Síður

miðvikudagur, 12. mars 2003

Það er alveg ljóst að ég verð að skreppa austur á Hornafjörð um helgina og athuga með hana dóttur mína. Hún er farin að synda á hverjum degi, ískápurinn er fullur af hollum mat og hún er hætt að reykja. Ég þarf að sjá þetta með eigin augum, það er engin spurning. Best að nota tæikifærið og skila kettinum af mér um leið.

laugardagur, 8. mars 2003

Við höfum verið með ritunarátak í skólanum okkar að undanförnu sem hefur tekist frábærlega vel. Ég hef verið að velta fyrir mér einu stílbragði sem sumir nemenda minna nota en það er "þú-stíllinn." Þetta fer fyrir brjóstið á mér og ég notaði tækifærið í gær eftir námskeiðið og ræddi þetta við Baldur Hafstað. Hann var sama sinnis og ég og vitnaði í gamlan íslenskusnilling, sem reyndar kenndi mér efnafræði í Kennó, á sínum tíma, Helga Hálfdánarson. Hann var einhverju sinni að agnúast út í þú-stílinn og benti á fréttamanninn, karlmann, sem átti viðtal við fyrirsætuna sem svaraði honum alltaf með þú. "Þegar þú málar þig......" "Þegar þú gengur fram á pallinn í síðum kjól....." Eða unga manninn sem var að ræða við farlama gamlingja og notaði þú við að lýsa uppgöngu á fjall. Þessi dæmi sannfæra mig um að kenna nemendum mínum að gæta sín á "þú-stílnum." Auðvitað er hægt að nota hann en ekki um of.
Við, nokkrir samkennarar mínir, höfum verið á námskeiði hjá þeim snillingum Þórði Helgasyni og Baldri Hafstað. Þeir "agítera" fyrir hinu talaða orði í skólanum enda heitir námskeiðið Lifandi frásagnir í skólastarfi. Þeir vilja veg sögunnar hinn besta og telja að kennarinn þurfi að segja sögur til þess að fá nemendur til þess að gera það líka. Þeir létu okkur æfa þetta í gær og urðum við að standa upp fyrir framan hvert annað og segja sögu. Mér finnst allt í lagi að segja ókunnugum sögu. Það er öllu erfiðara að segja sögu fólki sem maður vinnur með og telur sig þekkja eða fólki sem þekkir mann sjálfan til margra ára. Ég lærði þarna inn á nýja hlið hjá mörgum gömlum vinum mínum og mun sjá þá í aðeins öðruvísi ljósi hér eftir sem er af hinu góða.

föstudagur, 7. mars 2003

Það er hægt að kynnast fólki sem maður þekkir!!!

miðvikudagur, 5. mars 2003

Maður skyldi aldrei segja aldrei. Það hef ég sannreynt nú. Ég hét því fyrir nokkrum árum að aldrei skyldi húsdýr búa á mínu heimili framar. Börnin mín héldu hin ýmsu dýr í gegnum tíðina og það lenti auðvitað á okkur gamla settinu að hugsa um dýrin. Má þar nefna kettina Flekk Karlsberg, Katrínu miklu, Klöru og son hennar Lúkas, páfagauka, hvítar mýs, hamstra, hundinn Vilhjálm prins, gullfiska, kanínur og hænur. Hvert þessara dýra á sína sögu sem ekki verður sögð hér en heitið strengdi ég fyrir nokkrum árum þegar Klara og Lúkas yfirgáfu þesssa jarðvist. Köttur að nafni Ferguson hefur nú búið hjá mér í þrjár vikur og hefur dvalið tvisvar áður niokkra daga í senn. Það að hann skuli búa hjá mér staðfestir það að ég hef enga stjórn á lífi mínu.
Árni Johnsen gerir það ekki endasleppt. Kvíabryggja verður án efa orðið að lúxus betrunarhúsi áður en langt um líður. Mér finnst nú alveg sjálfsagt að allir sofi í góðum rúmum, burt séð frá hvort þeir hafi gerst brotlegir við landslög eður ei. Það er einkennandi fyrir Árna að redda svona málum eins og að fá ný rúm þegar þau vantar. Mér finnst að það ætti að vera til staðall, hjá hinu opinbera, um það hve margar nætur eigi að sofa í rúmi áður en það er endurnýjað. Svo koma bara ný rúm þegar þau eru fullnýtt. Það hlýtur alla vega að vera til skrá um fjölda gistinátta í fangelsisrúmum svo þetta ætti að vera auðvelt. Skyldi vanta mann hjá Ríkinu í þessa stöðu? Staðan er kannski ekki til? Það mætti búa hana til handa mér.

mánudagur, 3. mars 2003

Ef ég byrja á morgun eða hinn að velja ofan í mig matinn, þá gæti ég verið búin að missa nokkur kíló áður en ég fer til Edinbogar. 12 vikur til stefnu......0,5 kíló á viku...... sem þýðir 6 kíló af.....vá þetta er möguleiki. Ákveð mig í fyrramálið.
Bolludagur
Bððððööööö...... búin að éta yfir mig af bollum.....þá hringir síminn......"Hvort viltu fiskbollur eða kjötbollur í kvöldmat?" er spurt. Ég, sem er með magann fukkan af rjómabollum og á algjörum bömmer yfir því, spyr símamanninn hvort fiskbollurnar séu framleiddar af Siggömmu. Svarið er játandi. Þá stenst ég ekki freistinguna og hætti snarlega við að borða ekki kvöldmat. Fiskbollurnar hennar Siggömmu eru bestar.

laugardagur, 1. mars 2003

Það var gaman í gær.
Það var allt í lagi í gær.
Það var fiskur í matinn.
Það var flott á henni hárið.
Það var hrint mér.
Það var rekið mig út úr tíma.
Það var stolið skólatöskunni minni.
Nemendur mínir hafa enga tilfinningu fyrir því að eitthvað sé að þessum þremur síðustu setningum. Ég er ekki tilbúin til þess að viðurkenna þetta sem málbreytingu sem er komin til þess að vera. Ég ætla að berjast gegn þessu a.m.k. þangað til ég fer á eftirlaun.Ef þetta er ein málbreytingin enn get ég ekki annað sagt en að málið breytist ótrúlega hratt hjá okkur. Við verðum að láta í minni pokann fyrir þágufallssýkinni, sjá á eftir beygingum sagna en nota þolmynd þannig að hjartað fær sting.

fimmtudagur, 27. febrúar 2003

Það hefur oft verið þrautinni þyngri að gera námsefnið það áhugavert fyrir nemendur að þeim þyki eitthvað varið í það. Hvað þá með íslenska málfræði, ljóð og ritun. Margur hausverkurinn hefur hlotist af við heilabrot um það hvað hljóti náð fyrir augum nemenda. Svo geta hlutirnir gerst án nokkurra heilabrota. Eitt lítið skyndiverkefni þótti það skemmtilegt að það var endurtekið á skátafundi um kvöldið. Ég sem hef oft notað gömul skátaverkefni í kennslunni til að reyna að lífga upp á hana. Mig grunaði aldrei að málið gæti snúist við. Þetta er það sem gefur lífinu gildi. Krakkaranir léku sér á skátafundi með skólaverkefni í ritun.

Með skyndiverkefni á ég við þegar ég læt krakkana gera eitthvað sem mér dettur í hug þá stundina, og dríf í því, en hef ekki eitt löngum tíma í undirbúning.

miðvikudagur, 26. febrúar 2003

"Mér vantar nýja skó en mér langar meira í nýjar buxur."
Ég hef reynt eftir bestu getu, allan minn kennsluferil, að kenna börnum að nota rétt fall með ópersónulegum sögnum. Ég hef fyrir löngu játað mig sigraða þó svo ég eigi erfitt með að hætta að reyna. Fyrir 20 árum gerði Ásta Svavarsdóttir rannsókn á þágufallssýki 11 ára barna og nú fyrir stuttu gerði Björn Gíslason svipaða rannsókn, einnig hjá 11 ára börnum. Niðurstaðan er sú að þágufallssýki eykst. Þolfallsfrumlag er á undanhaldi og þágufallsfrumlag er ríkjandi. Er þá til nokkurs að vera að eyða meiri tíma og fjármunum í að kenna það rétta og viðurkenna málbreytinguna? Málið er alltaf að breytast og þróast og þessi breyting virðist hafa náð fótfestu. Mér hefði einhvern tímann fundist hljómur uppgjafar í þessari uppástungu en það má nú skipta um skoðun og nú finnst mér ég bara vera nútímamanneskja að geta sagt þetta.

mánudagur, 24. febrúar 2003

Ég er ekki bara stolt af börnunum mínum heldur barnabörnunum einnig. Nanna litla, sem verður þriggja ára í maí og hefur dvalið 79 daga á Íslandi af ævi sinni ef allar dagar eru taldir, syngur íslensku barnalögin alveg eins og hver annar íslenskur krakki. Ég heyri það reyndar bara í gegnum símann. Við sungum saman í gær Krumminn í hlíðinni. Svo kann barnið náttúrlega fullt af amerískum barnalögum. Af Kolbeini er það að frétta að hann tók einhvers konar samræmt próf í ensku um daginn og fékk A+. Það fannst honum flott því þessa einkunn fengu ekki allir í bekknum, þrátt fyrir að vera amerískir. Ekki nóg með það heldur eru það bara þeir sem skara fram úr sem eru látnir þreyta prófið. Amma gamla á Íslandi er að vonum hreykin.
Ég var ákveðin í því í morgun þegar ég vaknaði að dagurinn í dag yrði dagurinn sem ég byrjaði aftur að borða eins og fugl. Það gekk svo vel frá því í byrjun ágúst síðastliðinn og fram að jólum. Það fuku ein 5-6 kíló. Frá jólum hef ég hins vegar borðað eins og hestur og búin að bæta tveimur kílóum aftur við. Þetta byrjar samt ekki vel. Það er vetrarfrí í skólanum og ég er að flækjast með Simma í Króniku og hann grillaði svo girnilega kjúklinga að ég stóðst ekki freistinguna og hámaði í mig vænum skammti og frönskum með. Jæja, ég byrja bara aftur á morgun.

sunnudagur, 23. febrúar 2003

,,Ég er ekki að fatta þetta."
Þetta er fyrirsögn á grein í Mogganum í dag, skrifuð af Baldri Hafstað prófessor við KHÍ. Ég er búin að bíða eftir því að heyra um þessa nýjustu breytingu á ylhýra málinu okkar frá fræðimönnum. Það er þegar hjálparsögnin að vera er notuð með sögn í nafnhætti. Nemendur mínir segja gjarnan: ,,Ég er ekki alveg að skilja þetta." ,, Ég er ekki að ná þessu." Ég hef heyrt þetta í yngri bekkjum einnig og hef haft miklar áhyggjur af þessu. Ég er fegin að fræðimenn á borð við Baldur hafi einnig áhyggjur. Málið okkar verður ansi fátæklegra af beygingum sagna ef þetta verður að málvenju. Baldur kennir íþróttafréttamönnum öðrum fremur um þessa breytingu. Það má vel vera að það sé rétt hjá honum, ég veit það ekki en við sem styðjum málvernd ættum að vera vel á verði. Kannski er þetta tískubóla sem springur en ef ekki þarf að bregðast við.
Hringdi til Ameríku áðan. Fjölsyldan var varla búin að nudda stírurnar úr augunum. Það er þetta með tímamismunin sem gerir sambandið enn erfiðara. Ég er venjulega sofnuð í miðri viku áður en þau koma heim úr vinnunni þannig að helgarnar henta betur til samskipta. Tímaritið sem Kalli fékk greinina birta í heitir Journal of Neuroscience. Það er tímarit fyrir taugasérfræðinga, líffræðinga og sálfræðinga sem fara inn á lífeðlisfræðileguhlið sálfræðinnar. Þetta er mikill heiður fyrir strákinn minn. Hann er að lýsa í greininni rannsókn sem hann gerði á rottuungum og varðar ákveðna tegund svefns ungviðis. Ekki veit ég hversu ánægður hann verður með þessa útskýringu mömmu sinnar en þetta er það litla sem ég skil í þessu. Mér finnst það alveg frábært að hann skuli vera að rannsaka svefn þar sem ég hef átt við svefnvandamál að stríða í 30 ár og hann virðist hafa erft þann fjanda frá mér.
Ég get endalaust verið stolt af börnunum mínum. Núna var Kalli að fá birta grein í einu af virðulegustu vísindatímaritum heims. Ég er bara ekki alveg viss um á nafnið á blaðinu, það kemur þegar ég hef náð sambandi við hann. Hann er bara alltaf í vinnunni drengurinn.
Enginn er eins duglegur að finna afsökun fyrir því að fara út að borða og við Simmi. Við hittum Ástu mágkonu og hennar fyrrverandi í bænum í gær, skoðuðum nýju íbúðina hennar og fórum svo á Carúsó, öll fjögur. Það er alltaf jafn gaman að fara á góðan veitingastað og eiga skemmtilegt spjall við skemmtilegt fólk. Íbúðin hennar Ástu er geggjuð. Ásta er líka alltaf jafn smekkleg og kann að koma sér flott fyrir.
Partýið var gott og alveg ótrúlega gaman að sjá upptökuna af skemmtiatriðunum. Allir svo ánægðir með þetta án þess að vera nokkuð montnir. Annars mættu skáldin, söngvararnir, tónlistarmennirnir, leikararnir og leikstjórinn alveg vera svolítið montinn með þetta því í mínum huga var þetta frábært.
Við Simmi fórum snemma heim því Krónika beið morgunsins. Það var eins gott að vera klár í þann slaginn því að á torginu var upphitun, frá klukkan 13:00, fyrir bikarleik Aftureldingar og HK. Mikil stemning myndaðist með tónlist, andlitsmálningu og bjórdrykkju. Hún gamla mín kann ekki alveg á þessa hluti og missti nokkru sinnum andlitið þegar hún sá fullorðna menn málaða í rauðu og hvítu í framan, í furðulegum fötum með skringilega hatta á höfðinu. Og svo klikkja þeir út með að þamba bjór. Ég sem hélt alltaf að íþróttir og áfengisneysla færi ekki saman. Alltaf er hægt að læra e-ð nýtt. Svo töpuðu þeir leiknum. "Kallagreyin."

föstudagur, 21. febrúar 2003

Ég hlakka til kvöldsins. Partý á vegum þorrablótsnefndar. Það á hella upp á mann bjór, snæða e-ð gott og horfa á upptöku frá þorrablótinu. Það er eins og fólk sé ekki búið að fá nóg. Fleirri, fleiri æfingar, blótið sjálft og svo þarf að sjá allt aftur á videoupptöku. En er þetta ekki alltaf svona. Þegar maður skoðar myndaalbúm þá staldrar maður lengst við myndir af sjálfum sér. Er ekki svo?

fimmtudagur, 20. febrúar 2003

Djöf....... er ég búin að vera löt að undanförnu að hreyfa mig. Ég nenni ekki í vatnsleikfimina og er mjög flínk við að búa mér til afsakanir til þess að sleppa við að fara án mikils samviskubits. Nú finn ég ekki fleiri afsakanir og verð að viðurkenna leti mína og ómennsku. Klukkuna vantar korter í..... nei, ég nenni ekki. Ég ætla að fara og klappa kettinum eða lesa eða hanga í tölvunni eða....... það er nóg að gera.
Talaði við Svövu Rán áðan. Hún var stödd í Leifsstöð á leið til Belgíu með 17 nemendur í skiptinemaferð. Mun dvelja á gamalkunnum slóðum í hálfan mánuð. Hópurinn verður í Antverpen þar sem Dúllan mín var í heilt ár í háskóla 1996-1997. Hún segist vera búin að jafna sig þokkalega eftir slysið. Hún var fegin að hún svaf í rútunni frá Hornafirði þegar farið var fram hjá slysstaðnum. Hún er enn með sauminn í höfðinu og öll marin og blá á öðrum handleggnum. Uppáhldsstaðirnir hennar í Antverpen hjálpa henni örugglega að jafna sig betur andlega.
Pabbi varð 75 ára í gær. Við, stórfjölskyldan, gáfum honum rennibekk. Hann varð eins og smástrákur á jólum með gjöfina sína og sagði að við fengjum öll e-a rennda hluti í jólagjöf t.d. borðfætur. Gott hjá gamla.
Það er bara alltaf frí. Þetta átti nú ekki að hljóma eins og ég væri mikið að kvarta. Á mánudag er vetrarfrí í skólanum og í þar næstu viku er öskudagur sem reyndar er ekki frídagur en við gerum örugglega eitthvað annað en að stunda hefðbundna kennslu. Í fyrra komu margir krakkanna í grímubúningum og ég lét bekkinn minn gera allt vitlaust, af ánægju, í skólanum. Við fórum fram í hol, í halarófu, og sungum um leið og við bönkuðum upp á í öllum kennslustofum og drógum alla fram með okkur. Þetta var algjörlega óundirbúið. Ég var reyndar búin að undirstinga skólastjórana. Sumir nemendur og kennarar voru hálf tvístigandi í fyrstu en það tókst að ná öllum fram og var gengið um alla ganga, upp og niður stiga og sungið. Ævintýrið endaði í snigli inni í turni. Ég var þarna að stela 30 ára gamalli hugmynd. Við gerðum þetta í Kennó á sínum tíma en þá fórum við í aðra skóla. Yfirgáfum Kennó og héldum syngjandi upp í Stýrimannaskóla í, halarófu, þaðan í Menntaskólann við Hamrahlíð og enduðum í MR. Það var alstaðar tekið vel á móti okkur og tekið undir grínið nema í MR af e-m forpokuðum ástæðum.
Lítið fór fyrir kennslu hjá mér í gær. Ég kenndi bara fyrsta tíma og fór svo með skólanefndinni í skólaheimsóknir í Reykjavík.Við Hildigunnur erum fulltrúar kennara í skólanefnd. Við heimsóttum Víkurskóla, sem er enn í byggingu, og Engjaskóla sem er tiltölulega nýr. Við kíktum í Kennarahúsið, borðuðum á Pottinum og pönnunni og skoðuðum nýbygginguna við Melaskóla. Þetta var mjög fróðlegt allt saman, í ljósi þess að til stendur að stækka skólann okkar, einu sinni enn, og það má margt læra af öðrum. Sérstaklega var okkur bent á hvað gleymdist af hálfu arkítekta og varð að bæta úr eftir á ef það var þá hægt.

þriðjudagur, 18. febrúar 2003

Svava Rán ber sig vel í dag. Adda, sú sem keyrði bílinn, er búin að heimsækja hana og þær spjölluðu um slysið sem er gott fyrir þær báðar. Adda var nýbúin að kaupa bílinn og hann var ekki í Kaskó þannig að nú á hún engan bíl en bara skuld. Svava Rán ætlar að halda því til streytu að fara til Belgíu. Það er á fimmtudaginn sem sú ferð er fyrir löngu plönuð. Það er vegna Belgíufararinnar sem kötturinn Ferguson er einu sinni enn til húsa hjá okkur Simma. Við erum eins og amma og afi hans. Hann fær að sofa í millini eins og Kolbeinn gerir þegar hann er hjá okkur. Nú fékk ömmuhjartað hnykk. Ég á tæplega þriggja ára sonardóttur sem aldrei hefur sofið í millinu. Hvenær það verður fer eftir framtíðarplani foreldra hennar.

mánudagur, 17. febrúar 2003

Ég er búin að þakka guði fyrir það að eiga hana dóttur mína á lífi í dag. Hún lenti í bílslysi í gær og það var ekkert nema guðsmildi að hún og mæðgurnar sem hún ferðaðist með skyldu sleppa lifandi. Bíllinn fór tvær veltur en endaði á hjólunum sem betur fer því bíllinn valt í hnédjúpu vatni. Þær fara sem sagt á bólakaf tvisvar sinnum áður en bíllinn stoppar. Svava Rán fékk sár á höfuðið og voru tekin fimm spor í það á heilsugæslunni á Kirkjubæjarklaustri en þangað fór lögreglan með þær eftir að vegfarandi hafði skutlað þeim heim á e-n sveitabæ fyrir austan Klaustur. Á svona stundum er erfitt að vera langt í burtu frá sínum nánustu. Svava Rán hefði þurft áfallhjálp þarna strax en henni fannst hún þokkalega hress sem reyndist ekki rétt mat hjá henni. Þegar hún var komin ein heim í íbúðina sína klukkan hálf þrjú í nótt gat hún ekki sofnað og endaði í taugaáfalli í morgun. Hún gat þó beðið skólastjórann sinn að keyra sig á heilsgæsluna á Hornafirði og þar fékk hún huggun og róandi og er búin að sofa vel síðan. Vaknaði áðan og leið miklu betur.

sunnudagur, 16. febrúar 2003

Simmi minn er búinn að vera svo duglegur að synda undanfarið. Hann fer klukkan hálf sjö á morgnana í sundlaugina áður en hann fer í Mosó. Þá dreg ég sængina betur yfir haus. En ég skrönglaðist með honum áðan. Eyddi hluta úr dýrmæturm sunnudagsmorgni í að synda. Ég verð nú að viðurkenna það að það hressir og bætir bæði líkama og sál. Ég var svo hress þegar ég kom heim að ég tók skurk í bókhaldinu.
Elsa, tengdadóttir mín, á systur sem heitir Kristín og býr í Seattle í Bandaríkjunum. Hún flutti þangað með honum Emil sínum fyrir átján árum eða svo. Þau eru stödd á Íslandi núna. Emil í fyrsta skipti eftir að þau fluttu. Þau voru svo sæt að koma í mat í Króniku til að heilsa upp á Simma á föstudaginn. Magga, mamma Elsu og Kristínar, var með þeim. Ég missti af þeim, því miður. Emil var að gera samning við Hampiðjuna. Hann skiptir heilmikið við þá vegna einkafyrirtækis síns en hann býr til dráttartóg fyrir jeppa og eru umsvif hans alltaf að aukast.
Föstudagurinn var fínn í Króniku. Innkoma dagsins nær líklega þriggjastafa tölu. Það gerist nú ekki oft. Það sem gerði skurk í daginn var samstarfsfólk mitt. Á leið heim ofan af Skaga var komið við hjá honum Simma mínum og hádegisverðurinn snæddur þar. Þær voru ekki síður ánægðar vinkonur Simma sem reka verslanir á torginu því vinkonur mínar sáu ýmislegt nýtilegt hjá þeim og hendur skiptu um aur og varning.
Ég sá ekki þáttinn um Michael Jackson fyrr en í gær þannig að ég var ekki umræðuhæf fyrr en nú. Mér hefur sýnst umræðan snúast um hversu mikið viðundur Mikki sé en mér, finnst eftir að hafa séð þáttinn, að þáttagerðarmaðurinn leiki sér einmitt með það og geri þáttinn út á það. Þetta var auglýst sem heimildamynd en er það alls ekki heldur þáttur í æsifréttastíl. Það var afskaplega lítið gert úr tónlistarhæfileikum mannsins heldur dregin upp mynd af einmana sérvitringi sem er raunveruleikafirrtur og býr sér til veröld til þess að lifa í því hann hefur ekki hugmynd um það hvernig hinn venjulegi maður gerir það. Hann er sorglegt dæmi um það hvernig frægð og auðævi geta farið með fólk. Ég gef ekki mikið fyrir þennan Martin Bashir sem gerir þáttinn. Er hann ekki viðundur á vissan hátt?

laugardagur, 15. febrúar 2003

Það er alltaf gaman að fá tilbreytingu í vinnuna sína. Hann var svo sannarlega öðruvísi föstudagurinn en venjulega en þá var hinn árlegi starfskynningadagur hjá nemendum okkar, sem foreldrafélagið sér um, en við kennaraliðið förum af staðnum. Nú héldum við upp á Akranes og heimsóttum þar báða grunnskólana. Fyrst fórum við í Grundaskóla þar sem gamall Kennaraskólafélagi er skólastjóri, hann Gutti, og svo heimsóttum við Brekkubæjarskóla þar sem ég kenndi frá janúar og til vors árið 2000. Ég fór inn í gamla bekkinn minn sem er núna 10.bekkur, var þá 7.bekkur, og heilsaði upp á liðið. Krakkarnir þekktu mig allir og átti ég góða stund með þeim. Það var líka gaman að hitta kennarana aftur þó spjallið við hvern og einn hafi bara verið stutt. Það er búið að byggja við skólann síðan ég var þarna, reyndar hinn skólann líka, og hefur vinnustaða kennara gjörbreyst frá því sem var.
Hégómagirndin er allt söm við sig. Það gladdi mig mjög mikið þegar ein í Brekkubæjarskóla spurði mig hvort það væri ekkert að éta í Þorlákshöfn. Sem sagt, hún sá að ég hafði grennst!!!!!

miðvikudagur, 12. febrúar 2003

Ætli fólk þroskist endalaust eða er lærir maður bara af reynslunni? Ég er sem sagt komin á sextug aldur (ég trúi því ekki að þetta standi þarna) og er enn að læra á sjálfa mig. Ég er kannski bara svona treggáfuð. Það er tvennt sem ég hef uppgötvað um sjálfa mig í vetur. Annað er það að mér finnst miklu betra að þurrka mér ,eftir bað, með litlu handklæði en stóru, svokölluðu baðhandklæði. Ég hef bara alltaf haldið að það ætti að nota baðhandklæði eftir bað og gert það án þess að hugsa. Til allrar lukku þá voru öll stóru handklæðin í óhreina tauinu einn daginn, ég varð að nota lítið og fann þá muninn. Hér eftir slít ég stórum handklæðum eingöngu við að þurrka á þeim ullarpeysur.
Hitt atriðið sem ég fann um sjálfa mig, einn góðan veðurdag fyrir stuttu, var hvað mér líður misvel eftir því í hvaða fötum ég klæðist. Í sumum fötum er ég lítil og feit en í öðrum næstum því "hoj og slank." Næst á dagskrá hjá mér er að henda út úr skápnum öllum "feitum" fötum og nota einungis þessi "grönnu.". Af hverju var ég ekk búin að "fatta upp á" þessu miklu fyrr? Skrítið.

þriðjudagur, 11. febrúar 2003

Mamma mín hefur alltaf talað um Sigrík Eiríksson, langafa minn, sem ónytjung og letiblóð, því hann hékk inni í bæ við lestur, skriftir og grúsk og sinnti engu um bústörf. Hann lét langömmu mína, Sumarlínu Sumarliðadóttur eina um störfin, hvort sem það voru innistörf eða útistörf. Það hefur, aftur á móti, alltaf verið talað um hana sem dugnaðarfork. Þau bjuggu að Krossi í Innri-Akraneshreppi en fluttu síðar í Hjallhús á Akranesi. Sá bær stóð nálægt þeim stað er Akraborgin lagðist að bryggju á Akranesi á meðan hún gekk. Sigríkur hefur heldur betur fengið uppreist æru með Íslendingabók, því þar er hann skráður bóndi og fræðimaður. Það sem ég veit um grúskið hans inni í bæ er að hann fékk lánaðar bækur á bæjum í sveitinni og skrifaði þær upp. Hefur sjálfsagt ekki haft ráð á að eignast bækur á annan hátt. Þessar bækur eru flest allar til á Landsbókasafni þ.e. allar nema þær er féllu í hlut Guðrúnar, ömmu minnar. Hennar hlutur er týndur.

mánudagur, 10. febrúar 2003

Sunnudagurinn leið í ró eins og vera ber.Ég las heilmikið og reyndi að láta fótboltagargið í sjónvarpinu, sem sumir í fjölskyldunni eyða sunnudeginum í, ekki hafa áhrif á mig en mikið djöf.... er það erfitt. Svo ég fór til mömmu í vöfflur. Þar hittist oft stórfjölskyldan á sunnudögum. Skemmtilegur siður. Þar fylgist maður með því sem er að gerast í fjölskyldunni. Í gær mættum við systurnar, Hulda og Steini. Jón Davíð var lasinn, Gunnar á leið heim af sjónum og eins og fyrr vqr getið, karlinn minn gjörsamlega límdur við sjónvarpið.

laugardagur, 8. febrúar 2003

Nú er vika síðan þorrablótið var og enn svífur andi þess yfir vötnunum. Eitt sem er svo skemmtilegt við það er hversu margir brottfluttir koma til að hitta vini og ættingja og skemmta sér með þeim. Það hlýnar mjög í mér hjartað á svona stundum sökum þess hve margir gamlir nemendur heilsa, jafnvel knúsa og kyssa mig. Þessum elskum sem koma svona fram hlýtur e-n tíma að hafa liðið vel í kennslustund hjá mér. Ég lít allavega þannig á þó svo mér sé það fulllsjóst að Bakkus eigi e-n þátt í knúsinu. Öl er innri maður.

föstudagur, 7. febrúar 2003

Ég var ákveðin í því að setjast í leisíboj þegar ég kæmi heim úr vinnunni og lesa e-ð af þessum bókum sem ég nældi mér í í gær. Ég settist en áður en ég vissi af var ég sprottin upp aftur og búin að þrífa íbúðina. Nú vantar ekkert nema blómvönd á stofuborðið. Þetta er voða þægilegt að losna við rykið og draslið án þess að vera búin að plana það áður.
Ég gleymdi að horfa á Sex and the city í gærkvöldi, það var e-n veginn ekki fimmtudagur í mér. Dótla mín segir að þær stöllur, Carrie og vinkonur, þroskist lítt og læri alls ekkert af reynslunni. Ég hefði nú samt viljað sjá þáttinn því þeim fer fækkandi. Þáttagerðarmenn á þrotum með hugmyndir og það er kannski farið að sjást á þáttunum. Líka svona af því að hún Inga var að líkja okkur Carrie saman þá vil ég nú fylgjast með henni á meðan hægt er. Það var líklega bara vegna píkusalatsskóna sem hún líkti okkur saman þrátt fyrir að verðmunur sé trúlega allnokkur á skónum okkar.
Mér finnst dómurinn yfir, karlanganum, honum Árna Johnsen einum of strangur. Honum varð, jú, á í messunni en það hafa margir stolið miklu meiru og komist upp með það. Ég get ekki annað en vorkennt honum innilega.

fimmtudagur, 6. febrúar 2003

Kallinn, sem ég skúra hjá, bað mig um að koma í bæinn eftir kennslu í dag því hann vildi endilega bjóða mér á tónleika. Ef það væri ekki hægt að fá miða gætum við farið í bíó. Ég tendraðist öll upp og rauk í bæinn um leið og við Ásta Júlía vorum búnar að gera kennsluáætlun fyrir næsta hálfan mánuð fyrir 8., 9. og 10. bekk í íslensku. Þegar til kom reyndist uppselt á tónleikana og myndin sem minn heittelskaði vildi sjá var ekki sýnd fyrr en klukkan 9 og það fannst honum of seint. Þá var plan C notað. Það er það skemmtilegasta sem ég veit. Notalegur staður, kallinn minn, með allar sínar skemmtilegu hugmyndir, kertaljós og pizza og rauðvín með. Ekki nóg með það heldur röltum við í yndislegu veðri í bókabúð (af hverju ætli þær séu opnar á kvöldin?) og keyptum okkur 6 bækur. Allar sín úr hverri áttinni en flottar bækur samt. 500 fyrstu orðin, Nanna fær hana. Halla, ljóð Steins Steinars, myndskreytt af Louisu Mattíasdóttur, Kolbeinn fær hana. Bót í máli, fyrir mig. Síðasta rannsóknaræfingin, fyrir Simma. Þjóðsögur við veginn, fyrir okkur og Sidney Seldon sömuleiðis. Náttborðið mitt er sem sagt fullt af bókum núna. Þá líður mér vel.

miðvikudagur, 5. febrúar 2003

Þegar ég staulaðist, paufaðist eða hentist heim úr skólanum seinnipartinn í dag, þá þakkaði ég máttarvöldunum fyrir það að ég hafði ekki lést meira en raun ber vitni (þrátt fyrir góðan ásetning) því ég hefði að öðrum kost fokið útí veður og vind. Ég ætlaði að kúra upp í rúmi með góða bók, veðrið og gnauðið í því segja að þannig eigi að hafa það í dag, en vinnan er alltaf með manni. Ég tók einn bunka af prófum með heim, er samt ekki byrjuð á þeirri yfirferð, heldur hef ég eytt núna einum og hálfum tíma í að skoða námsleikina sem skólavefurinn býður upp á. Ég er nú meiri asninn að eyða mínum síma í þetta í stað þess að gera þetta í skólanum en svona er þetta bara. Góða bókin sem bíður eftir að ég lesi hana heitir Fjölgreindir og fjallar um fjölgreindarkenningu Gardners. Fjölgreindarkenningin er í tísku núna og þar verður maður að tolla svo maður sé viðræðuhæfur. (Ég þoli ekki þetta maður hjá mér endalaust, ég verð að skipta um stíl til þess að þola sjálfa mig). Eins gott.

þriðjudagur, 4. febrúar 2003

Hann kom sér vel í morgun, trassaskapurinn í mér. Ég var sem sagt ekki búin að druslast við að skila hækjunum sem hann Steini lánaði mér í haust eftir hnjáaðgerðina svo að hann Simmi minn notaði hækjurnar til þess að komast út úr húsi í morgun. Það er ljótt að segja það en hann gat ekki stigið í fótinn en keyrði samt í bæinn. Hann gat ekki beygt ökklann og var mjög kvalinn. Hann er svo heppinn að það er læknamiðstöð í sama húsi og Krónika svo hann fór til læknis. Þá kemur það sem mér finnst svo einkennilegt. Það er ekki vitað hvað er að honum en samt fékk hann tvær tegundir af pillum og er strax miklu betri. Þeir ríða ekki við einteyming þessir læknar.

mánudagur, 3. febrúar 2003

Bara kennsla framundan og slaka á heima sagði ég í gær. Jæja, í dag byrjaði einn nemandi minn hjá mér í aukakennslu en það verður bara einn tími á viku. Ég prófarkalas líka í dag BA ritgerð frá gömlum nemanda mínum. Ég verð stolt þegar gamlir nemendur koma til mín eða hringja til að fá ráðleggingar, hvað þá þegar ég fæ að lesa BA ritgerðirnar þeirra. Það finnst mér heiður. Ég hef áður lesið BA ritgerð. Það var ritgerðin hennar Hörpu litlu Guiðfinns. Hún er stjórnmálafræðingur og þessi sem ég las yfir í dag er lika að útskrifaast sem stjórnmálafræðingur.Ég ætti kannski að fara að snúa mér meir að stjórnmálum? Ætli vanti e-s staðar góða samfylkingarmanneskju á lista? He, he.
Allir eru útum allt að tala um þorrablótið. Raddirnar eru allar jákvæðar, sama hvaðan ég heyri þær. Heimatilbúna skemmtiatriðið er komið til að vera. Ekki spurning. Ég má vera ánægð með að hafa átt hugmyndina og komið henni á koppinn. Það hefur meirra að segja flogið fyrir að það hefði alveg mátt sleppa Ríó tríóinu. En við vissum ekki í upphafi þegar Ríó var pantað að heimaatriðið yrði klukkutímaprógramm. Fyrst var talað um kortersprógramm en þegar snillingar mætast er allt hægt og þeir hefðu auðveldlega getað haft þetta lengra. Það verður bara þannig næst. En strákarnir í Ríó klikkuðu ekki frekar en venjulega.

sunnudagur, 2. febrúar 2003

Það held ég að blótið hafi lukkast vel. Ég var aldrei í vafa um að heimasniðnu atriðin myndu slá í gegn. Enda gerðu þau það. Allir mjög ánægðir, eða ég hitti allavega engan sem kvartaði. Mín reynsla er sú að það er alltaf mest gaman að bröndurum um einhvern sem maður þakkir og svo eigum við svo mikið af frábæru listafólki hérna, sem getur gert kraftaverk. Það var svo gaman í haust þegar ég fór á stúfana að tala við skáldin og leikarana. Það sögðu allir já, strax. Og allir með þessa hugsun að ef við ætlum að halda úti menningu í Þorlákshöfn þá verðum við að gera eitthvað í því sjálf. Svo var svo rosalega gaman á æfingunum. Mikið hlegið og mikið grínast. Ég er bara nokkuð ánægð með sjálfa mig og mitt hlutverk á þessu þorrablóti. Steinninn í maganum err farinn og fargið yfir mér er farið og það hrósuðu mér svo margir í gær að ég tek því eins og ég hafi komist þokkalega frá þessu. Þeir sem höfðu eitthvað við veislustjórnina að athuga komu allavega ekki að máli við mig.
Nú er bara ekkert að gera framundan nema standa sig í kennslunni og slaka á heima. Frábært.

laugardagur, 1. febrúar 2003

Það er búið að "snúlla" upp á mér hárið og teikna á mig nýtt andlit þannig að ég er að verða æðislega fín. Nú er bara að skella sér í kjólinn og píkusalatsskóna og standa sig!!!!!!
Jæja, þá er maður búin að hitta tilvonandi tengdasoninn. Við buðum skötuhjúunum upp á pizzu á Ítalíu í gærkveldi. Hann er svona þrælmyndarlegur, huggulegur og skemmtilegur.Ég skil hana dótlu mína alveg að falla fyrir þessum welska prinsi. Þau mæta svo auðvitað á þorrablótið í kvöld. Úbs, þorrablót...... nú fékk ég smá kipp og titring... jæja, þetta er að verða búið.

föstudagur, 31. janúar 2003

Nú er leynivinavikan liðin hjá okkur, starfsfólki grunnskólans. Mín beið, í morgun blómvöndur og lítil rauðvínsflaska ásmt huggulegri orðsendingu. Ótrúlegt hvað maður verður eins og lítið barn á jólum. Ég hefði bara ekki trúað því. Vikan er búin að vera mjög skemmtileg og í löngu frímínútunum í morgun var uppljósrað hver væri leynivinur hvers. Sumir vildu fá að giska á hver sinn væri og í flestum tilfellum var ágiskunin röng. Þannig að greinilega þekkir fólk ekki hvert annað alveg. Ég gat ekki rétt til um minn vin, en það var nú samt sá sem er búin að vera lengst vinur minn í skólanum eða frá því við byrjuðum bæði tvö að kenna við skólann 1971. Hann Jón kennari, hver annar. Hann þekkti mig og vissi hvernig ætti að gleðja viðkvæma grenjuhjartað í mér. Þessi elska.

fimmtudagur, 30. janúar 2003

Það stóð nú til að Svava Rán kæmi með kvöldflugi frá Hornafirði í kvöld en það er búið að aflýsa flugi vegna veðurs. Þetta setur strik í reikninginn og áætlanir breytast agnarögn. Við ætluðum saman á Leifstöð á morgun að taka á móti Dave Jones, hinum velska, en Svava Rán mun lenda, ef guð lofar, um svipað leyti á morgun, á Reykjavíkurflugvelli og Dave lendir í Keflavík. Þau hittast því klukkutíma síðar en ráð var fyrir gert. Ég veit að einn klukkutími fyrir ástfangna er lengri en heil eilífð. Guð er kannski að láta reyna á eitthvað hér. Mamma sagði það við mig, 1969, þegar ég var í Kennó og Simmi minn í Vélskólanum í Vestmannaeyjum. Ef ástin þyldi þennan aðskilnað þá væri þetta alvöru ást. Við löfum enn, 34 árum síðar. Einn klukkutími og einn vetur getur verið jafnlangur tími, ég veit allt um það.

miðvikudagur, 29. janúar 2003

Ég hitti tengdadóttur mína á "emmessenninu" í gær og sagði henni að ég vissi um ferð til Iowa í næsta mánuði og hvort hana vantaði ekki eitthvað sem ég gæti sent henni. Mér datt rétt si svona í hug að hana vantaði íslenskt smjör, harðfisk, Séð og heyrt, lopapeysu eða hrútspung. Ég hefði aldrei getað látið mér detta í hug það sem hana langaði mest af öllu í, samt er það íslenskt, en það er pönnukökupanna. Auðvitað fær þessi elska pönnukökupönnu og uppskrift með. Mér þætti nú best geta bakað pönsurnar og boðið henni í pönsukaffi. En það verður að bíða betri tíma. Næst best er að geta sent henni pönnuna.

þriðjudagur, 28. janúar 2003

Ég vinn með mjög léttu og skemmtilegu fólki. Það er alltaf eitthvað fjör í gangi á kennarastofunni. En þessa dagana er enn meira fjör en áður því að það stendur yfir leynivinavika. Allir eru sérstaklega góðir og hupplegir við alla svo enginn finni út hver leynivinurinn hans er. Fólk fær hrós í tíma og ótíma, klapp á bakið eða jafnvel faðmlag. Svo er fólk að finna litlar og sætar gjafir í básnum sínum eða inniskónum sínum eða fær jafnvel gjöf senda heim. Ég fékk lítinn postulínsengil í morgun en hann fölnar og verður að engu á miðað við orðsendinguna sem fylgdi með.
Þar stóð: Elsku Gunna. Það var gott að draga þig sem vin og eiga þig sem vin. Þú ert vinur, sannur vinur. Það er ekki erfitt að finna eitthvað fallegt að segja við þig. Þú ert góður og traustur kennari, sönn fagmanneskja. Þú ert frábær vinnufélagi. Þú hefur góðan smekk, sem sést á hve fallegum fötum þú klæðist í vinnunni. Þú átt skilið gott hrós, og góðan vin. Njóttu vel. Þinn leynivinur.
Ég fékk stóran kökk í hálsinn þegar ég las þetta, ég hafði bara ekki hugmynd um að ég væri svona í augum einhvers. Þetta var frábært.

mánudagur, 27. janúar 2003

Nú eru bara 5 sólarhringar þar til þorrablótið brestur á. Hann þyngist stöðugt steinninn í maganum á mér. Frá því í september hef ég ekki mátt heyra oðið þorrablót án þess að fá kipp e-s staðar innan í mér og blóðið fer að þjóta og sviti sprettur út í lófunum. Það er nú kannski ekkert skrítið því ég er að feta í fótspor Arnar Árnasonar leikara. Svo frétti ég að sjálfur sýslumaðurinn væri veislustjóri á Stokkseyri (eða var það Eyrarbakka?). Ég hefði aldrei getað skipað mér á bekk með þessum heiðursmönnum. En ef ég kemst lifandi út úr næstu helgi þá má það. Það er nú ekki svo slæmt!

sunnudagur, 26. janúar 2003

Var að tala við Kalla, Kolbein og Nönnu (Elsa var úti að ganga í yfir 20 stiga gaddi). Kolbeinn mátti nú ekki vera að því að tala við hana ömmu sína, hann var sko eiginlega í miðjum tölvuleik og Nanna segir alltaf við mig:" Má ég tala við afa Simma?" Vill heldur spjalla við hann en mig. Skrítið, en svona er lífið. Kalli er í góðum gír með námið og nálgast doktorinn með hverjum degi. Duglegur strákur sem ég á. Ekkert heyrt í Svövu Rán í dag en Simmi talaði við meðan ég var að syngja í messu eða á meðan ég var á þorrablótsæfingu eða meðan ég var..... jæja skiptir engu en henni er bötnuð pestin sem betur fer og kötturinn hefur það gott.
Dagurinn í dag: Ein mynd í rúminu fyrir hádegi, messa klukkan tvö, kaffi hjá mömmu, og svo fékk ég hana Magnþóru í heimsókn eins og glöggir mega sjá.

laugardagur, 25. janúar 2003

Það er nú alveg tilgangslaust að hafa opið á Króniku á laugardögum með þessu áframhaldi, nú komu þrír í hádegismat og einn í hammara. Ekki verður maður ríkur á þessu. En það lukkaðist vel í gær þorrahlaðborðið hjá honum Simma mínum. Fastakúnnarnir voru mjög ánægðir með þetta. Pungana og sviðasultuna, hákarlinn, brennivínið og allt það. Ég gladdi hann svo með lítilli gjöf þegar hann kom heim. Ég gaf honum rakspíra. Hann var voða glaður. Fór svo að borða þorramat með Kiwaniskörlunum. Það finnst mér það hallærislegasta af öllu hallærislegu. Það hefur verið siður til margra alda að kona geri bónda sínum gott á bóndadaginn en að þeir hópi sig saman og hrynji í það á bóndadaginn það er alveg splunkunýr siður. Ég er nú alveg þokkalega nútímaleg en þetta kann ég ekki að meta. Ég hrópa ekki húrra fyrir Kiwanis.

föstudagur, 24. janúar 2003

Mikið rosalega eigum við fína unglinga hérna í Þorlákshöfn. Ég var með umsjón á diskó hjá þeim í gærkvöldi og það er nú ekki mikið mál. Þeir sjá um allt sjálfir, nammið, gosið, fjármálin, tónlistina, dans og leiki. Ég sá ekki betur en að allir skemmtu sér vel. Þeir tóku líka mjög vel til eftir sig. Það var ekki mikið mál því allir gengu svo vel um. Ég þurfti bara að slökkva og læsa. Var einhver að tala um unglingavandamál? Nei, það er einhver vitleysa í mér. Ég heyrði þetta orð þegar ég var unglingur en ekki síðan. Það var þegar við krakkarnir hlustuðum á Bítlana og fullorðnir töluðu um garg. Fullorðnir vissu hreinlega ekki hvaðan á þá stóð veðrið. Það er reyndar ekkert skrítið, því orðið unglingur er svo ungt í málinu. Það kom fyrst fyrir á 20. öldinni. Bítlarnir gerðu það svo að verkum að til varð unglingamenning, unglingaföt og unglingatónlist. Fullorðnir þurftu bara að skilja þetta og það tók smá stund. Ég var t.d. mjög skilningsrík mamma þegar börnin mín voru unglingar. Eða sko....ég veit ekki annað. Nú nálgast ömmustrákurinn minn unglingsárin!!!

fimmtudagur, 23. janúar 2003

Nú er það handboltinn. HM. Hvað er HM oft á ári ? Ég bara spyr eins og fávís kona. Mér finnst alltaf vera HM. Sem betur fer get ég horft á handboltaleiki. Þar er þó e-ð að gerast. Annað en í fótboltanum. Enda æfði ég aðeins handbolta hér á árum áður. Reyndar dálítið mikið langt síðan, nálgast óðfluga 40 ár. En handbolti var það. Ég held ég kunni reglurnar sæmilega. Best að fara og kíkja á þetta. Ísland-Portúgal. Ég get nú samt ekki horft á allan leikinn því ég þarf að sitja yfir á diskóteki hjá 8.-10. bekk. Fjör í því, mar.

miðvikudagur, 22. janúar 2003

Er hægt að verða þreyttur eða er maður bara aumingi? Ég er allavega eins og undin tuska eftir foreldradag í skólanum. Ekki er líkamlegum átökum um að kenna, en eitthvað er það. Ég kom heim, settist í leisí boj, og steinsofnaði. Sem betur fer hef ég ekki þurft að hafa áhyggjur af matseld í þó nokkurn tíma, þannig að ég hvíldi mig bara þangað til ég fékk hina daglegu upphringingu sem snýst um það hvort ég vilji fisk eða kjöt í kvöldmat. Þvílíkur lúxus. Ég hef það bara eins og drottning og panta hvort heldur mér líkar. Fæ síðan heim á silfurfati... eða svona frauðplastboxi, ölluheldur, það sem ég bað um. Hvað er ég svo að kvarta um þreytu eftir foreldraviðtöl? Ég hef það bara rosalega gott.

Ég get svarið það, það er líka rosalega mikilvægur fótboltaleikur í kvöld!!!

Hvernig skyldi ganga hjá finnska kvennalandsliðinu í íshokkí? Eða er það ekki örugglega til? Hvað er svona merkilegt við enska fótboltann umfram aðrar íþróttagreinar og aðrar þjóðir? Ég er ekki alveg að skilja þetta eins og nememdur mínir myndu orða það.

þriðjudagur, 21. janúar 2003

Hvers á ég að gjalda? Kallinn minn horfir á fótbolta öllum stundum í sjónvarpinu. Ég sætti mig við sunnudagana, einhvern tíma verður hann að stunda áhugamálið og þriðjudagskvöldin í lagi líka, því þá fer ég á kóræfingu en hann lætur þetta ekki duga, hver einasti leikur er rosalega mikilvægur, hann má alls ekki missa af honum. Hann fer voða fínt í þetta, undirstingur mig með svona smá athugasemdum þannig að áður en ég fatta er ég búin að segja: "Auðvitað horfirðu á leikinn elskan." En málið er: ÞAÐ ER ALLTAF LEIKUR. Þegar ég kom heim áðan af kóræfingu var framlenging á einhverjum leik og ég var að frétta það í þessu að Liverpool hefði unnið. Mikill léttir.... eða hverju skiptir það? Mér er spurn?
Ég er mjög ánægð með frammistöði nemenda á Reyðarfirði í samræmduprófunum. (Málið skylt, kenndi þar í þrjú ár en líklega ekki þessum!) Nú á ég reyndar í erfiðleikum með að halda stíft fram þeirri skoðun minni að "heimanmundurinn" sé það sem máli skiptir hvað árangur á prófum segir því hver ætti svo sem að vera munurinn á "heimanmundi" reyðfirskra krakka og sunnlenskra? Ég verð heldur betur að setja hausinn í bleyti og átta mig á þesssu.

mánudagur, 20. janúar 2003

Handboltaleikiurinn, Ísland versus Ástralía, var e-ð svo lítið spennandi að ég var bara farin að þurrka af og búin að ryksuga áður en ég vissi af. Ég fann undir rúmi svefnpillubréfið mitt sem kötturinn Fergus týndi fyrir mér um áramótin. Hvað segir þetta mér? Jú, ég hef ekki ryksugað nógu vel síðast. Eða..... er ég kannski ekki búin að ryksuga síðan fyrir jól? Það skyldi þó aldrei vera. Það segir mér hinsvegar að ég sé annaðhvort sóði eða letingi nema hvorttveggja sé. Ég er að reyna að láta sem mér sé slétt sama en það er e-ð.... kannski gamalt og gott uppeldi sé að pirra mig. Það er erfitt þetta líf.

Ég er búin að lesa svo marga brandara á síðustu vikum, vegna þorrablótsins, að ég er orðin hundleið á þeim öllum og finnst ekkert orðið fyndið. Ég vildi að ég hefði gott minni og myndi einhverja brandara sem Bjarni Dagur var með á laugardagsmorgnum hérna fyrir nokkru. Hann var alltaf öðru hverju með góðar sögur.
Ég gróf úr pússi mínu ræðu frá honum syni mínum þar sem hann talar fyrir minni kvenna á sálfræðingablóti fyrir þremur eða fjórum árum. Skratti gott hjá pilti, ég skil ekki hvaðan hann hefur þessa hæfileika. Ég gæti stolið hugmyndum frá honum en ekki flutt þetta óbreytt. Ég veit ekki, á eftir að ígrunda þetta betur.

sunnudagur, 19. janúar 2003

Ég missti af fréttunum í kvöld. Þegar nýir íbúar flytja í stigaganginn þá dettur sjónvarpið hjá okkur út á meðan þeir eru að tengja sitt. Ekki veit ég af hverju en svona er það nú samt.

Klukkan átta var þorrablótsæfing. Það er gaman að fylgjast með þessum snillingum sem eru að æfa heimatilbúin skemmtiatriði. Þeir leynast víða snillingarnir þegar vel er að gáð.

Ég fékk einkunn senda í Webct í dag, úr síðasta verkefninu á haustönninni. Ég fékk 9.0. Ég er svo montinn að ég er að springa yfir því en svo er ég aftur á móti ekki eins ánægð með sjálfa mig að hafa ekki nennt að halda áfram. Mér finnst ég algjör aumingi og ræfill að nenna ekki að gera meira en það er orðið of seint fyrir mig að skipta um skoðun, fyrsti skiladagur verkefnis er á morgun og ég er ekki búin að vinna verkefnið. Takmarkinu var samt náð þ.e. 5 einingar eru í höfn. Húrra.

laugardagur, 18. janúar 2003

Ekki var hún erfið vinnan í Café Króniku í dag. Það kom enginn að borða matinn sem var eldaður þannig að uppvaskið var lítilfjörlegt og fljótgert. Það seldust þó nokkrir hammarar og nokkrir rándýrir kaffibollar þannig að nokkrar krónur komu í kassann.
Ég keypti mér svo þorrablótskjólinn í Debenhams. Bara þokkalega ánægð með hann og verðið var nær því sem ég vonaði heldur en það sem hún dótla mín var búin að nefna. Sem betur fer.
Mig gerir bæði sárt og klæja með Álverið á Reyðarfirði. Þar sem ég bjó ein þrjú ár meðal Reyðfirðinga skil ég afstöðu þeirra til álvers og styð þá í rauninni heilshugar en stundum hvarfla að mér efasemdir um hvort þetta allt saman komi til með að borga sig. En í sambandi við Kárahnjúka er mér alveg sama. Fólk ætlar alveg að fríka út af tilfinningasemi yfir eyðileggingu lands. Hvað er ekki búið nú þegar að "skemma" af landi? Hvernig var t.d. umhorfs þar sem höfuðborgarsvæðið er nú áður en Ingólfur mætti á staðinn? Við viljum jú eiga fallegt land til að sýna túrhestum en landið fóstrar okkur og gefur okkur af sér og af hverju ekki að taka á móti þeim gjöfum og nýta þær? Eða hefðum við kannski aldrei átt að fara úr torfbæjunum?

föstudagur, 17. janúar 2003

Mér sýnist á dagbókarskrifum minnar ástkæru dótlu að hún sé með smá vott af minnimáttarkennd gagnvart sínum eldri bróður þ.e. mínum frumburði. Ekki tel ég, sem þeirri manneskju sem lengst hefur þau þekkt, að þetta sé sú raun sem hún, sú mín kæra, þurfi að bera. Ef stallur er til, sem móðir stillir sínum börnum á, setti ég þau þar, mín börn, bæði jafnfætis. Ekki eru þau, í dag ,að gera þá hina sömu hluti en allt sem þau gera er í mínum huga jafn klárt, skemmtilegt og jafn gaman að fylgjast með. Þau hafa, af sínum fúsa og frjálsa vilja, kosið gjörólíkan vettvang í lífinu þó svo væri auðvelt, ef grant er skoðað,að finna ýmislegt sameiginlegt, svo skrýtið sem það nú er. Hann er í doktorsnámi, hún framhaldskólakennari. Hvort tveggja tengist skóla, lestri fræðigreina, fyrirlestrum, kennslu, rannsóknum, kennurum, bókum, gagnrýni, þolinmæði, nemendum, prófum, yfirferð verkefna, prófagerð, frímínútum, sýnast gáfulegur, standa á gati, jólafríi svo fátt eitt sé talið. Ég hef hvatt þau til dáða til hvers eins sem þeirra hugur hefur staðið til. Mömmuhjartað stundum titrað ef einhver vafi hefur flögrað um hug, en alltaf þótt þeirra hugmyndir þær hinar bestu. Lífiið hefur ekki verið einn dans á rósum, mikið langt í frá, en ég hef alltaf sagt það og segi það enn, ég á þau bestu sjálfuppöldu börn sem hugsast getur.

fimmtudagur, 16. janúar 2003

Það eina sem kemst orðið að í heilabúinu á mér er Þorrablótið. Það hefur reyndar ekki horfið úr huga mér lengi í einu síðan ég tók að mér veislustjórnina en nú ræður það algjörlega yfir mér. Eftir að nafnið mitt birtist í Bæjarlífi hef ég verið að fá ráð og ábendingar frá fólki og sitt sýnist hverjum. Mér dettur í hug að þegar ég rak kaffihús, sem breyttist í pöbb á kvöldin, þá fannst mér það leiðinlegustu kúnnarnir sem vildu gefa mér góð ráð og vissu miklu betur en ég hvernig ætti að reka svona apparat. Ég er nú ekki með þessu að segja að allir sem gefa mér ráð núna, um það hvernig á að stjórna 5-600 manna þorrablóti, séu leiðinlegir, það er bara þannig að ég get ekki farið að allra ráðum. Ég verð að finna út úr þessu sjálf. Það er eitt sem ég kvíði sérstaklega sem reyndur maður getur en ég hef ekki reynslu í. Það er að skynja salinn um finna hvað á við og hvað ekki. Reyndur maður spilar bara eftir salnum. Ég verð aftur á móti að vera með allt undirbúið og get ekki mikið hnikað frá því. Þó að ég hafi rúmlega 30 ára reynslu í kennslu og skynja andrúmsloftið í bekk eins og skot þá er þetta öðruvísi.

þriðjudagur, 14. janúar 2003

Enn af afmælinu hans Kidda. Þegar ég kvaddi hann um nóttina kem ég auga á Bengaleldspýtur á kommóðu í forstofunni. Ég hrópa upp: "Eru ekki Bengaleldspýturnar mínar hérna." Taktu þær, sagði e-r við mig." Ég geri það. Þegar ég tók til í gær, þá eru allt í einu tveir stokkar til heima hjá mér. Ég átti ekkert í þessum hjá Kidda. Ef maður er ekki stundum eins og fífl þá er maður hálfviti. En hvað er svona merkilegt við Bengaleldspýtur????????
Mér datt í hug flökkusagan um konuna sem átti Kitkat og fór inn á kaffihús og pantaði sér kaffibolla, settist við borð og hugðist drekka kaffið og gæða sér á Kitkatinu. Þá sest hjá henni við borðið ungur maður og fer að borða Kitkat. Konunni verður hverft við dónaskapinn en fær sér bita af Kitkatinu. Maðurinn fær sér líka bita og svona gengur þetta. Þau líta fjandsamlega hvort á annað á milli þess sem þau fá sér bita. Konan strunsar síðan út með þjósti þegar Kitkatið er búið og hugsaði unga manninum þegandi þörfina. Þegar hún stingur höndinni í vasann, til að ná í bíllyklana, verður fyrir henni Kitkatið hennar. Hún hafði aldrei tekið það úr vasanum og lagt það á borðið.
Svava Rán segir að ég fái engan kjól fyrir sextán þúsund. 'Eg hef greinilega ekki verið að rápa um kjólabúðir að undanförnu. Mitt verðskyn segir nefnilega e-ð allt annað.
Kominn þriðjudagur og eftirstöðvar helgarinnar eru enn að elta mig. Ég týndi gemsanum hans Simma. Búin að leita og leita, kemur þá ekki Kiddi með hann í vinnuna í morgun. Hafði skroppið upp úr veskinu mínu. Verð að fara að passa mig betur, ég hef áður týnt síma sem fannst aldrei.
Í Íslandi í dag í gær var talað við mann sem getur kennt fólki að eignast peninga. Mér fannst tillögurnar ágætar á meðan ég hlustaði á hann. Hugsaði með mér að reyna þetta, sem sagt næst þegar ég á afgangs tíuþúsundkall (hvenæar gerist það nú?)þá á ég að fara í bankann og leggja hann ínn á höfuðstól e-s skuldabréfsins míns. Af nógu er að taka. Strax í gær áskotnaðist mér auka sextánþúsundkall. Mín fyrsta hugsun var: "FR'ABÆRT ég fer og kaupi mér kjól fyrir þorrablótið." Svo datt mér ráð mannsins í hug og nú er ég á algjörum bömmer.

mánudagur, 13. janúar 2003

Kiddi kennari varð fimmtugur á laugardaginn. Meira hvað þessi tími líður. Við (nokkrir kennarar, vinir og kórfélagar ) ruddumst heim til hans um kvöldið með snakk og bjór og héldum veislu heima hjá honum. Hann var sem betur fer heima, það væri leiðinlegra ef hann hefði bara frétt þetta seinna. En ég held að hann hafi skemmt sér vel eins og við öll hin.
Sunnudagurinn hjá mér var að þessum sökum rólegheitadagur. Ég stend sem sagt ekki í neinum stórræðum daginn eftir svona dúndur. Ég held að þetta hafi e-ð með aldur að gera. Ef hin venjulega daglega rútína skekkist þá er ég ótrúlega lengi að jafna mig. Ég er t.d. búin að geispa alveg rosalega mikið í dag.
Mér finnst reyndar svona sunnudagar alveg frábærir. Þá ligg ég í bælinu eins lengi og mig lystir og horfi á hverja myndina á fætur annarri. Náði þremur í röð.

laugardagur, 11. janúar 2003

Þegar ég kom heim í gærkvöldi klukkan 23:30, eftir "ógeðslega"skemmtilegan fund hjá þorrablótsnefnd, bauð mín heimboð í hús nokkurt hér í bæ, þar sem boðið var upp á æriskoffí. Þar sem ég mundi þá skyndilega eftir því að ég hafði gleymt að fá mér eftirrétt í kvöldmat, þáði ég að sjálfsögðu þetta frábæra heimboð. Stóð heimsókn þessi fram yfir miðnætti við spjall og tónlist. Þegar Bó er settur á fóninn og kemur að laginu Ég bíð þín undir bláum mána, þá er partý.

föstudagur, 10. janúar 2003

Rotinpútuleg var ég í meira lagi er ég skreiddist heim að afloknum vinnudeg. Er það ekki svo mjög undarlegt sakir svefnleysis undangenginna nátta, ófögnuður sá er hefir mig hrjáð eigi allstutt. Beið mín beður minn mjúkur hver ég lagði mig í, tók mér í hönd sögu þá er nefnist Gunnlaugs saga ormstungu. Seig mér svefn á brá sem dugði ei minna en klukkustund. Gerðist ég þá þess albúin að lesa alla hina skemmtilegu sögu um ástir Helgu hinnar fögru og vonbiðla hennar. Mun ég að liðnum nokkrum vikum bjóða nemendum mínum í 8. bekk að njóta þessara sögu með mér. 9. bekkur fær hins vegar öllu óblíðari sögu, það er um kappann og ójafnaðar manninn Hrafnkel nokkvarn Freysgoða.Hef ég dálæti nokkurt haft á þeim þokkapilti um hríð vegna dugnaðar hans við að koma undir sig fótum að nýju eftir það sem í dag kallast gjaldþrot. Er hann mín fyrirmynd að því leyti.

fimmtudagur, 9. janúar 2003

Ég lít út eins og argintæta. Ég tók eftir því áðan að hárið á mér er orðið 5 cm of sítt. Ég sá það bara alls ekki síkka. Ég dreif í að panta klippingu og strípur. Ekki dugir að hafa músgráa háralitinn sem ég hlaut í vöggugjöf. Verð sem sagt sæt og fín aftur eftir helgi, ætla ekki að spegla mig þangað til.
Dave Jones er æðislegt krútt. Svava Rán er búin að fá myndir úr framköllun. Ég vona að hann sé jafn góðður og hann er sætur.

miðvikudagur, 8. janúar 2003

Það ku vera mörsugur núna samkvæmt gömlu tímatali. Mér fannst það skjóta skökku við þegar ég leit í spegilinn áðan. Það hefur engin mör sogast úr mér á síðustu vikum. Líklega hafa tímarnir e-ð breyst....hvur veit.
Mikið er ég fegin að það taka ekki allir jólaljósin niður á sama tíma. Mér finnst gott að sjá enn falleg ljós logandi hér og þar. Það verður svo dimmt ef allir slökkva í einu. Húrra fyrir jólabörnunum.....eða jólaljósunum..... eða ljósunum sem eru núna allt í einu ekki lengur jólaljós heldur heilsársljós. Það voru logandi ljós (jólaljós) á tveimir húsum í Þorlákshöfn í fyrra fram í ferbrúar og var mikið umrætt. Ég var alveg sannfærð um það að fleiri létu loga hjá sér núna og kannski hef ég rétt fyrir mér. Núna er umræðan allt önnur, nú finnst fólki þetta alveg sjálfsagt. Gaman hvernig fólk breytist og gaman að fylgjast með hvernig fólk reynir að eigna sér breytingar sem verða, til þess að fá viðurkenningu fyrir að hafa orðið fyrstur til e-s. Fólk lætur undan ósýnilegum þrýstingi og skiptir um skoðun af því það er auðveldara að vera í vinningsliðinu, berast með stramnum. Það er svo erfitt að vera öðruvísi og þurfa alltaf að réttlæta gjörðir sínar.
En skelfing dáist ég að þeim sem geta og þora.
Orðið tíska var til umfjjöllunar í 9. bekk í morgun. Þar kom fram að það gæti verið orsök eineltis að klæða sig öðruvísi en fjöldinn. Nemendum mínum fannst það líka helvíti hart að mega ekki vera öðruvísi, því sumir vilja það. Tískan er höfuðskepna og erfitt að berjast á móti henni.

þriðjudagur, 7. janúar 2003

Ja, hérna hér........ allt komið í fullan gang eftir jólafrí. Börnin koma bara fín undan jólunum, þokkalega tilbúin í slaginn. Byrjaði einu sinni enn á Gísla sögu Súrssonar í morgun, líklega í 13 eða 14 skiptið. Alltaf jafn gaman. Krökkunum óar við þessu í fyrstu en svo er þatta bara allt í lagi. Örugglega ekki vegna kennararns heldur vegna sögunnar. Sagan snertir tilfinningar, það gerir hana áhugaverða.
Ég byrjaði í gær á námsefninu fyrir Íslenska sem annað mál og ég er alveg glötuð í þessu. Enska sem annað mál fyrir mig er mér sem sagt ofviða. Ég er samt ekki alveg búin að gefast upp enn, reyni meira í dag og sé svo til.

sunnudagur, 5. janúar 2003

Allur gærdagurinn fór í námskeiðið Íslenska sem annað mál. Ég er mest hrædd um að ég eigi eftir að flosna upp úr þessu námi. Ég er svo andskoti vitlaus og heimsk að það er með ólíkindum. Ég held að ég ráði bara ekkert við alla þessa vinnu sem ég á að inna af hendi. Tvö væn verkefni núna í janúar og tvö önnur í febrúar eða mars og stórt rannsóknarverkefni sem á að skila í apríl. Allar greinar og bækur á ensku og ég sem þarf að glósa og glósa eins og hálfviti. Ég get samt ekki kvartað yfir því að heimilishald tefji mig. Það er bara vinnan sem tefur mig. Ég hef varla sett mat í pott í nokkur ár eða síðan Simmi fór að bera í mig afganga úr veitingahúsunum sínum. Ég ætla nú samt að byrja að lesa á morgun og sjá hvort ég sé eins vitlaus þá og ég er í dag. Mér finnst þetta nefnilega svo spennandi efni.
Sævar Berg, ömmustrákur Grétu systur, bauð mér í 7 ára afmælið sitt í gærkvöldi. Pottrétt og flott. Hann er grand á því drengurinn. Hann er mjög skemmtilegur strákur og kann fullt af bröndurum. Algjört uppáhald hjá mér.
Dúlla Jones er mætt á klakann og flogin austur á Höfn. Alsæl með dvölina í Wales og Dave Jones.
Ég er búin að eyða lunganu úr þessum degi í að undirbúa Þorrablótið. Það er nú einn hnúturinn í maganum sem ég þvælist með þessa dagana og hann stækkar og stækkar eftir því sem nær dregur þorrablótinu. Ég þarf að læra að segja nei. Ég reyni að muna það næst þegar ég er beðin um að gera e-ð sem gæti valdið magahnút.Ég ætla nú samt ekki að fara í þvílík niðurlút eins og hún Sara, þegar það gekk illa hjá henni að fá viðtal við Mandela. Ég verð bara að gjöra svo vel og standa mig.

föstudagur, 3. janúar 2003

Nú er ég hálfpartinn komin í gang. Það var staðbundin lota á nýju námskeiði í framhaldsdeild KHÍ í morgun og verður einnig á morgun. Þetta námskeið heitir Íslenska sem annað mál og er á braut sem heitir Menntun tvítyngdra barna. Verulega fróðlegt og skemmtilegt með tilliti til þess að við erum að sigla hraðbyri inn í fjölmenningarlegt þjóðfélag og verðum að vera í stakk búin til að taka því. Á ég þá við að við verðum að vinna bug á fórdómum og læra umburðarlyndi gagnvart hvert öðru.
Kötturinn og karlinn mjálma báðir á mat sinn og engar refjar....... vilja fá mig að borðinu..... maturinn tilbúinn...

fimmtudagur, 2. janúar 2003

Dagur rvö. Hálftómlegur líka. Líklega vantar núna þetta venjubundna, vakna, fara í skólann, borða á réttum tíma, undirbúa næsta dag, koma heim mátulega þreytt að afloknum vinnudegi, glápa á imbann og svo í háttinn. Já, það verður fínt þegar þetta líf fer að rúlla.

miðvikudagur, 1. janúar 2003

Nýársdagur er svo undarlega tómlegur dagur. Það er eins og nýja árið tregðist við að koma. Ég veit að þessi tilfinning varir ekki lengi því áður en maður veit er árið liðið og enn eitt gengið í garð. Árin fljúga áfram. Tíminn er nú samt afstæður. Ein mínúta getur verið eins og heil eilífð og heil eilífð eins og mínúta. Þetta sannaðist í gærkvöldi þegar ég sprengdi (eða fékk hjálp við að sprengja) tertuna mína sem ég eyddi stórfé í. Það tók hana 55 sekúndur að fuðra upp. Hún var mjög falleg, en að fara svona með fjármuni sína skil ég ekki alveg sjálf. Nágrannarnir voru í 40 mínútur, stanslaust, að sprengja allar terturnar og flugeldana sína. Mínar 55 sekúndur voru ansi hjákátlegar á miðað við það. Ég tala nú ekki um peningana, en það kemur mér ekkert við.
Skaupið fannst mér skemmtilegt, verst að þeir tíma ekki að endursýna það, en e-r tók það upp. Ég ætla að reyna að sjá það aftur, til þess að vera viðræðuhæf við nemendur mína eftir nokkra daga, því reynsla mín er sú að krakkar læra utanað ýmsar setningar úr svona skemmtiþáttum og þá er betra að geta verið með. Já, það styttist í að skólinn byrji aftur. Ég á reyndar að mæta á föstudag til undirbúnings en einnig í staðbundna lotu í KHÍ, föstudag og laugardag. Ég fæ frí úr skólanum til að mæta í Kennó. Hlakka reyndar mjög til, því ég á von á að fá einkunnir úr tveimur verkefnum frá síðustu önn. Ef ég hef náð ætti ég að fá launaflokk í kauphækkun, mig vantaði sem sagt 2,5 einingu upp á 30 einingar í Háskólanámi til að hækka. Tók 27,5 einingar árið 1987-88 í HÍ og það kom mér í koll við síðustu kjarasamninga að hafa ekki druslast þá við að taka 30. Hvernig átti ég að vita það???????
Talaði bæði við Ameríku og Wales í gærkvöldi. Svava Rán fór með Dave Jones flott út að borða og svo á pöbb samkvæmt Welskum sið. Hitti vini hans og skemmti sér mjög vel. Var ekki tilbúin í háttinn þegar pöbbinn lokaði en Walesbúar vissu ekki hvað hún meinti með eftirpartýi. Voðalega eru þeir eftirá..... eða erum við rugluð?
Kolbeinn hlakkaði rosalega til að sprengja flugeldana sem þeir feðgar keyptu á leiðinni til Cleveland. Hann hefur ekki séð flugeldasýningu í tvö ár. Flugeldar eru bannaðir í Iowa. Hann lýsti búðinni fyrir mér þar sem flugeldarnir voru keyptir. Þetta var svona "warehouse" eins stórt og Hagkaup eða eins og 15 Bónusbúðir á Selfossi. Flugeldar og tertur frá gólfi og upp í loft. Það er nú eins og það er, það er allt svo stórt í Ameríku.

þriðjudagur, 31. desember 2002

Síðasti dagur ársins. Ég verð alltaf svolítið döpur. Fer meira að segja að háskæla á miðnætti. Ræð bara ekki við það. Mér finnst svo sorglegt þegar árið hverfur af sjónvarpsskjánum að ég bara hreinlega græt. Dóttir mín hefur erft þetta frá mér. Við stöndum venjulega saman og grátum og syngjum svo í gegnum tárin Nú árið er liðið... Í kvöld ætlum við að vera saman í gegnum símann. Hún á hinu Stóra- Bretlandi, ég heima hjá Grétu og Gunnari. Þar hittist stórfjölsyldan öll, þ.e.a.s. þeir sem möguleika hafa á því og borðar saman og horfir á skaupið. Ekki sleppum við brennunni, það er nú veðrið til þess að vera úti. Ég verð svo að hringja tvisvar í Kalla, fyrst þegar nýja árið gengur í garð á Íslandi og svo aftur fimm tímum síðar þegar árið 2003 kemur yfir hina stóru stóru Ameríku. Eftir grátinn tekur flugeldabrjálæðið við. Ég held mig nú venjulega til hlés en nú er ég, aldrei slíku vant, tilbúin í slaginn, keypti mér tertu á 3950 krónur hjá Kiwaniskörlunum og meters löng stjörnuljós. Ég á líka heilan pakka af Bengaleldspýtum og það veit á gott, þeim hefur alltaf fylgt e-ð fjör og grín. Ég á eftir að minna Grétu á það. Kampavínið tekur svo við af flugeldunum. Og svo heilt nýtt ár....... Hvað skyldi það bera í skauti sér?

mánudagur, 30. desember 2002

Ljúft gærkvöldið. Eftir tónleikana hjá Diddú fórum við með Öldu og Valda í bæinn, fengum okkur drykk á Café List, pizzu á Ítalíu og aftur drykk á Oro. Við erum bara svolítið sveitó, við erum svo snemma á ferðinni að það er engin traffík byrjuð. Okkur er svo sem alveg sama, erum meira fyrir rólegheitin.
Hringdum í Dúllu Jones. Allt í sælu hjá henni þarna úti í Wales.
Kalli og familía hefur það líka huggulegt í Cleveland.
Það er lítið að gera í Króniku í dag eins og annars staðar. Ég er þar stödd núna, var að tengjast netinu í Króniku. Verst hvað tölvan hér er mikill forngripur, orðinn þetta þriggja ára gömul. Ætli ég fari ekki að klára uppvaskið og ganga frá og fara svo heim í smá hvíld. Góð hugmynd.

sunnudagur, 29. desember 2002

Það var gaman að hlusta á Milli mjalta og messu í morgun. Maggnús vinur minn Víkingur var viðmælandi Önnu Kristínar. Hann gæti talað í 15 svona þáttum, hann átti eftir að segja svo margt frá lífi sínu. Ég fór að pæla í ýmsu eftir viðtalið, því hann minntist á hann Simma minn án þess þó að nefna nafnið hans. Simmi bauð í Norræna skólasetrið á sínum tima og Maggi kom í það dæmi ásamt öðrum. Það rætast allir draumar Simma en bara ekki í hans höndum. Hann átti stóra drauma um þetta hótel en fékk ekki að láta þá rætast. Hann átti líka stóra drauma um fiskvinnslu. Hann var langt á undan sinni samtíð hvað það allt snertir. Í dag er verið að gera hlutina eins og hann vildi að þeir væru fyrir ca. 10 -15 árum. T.d. öllum fiski landað á fiskmarkað, fiski pakkað í neytendaumbúðir, frosinn fiskur þýddur upp og klárað að vinna hann hér heima, svo e-ð sé nefnt. Þessir draumar kostuðu okkur mikið. Allar veraldlegar eigur fóru í hítina. Það var mikil lífsreynsla sem við komumst líklega aldrei yfir. En það þýðir ekki að gráta Björn bónda heldur safna liði og...............
Við fengum okkur langan göngutúr áðan, verst hvað er hált á götum úti. Hittum svo í mýflugumynd þær mæðgur Ástu og Dóru Sif, þær voru komnar í mat hjá Siggu og Kalla. Dóra Sif vinnur í Brussel en þær mæðgur voru hjá Hrefnu og fjölskyldu í Róm um jólin.
Það stendur til að fara og hlusta á Diddú syngja á eftir og hver veit nema maður sleppi eldamennskunni og fái sér e-ð gott að borða á e-m góðum stað í höfuðborginni á eftir.
Ég er búin að létta á hjarta mínu fyrir daginn í dag og það fór ekki út á netið. Hvað er að ske?

föstudagur, 27. desember 2002

Yndislegir svona dagar eins og dagurinn í dag. Það var lokað í Kjarna Mosó svo við vorum bara heima og nutum þess. Það besta sem ég veit er að þurfa ekki að fara á fætur snemma, heldur vakna, lesa, sofna, vakna, horfa á mynd (t.d. þessa sem ég sofnaði yfir kvöldið áður) sofna, vakna, dúlla við kallinn, fara mjög seint á fætur og lesa meira og láta daginn líða svona í indælis ró. Er búin með Nafnlausa vegi Einars Más og er núna að lesa Tilhugalíf Jóns Baldvins. Lofar góðu. Dúlla Jones var að hringja frá Wales og hún er himinlifandi með lífið og tilveruna. Borgin sem hún er í er æðisleg að hennar mati. Hún hélt að þetta væri e-r Trékyllisvík en reynist svo vera heimkynni tvöhundruðþúsund manna. Kötturinn Lanselot Ferguson býr hjá okkur um þessar mundir. Hann borðar lítið, kannski að hann sakni Dúllu svona mikið, en hann sefur ,,í millinu" hjá okkur Simma og malar svo hátt að hann minnnir á traktor.Nafnið Ferguson passar því vel. Hét ekki traktorinn í sveitinni Ferguson? Mig minnir það.

fimmtudagur, 26. desember 2002

Ég er heldur betur búin að meðtaka guðsorð þessi jólin, búin að syngja í þremur messum. Þorlákskirkju á aðfangadagskvöld, Hjalla á jóladaga og Strandarkirkju í dag, annan í jóllum. Við fórum hjónakornin frekar snemma á fætur í dag, eða um sexleytið í morgun, en það var til þess að keyra Dúllu Jones ,, í veg fyrir flug" (eins og Reyðfirðingar segja). Pían er bara flogin til London á vit ævintýranna. Á Heathrov tók Dave Jones á móti henni og eru þau á þessu augnabliki í bíl á leið til Wales. Heima á Íslandi bíður fjöldi fólks eftir að heyra ferðasöguna hennar. Þá eru sem sagt allir afkomendur okkar Simma á erlendri grundu. Við höfum nú alltaf getað haft ofan af fyrir hvort öðru svo það er í lagi þess vegna. En ég vildi nú geta knúsað barnabörnin mín oftar. En á meðan allir eru hraustir er allt gott.

miðvikudagur, 25. desember 2002

Hátíðleg var hún jólamessan í gærkvöldi og séra Baldur góður eins og venjulega. Ég veit ekki hvernig söngurinn var hjá okkur, hef ekki fengið neitt ,,komment" á það. Við höfðum það huggulegt heima hjá okkur, borðuðum á okkur göt, drógum eins og við gátum að taka upp pakkanna, því þeim fækkar alltaf, lásum kortin og hlustuðum á fallegan söng í sjónvarpinu. Skruppum svo í jólakvöldkaffi hjá Grétu systur, þannig að það lak út um götin frá því fyrr um kvöldið. Kalli hringdi svo frá Ameríku og þau hafa það gott hjá vinum í Cleveland. Hann var 10 tíma að keyra þangað, Nanna svaf heilmikið á leiðinni og Kolbeinn lék sér í fartölvunni.
Ég las svo langt fram á nótt Nafnlausa vegi Einars Más. Hann klikkar ekki núna frekar en fyrri daginn.

þriðjudagur, 24. desember 2002

Jólasiðirnir mínir eru farnir veg allrar veraldar. Þegar maður fer á svona flakk eins og við hjónin gerðum hérna um árið, breytist allt. Við vildum helst bara vera úti á Kanarí eða e-s staðar á flakki. Það var ekki hægt þetta árið. Við seldum á annað hundrað skötuskammta á Króniku í gær. Ekki gátum við sleppt því. Frá jólum 1996 hefur allst breyst. Við höfum síðan þá haldið jól á Reyðarfirði, hjá foreldrum í Þorlákshöfn, Kanarí, Akranesi, Reykjavík og Ameríku. Gömlu jólin farin. Við ætlum ekki einu sinni að hafa jólatré í ár. Ég er að reyna að líta á þetta sem þroskamerki að geta breytt um stíl en ég finn núna að þegar jólahelgin færist hægt og hljótt yfir að mig vantar e-ð af þessum gömlu siðum mínum. Það er erfitt að kenna gömlum hundi að sitja. Ég býst samt við að þegar upp er staðið þá skipti þetta engu máli eða eins og Trölli sagði þá koma jólin borðalaus, þau koma gjafa- og jólasveinalaus.

mánudagur, 23. desember 2002

Í dag á frumburðurinn minn afmæli. Hann Kalli minn fæddist fyrir 31 ári síðan. Ég get ekki kysst hann til hamingju mað afmælið því hann er svo langt í burtu. En við spjölluðum í síma áðan, alveg yfir allt Atlandahafið, en það þykir nú ekki merkilegt í dag. Fyrstu jólin okkar Kalla, vorum við saman á fæðingardeildinni. Í þá daga fengu mæður ekki að fara heim að aflokinni fæðingu, heldur þurftu þær að liggja sængurleguna í nokkra daga. Við vorum á Fæðingarheimili Reykjavíkur í góðu yfirlæti. Pabbi hans bara heima í Þorlákshöfn, bíðandi eftir okkur. Kalli var mikill grallarspói fyrstu árin, oft kallaður Speedy Gonsales, því hann var ansi snar í snúningum. Þurfti mikið að pæla í lífinu og tilverunni allri. Sjö ára gamall grét hann yfir eyðingu regnskóganna og hann hefur (held ég ) ekki enn fyrirgefið þeim sem taka sand úr Lambafelli í Þrengslunum, því fjallið er að skemmast að hans mati. Núna er hann að gera rannsóknir á rottuungum, sem oftast lifa rannsóknina ekki af. En það sem að lokum kemur út úr rannsóknunum verður okkur hinum vonandi til góðs.
Meiri snyrtipinni en Kalli finnst varla á byggðu bóli en því var ekki að heilsa þegar hann var krakki. Þegar hann og vinir hans komu heim úr e-m rannsóknarleiðangrinum báru þeir þess merki að hafa þurft að fórna fatnaði og fleiru fyrir rannsóknina en enginn var eins skítugur og Kalli. En þá leið honum best, þegar atið var sem mest. Á unglingsárunum snerist dæmið hins vegar við, honum fannst hann aldrei vera nógu hreinn. Fór í sturtu jafnvel þrisvar á dag og hafði jafn oft fataskipti. Grunnskólanámið fannst honum ekki merkilegt, sinnti því nánast ekkert. Menntaskólanámið tók hann um leið og hann djammaði í höfuðborginni. En það er löngu sannað mál að um leið og börn sleppa frá foreldrum sínum fara þau út á lífið, sama hver aldurinn er. Það var fyrst þegar hann settist í Háskólann sem hann tók námið alvarlega. Þá var piltur líka búinn að ná sér í konu og orðinn faðir. Hann gaf mér ljósið mitt hann Kolbein 1996 og sonardóttur, hana Nönnu, 2000. Hún er búin að vera í Ameríku síðan hún var tveggja mánaða.
Í dag er þessi uppáhaldssonur minn vísindamaður úti í hinum stóra heimi en er samt sem áður enn að gera rannsóknir, eins og forðum, til þess að skilja lífið og tilveruna aðeins betur.
E f honum tekst að verða doktor í ,,lífeðlislegri sálarfræði" (eða hvernig sem væri best að þýða titilinn) á hann skilið að fá stóra medalíu, þó ekki væri nema fyrir það að hafa komist í gegnum þá þrekraun að fara út á sínum tíma með fjölskylduna, keyra til Iowa í 10 klukkutíma,finna íbúðina, kaupa bíl, koma sér fyrir, byrja í skólanum, sinna fjölskyldunni, þola 40 stiga hitann og halda geðheilsunni. Geri aðrir betur. Ég segi eins og Jón Baldvin í nýútkominni bók hans: ,,Bestu stundirnar sem ég á er þegar ég get setið með börnunum mínum, gjarnan með rauðvín í glasi og spjalla við þau og reyni að skilja hvað þau eru að hugsa."

fimmtudagur, 19. desember 2002

Æ, hvað ég var stolt af englunum mínum í 8. bekk í gærkvöldi. Þeir stóððu sig svo vel í stykkinu sínu á jólakvöldvökunni. Ég var aftur ekki eins ánægð þegar ég leit inn í stofuna okkar, sem breyttist í búningsherbergi, að afloknum skemmtiatriðum og jólaballi. Það er ótrúlegt hvað hægt er að búa til mikið drasl úr engu. Ég mátti í morgun týna saman rusl í heilan svartan ruslapoka. En ég ætla ekki að skamma neinn, það eru jú að koma jól, og þá verður maður svo góður innan í sér.
Ég fór í Dugguna í hádeginu, eins og flesta fimmtudaga. Þar hittast alltaf nokkrar konur og fá sér súpu og salat og spjalla saman. Konur sem hittast annars ekki svo mjög oft. Mér finnst þetta fín samkunda, því þarna næ ég annars konar púls á samfélaginu heldur en dags daglega upp í skóla. Í dag fengum við pastahlaðborð í tilefni þess að nú eru að koma jól og við hittumst ekki aftur fyrr en á nýju ári. Vegna þess að nú þurfti ég ekki að fara í kennslu kl. 13:00, eins og venjulega, fékk mér eitt hvítvínsglas með. Þetta var notaleg stund og skemmtileg.

miðvikudagur, 18. desember 2002

Þá er jólakvöldvakan í kvöld. Nemendur mínir búnir að æfa vel Þegar Trölli stal jólunum með nútíma ívafi. Þegar það er afstaðið er bara tiltekt eftir. Morgundagurinn fer í það. Kertadagur á föstudag og svo jóóóóllllllaaaaafffrííí. Já, ég segi, það eru forréttindi að vera kennari. En skrambi er maður nú orðnn þreyttur. Hvernig ætli standi á því? Kannski gefur maður meira af sér í kennslu en í annarri vinnu. Það skyldi þó aldrei vera.

þriðjudagur, 17. desember 2002

Í dag er afmælisdagurinn hennar Svövu Ránar minnar. 28 ár síðan hún kom í heiminn. Fædd á Selfossi að viðstöddum pabba hennar. Í þá daga máttu konur ekki fara heim af fæðingardeildinni fyrr en sængurlegu lauk þ.e. 6-7 dagar. Við fórum heim á Þorláksmessu. Hún varð fljótt altalandi en gat í fyrstu ekki sagt Svava Rán, hún sagðist heita Bla Blán. Við bættum blúnda við það nafn- Bla Blán Blúnda- það passaði rosa vel við hana. Hún varð fljótt mikil dama og gekk í kjólum öll fyrstu árin. Hún eignaðist marga góða vini í hverfinu sem við bjuggum í. Það voru krakkar í næstum öllum húsum á Kléberginu og næstu götum. Enda fannst henni lífi sínu lokið þegar við fluttum alla leið út í Básahraun þegar hún var 8 ára. Við, foreldrar hennar, vorum sem sagt að flytja svo langt í burtu með hana frá öllum vinum að nú gat hún ekki lengur leikið sér við neinn að hennar mati. Hún lagðist þá upp í sófa með góða bók, enda orðin fluglæs, og liggur þar enn. Ísfólkið var í miklu uppáhaldi hjá henni í fyrstu en síðan breyttist bókmenntasmekkurinn og nú les hún heimsbókmenntir ásamt ævintýrabókum ýmiss konar. Hún hefur nú margt brallað um dagana. Tekið sér frí frá námi til að skoða heiminn og lært í útlöndum. Nú var hún um daginn að skila (loksins) BA ritgerð sinni í ensku og svo ætlar hún kannski að ná sér í kennsluréttindi og verða kennari eins og mamma. Hún er reyndar búin að kenna í tvö ár í grunnskóla og er núna framhaldskólakennari á Höfn. Jólin ætlar hún að halda hjá mömmu og pabba og tekur auðvitað köttinn Ferguson með sér en um áramótin ætlar hún að vera í Englandi hjá Dave vini sínum. Betri og skemmtilegri dóttir er ekki hægt að hugsa sér.

mánudagur, 16. desember 2002

Það styttist í jólafrí (ein ástæðan fyrir því að maður er kennari, segja þeir sem halda að þeir séu gárungar). En það verður nú lítið um frí hjá henni mér. Honum Simma mínum finnst nú ekkert leiðinlegt að hafa mig hjá sér á Café Króniku. Ég get svolítið hjálpað til þar. En það er málið, hann hefur opið næstum því endalaust á kvöldin alla daga til jóla. Það er eins gott að fólk komi og éti og drekki og borgi fyrir það fullt af peningum. Það verður auðvitað skata á Þorláksmessu og það væri nú ekki slæmt ef við seldum prósentulega jafn marga skammta og við gerðum fyrir austan á Tærgesen. 10% bæjarbúa á Reyðarfirði borðuðu skötu hjá okkur á Þorláksmessu. Þar bjuggu þá 640 manns og 70 borðuðu hjá okkur. Hvað ætli búi margir í Mosfellsbæ? Ég bara spyr.

sunnudagur, 15. desember 2002

Ég er ekki alveg að fatta þetta (þetta orðatiltæki var ekki til í mínu ungdæmi, ég lærði þetta af nemendum mínum) með tímann. Ég á jólasvein sem hjálpar mér að telja dagana til jóla. Ég skipti um tölu á honum á hverjum degi. Ég get svarið það að ég skipti orðið oftar um tölur á karlinum heldur en næturnar sem ég sef. Ætti samt að haldast í hendur. Tíminn líður sem sagt hraðar en ég lifi. Sem hlýtur þá að segja mér að ég eldist hægar. Það er nú bara hið besta mál.

föstudagur, 13. desember 2002

Sagan um hann Trölla sem stal jólunum er búin að vera í uppáhaldi hjá mér síðan hún kom út á íslensku, en það er nú ansi langt síðan. Ég er búin að nota hana sem jólasögu á kertadegi í skólanum hjá nokkuð mörgum árgöngum og núna ætlar bekkurinn minn að uppfæra þetta á svið á litlu jólunum. Þá þurfti nú gamla aðeins að setja sig í stellingar því krakkarnir þekkja The grinch betur en faðir vorið og vilja stæla Jim Carrey. Það tel ég nú að sé frekar erfitt. Hann er einn einstakur. Mér finnst boðskapurinn koma vel fram í ljóðunum en hvað gerir maður ekki fyrir nemendur sína. Ég er búin að sitja við og sjóða saman ljóðin við myndina eftir tilsögn frá nemendum og nú er þetta orið hálftíma stykki með 33 leikurum. Ég hef þrjá daga til að æfa. Hvenær er maður ekki með hnút í maganum? Maður kemur sér alltaf í nýrra hnúta aðstöðu um leið og einn hnútir leysist. Þetta er ekki heilbrigt.

fimmtudagur, 12. desember 2002

Það varð aldrei albjart í dag. Þetta er nú meiri drunginn. Ég segi svona, það er ekki það að það fari neitt í taugarnar á mér. Mér finnst myrkrið ágætt. Það er besta afsökun fyrir því að vera bara heima hjá sér og gera ekkert nema það sem mann langar til. Lesa góða bók, prjóna, horfa á sjónvarpið eða gera eins og mér finnst best, ekki neitt. Bara sitja í góðum stól og hugsa. Ég er það skemmtileg manneskja að ég get verið ein með sjálfri mér. Geri aðrir betur.

miðvikudagur, 11. desember 2002

Litla stelpan mín er komin með veiki sem heitir óþolinmæði. Ég held hún sé bara alveg að fara á límingunum. Hún hlakkar svo rosalega til jólanna að hún getur vart beðið. Þegar hún var lítil og enn í föðurhúsum gat ég nú huggað hana og sefað aðeins en nú á tímum tækninnar fara samskiptin í gegnum netið eða símann. Stundum vildi ég að tölvan hefði hlýjar alltumvefjandi hendur sem gætu tekið utan um þann sem manni þykir vænt um. Nei, annars, það er hálf óhuggulegt. Ég verð að bíða róleg þar til tuttugasta, þá kemur þessi elska suður (eða öllu heldur vestur) til mömmu og pabba en það er líklega ekki það sem hlökkunin er mest til. Hún er alltaf að tala um einhvern Dave......

þriðjudagur, 10. desember 2002

Ertu búin að öllu fyrir jólin? Þetta klingir alls staðar. Hvað á fólk við? Kaupa föt, kaupa mat, kaupa gjafir ? Kaupa og kaupa? Gera allt hreint, baka , mála, leggja parket, skrifa jólakort, hengja upp skraut, keppa við náungann um sem flestar útiljósaseríur? Mér finnst ég ekki gera neitt sérstakt. Koma jólin þá ekki til mín eða hvað?
Þessi elska sem ég er búin að skúra hjá í yfir 30 ár kom heim um daginn með óvænta gjöf. Það gerist einstöku sinnum. Núna var það svartur gellukjóll!!!!!!! Mig vantaði ekki svartan gellukjól en það er jú hugurinn sem fylgir gjöfinni en ekki gjöfin sjálf sem er aðal málið. Kjóllinn er úr örþunnu svörtu efni sem klessist við líkamann þannig að hver einasta aukabunga, felling eða spikarða sést, jafnvel appelsínuhúðin kemur í gegn. Og ekki nóg með það heldur er ekki hægt að nota brjóstarhaldara undir kjólinn, því bakið er bert og um hálsinn er band eins og á gömlum sundbol. Þannig að......... sorrý Stína, kjólnum var skilað. Nú er ég mikið að pæla í því hvort þessi áður nefnda elska vill að ég sé svona gella og reynir að gera mig að henni með vissum klæðaburði eða hvort honum finnst ég gella sem gæti alveg borið svona kjól.........

föstudagur, 6. desember 2002

Kominn föstudagur, skólavikan búin, og ég var að senda síðasta verkefni mitt í framhaldsnáminu til kennarans míns. Mér líður eins og þessum fræga frjálsa fugli sem flýgur áhyggjulaus um loftin blá. Frábært.Nú er hægt að rölta heim og fara að hugsa um jólin. Þarf að klára að útbúa pakkann sem fer til Ameríku, ekki seinna vænna. Sko, það er alltaf eitthvað sem bíður manns. Sem betur fer.
Ég skrapp í bæinn þ.e. Mosó í gærkvöldi til að kíkja á jólahlaðborðið hjá honum Simma mínum á Café Króniku og það var svo huggulegt hjá honum, skemmtileg stemmin, lifandi músik og jólalegt. Hann verður með þetta aftur í kvöld og ég vildi að ég kæmist aftur en það er skólanefndarfundur sem ég verð að fara á, sko aðallega út af veitingunum sem verða. Skemmtilegir strákarnir á Kleifarberginu. Þeir lýsa jólaundirbúningi alveg eins og hann var á mínum bæ á meðan Simmi var sjóari...eða hvað, hefur hann breyst eitthvað ... þarf að pæla í því....

fimmtudagur, 5. desember 2002

Mikið lifandis skelfingar ósköp sakna ég barnabarnanna minna. Ég hef ekki séð Nönnu síðan í mars, þegar fjölskyldan heimsótti gamala Frón í nokkra daga og Kolbein hef ég ekki séð síðan í ágúst en hann fékk að vera hjá okkur Simma í einn mánuð í sumar. Það er í raun ekki erfitt að telja þá fáu daga sem ég hef verið í námunda við litlu krúsindúlluna hana Nönnu. Hún var aðeins tveggja mánaða þegar hún flutti af landi brott með foreldrum sínum. 'Eg skrapp til þeirra til IOWA í ágúst í fyrra, og aftur um jólin og þá fengu Simmi og Svava Rán að koma með mér og svo hitti ég litla ömmuljósið í mars sl. Það blæðir stundum ömmuhjartað. Ég hugsa auðvitað til þeirra á hverjum einasta degi og oft á dag en ég fékk svo mikin kipp í ömmuhjartað í morgun þegar ég mætti til vinnu .Það fyrsta sem ég heyrði var : "Komdu sæl" á svona líka hressandi og kraftmikinn hátt en samt lítil barnsrödd sem mælti. Þarna var mætt í skólann með ömmu sinni og afa, hún Kolfinna Katla dóttir Rannveigar. Hún er nú algjör dúlla og af því að það var létt yfir kennslunni í morgun þá fékk hún að fara með í 9. bekk og ég fékk að halda á henni í fanginu í 20 mínútur eða svo. Það var ósköp ljúft. En hvenær fæ ég næst að halda á ekta ömmuljósunum mínum?

miðvikudagur, 4. desember 2002

Ég er alveg i rusli núna eins og tölva mín. Hún hefur yfir 100 vírusa og líklega allt ónýtt í henni. Það er alveg rosalegt mál. Er nokkuð skrítið að ég sé í rusli ? Ég gerði mér ekki grein fyrir því í alvöru hvað ég er háð tölvunni fyrr en hún var farin í viðgerð. Ég geri alla matseðla fyrir Simma í henni og prenta út reikninga. Ég bý til alls konar kennsluefni fyrir mig, Ég er í fjarnámi í Kennaraháskólanum og þarf að nota spjallrás þar (Web CT) og ég þarf a skila stórri ritgerð á föstudag og er náttúrulega ekki byrjuð að skrifa vegna þessara vandamála með tölvuna. Svo spjalla ég við dóttur mína hana Svövu Rán á MSN spjallinu og hana Elsu tengdadóttur mína sem býr í Ameríku. Það er frábært að geta hitt þessa elskur svona óvænt á spjallrásum. Stundum kemur það sér mjög vel. Svo er eitt sem ég gleymi í sambandi viðtölvuna, það er einkabankinn, hvernig á ég að fara að næstu daga? Mér er spurn?

mánudagur, 2. desember 2002

Þegar aðventustundin í Þorlákskirkju var búin í gær, (ég söng náttúrulega með kórnum mínum) þá var kveikt á jólatrénu á "Ráðhústorginu" en af því við hjónakornin erum hætt að trúa á jólasveinana og erum löngu orðin barnlaus, þá fórum við ekki á þessa uppákomu heldur renndum við við hjá Öldu og Valda til að draga þau með út að borða. Þau voru byrjuð að elda kvöldmatinn en hættu bara við og komu með okkur Simma á Eyrarbakka, í Rauða húsið. Það er svona ljómandi huggulegur staður í gömlu húsi, góð þjónusta og frábær matur. Rosalega vantar okkur svona stað hér í Þorlákshöfn, fólk vill gjarnan geta skroppið svona af og til, fengið sér góðan mat og vín með en þá er alltaf þetta sama vandamál, hver á að keyra? Það er líka annað vandamál, við eigum ekkert gamalt hús hér í Höfninni sem hægt væri að nota sem veitingastað. Það er erfiðara að ná upp réttri stemmingu í nýju húsi, svo skrítið sem það nú er. Hannes og Þórhildur á Hrauni eru reyndar að byggja veitingahús við brúarsporðinn á 'Oseyrarbrú. Það bíða allir spenntir eftir að sá staður opni. Ég hef heyrt því fleygt að fólk sé byrjað að panta borð og ekki bara það, heldur vill fólk eiga sín föstu sæti í salnum, þar sem sést best út á hið opna haf. Hvort það verður hægt að eiga föst sæti veit ég ekki, það kemur í ljós.