einhvern tímann verður allt fyrst. Við, gamla settið, fórum í golf í dag. 9 holur, takk. Við höfum aldrei gert þetta áður, en langað að prófa. Við fengum einu sinni kennslu í því á Spáni að halda á kylfunni og svo átti maður að hitta kúluna en það var mjög erfitt. Simmi plataðði mig núna út á völl með því að Kiwanisklúbburinn væri með svona smá golfskemmtun. Ég vildi standa mig sem verðandi forsetsfrú og dreif mig með honum. Þá kemur í ljós að það er ekkert sem heitir smá golfskemmtun, menn spila af alvöru. Simmi brunaði til Siggu og Jóa og fékk lánaðar kylfur og dót svo við gætum verið með. Það var spilaður leikur sem heitir Betri boltinn. Ég var sett í lið með Magnúsi Jóakim. Mér fannst rosalega gaman þó ég lenti í neðsta sæti, enda ekki við öðru að búast þó að Magnús væri góður. Simmi kom heim með bikar, lenti í þriðja sæti en hann spilaði með Svani (syni Sigrúnar hans Óla bróður). Núna er hér á heimilinu, bikar fyrir golf. Ótrúlegt. Svo er spurninginn hvort við höldum áfram. Ég held að ég vildi þá byrja á því að fara til kennara og fá tilsögn.
Við, Simmi minn, fórum í gær í Kringluna eftir að hafa hangið í Króniku allan morgunin. Við seldum einn kaffibolla. Í Kringlunni dró ég hann inn í NEXT og þar keypti ég litla bleiku kápu á Erlu og Steinadóttur sem við Gréta ætlum að færa henni. Við ákváðum að ömmusystur mættu alveg kaupa eitthvað sem væri ekki endilega hagkvæmt. Kápan er á 3-6 mánaða. Við keyptum líka gallabuxur og skyrtu á 3-6 mánaða og heimsóttum Auðunn og Heiðu Sól þegar við komum heim og gáfum þeim fötin. Litli prinsinn þeirra er voða fínn strákur, hann opnaði aðeins augun til að heilsa okkur en var að fara með mömmu sinni og pabba á Ljósar nætur í Keflavík.
Þó að ég fjasi stundum út í fótboltaglápið hér á mínum bæ þá er ég nú ekki alveg frábitin íþróttinni. Ég horfði á landsleikinn, Ísland-Þýskaland, í gær og var mjög spennt. Þeir stóðu sig vel strákarnir okkar. Áttu góð færi sem bara því miður nýttust ekki til sigurs en 0-0 er ekki svo slæmt. Ég hélt að hann Simmi minn færi á límingunum rétt fyrir leikinn því sjónvarpið datt út hjá okkur. Hann rauk um alla blokk til að finna meinsemdina en fann ekki neitt að en samt er eitthvað að. Hann var svo heppinn að það eru tvær tengidósir fyrir sjónvarp í stofunni og hann varð að færa snúrurnar á milli veggja. Það var heljar tilstand og mikil læti á meðan á þessu stóð. Ég hef bara aldrei séð minn mann í þessum ham áður. Ég sat og prjónaði í rólegheitum á meðan ,alveg rasandi, á að upplifa skapofsa sem ég hafði ekki hugmynd að væri til. Það mætti halda að ég væri nýbúinn að kynnast manninum.

föstudagur, 5. september 2003

Druslaðist í skólann í morgun, lét sem ég væri búin að ná heilsu. Var samt með smá hausverk enn og slöpp. Beit bara á jaxlinn. Vann svo með Rebekku eftir kennslu, eitt af þessum verkum sem tekur ótrúlegan tíma að gera en sýnist ekki vera neitt neitt að verki loknu.
Ég læt sem ég hafi gleymt því núna að það hafi verið vigtunardagur í dag. Ég veit meira en ég vil láta opinskátt.

fimmtudagur, 4. september 2003

Þrátt fyrir sólhatt með C vítamíni og hóstamixtúru er ég með hita, beinverki og hausverk og held mig við bælið. Tölvan er ekki góður staður núna.

miðvikudagur, 3. september 2003

Sólhattur með C vítamíni og kvefmixtúra gerir gagn. Hver hefði trúað því?
Hann er þrítugur í dag, hann Dave Jones, my future son in law. Hann heldur enga veislu, ætlaði bara með Dabbiló út að borða að mér skilst. Það er nú upp og ofan hvort fólk heldur upp á þrítugs afmælið sitt. Simmi hélt upp á sitt en ég ekki upp á mitt af því Simmi var veikur. Hugsa með sér......... en síðan eru liðin mörg ár.
Ég hringdi til Wales, ætlaði að spjalla við tengdasoninn af tilefninu en það var símsvari sem svaraði. Eins og mér finnst einstaklega gaman að spjalla við svoleiðis tæki. Ég stundi nú upp einhverri afmæliskveðju en fannst eftirá að ég hefði ekki verið mjög upplífgandi í rómnum. Símsvarinn gerir mann að annarri manneskju einhvern veginn. Tilgerðarlega, uppskrúfaða og leiðinlega. Það er ekki gaman að þessu.

þriðjudagur, 2. september 2003

Ég hélt nú bara að ég hefði það ekki af í kennslunni í dag sökum kvefs. Ég vildi geta skrúfað hausinn af mér og geymt hann annarsstaðar á meðan á þessu stendur. Það tefur mann og truflar að þurfa að vera að snýta sér og vesenast í þessum fjanda. Kiddi Friðgeirs gaf mér einu sinni rosalega gott ráð við kvefi. Ég mátti velja um tvennt. Annað var að dúða mig vel, loka mig inni og vera helst í rúminu í sjö daga. Hinn valkosturinn var að láta sem ekkert væri í viku. Ætli sá síðari verði ekki fyrir valinu. En ég verð samt að fá að snýta mér og stynja smá.

sunnudagur, 31. ágúst 2003

Það er aldeilis búið að taka á skemmtanalífinu um helgina. Frábært kennarapartý á föstudagskvöld hjá Halldóri og Ester og hátíðardansleikur vegna umdæmisþings Kiwanis í Reykjavík á laugardagskvöld. Við höfðum það huggulegt á hóteli. Á meðan karlarnir voru að klára þingið notuðum við Ólína aðstöðuna sem boðið er upp á, með því að borga dálítið aukreitis, fórum í heitu pottana, fengum axlanudd og sátum smá stund í gufubaði. Slökun og næs. Eftir ræðuhöld og skemmtiatriði spilaði hljómsveitin Upplyfting og við dönsuðum eins og vitleysingar en ekki eins og virðulegt eldra Kiwanisfólk. Það sem mér fannst best var að Steini, í Dumbó og Steina, var veislustjóri og hann tók lagið með hljómsveitinni. Hann söng Angelíu. Lagið okkar Simma. Fyrsta lagið sem við dönsuðum vangadans við. Það var fyrir margt löngu og ekki óraði mig fyrir því að eiga eftir að dansa aftur eftir þessu lagi hvað þá að Steini sjálfur syngi það "live" fyrir okkur. Þetta er dálítið hallærislegt lag og texti sem "lagið okkar" en er engu að síður samt lagið okkar. Ég var nýbúin að minna Simma minn á að muna eftir því í jarðarförinni minni ásamt nokkrum öðrum lögum.

föstudagur, 29. ágúst 2003

Höfuðdagurinn í dag. Uppáhaldsdagur hjá mér. Við Simmi minn erum af hinni svokölluðu hippakynslóð en tókum ekki þannig beint þátt í gjörðum þeirra og hugmyndum á meðan á ævintýrinu stóð. Auðvitað höfðu hipparnir áhrif á heimsmenninguna en þetta frjálslyndi í ástarmálum var e-ð sem við létum fram hjá okkur fara og vorum svakalega lummó og settum upp trúlofunarhringa á þessum degi fyrir einum 33 árum. Fórum með rútu í bæinn,til þess að kaupa hringina, hálfum mánuði áður eða þegar hann átti helgarfrí á sjónum. Geymdum þá í skrifborðsskúffunni hans og settum þá upp í næsta helgafríi. Keyptir hjá Jazorski, breiðir með mynstri. Laugardagur. Hann fór á fótboltaleik í Hveragerði með strákunum og ég beið heima titrandi af spenningi. Hann kom með rósavönd seinnipartinn og við laumuðumst inn í herbergið mitt og settum á okkur handjárnin. Ég orðinn tvítug, hann ekki alveg orðinn nítján. Mömmu hafði grunað e-ð, því hún dró fram kampavínsflösku þegar við komum fram. Um kvöldið var svo farið á sveitaball með vinunum. Þorlákshöfn var eins og nafli alheimsins á þessum tíma. Ótrúlega mörg sambönd urðu til innan þorpsins og þau lifa, held ég öll enn þann dag í dag, góðu lífi.
Vigtunardagur í dag. Argggg... og garg. Þyngdist um 700 grömm. Ég veit ekki hvar þetta endar. Ég á í mjög djúpum samræðum við sjálfa mig núna. En Simmi minn var að stinga upp á pizzu og rauðvíni í kvöldmat.............

fimmtudagur, 28. ágúst 2003

Þá er búið að kenna samkvæmt stundaskrá í eina viku og ekki seinna vænna en að brjóta upp hefðbundna töflu. Á morgun verður haustgleði hjá okkur. Ester, Jóhanna og ég vorum allan seinni partinn að undirbúa útivist á morgun. Vonandi verður veðrið gott. Ég gleymdi þessum degi þegar ég gerði kennsluáætlun til 19. sept. svo e-ð á eftir að riðlast hjá manni. Æ, það verður að bíta í það súra enni eins og e-r sagði........
Erla og Steini eignuðust dóttur um hálf tólf í morgun. Ég veit ekki enn hversu þung og stór sú nýfædda er. Þar með er Rut systir orðin amma og Jón Davíð orðinn afi og ég orðin ömmusystir fjögurra barna. Ömmusystir gerir mann eldri en amma en það er nú allt í lagi. Ég vissi strax að ég ætti auðvelt með að muna afmælisdag barnsins, tuttugu og átta núll átta. Ég man Kolbrúnar dag og ár svona, tuttugu og níu núll níu átta níu.

miðvikudagur, 27. ágúst 2003

Mér finnst æðisgengið að geta farið í vinnuna mína berfætt í bandaskóm og jakkalaus. Ég hefði sjálfsagt líka getað haft stráhatt á höfðinu án þess að hann fyki út í buskann. Gamall draumur er líklega bara að rætast en hann snerist um það að eiga heima þar sem hægt væri að ganga úti með stráhatt án þess að binda hann undir kverk. Þá var ég auðvitað að tala um útlönd. Hver hefði trúað því að draumurinn rættist í Þorlákshöfn?

þriðjudagur, 26. ágúst 2003

Við, gamla dressið, skruppum inn á afrétt þeirra Gnúpverja eftir vinnu í dag. Áttum nokkuð undarlegt erindi. Jæja, undarlegt og ekki undarlegt. Honum Simma mínum dettur svo margt í hug. Héldum að þar yrði næðingur og að hausthrollur færi um okkur. Það var nú öðru nær. 22 stiga hiti um kvöldmatarleytið. Næðingurinn var haustylur og birtan var haustbleik, lyktin var haustilmur og gróðurinn var haustgrænn. Þokkalegur staður að dvelja á.......

mánudagur, 25. ágúst 2003

Ég heyri alveg ótrúlega oft fótboltalýsingar. Maðurinn, sem ég skúra hjá og sef reyndar líka, lætur engan leik í sjónvarpinu fram hjá sér fara. Og hann kaupir SÝN líka. Ég er með langan þolinmæðisstuðul, sem betur fer fyrir hann. En það er eitt sem fer í mínar fínustu taugar sem tengist reyndar ekki manninum mínum heldur öðrum mönnum. Þeir virðast halda það margir, íþróttafréttamenn og þeir sem lýsa leikjum, að orðatiltækið ...að vera á skotskónum ... sé til. Ég held að e-r hafi sagt þetta fyrir löngu í gríni en er orðið, fyrir misskilning, fast í málkennd sumra. Greyin sem vita ekki betur.
Ég var orðin skíthrædd um það að málefnið, "samráð olíufélaganna" færi í glatkistuna og þetta yrði þagað í hel. En, viti menn, það var talað um þetta í sjónvarpsfréttum í kvöld og Þráinn Bertelsson minnist á þetta í Bakþönkum Fréttablaðsins. Ég ætla bara rétt að vona að þeir fái makleg málagjöld sem hafa rænt okkur stórum fjárfúlgum með röngu bensínverði.

sunnudagur, 24. ágúst 2003

Grenjumúsin ég, grenjaði í gærkvöldi þegar hann Simmi minn setti lag á fóninn og sagist ætla að syngja þetta fyrir mig í sextugsafmælinu mínu. Hann hefur 7 ár til þess að æfa sig. En lagið syngur auðvitað Friðjón, á Austfirskum staksteinum II. Lagið er mjög fallegt og fjallar textinn um hjón sem byrjuðu ung að vera saman og ætla að halda því áfram. Við kúrðum saman í nýja sófanum okkar og ég datt svona líka ofan í djúpt tilfinningaástand.
Í dag hefur dagurinn farið í að þrífa sameignina. Þar höfum við fundið verkaskiptingu eins og á svo mörgum öðrum hlutum. Ég ryksuga stigaganginn og þríf geymsluganginn og þvottahúsið en hann sér alfarið um ruslakompuna. Ég er mjög sátt við þessa tilhögun.
Ég dúllaði svo við að pakka inn afmælisgjöfinni handa Dave tilvonandi tengdasyni. Hann verður þrítugur 3. september og ég þarf að koma pakkanum í póst á morgun svo hann fái hann fyrir afmælisdaginn. Í pakkanum eru líka buxur sem ég saumaði á Döbbu Jones. Ég hef ekki saumað buxur í 4 eða 5 ár en nú gerði ég það þó að eigandinn sé viðs fjarri. Það sem maður lætur hafa sig út í er með ólíkindum. Ég ætla rétt að vona að þær passi. Þetta eru náttúrlega óléttubuxur með teygjuefni yfir bumbuna svo þess vegna eru meiri líkur á að þær passi. Babbie Jones mun vonandi hafa það gott fyrir innan teygjuefnið.

laugardagur, 23. ágúst 2003

Hún Elsa, tengdadóttir mín, varð 31 árs 21 ágúst. Það er svo dýrt að senda pakka til Ameríku þannig að ég setti bara smáaur inn á debbarann og hringdi í hana og sagði henni að hún yrði að eyða aurunum í sjálfa sig. Hún ákvað strax að fá sér nudd. Ég vona að hún standi við það og njóti þess.

föstudagur, 22. ágúst 2003

Dásamleg þessi föstudagskvöld. þá borðum við pizzu, drekkum rauðvín og hlustum á Friðjón. Hvað er betra?
Föstudagur er vigtunardagur. Nú höfðu 300 grömm farið. Það hefði nú mátt vera meira en samt, betra en ekkert. Ég borða helmingi minna en mig langar til, þannig að þetta er þrælerfitt. Ég ætla að hafa næstu viku svipaða í matarræði og ef það fara bara 300 grömm eða minna af þá verð ég að gera e-ð róttækt. Pæla kannski í pizzunni og rauðvíninu.......

miðvikudagur, 20. ágúst 2003

Það var ósköp ljúft að fá börn inn í skólann í dag. Ég segi nú stundum í gríni að það skemmtilegasta við skólastarfið sé undirbúningurinn. En það er nú ekki rétt. Mér fannst voða gaman að hitta bekkinn minn, 9.b, í morgun. Börnin hafa svo sannnarlega breyst í unglinga, alla vega stelpurnar. Þær voru svo fínar og sætar, málaðar og uppdressaðar. Strákarnir eru óðum að breytast í töffara. Mér finnst svo stutt síðan ég fékk umsjón í bekknum en þá voru þau í 6. bekk, lítil og sæt og dauðhrædd við að fá nýjan kennara sem þau þekktu ekki neitt. Ég held að þau hafi nú tekið mig í sátt en ég finn svo sannarlega fyrir muninum á því að kenna unglingum 53 ára eða 32 ára. Mér finnst ég ekki ná eins til þeirra og áður. Ég verð að beita ömmusjarmanum í stað þess að vera vinkona. Ég kenndi mörgum foreldrum nemenda minna að lesa og skrifa á sínum tíma. Enda er ég farin að telja niður, bara 7 ár eftir í kennslu. Hugsa með sér (eins og dótla mín segir).

mánudagur, 18. ágúst 2003

Vilborg Dagbjartsdóttir sagði einu sinni í ljóði að lítil börn með skólatöskur kæmu með haustið. Mér datt þetta ljóð í hug þegar ég labbaði í morgun í skólann, ég fann allt í einu fyrir haustinu þó svo að ég sæi hvergi lítil börn á ferli með skólatöskur. Haustið hefur líklega bara verið innan í mér af því ég var að fara að byrja að vinna í skólanum. Það rigndi hressilega á mig í morgun, þegar ég fór heim í hádeginu og líka þegar ég fór heim upp úr fimm. Og það rignir enn og komið kvöld. Dagurinn var góður. Maður reynir að gera alla hluti í einu og verður pínu ruglaður en þegar upp er staðið hefur margt gerst. Innkaupalisti fyrir umsjónarbekkinn tilbúinn, stofan að verða klár, drög að stundatöflu nýbúa komin, kennsluáætlun fyrir 9. og 10. bekk fyrstu vikurnar komin í hausinn á mér svo e-ð sé nefnt. Það var gott að hitta samstarfsfólkið aftur. Lífið fer að komast í eðlilegt horf eftir sældarlíf sumarsins.

sunnudagur, 17. ágúst 2003

Við létum Menningarnótt ekki alveg fara fram hjá okkur. Við fórum í bæinn gagngert til þess að hlusta á Spaðana. Þeir voru með tónleika í Norræna húsinu kl. 16. Það tók tíma sinn að komast eftir Miklubrautinni þangað vegna gífurlegrar umferðar. Það hafðist þó á endanum og sjáum við ekki eftir því að hafa lagt þetta á okkur því Spaðarnir eru óforbetranlegir. Við skemmtum okkur konunglega ásamt fjölda annarra sem sátu eða stóðu þröngt í litlum sal í Norræna húsinu. Við rákumst á grein í blaðinu daginn áður þar sem e-r var að tala um það hve sorglegt væri að horfa upp á Norræna húsið hverfa þarna í Vatnsmýrinni innan um stóru húsin sem væri búið að byggja þarna. En Norræna húsið er eina húsið í Reykjavík teiknað af heimsfrægum arkitekt. Alvar Aldo ef ég man rétt, hinum finnska. Greinarhöfundi fannst húsinu og arkitektinum lítil virðing sýnd. Þarna sátum við svo á kaffistofunni, fyrir tónleikana, Simmi í fyrsta skipti en ég í annað. Meira um tónleikana. Þegar þeir fóru að spila lagið um hana Ásu sneri ég mér forviða að Simma og spurði hann hvernig stæði á því að Spaðarnir væru að spila lag og syngja texta frá Jóni Haralds. Simmi hélt nú frekar að Jón hefði tekið lagið upp eftir Spöðunum. Ég sem hélt alltaf að Jón ætti það. Hann spilaði það síðast fyrir mig á Hafnardögunum. Það er sama hvernig í þessu liggur, Spaðarnir eru góðir, Jón er góður og lagið er gott.

fimmtudagur, 14. ágúst 2003

Ég labbaði 4 km í gær og fyrradag einnig en lét nægja í dag að færa til húsgögn. Ég er búin að lofa sjálfri mér því að á hverjum degi, hér eftir, skuli eiga sér stað einhvers konar líkamsrækt sem komi allaveaga á móti um það bil einni vel smurðri brauðsneið. Það er 4-5 km ganga á móti 100-150 hitaeiningum. Sjúkk......
Enn erum við Simmi minn að færa til húsgögn og koma öllu í samt lag eftir að höfðinginn, Karl Kolbeinn, og uppáhaldsdóttirin, Svava Rán, yfirgáfu skerið. Það er nú líka vegna þess að við keyptum þennan líka flotta sófa og þegar hann kom í dag urðum við að máta og máta og það sem við hugsuðum í upphafi gekk ekki heldur er uppröðun húsgagna næstum eins og fyrir innlit- útlit. Nei, ég segi nú bara svona. Ég gæti farið að halda saumaklúbb skammlaust.

þriðjudagur, 12. ágúst 2003

Ég vildi að ég væri eins góður sölumaður og maðurinn í sófabúðinni. Þegar ég hringdi í dag og afpantaði sófasettið sem ég lét taka frá í gær, þakkaði hann mér rosalega vel fyrir að ég skyldi hringja og láta sig vita að ég tæki það ekki. Hálf tíma síðar hringdi hann til baka og sagði mér að hann ætti stakan sófa handa mér og ég fengi hann á mjög góðu verði. Ég féll á bragðinu, brunaði í búðina og festi mér gripinn. Það besta er nú samt að sá sófi er alveg eins og draumasófinn minn. Ég get alls ekki auglýst það sem við Simmi minn höfum á boðstólum af því ég held alltaf að það sé ekki nógu gott. Hvað þá hringt eftir kúnnum. Ég væri kannski orðin moldrík ef ég kynni þessa kúnst.

mánudagur, 11. ágúst 2003

Þá er Dabba Djóns flogin heim til sín og við gamla settið endanlega orðin ein í hosiló. Dabba er svo hamingujsöm með lífið og tilveruna að við höfum engan rétt til þess að grenja yfir því hvað hún býr langt í burtu. Hún á sitt líf og við verðum að halda áfram með okkar. Við tókum til í hosiló, þegar hún var farin og við gátum skilað dýnunni sem hún svaf á, og færðum til húsgögn til þess að sjá út hvernig við gætum nú gert sem huggulegast hjá okkur. Mér líður nefnilega svo hræðilega illa þegar einhver kemur í heimsíkn og það er ekkert nema leisíboj í stofunni. Það virkar frekar fráhrindandi á gesti. "Nei, ég sest bara hérna," segir fólk og tyllir sér á vondan borðstofustól, þegar ég býð sæti í leisíboj. Þannig að til stendur að kaupa sófa. Hvað á ég þá að gera við leisíboj?

fimmtudagur, 7. ágúst 2003

Við fengum konu frá Pilpseyjum til að kenna okkur að elda filipseyskan mat. Hún kom í morgun og eldaði einn rétt fyrir okkur og kenndi okkur um leið. Það var frábært að fylgjast með henni. Ég hafði áður reynt að gera e-ð svipað og hún var að gera, nema handbrögðin voru gjörólík. Hvernig hún skar allt grænmetið niður í strimla var unun á að horfa. Ég er vön að gera þetta allt öðruvísi. Hér eftir verður boðið upp á filipseyska núðlurétti í Café Króniku.
Það er einmanalegt í hosiló núna. Svava Rán er í Reykjavík að rækta vinskap og höfðinginn er floginn heim til sín yfir Atlandshafið. Það varð uppi fótur og fit á Leifsstöð í gær þegar við mættum þar til að tékka hann inn ásamt ferðafélaga hans, henni Irish Caldvell. Þó að miðarnir þeirra hafi verið keyptir sama dag kom í ljós að Kolbeinn var skráður heim þann áttunda í stað sjötta. Og ekki nóg með það heldur var vélin til Minneappolis yfirbókuð um þrjá. Við strunsuðum yfir í söluskrifstofu Flugleiða og sögðum farir okkar ekki sléttar. Eftir útskýringar, málavafstur og grátur höfðingjans var hann settur um borð. Núllaður um borð er málsniðið sem flugfólkið notaði. Þarna skapaðist stress í nokkrar mínútur því höfðinginn hélt að hann yrði að ferðast einn frá Keflavík til Minneappolis og þaðan til Chicago. Það hefðum við náttúrlega aldrei látið gerast. En Flugleiðafólkið reyndi eins og það gat að láta okkur breyta hans miða. Við höfðum fylgd fyrir hann í þetta flug en ekkert annað og hann átti áframhaldandi miða til Chicago í tengslum við þetta flug en ekki eitthvert annað, fyrir utan það að enginn gat hafa gert þessi mistök, að skrifa vitlausa dagsetningu á miðann hans, nema starfsfólk Flugleiða. En þetta bjargaðist og hann er kominn í fang foreldra sinna. Við, gamla settið, horfum þögul á sjónvarpið og hugsum hvort í sínum þanka að það væri nú gaman að hafa áhyggjur af því hvar höfðinginn væri núna. Annars höfum við nú alltaf getað haft ofan af fyrir hvort öðru. Eins og hann Simmi minn sagði upp úr eins manns hljóði í Þrengslunum í dag: "Hér sitjum við, hlið við hlið, keyrandi heim til Þorlákshafnar eins og undanfarin þrjátíu og e-ð ár. "

mánudagur, 4. ágúst 2003

Nanna litla hringdi í mig í gær eftir að hún hafði spurt pabba sinn hvort Kolbeinn kæmi með tösku frá Íslandi. Hún er klár sá stutta. Hún sá það út að í töskunna mætti setja hitt og þetta. Hún sagði: "Amma, geturðu sent mér baby born stoff?" Ég gaf henni baby born dúkku í jólagjöf og nú verð ég að standa mig í því að halda dúkkunni gangandi með öllu því sem hægt er að kaupa handa henni.
Frábær verslunarmannahelgi. Veðrið eins og best verður á kosið og við ekki í útilegu. Heimsóttum Erlu og Tóta þar sem þau voru í sumarbústað og grilluðum með þeim og gistum eina nótt. Þar var partur af stórfjölskyldunni saman komin, einir fjórir ættliðir, þar sem öllum kemur vel saman og allir leggjast á eitt að hafa það gaman. Hina daga, þessar helgar, skelltum við okkur í sund og slökuðum á og gerðum þess á milli helst ekki neitt. Við Simmi minn erum farin að kvíða því að Kolbeinn fer en það eru bara tvær nætur þangað til hann fer heim til sín. Við höfum Svövu Rán í viku enn. Eftir það verður gamla settið að hafa ofan af fyrir sér sjálft.

mánudagur, 28. júlí 2003

Ég hitti eina manneskju í morgun sem er meiri tilfinningagrenjuskjóða en ég. Ég grenja þegar eitthvað hjartnæmt gerist eins og þegar nemendur mínir brillera á sviði eða þegar ég er viðstödd brúðkaup. Ég grenja ekki í jarðarförum. Ég er bara svona. Í morgun kom aðeins við hjá mér gamall samstarfsmaður frá Reyðarfirði. Hún Marleen frá Belgíu. Hún grét og grét bara yfir því að hitta mig. Það var eiginlega frábær tilfinning. Við vorum ágætis trúnaðarvinkinur þegar ég bjó þar fyrir austan en við höfum ekkert hittst síðan. Nú verður bragarbót á, því hún verður aftur á ferðinni og lofaði að koma við. Ég hlakka til að hitta hana aftur.

föstudagur, 25. júlí 2003

Kolbeinn veit allt um strið sem hafa verið háð í heiminum. Hann er 10 ára og veit ótrúlegustu hluti. Ég var að hugsa það áðan, eftir langan fyrirlestur hjá honum um vopn og flugvélar, að það væri nú bara gaman að fá hann sem gestakennara í vetur. Hann segist hafa lesið um þetta allt í bókum. Hann er búinn að hafa áhuga á heimstyrjöldinni síðari síðan hann fór að tala, ég veit allt um það og þá aðallega Hitler og hans gjörðum, en ég hélt að þetta væri bar bóla sem springi en það er nú ekki aldeilis. Hann er bara í því að afla sér meiri og meiri upplýsingar um það stríð og reyndar allan stríðsrekstur í heiminum. Hann stefnir á það að verða sagnfræðingur, segir hann, þó hann hafi líka áhuga á sálfræði eins og pabbi.

miðvikudagur, 23. júlí 2003

Ég ætla rétt að vona það að Styrkur bjóði upp á megrunarlausnir í haust fyrir fólk eins og mig. Ég ræð bara ekkert orðið við þetta, fitna og fitna og þyngist og þyngist. Nýja,fína vigtin mín gerir ekkert gagn, sýnir alltaf aðra tölu en ég vil sjá. Ég er tilbúin til að leggja á mig kvöl og pínu til að léttast og grennast ef einhver vill hjálpa mér. Ég get þetta ekki ein. Játa mig sigraða.

þriðjudagur, 22. júlí 2003

Ég hef voðalega gaman að hverskonar tilviljunum. T.d. þegar Íslendingur rekst á annan Íslending af tilviljun í útlöndum. Ég hef gaman af svoleiðis sögum. Mér finnst líka skemmtileg sagan af Mors Dag plöttunum mínum. Ég keypti mér, á sínum tima, Mors Dag platta frá Bing og Gröndal, með fæðingarárum barnanna minna. Mors Dag 1971, á honum er læða með kettlinga og 1974 en á honum er ísbjörn með húna. Þeir kostaðu heil ósköp ef ég man rétt. Feðgarnir, Karl Sigmar og Karl Ægir, fóru eitt sinn í fótbolta í stofunni heima í Básahrauni og brutu 1971 plattann. Ég varð sár og fór í Rammagerðina í næstu bæjarferð til að kaupa nýjan. Þar var mér tjáð að hann fengist ekki lengur, ég yrði bara að banka upp á hjá Bing og Gröndal í Kaupmannahöfn. Nokkru síðar var ég reyndar á ferð um Norðurlönd og áður en ég komst til Köben ranglaði ég inn í antikbúð í Gautaborg og þar, innan um heilan helling af alls konar plöttum, var Mors Dag 1971. Plattinn var keyptur og prýddi veggi hjá mér í nokkur ár. Á Reyðarfirði rakst einhver (ég man ekki hver) utan í plattann og hann datt í gólfið og brotnaði. Það sama ár fékk ég 1971 plattann í jólagjöf frá Svövu Rán, hún hafði rekist á hann fyrir algjöra tilviljun í Kolaportinu. Ég tók gleði mína á ný en sú var skammvinn því Simmi rakst utan í plattann í litlu hosiló þar sem við búum núna og sami plattinn, eina ferðina enn, brotnaði. Ég límdi hann saman og hugsaði með mér að ég yrði að sætta mig við plattann svona því ég hlyti að vera búin að fá alla umfram platta sem Bing framleiddi fyrir árið 1971. Í Kaupmannahöfn um daginn var ég alls ekki að hugsa um plattann þegar við, fyrir algjöra tilviljun, rönglum inn í litla, ljóta búð á Istegade (hvað vorum við að gera þar?) og meðan Alda keypti uppáhalds líkjörinn sinn skoðaði ég draslið í búðinni. Það var frekar fátt til sölu. Nokkrir minjagripir, nokkrar vínflöskur og nokkrir jólaplattar. En viti menn, þar var einn Mors Dag platti og hann var frá árinu 1971. Ég hef núna, hangandi upp á vegg, fjórða plattann frá 1971.

mánudagur, 21. júlí 2003

Kolbeinn er alsæll með lífið. Honum var haldin heljarafmælisveisla í dag. "Öllum" var boðið í kvöldmat í Króniku. Fólk var búið að gleyma þessu með kyrkislönguna þannig að hann fékk óskir sínar uppfylltar með pening í afmælisgjöf. Hann er forríkur þessa stundina og ætlar að kaupa dollara fyrir upphæðina á morgun. Telur það vænlegan kost svo hann eyði ekki öllu í vitleysu. Mamma hans og pabbi verða svo að "díla" við hann um kyrkislönguna. Siggi langafi taldi að hann væri kominn með pening fyrir 10 metra slöngu. En ömmusystur hans krefjast þess að fá peninginn, sem þær gáfu honum, til baka ef hann kaupir slöngu þvi þær ætla þá að kaupa nærbuxur og sokka í staðinn.
Afmælisgestirnir voru frá Íslandi, Ameríku og Ítalíu, á öllum aldri. Ég gat ekki setið á mér og hagaði mér eins og kennari smástund og lét börnin fara í gamaldags leiki. Þeir slógu í gegn og ég hefði bara átt að vera búin að undirbúa fleiri.

laugardagur, 19. júlí 2003

Höfðinginn, sonarsonur minn og frumburður pabba síns á afmæli í dag. Hann hefur fyllt einn tug núna, er orðinn 10 ára gamall. Karl Kolbeinn Karlsson. Karl fjórði. Hann var ekki hrifinn af því að halda ekki veislu í dag en við komum því ekki við og ætlum að hafa veislu á mánudag í Café Króniku og bjóða "öllum". Hann hefur þau boð látið út ganga að hann vilji helst peninga í afmælisgjöf af því að hann er að safna fyrir kyrkislöngu. Þegar það fréttist hryllti mannskapurinn sig og taldi betra að gefa honum föt en það er eitthvað sem 10 ára gæi vill ekki sjá í afmælispakka. Hann hefði átt að þegja um kyrkislönguna. Þetta er í fjórða sinn sem hann á afmæli hjá okkur án mömmu og pabba. Þegar hann varð 5 ára var hann hjá okkur á Tærgesen á Reyðarfirði og mamma og pabbi í Reykjavík og svo 8, 9 og 10 ára á Íslandi hjá okkur en mamma og pabbi í Ameríku. Veislan hans verður frá klukkan 5 á mánudag. Það verður boðið upp á kjúklinga, hamborgara og stroganoff og einhver eftirréttur verður líka. Hann er búinn að banna að afmælissöngurinn verði sunginn. Við sjáum nú til með það.
Veðrið er ótrúlegt. Við situm enn úti á svölum, mjög illa klædd, og sleikjum sólina og klukkan er níu um kvöld. Lofthitinn er með allt öðrum blæ en við eigum að venjast.

föstudagur, 18. júlí 2003

Þvílík veðurblíða. Ég fékk líka að vera heima í dag. Druslaðist við að ryksuga áður en ég lagðist út úti í sundlaug. Kom svo við á pallinum hjá mömmu og þar fór hitinn upp í 50 stig. Dásamlegt, svona vil ég hafa þetta.
Simmi er búinn að elda humarsúpu fyrir Kiwaniskallana og við verðum að fara með hana í Álfaskeið til þeirra en við ætlum ekki að gista, eigum ekki lengur útilegugræjur enda langt komin með þann kvótann, tókum hann út fyrir margt löngu.
Vona að veðrið verði svona.

fimmtudagur, 17. júlí 2003

Við Kolbeinn fengum að vera heima í dag. Ég vissi að það var ekki vanþörf á að þrífa lítið eitt í hosiló en ég er því marki brennd að geta ekki byrjað að þrífa ef ég á eitthvað óstraujað. Það þýddi því ekkert annað en að ráðast á bunkann. Hann var myndarlegur en samt öðruvísi en venjulega, stærri og leiðinlegri en hann hefur verið um langt skeið. Þegar ég komst niður úr honum kveikti ég á perunni. Það voru komnar skyrtur í bunkann en þær hef ég ekki séð í óstraujaða bunkanum í nokkur ár nema endrum og sinnum. Þá rifjaðist upp fyrir mér að ég heyrði hann Simma minn tauta í gærkvöldi:"Ég held ég sé að verða skyrtukall aftur." Ég veit að börnin hans verða glöð með þetta afturhvarf til fortíðar því hann hefur gengið í bjór- og brennivínsbolum síðan hann var vert á Reyðarfirði, þeim til mikilla leiðinda. Það fór lítið fyrir þrifum eftir að hafa straujað vegna veðurs. Við fórum í sund og sólbað og létum sem við vissum ekki af drullu, skít og ryki.

miðvikudagur, 16. júlí 2003

Veðurfræðingur nokkur sagði í gær að dagurinn í dag yrði að öllum líkindum besti dagur sumarsins. Og ég inni að sullast í mat og uppvaski og reyna að vera kurteis við fólk. Ég vildi nú heldur vera úti í sólinni.

þriðjudagur, 15. júlí 2003

Þegar sumarið brestur á verð ég ákaflega sjálfhverf. Heimurinn er ég og fólkið mitt og það sem ég er að gera. Allt annað verður að bíða. Eina sem ég hugsa um núna er ég og hann Simmi minn, Kolbeinn elsta barnabarnið mitt, sem er svo æðislegur að vilja vera hjá okkur gamla dressinu á sumrin og hvað ég sakna Nönnu litlu álfaprinsessu í Iowa. Hún er ekki enn orðin það gömul að vita hvað það er gott að vera hjá ömmu Gunnu og afa Simma. Svo hugsa ég líka um Kalla minn sem situr með sveittan skallann að skrifa doktorsritgerð og um Elsu mína sem situr við tölvuna að teikna og teikna svo familían fái nú eitthvað að borða. Svo er það dótla, sem er mitt á milli Fróns og Westursins, að bíða eftir prinsinum af Wales. Hún fann reyndar prins og á von á öðrum, geri aðrir betur.
Þegar maður er komin heim frá því að vera í fríi er maður fljótur að fara inn í hina daglegu venjulegu rútínu og maður trúir því varla að hafa skroppið frá. Tíminn er svo fljótur að líða að dagurinn í gær gæti rétt eins hafa verið í fyrradag eða daginn þar á undann eða kannski jafnvel dagurinn á morgun. Til þess að rugla tilveruna aðeins meira höfðum við opið í Króniku um helgina, reyndar að ósk nokkurra kúnna. Simmi sá einn um laugardaginn því ég varð að fylgja fótboltakappanum á fótboltamót. Sem betur fer var það haldið í Þorlákshöfn. Þetta var 6. flokkur að spila í Pollamóti KSÍ og þarna voru 4 lið að keppa hvert við annað. Liðið mitt vann tvo leiki af þremur. Strákurinn minn átti eitt gullfallegt mark. Í síðasta leiknum var hann í marki og varði vítaspyrnu og er enn að tala um hvað hann var góður. Hann hefur erft sjálfsánægjuna sem finnst í sumum ættmennum hans innan ákveðins ættboga. Ég var heppinn að pabbi hefur gaman að fótbolta því hann bjargaði mér alveg þarna úti á velli. Ég var náttúrlega bíllaus og það rigndi öðru hverju eins og helt væri úr fötu og þá var gott að geta sest inn í bíl. En Kolbeinn krafðist þess að við stæðum á hliðarlínunni þegar hann væri að spila. Honum fannst líka betra að ég æpti svolítið. Það mátti samt ekki vera þannig að það væri "embarreassing" fyrir hann. Það er vandfundinn þessi meðalvegur. Ég fór með Simma í Króniku í gær og Kolbeinn var hjá ömmu Möggu á meðan. Við fórum í bíó og sáum englana hans Charlies. Ég vil nú heldur hafa spennuna tengda taugum heldur en hraða og hávaða. En Kolbeinn og gamli skemmtu sér vel. Það hafði eitthvað með flotta kroppa að gera sögðu þeir. Í dag kom hann líka með okkur ssuður og var hjá Kormáki vini sínum. Hann ætlar til hans aftur á morgun og gista hjá honum.

fimmtudagur, 10. júlí 2003

Og þá tekur yndislegur hversdagleikinn við. Hugurinn er samt enn úti í Koben. Hann verður bara að vera það þangað til næst.

miðvikudagur, 9. júlí 2003

Ég veit ekki hvad vid erum ekki búin ad skoda hér í Køben. Næsta mál er ad pakka draslinu ofan í tøsku og fara ad hugsa um heimstímid. Ég veit ad Kolbeinn saknar okkar, hann sagdi mér thad í dag thegar ég hringdi í hann, í óspurdum fréttum. Thad er notalegt ad vita ad einhver tekur á móti manni thegar madur kemur heim. En vikan hér í kóngsins Kaupmannahøfn er búin ad vera alveg meirisháttar, eins og kerlingin sagdi.